Morgunblaðið - 11.02.2020, Síða 27

Morgunblaðið - 11.02.2020, Síða 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2020 Hinar ýmsu nefndir innan KSÍ virðast ekki hrifnar af þeirri tillögu Skagamanna að fjölga lið- um í úrvalsdeild karla í fótbolta úr tólf í fjórtán og þaðan upp í sextán á næstu tveimur árum. Bæði fjárhags- og endur- skoðunarnefnd og mótanefnd KSÍ hafa gert athugasemdir við tillöguna og síðar í þessari viku mun starfshópur KSÍ um mögu- lega lengingu Íslandsmótsins kynna sína afstöðu í málinu. Fram hafa komið áhyggjur af því að málið sé ekki hugsað nægilega vel, hvaða áhrif breyt- ingarnar myndu hafa á fjárhag og mannafla KSÍ, vandkvæði vegna leyfiskerfis, hvort fjöldi dómara standi undir þessari fjölgun leikja og fleira í þeim dúr. Ég hef áður nefnt á þessum stað að betra væri að fjölga leikj- um en liðum og nefndi m.a. það sem álitlegan kost að bæta einni umferð milli sex efstu og sex neðstu liða við núverandi tólf liða deild, þannig að liðin myndu spila 27 leiki hvert. Þá fengjum við hörkuleiki innbyrðis á milli efstu og neðstu liða á síðustu vikum mótsins. Kannski er besta lausnin sú að fækka liðunum á ný niður í tíu og spila þrefalda umferð, 27 leiki á lið, en þá yrðu heildarleikirnir álíka margir og þeir eru í dag. En ég hef ekki orðið var við miklar umræður um hvort rétt sé að fjölga liðum og/eða leikjum í úrvalsdeild kvenna. Þar er þó jafnvel ennþá meiri þörf á fleiri verkefnum fyrir leikmennina þar sem mun fleiri landsliðskonur en landsliðskarlar leika með ís- lenskum félagsliðum. Átján leikir á Íslandsmóti er fulllítið ef við ætlum að halda landsliðskonunum í nægilega góðu leikformi til að geta haldið áfram að gera til þeirra þær kröf- ur að þær komist í lokakeppni stórmótanna. Þurfa þær ekki annaðhvort tólf liða deild með 22 leikja Ís- landsmóti eða fækkun liða og þrefalda umferð? Þar sem kröfur til valla og dómara eru ekki eins stífar og hjá körlunum ætti fjölg- un þeim megin að vera minna vandamál fyrir hreyfinguna. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is HANDBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is Morgunblaðið spurði Lovísu Thomp- son, landsliðskonu í handknattleik, að loknum leik HK og Vals á laug- ardaginn hvort hún væri ekki farin að leggja drög að því að halda utan í atvinnumennsku í náinni framtíð. Lovísa fór hamförum í leiknum og skoraði 14 mörk. Eins og sjá má í samantekt hér til hliðar er hún orðin sú þriðja markahæsta í Olísdeildinni. Þótt ung sé að árum hefur hún unnið það sem er í boði hér heima. Lovísa var óvenjuung þegar hún fór að láta að sér kveða í meistaraflokki enda var hún enn í skyldunáminu í grunnskóla þegar hún skoraði sig- urmark Gróttu á Íslandsmótinu árið 2015. Hún er á sínu sjöunda tímabili í efstu deild og hefur skorað 657 mörk í 167 leikjum. „Mig langar að fara í atvinnumennsku og horfi út en það er ekkert í vinnslu núna. Samn- ingur minn við Val rennur út í vor og því er aldrei að vita hvað gerist. Ég er opin fyrir öllu.“ Meistari með tveimur liðum Lovísa er óvenjureynd á hand- boltavellinum miðað við aldur. Fyrir utan sigra með tveimur liðum bæði á Íslandsmótinu og í bikarkeppninni þá hefur Lovísa verið í A-landsliðinu undanfarin ár og var í U20 ára lands- liðinu sem komst á HM í Ungverja- landi 2018. Að því móti loknu var hún nefnd sem ein af tuttugu von- arstjörnum í íþróttinni á heimasíðu Evrópska handknattleikssambands- ins en hún er fædd 1999. „Maður er eins og gömul kempa þegar maður er bara tvítugur. Sem er mjög skrítið en það er eitthvað til í því,“ sagði Lovísa og hló. Hún er sammála því að ný áskorun gæti ver- ið heppileg á næsta tímabili eftir sjö ár í efstu deild hér heima. „Eins og þú segir þá fer að koma að því að maður þurfi á breytingu að halda. Kannski þarf maður að kom- ast í umhverfi þar sem hafa þarf enn meira fyrir hlutunum. Ég stefni að því ef gott tækifæri býðst. Mig lang- ar ekki að fara til útlanda bara til þess að fara. Ég bíð eftir góðu til- boði,“ útskýrði Lovísa. Í góðum höndum á Hlíðarenda Spurð um hvort hún sé með um- boðsmann til að sjá um sín mál segir Lovísa að það sé í skoðun. „Já, það er til skoðunar en ég er svo sem róleg yfir þessu eins og er. Danmörk heillar mig mest sem fyrsta skref erlendis og mögulega Noregur. Síðar væri hægt að fara í sterkari deild eins og þá frönsku,“ sagði Lovísa og tekur það fram að hún sé í góðum höndum hjá Val. „Á meðan reyni ég að bæta mig og hjá Val er gott umhverfi til að gera það. Gústi [Ágúst Jóhannsson] er ótrúlega góður þjálfari og Bubbi [Hlynur Morthens] markmanns- þjálfari er með honum. Við erum einnig hjá Óskari Bjarna [Ósk- arssyni] á séræfingum. Ég er því hjá góðu félagi sem er örugglega besta alhliða félagið á Íslandi. Á meðan ég er hjá Val er þetta í lagi en sá tíma- punktur mun koma þar sem ég þarf að skoða eitthvað annað. Ég er í sál- fræði í háskólanum en það heldur mér ekki hér heima því ég gæti örugglega tekið það í fjarnámi að einhverju leyti,“ sagði Lovísa Thompson í samtali við Morg- unblaðið. „Gömul“ kempa um tvítugt  Lovísa Thompson er farin að velta atvinnumennskunni fyrir sér  Anar þó ekki að neinu heldur bíður eftir góðu tilboði  Danmörk gæti verið góður kostur Morgunblaðið/Eggert Reynsla Lovísa Thompson leikur sitt sjöunda tímabil í úrvalsdeild kvenna. Knattspyrnudeild Víkings Ólafsvík hefur samið við enska leikmanninn Billy Stedman um að spila með lið- inu á komandi tímabili. Stedman, sem er 20 ára gamall, kemur til Víkings frá enska liðinu Coventry. Hann getur spilað á kantinum og framarlega á miðjunni. Víkingur hafnaði í fjórða sæti 1. deild- arinnar á síðustu leiktíð með 34 stig úr 22 leikjum. Síðan þá hefur Jón Páll Pálmason verið ráðinn þjálfari í stað Ejubs Purisevic, sem þjálfaði Ólafsvíkinga í tæplega sautján ár. Enskur leikmaður til Ólafsvíkur Styrkur Jón Páll Pálmason, þjálfari Víkings Ólafsvík, fékk liðstyrk. KSÍ hefur úrskurðað að FH teljist sigurvegari í leik liðsins gegn HK í Lengjubikar meistaraflokks karla síðasta föstudagskvöld, 3:0, en HK vann þá leik liðanna í Kórnum, 1:0, með marki Birnis Snæs Ingasonar. HK tefldi fram 18 ára gömlum varamanni í seinni hálfleik, Emil Skorra Brynjólfssyni. Hann er skráður í Ými, varalið HK í 4. deild- inni, og var því ólöglegur í leiknum samkvæmt reglugerð. HK fær sam- kvæmt reglugerðinni 60 þúsund króna sekt fyrir að nota Emil í leiknum. HK tapar stigum og fær sekt Morgunblaðið/Hari Kórinn HK vann leikinn en FH fær stigin vegna ólöglegs leikmanns. Ásta Björt Júlíusdóttir, ÍBV ........... 94 Ragnheiður Júlíusdóttir, Fram ...... 92 Lovísa Thompson, Val ................... 87 Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram ... 80 Steinunn Björnsdóttir, Fram ......... 79 Jóhanna M. Sigurðardóttir, HK ..... 77 Berta Rut Harðardóttir, Haukum ... 71 Karen Knútsdóttir, Fram ............... 68 Martha Hermannsdóttir, KA/Þór.. 68 Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir, HK .. 67 Sunna Jónsdóttir, ÍBV................... 65 Díana Kristín Sigmarsdóttir, HK ... 64 Díana Dögg Magnúsdóttir, Val....... 61 Anamaria Gugic, Aftureldingu ...... 60 Stefanía Theodórsdóttir, Stjörn.... 60 Sandra Erlingsdóttir, Val............... 59 Guðrún E. Bjarnadóttir, Haukum .. 56 Sigríður Hauksdóttir, HK .............. 56 Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Stjörn .. 54 Sara Odden, Haukum.................... 51 Ásdís Þóra Ágústsdóttir, Val ......... 48 Ester Óskarsdóttir, ÍBV ................. 47 Perla Ruth Albertsdóttir, Fram...... 47 Karen Tinna Demian, Stjörnunni .. 44 Markahæstar í Olísdeild kvenna ÞJÁLFARAR Kristján Jónsson kris@mbl.is „Er gúrkutíð?“ spurði handknatt- leiksþjálfarinn hógværi Gunnar Magnússon þegar við tókum við hann ítarlegt viðtal fyrir síðustu jól. Tilefnið var fyrirhuguð vista- skipti hans næsta sumar, en þá lætur Gunnar af starfi sínu hjá Haukum og tekur við Aftureldingu. Arftaki hans hjá Haukum hefur nú verið fundinn og leyndist á skrifstofu félagsins. Aron Krist- jánsson hefur ákveðið að taka við karlaliði Hauka í þriðja sinn á ferl- inum, en Aron er einnig landsliðs- þjálfari Barein og fram undan hjá honum í sumar er að stýra Barein á Ólympíuleikunum í Japan. Síðustu dagar og vikur hefur verið vægast sagt líflegur tími í þjálfaramálum í handboltanum. Patrekur Jóhannesson er kominn á markaðinn eftir hálft tímabil hjá Skjern í Danmörku. Aðalsteinn Eyjólfsson er einnig laus eftir að hafa stýrt Erlangen í Þýskalandi undanfarin ár. Báðir höfðu ákveðið að róa á önnur mið næsta sumar og félögin kusu að segja þeim upp störfum áður en að því kom. Alfreð Gíslason er hins vegar bú- inn að ráða sig og tekur við þýska landsliðinu, en fyrir lá að hann hefði áhuga á landsliðsþjálfara- starfi eftir langan feril hjá félags- liðum. Einar Andri Einarsson verður jafnframt á lausu í sumar en þá hættir hann hjá Aftureldingu og fyrrnefndur Gunnar Magnússon tekur við. Þá var tilkynnt um helgina að Grímur Hergeirsson myndi láta staðar numið með Sel- fossliðið eftir eitt tímabil. Ýmsir valmöguleikar eru því í stöðunni fyrir félög sem leita sér að þjálfurum fyrir handboltalið sín næsta vetur. Aron Kristjánsson stýrði Hauk- um síðast fyrir sjö árum, en hann var afar farsæll hjá félaginu. Varð liðið Íslandsmeistari undir stjórn hans 2008, 2009 og 2010. Stýrði hann Haukum í sex tímabil og liðið fór fimm sinnum í úrslitarimmuna. Þá tókst Aroni að gera bæði Kold- ing og Álaborg að meisturum á Danmerkurárum sínum. Á Ásvöll- um hugsa menn sér því væntanlega gott til glóðarinnar að fá Hólm- arann aftur til starfa. (Aron bjó í Stykkishólmi til ellefu ára aldurs.) Samstarfsmenn „Strákar. Er ekki bara einfaldast að Aron taki við af mér?“ gæti Gunnar Magnússon verið að spyrja í þessu leikhléi hjá Haukum. Þriðja vegferð Arons  Leituðu ekki langt yfir skammt að eftirmanni Gunnars

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.