Morgunblaðið - 11.02.2020, Síða 28

Morgunblaðið - 11.02.2020, Síða 28
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Þetta hefur verið ótrúlegt ferðalag hjá Hildi,“ segir Hróðmar I. Sigur- björnsson tónskáld og fagstjóri tón- smíða á bakkalárstigi í Listaháskóla Íslands þegar hann er spurður út í verk og feril Hildar Guðnadóttur. „Hún var með mjög frumlegt og skemmtilegt útskriftarverkefni héð- an úr tónsmíðum þar sem hún keyrði hring eftir hring á vagni sem hljóð- færaleikarar sátu á og spiluðu verkið hennar. Síðan hefur maður fylgst með henni úr fjarlægð og svo nú þessu ótrúlega ævintýri sem hef- ur verið að vinda upp á sig.“ Landsmenn hafa fangað sig- urgöngu Hildar, sem náði hámarki með Óskars- verðlaununum. Morgunblaðið heyrði í nokkrum samstarfs- mönnum, kennurum og kollegum Hildar sem allir samgleðjast henni. Hróðmar kenndi Hildi tónfræði og kontrapunkt á sínum tíma, þegar hún var í sellónámi. „Ég þekki for- eldra Hildar og hef því fylgst með henni síðan hún var pínulítil og það hefur því verið gaman að fylgjast með ævintýrum hennar undanfarið. Ævintýrin hafa náð hámarki núna en Hildur hefur sjálf bent á að það sem liggur að baki svona sigrum er áralöng vinna. Stanslaus vinna. Hún hefur gert músík við fullt af verk- efnum og þrautseigja hennar og kraftur eru að skila sér.“ Hróðmar segist hafa verið ótrú- lega ánægður með framlag Hildar í Joker. „Ég upplifði þar tónlist sem var afskaplega vel unnin og fjöl- breytt. Samt svo gegnheil. Fyrir mér er þetta ótrúlega sanngjarnt!“ Þegar spurt er hvort ekki ríki gleði- tilfinning í tónsmíðadeild LHÍ svar- ar Hróðmar: „Jú, hvort það er! Hér eru margir sem þekkja til Hildar, verka hennar – og til foreldra henn- ar. Okkur finnst öllum eins og við eigum eitthvað í þessu – en auðvitað á hún þetta allt sjálf.“ Afrakstur mjög mikillar vinnu „Ég er himinlifandi yfir þessum frábæra árangri Hildar. Og hann er verðskuldaður því ég veit að þetta er afrakstur mjög mikillar vinnu og langs ferlis við að þróa sína rödd, rödd sem er einstök og algjörlega hennar,“ segir Ólöf Arnalds tón- listarkona um sigurgöngu Hild- ar, en þær eru vinir og hafa unn- ið saman, til að mynda að Seríu- plötum Skúla Sverrissonar. „Mér finnst þetta mikill gleðidagur fyrir tónlist- arfólk sem velur að fara ótroðnar slóðir,“ segir Ólöf og bætir við að Hildur hafi lengi starfað að list sinni utan meginstraumsins, með mjög góðum árangri, en hafi síðan farið inn í hann gegnum kvikmyndirnar. „Hildur hefur þróað tónmál sitt í gegnum feril sinn sem framsækinn tónlistarmaður. Hún tilheyrir ákveð- inni senu leitandi nýrrar tónlistar sem lætur verkin tala og einbeitir sér að því að skapa eitthvað nýtt. Ég hef alltaf haft trú á því að Hildur myndi ná langt, því hún er svakalega hæfileikarík, ótrúlega dugleg og auk þess þægileg í um- gengni og skemmtileg. Þessi draumaverksmiðja Hollywood er eins og stórt gapandi gin sem bíður alltaf eftir einhverju nýju og fersku en það er bara brotabrot listamanna sem kemst þangað inn og Hildi hef- ur tekist það. Það á hún skuldlaust. Þetta er frábær sigur fyrir konur og mömmur í músíkinni!“ „Hún hefur allt sem þarf“ „Kvikmyndin Joker byggist á andlegri spennu og fjallar um mann sem hefur orðið fyrir verulegum áföllum og skortir andlegan stuðn- ing. Mér finnst sem styrkleikar Hildar sem tón- skálds og tónlist- ar hennar hæfi þessu innhverfa og andlega myrka verki ein- staklega vel,“ segir Ólafur Elíasson mynd- listarmaður. Þau Hildur hafa unnið saman að ýmsum verkefnum í Berlín þar sem bæði eru búsett og hafa vinnustofu. Og sigurganga Hildar hefur alls ekki komið Ólafi á óvart, hún sé svo gríðarlega hæfileikarík. „Hún hefur allt sem til þarf til að standa sig þetta vel,“ segir hann. „Hins vegar hefur það komið mér á óvart hvað hinn viðskiptadrifni kvik- myndaheimur hefur tekið fagnandi nálgun Hildar, sem er svo frumleg og vísar í margar áttir.“ Ólafur segir mörg markmið kvikmyndaheimsins aðfinnsluverð „en það kemur mér ánægjulega á óvart að í þessu tilviki hefur bransinn tekið gæði fram yfir magn. Það kemur ánægjulega á óvart að einhver svo tilraunagjarn sé verðlaunaður í Hollywood“. „Ég bjóst við þessu“ Atli Örvarsson er mikilvirkt tón- skáld fyrir sjónvarpsþætti og kvik- myndir í Bandaríkjunum. Hann vinnur bæði á Akureyri og í Holly- wood, þar sem hann er núna að semja tónlist við kvikmynd. „Ég bjóst við þessu,“ segir Atli um Óskar Hildar. „Það gerist ekki oft að tónlist nái að verða jafn stór hluti af kvikmynd og í Jókernum. Eftir að hafa séð Hildi segja frá því hvernig hún samdi þess stef áður en byrjað var að kvikmynda og hvernig vinnan við hana var skil ég hvernig tónlistin varð sterkari þátt- ur í erfðamengi myndarinnar en gengur og gerist. Venjuega erum við að bæta músíkinni við, jafnvel á síð- ustu stundu, en þarna varð hún órjúfanlegur hluti af heild.“ Atli segir sigur Hildar vekja at- hygli í Los Angeles. „Enda eru ansi mörg ár síðan kona vann þessi verð- laun. Það hefur lengi verið í um- ræðunni hér að sorglega fáar konur semji tónlist fyrir kvikmyndir. En það er að breytast og ég held að það að Hildur fái alla þessa athygli núna hafi mikil og góð áhrif. Tónlistin er sterk og áhrifamikil og þá hafa leik- stjórinn Philips og aðalleikarinn Joaquin Phoenix talað mikið um Hildi og hennar þátt. Og það sást vel í salnum þegar Hildur tók við stytt- unni hvers konar virðingar hún nýt- ur; það var svo mikil gleði. Ég held að fólk hafi glaðst yfir því hér að sjá íslenska konu vinna Óskarinn.“ Atla fannst ræða Hildar falleg og einlæg. „Þegar kemur að því að skapa tónlist fyrir kvikmyndir þarf maður að geta verið í einlægu sam- bandi við sjálfan sig og efnið til að komast að kjarnanum, eins og Hild- ur greinilega gerði,“ segir hann. AFP Gleðistund Hildur Guðnadóttir hampar Óskarnum á sviðinu og veifar fjöl- skyldu sinni sem var í salnum. „Þetta er frábær sigur,“ segir Ólöf Arnalds. „Hún er svakalega hæfileikarík“  „Þrautseigja hennar og kraftur eru að skila sér,“ segir fyrrverandi kennari Hildar Guðnadóttur  „Okkur finnst öllum eins og við eigum eitthvað í þessu – en auðvitað á hún þetta allt sjálf“ Hróðmar I. Sigurbjörnsson Atli Örvarsson Ólafur Elíasson Ólöf Arnalds 28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2020 Nú þegar búið er að afhenda Ósk- arsverðlaunin fyrir það besta í kvik- myndum ársins 2019 er komið að því að verðlauna fyrir það versta, veita skammarverðlaun, andstæðu Ósk- arsins. Bandarísku Razzie-verðlaun- in eru veitt fyrir slík „afrek“ og hafa tilnefningar verið kynntar. Kemur líklega fáum á óvart að Cats, eða Kettir, kvikmynd sem gerð var eftir samnefndum söngleik, sé meðal þriggja sem hljóta flestar tilnefn- ingar þar sem gagnrýnendur voru kepptust við að lýsa því hversu mikil hörmung kvikmyndin væri. Kettir eru tilnefndir til átta verðlauna og þeirra á meðal enska stórleikkonan Judi Dench sem leikur læðu í mynd- inni. Kettir er tilnefnd sem versta kvikmyndin auk The Fanatic, The Haunting of Sharon Tate, A Madea Family Funeral og Rambo: Last Blood en tvær nefndra kvikmynda hljóta jafnmargar tilnefningar og Kettir, þ.e. Rambo: Last Blood og A Madea Family Funeral. Bandarísk endurgerð Hellboy hlýtur fimm tilnefningar og The Fanatic fjórar en John Travolta, sem hlotið hefur Razzie-verðlaunin einu sinni og verið tilnefndur marg- oft, fer með aðalhlutverkið í henni og er auðvitað tilnefndur sem versti leikari. Kollegi hans Sylvester Stal- lone er í sama flokki en hann hefur hlotið verðlaunin fjórum sinnum og verið tilnefndur 15 sinnum, oftar en nokkur annar. Hefur hann fimm sinnum verið tilnefndur fyrir túlkun sína á stríðshetjunni John Rambo. Verðlaunamyndin Joker hlýtur líka tilnefningu og það í nýjum verð- launaflokki, verðlaun fyrir mestu lít- ilsvirðingu við mannslíf og almanna- eigur. Razzies er stytting á The Golden Rasberry, eða Gyllta hindberið. Hafa verðlaunin verið veitt frá árinu 1981 og verðlaunastyttan er metin á tæpa fimm dollara. Um þúsund manns eiga aðild að samtökunum sem standa að þeim og greiða at- kvæði um það versta í kvikmynda- bransanum vestan hafs ár hvert. helgisnaer@mbl.is Kettir tilnefndir til skammarverðlauna Mjá! Judi Dench í kattargervi í kvikmyndinni Cats eða Kettir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.