Morgunblaðið - 11.02.2020, Page 29

Morgunblaðið - 11.02.2020, Page 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2020 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Það hefur varla farið fram hjá nokkr- um manni að Óskarsverðlaunin voru afhent að kvöldi sunnudags í Los Angeles, um miðja nótt að íslenskum tíma. Voru þau sérstaklega spenn- andi fyrir okkur Íslendinga því Hild- ur Guðnadóttir var tilnefnd fyrir tón- list sína við Joker og hlaut Óskarinn, fyrst íslenskra listamanna, en fjallað er um þetta merka afrek Hildar bæði á menningarsíðu og innlendum frétt- um í Morgunblaðinu í dag. Kátasti maður kvöldsins var lík- lega suðurkóreski leikstjórinn og handritshöfundurinn Bong Joon-ho sem hreppti fern verðlaun fyrir kvik- mynd sína Parasite eða Sníkjudýr. Hlaut hann verðlaun fyrir bestu leik- stjórn, bestu kvikmynd sem og bestu erlendu kvikmynd og besta frum- samda handrit en það skrifaði hann með Han Jin Won. Kom mörgum Óskarsspámanninum á óvart að Parasite yrði fyrir valinu sem besta kvikmyndin því hún er ekki með ensku tali en allar sigurmyndir frá upphafi í þessum aðalflokki Óskars- ins, flokki bestu kvikmyndar, hafa verið á ensku. Franska kvikmyndin The Artist hlaut að vísu verðlaunin árið 2012 en hún var án tals. Fyrst var enginn, núna einn! Næstflestar Óskarsstyttur, þrjár, hlaut kvikmyndin 1917 og kvikmynd- irnar Ford vs Ferrari, Joker og Once Upon a Time … in Hollywood hlutu tvenn verðlaun hver. Verðlaunin sem veitt voru fyrir besta frammistöðu leikara voru fyrirsjáanleg því sömu leikarar höfðu hlotið þau á fyrri verð- launahátíðum ársins, þ.e. Joaquin Phoenix fyrir Joker og Renée Zell- weger fyrir Judy í flokki aðalhlut- verka og fyrir aukahlutverk þau Brad Pitt fyrir Once Upon a Time … in Hollywood og Laura Dern fyrir Marriage Story. Kvikmynd Martins Scorseses, The Irishman, hlaut engin verðlaun þrátt fyrir tíu tilnefningar og hefur það ör- sjaldan gerst í sögu verðlaunanna að kvikmynd með svo margar tilnefn- ingar hljóti engin verðlaun. Líkt og í fyrra var Óskarinn 2020 gagnrýndur fyrir einsleitni þegar kemur að kynjum tilnefndra og kyn- þáttum og var söngkonan Janelle Monáe fyrst gagnrýnenda á svið. Hún kom fram í upphafsatriði hátíð- arinnar og skaut föstum skotum á til- nefningarnar og þá m.a. hversu hvít- ur Óskar væri, nú sem fyrr. Leikar- arnir Steve Martin og Chris Rock voru líka hárbeittir og veltu fyrir sér hvað vantaði í leikstjóratilnefning- arnar í ár. „Leggöng?“ spurði Rock og Martin kinkaði kolli. „Hugsaðu þér hvað Óskarinn hefur breyst mikið á 92 árum. Árið 1929 var enginn þel- dökkur tilnefndur,“ sagði Martin og Rock svaraði að jú, það væri rétt, en nú væri einn slíkur. Átti hann þar við leikkonuna Cynthiu Erivo sem til- nefnd var fyrir hlutverk sitt í kvik- myndinni Harriet. Í myndinni leikur hún Harriet Tubman, þræl sem slapp úr ánauð og bjargaði síðar hundr- uðum þræla og faldi fyrir hvítum kvölurum sínum. „Cynthia stóð sig svo vel í því að fela svart fólk í Harriet að akademían fékk hana til að fela alla þá tilnefndu sem eru svartir. Cynthia, er Eddie Murphy undir sviðinu?“ sagði Rock og uppskar mik- inn hlátur fyrir og lófatak. AFP Þung? Suðurkóreski leikstjórinn Bong Joon-ho með fjórum af aðalleikurum kvikmyndar sinnar Parasite. Óskarsstyttan sígur í, að því er virðist. Koss Laura Dern kyssir Óskar á gylltan skallann en styttuna fékk hún fyrir besta leik í aukahlutverki. Best Joaquin Phoenix og Renée Zellweger hlutu óskarsstyttur fyrir besta leik í aðalhlutverki og Brad Pitt verðlaun fyrir besta leik í aukahlutverki. Sníkjudýr heilla hvítan Óskar  Suðurkóresk kvikmynd, Parasite, hlaut flest Óskarsverðlaun  Í fyrsta sinn sem kvikmynd á öðru máli en ensku er valin sú besta  Einsleitni gagnrýnd Óskarsverðlaunin árið 2020 í helstu flokkum: Besta kvikmynd Parasite Besta erlenda kvikmynd Parasite Besti leikstjóri Bong Joon-ho Besta frumsamda tónlist Joker Besti leikari í aðalhlutverki Joaquin Phoenix Besta leikkona í aðalhlutverki Renée Zellweger Besti leikari í aukahlutverki Brad Pitt Besta leikkona í aukahlutverki Laura Dern Besta teiknimynd Toy Story 4 Best frumsamda handrit Parasite Besta handrit byggt á áður útgefnu efni Jojo Rabbit Besta útlitshönnun Once Upon a Time in Hollywood Besta búningahönnun Jacquelline Durran fyrir Little Women Besta heimildarmynd American Factory Besta kvikmyndataka Roger Deakins fyrir 1917 Besta klipping Ford v Ferrari Bestu tæknibrellur 1917 Besta förðun og hár Bombshell Heildarlista má finna á vefslóð- inni oscar.go.com/winners. Það besta á árinu 2019 ÓSKARSVERÐLAUNIN ICQC 2020-2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is  Rás 2  FBL BAFTA VERÐLAUN7 m.a.BESTA MYNDIN BESTI LEIKSTJÓRINN SAM MENDES ÓSKARS TILNEFNINGAR11 6 ÓSKARSTILNEFNINGAR SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI LEIKSTÝRÐ AF CLINT EASTWOOD

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.