Morgunblaðið - 12.02.2020, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2020
Golf
S. 552 2018 • info@tasport.is
Sjá allar okkar ferðir
ogmeiri upplýsingar á
Barcelona Golf Resort & Spa
(Golfskóli í boði)
Lumine Golf Club
tasport.is
Laust á þessum
dagsetningum
28.mars til 2. apríl
2. til 9. apríl
9. til 18. apríl
16. til 23. apríl
Flug, skattar og gjöld. Flutningur á golfsetti, 20 kg innrituð taska og 10 kg handfarangur. Akstur til
og frá flugvelli. Gisting á 4* hóteli með hálfu fæði. Ótakmarkað golf (ekki á ferðadögum).Æfinga-
boltar. Golfbíll fyrstu 18 holurnar á dag. Íslensk farastjórn.
Flug, skattar og gjöld. Flutningur á golfsetti, 20 kg innrituð taska og 10 kg handfarangur. Akstur frá
flugvelli á hótel og til baka við brottför. Gisting á 4* hóteli meðmorgunmat. Ótakmarkað golf (ekki
á ferðadögum). Golfbíll fyrir 18 holur á dag. Upphitunar boltar áæfingarsvæðinu. Akstur hótel –
golf – hótel.
Innifalið
Innifalið
Unnið var að því í vikunni að koma hlutum nýrrar brúar í
borginni Genúa á norðurhluta Ítalíu á sinn stað. Brúin kemur
í stað Marandi-brúarinnar, sem hrundi í ágúst 2018 með þeim
afleiðingum að 43 létu lífið. Enn stendur yfir sakamálarann-
sókn á orsökum þess. Nýja brúin, sem er 300 metra löng og
teiknuð af ítalska arkitektinum Renzo Piano, hefur verið í
byggingu í tæpt ár en gert er ráð fyrir að hún verði tekin í
notkun síðar á þessu ári. Kostnaður við bygginguna er áætl-
aður 202 milljónir evra, nærri 28 milljarðar króna.
Mynd að komast á nýja umferðarbrú í Genúa
AFP
Tedros Adhanom Ghebreyesus, yfir-
maður Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unarinnar WHO, sagði í ávarpi við
upphaf tveggja daga ráðstefnu stofn-
unarinnar í Genf í gær að ógnin sem
vofði yfir gervallri heimsbyggðinni
vegna kórónuveirunnar væri graf-
alvarleg.
Ráðstefna stofnunarinnar fjallar
um mögulegar aðgerðir í baráttunni
við kórónufaraldurinn sem nú nær til
25 ríkja heimsins með um 43.000 til-
fellum, en í gær urðu þau þáttaskil að
tala látinna var í fyrsta sinn þriggja
stafa einn og sama daginn, en tilkynnt
hafði verið um 108 dauðsföll þegar
AFP-fréttastofan greindi frá stöðu
mála í gær.
Smitaði ellefu manns
Þar með fór heildarfjöldi látinna af
völdum kórónuveirunnar yfir eitt þús-
und, en breskur maður, sem ekki
hafði verið á ferð í Kína en þó smitað
ellefu manns í Bretlandi, hefur vakið
áhyggjur af að veirusmit færist í
aukana utan marka Kína. Sjálfur er
maðurinn sagður hafa náð sér af sótt-
inni en er þó enn í einangrun á sjúkra-
húsi í London.
Fram að þessu hafa flest smittilfelli
utan Kína tengst fólki sem verið hefur
á ferð í borginni Wuhan, þar sem far-
aldurinn hóf göngu sína fyrir áramót,
eða þeim sem verið hafa í nálægð við
það fólk. Fyrrnefndur Breti tilheyrir
hvorugum hópnum, hann sótti ráð-
stefnu í Singapore þar sem hann
smitaðist og bar svo smitið áfram til
nokkurra landa sinna.
Aðeins neisti
Ghebreyesus sagði á blaðamanna-
fundi í fyrradag að greining þessara
fáu tilfella, á borð við mál Bretans,
gæti verið neistinn sem yrði að miklu
báli. „Þó aðeins neisti enn sem komið
er. Aðalmarkmið okkar verður áfram
að hemja [sjúkdóminn],“ sagði hann.
Michael Ryan, stjórnandi neyðar-
áætlunar WHO, sagði hins vegar að
„allt of snemmt“ væri að kveða upp úr
með að ráðstefnan í Singapore hefði
verið einhvers konar „ofursmitvett-
vangur“. atlisteinn@mbl.is
Breti sem smitaði
11 manns vekur ugg
Ráðstefnugestur í Singapore ráðgáta WHO fundar í Genf
AFP
Sýni Starfsmaður rannsóknarstofu
í Linyi í Kína tekur sýni úr sjúklingi.
Apirat Kong-
sompong, hers-
höfðingi í taí-
lenska hernum,
brast í grát á
blaðamanna-
fundi í gær þar
sem hann bað
fórnarlömb skot-
árásar her-
mannsins Jak-
rapanth
Thomma afsökunar, en 29 manns
lágu í valnum og tugir særðust í
fólskulegri skotárás hans í versl-
unarmiðstöð í borginni Nakhon
Ratchasima um helgina.
„Skellið skuldinni á mig“
Apirat bað áheyrendur að skella
skuldinni ekki á herinn, sem hefur
legið undir ámæli á samfélags-
miðlum fyrir litla samúð í garð
fórnarlamba árásarinnar og að-
standenda þeirra. „Fólk gagnrýnir
herinn. Ég hvet það til að kenna
hernum ekki um [...] vegna þess
að herinn er heilög stofnun. Skell-
ið skuldinni á mig, Apirat hers-
höfðingja,“ sagði hann meðal
annars.
Brast í grát á
blaðamannafundi
TAÍLAND
Apirat
Kongsompong
Bernie Sanders
og Pete Buttig-
ieg þóttu sigur-
stranglegastir í
forkosningu
demókrata í
New Hamsphire
í gær. Sanders
þótti þó standa
fetinu framar í
ríkinu en But-
tigieg, en mjótt var á munum í
forkosningunni í Iowa í síðustu
viku þar sem Buttigieg hlaut 26,2
prósent atkvæða en Sanders
26,1.
Talin bítast um 3. sætið
Varaforsetinn fyrrverandi Joe
Biden virtist sigurstranglegur
við upphaf forkosninga í Iowa en
hafnaði í fjórða sæti með 15,8
prósent atkvæða, á eftir öldunga-
deildarþingmanninum Elizabeth
Warren sem hlaut 18 prósent.
Útgönguspár í gær reiknuðu
með að Biden og Warren bitust
um þriðja sætið, en stjórnmála-
skýrendur telja þann fyrrnefnda
eiga ýmislegt inni, svo sem í Ne-
vada og Suður-Karólínu.
BANDARÍKIN
Sanders spáð sigri
í New Hampshire
Bernie Sanders