Morgunblaðið - 12.02.2020, Side 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2020
60 ára Jón ólst upp á
Teigi í Eyjafjarðarsveit
en býr í Berglandi.
Hann er fiskeldisfræð-
ingur og byggingariðn-
fræðingur að mennt.
Jón rekur verktaka-
fyrirtækið JS trésmíði
og er oddviti í Eyjafjarðarsveit.
Maki: Kristín Sigurðardóttir, f. 1964,
grunnskólakennari í Hrafnagilsskóla.
Synir: Jón Stefán Jónsson, f. 1982, og
Tjörvi Jónsson, f. 2001. Barnabörnin
eru Aron Geir, f. 2007, og Hilmar Daði,
f. 2011.
Foreldrar: Stefán Þórðarson, f. 1935,
og Þorgerður Jónsdóttir, f. 1940, fyrr-
verandi bændur á Teigi. Þau eru búsett
þar.
Jón
Stefánsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er margt að gerast í kringum
þig og þú mátt hafa þig alla/n við að fylgj-
ast með. Þú ert með tillögur á færibandi
varðandi breytingar í vinnunni. Láttu ljós
þitt skína.
20. apríl - 20. maí
Naut Láttu ekki eigin vangaveltur draga
athygli þína um of frá verkefnum dagsins.
Ekki gleyma að gefa þér tíma til einveru
þótt ekki sé nema í stuttan tíma dag
hvern.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ef þú hefur ekki hemil á skapi
þínu getur þú lent í því að brenna brýr að
baki þér. Kærleikurinn sigrar allt.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú kemst á snoðir um leyndarmál,
sem best er að ekki sé hreyft við. Ásta-
málin standa í blóma og þú heyrir kirkju-
klukkur óma. Haltu samt fast um budduna.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú verður að nýta tímann vel og
halda sér við efnið svo að þú náir að
standa við gefin loforð. Komdu jafnvægi á
hugsanir þínar.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú færð tilboð sem að vekja með
þér bæði undrun og ánægju. Ekki halda að
þú getir gert allt ein/n og óstudd/ur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Nú er fyrir öllu að ýta hlutunum úr vör.
Ef þú óttast breytingar ættir þú að leita
þér hjálpar til þess að geta tekist á við
þær.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú þarft á öllum þínum krafti
að halda í dag og ættir því ekki að leyfa
neinum að trufla þig. Ekki gefa þumlung
eftir í samningaviðræðum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er nauðsynlegt að kynna
sér vel smáa letrið áður en skrifað er undir
eitthvað. Gerðu þér dagamun.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þér gæti tekist að losa þig við
ákveðnar hömlur í dag. Þú ert í einhverjum
öldudal en það verður ekki lengi.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Reyndu að gera þér grein fyrir
tilfinningum annarra svo þú getir vegið
hlutina og metið í réttu samhengi. Gefðu
þér tíma til að sinna áhugamálum þínum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er óþarfi að ríghalda í hluti,
sem þú hefur litla eða enga þörf fyrir. Ein-
hver er þurr á manninn við þig, reyndu að
finna út af hverju.
málefnum að aukast þar sem ég sá
að lífið er ekki eins svart og hvítt og
ég trúði sem ungur maður. Ég hef
verið á þeirri vegferð æ síðar og líf
mitt snýst meira og meira um and-
leg og trúarleg málefni. Fyrstu 50
árin liðu ansi hratt og ég geri ráð
fyrir að seinni hlutinn eigi eftir að
líða jafnvel enn hraðar, svo það er
ekki seinna vænna að fara að huga
að stærsta leyndardómi mannlegs
lífs: Guði og dauðanum.“
Ferill Höllu
Halla stundaði nám við grafík-
deild Listaháskóla Íslands 1990-
töskur og auralaus, bara með film-
urnar af Sigur Rós í farteskinu og
kláruðum klippingu og allt það úti í
Bandaríkjunum. Um svipað leyti
gerðum við Levi’s-auglýsingu sem
kom okkur á kortið.“ Síðan þá hafa
Stefán og Sigurður gert auglýsingar
fyrir fyrirtæki eins og Cadillac og
Mercedes-Benz, og tónlistar-
myndbönd fyrir Travis, Iggy Pop og
Damien Rice, svo einhverjir séu
nefndir, og Aurora sem vann til
norsku Grammy-verðlaunanna 2017.
Samstarf þeirra við Sigur Rós hefur
getið af sér fleiri snilldarmyndbönd
eins og Gobblidigook og Glósóli sem
hafa unnið til verðlauna.
Stefán og fjölskylda bjuggu í
Bandaríkjunum 2001-2011 og í
München í Þýskalandi 2011-2012 en
fluttu svo búferlum aftur til Íslands
og hafa verið hér síðan. „Eins og er
þá er ég að undirbúa nokkur kvik-
myndaverkefni með Sigurði, meðal
annars heimildarmynd um GusGus
og kvikmynd um írskan dýrling sem
heitir To Heal the Broken Hearted.
Stefán er einn af stofnendum hug-
búnaðarfyrirtækisins Flow ehf., sem
býður upp á hugleiðslu í sýndar-
veruleika og í gegnum app í snjall-
síma.
„Eftir að faðir minn dó í flugslysi
árið 1997 fór áhugi minn á andlegum
H
allfríður Sólveig Þor-
geirsdóttir og Stefán
Árni Þorgeirsson eru
fædd 12. febrúar 1970
í Reykjavík. Þau ól-
ust upp fyrstu árin í miðbæ Reykja-
víkur, en fluttust svo í Keilufell í
Breiðholti þar sem þau gengu í
Fellaskóla og síðan í Fjölbrautaskól-
ann í Breiðholti þaðan sem þau urðu
stúdentar.
Ferill Stefáns
Stefán stundaði nám við Háskóla
Íslands í heimspeki, en vann við
kvikmyndagerð samhliða því og
hætti námi sökum anna í kvik-
myndagerð, en hann hóf að starfa
með Sigurði Kjartanssyni fyrir tví-
tugt, samstarf sem er við lýði enn
þann dag í dag og gengur undir
nafninu Arni & Kinski. „Ég ólst upp
í prentsmiðju sem pabbi átti og mikil
sköpunarvinna átti sér stað þar að
nóttu til á fyrstu árum okkar Sigga í
starfi.“
Fyrstu skrefin í kvikmyndagerð-
inni hjá Stefáni voru í Hvíta vík-
ingnum og Sódómu Reykjavík, en
svo fóru þeir Sigurður að gera tón-
listarmyndbönd. Árið 1995 gerðu
þeir síðan stuttmynd sem bar nafnið
Nautn og upp úr því varð til hljóm-
sveitin GusGus. „Við komum þessum
hópi saman fyrir myndina og Daníel
Ágúst Haraldsson fór með lykilhlut-
verk í myndinni. Af því að stutt-
myndir selja ekki en plötur gerðu
það á þessum tíma þá vildum við
gera plötu við myndina sem gæti
staðið ein og sér og við fengum með
okkur Bigga Veiru og Magga Legó
til að búa til þetta rafmúsíkfyrirbæri
sem GusGus er. Eftir þá plötu feng-
um við tilboð frá plötufyrirtækinu
4AD sem var ekki hægt að hafna og
hljómsveitin hélt því áfram að
starfa.“
Stefán og Sigurður gerðu árið
2001 myndband við lagið Viðrar vel
til loftárasa með Sigur Rós sem var
mjög vel tekið. Umfjöllunarefnið og
efnistökin voru nýstárleg og árið
2011 valdi tónlistartímaritið NME
Viðrar vel til loftárása sem 9. besta
tónlistarmyndband allra tíma. „Ég
flutti út árið 2001 með tvö börn og
eiginkonu til Los Angeles, ferða-
1992, lauk BFA-námi í teikningu frá
Háskóla í Hartford, Connecticut í
Bandaríkjunum 1994 og MA-námi í
hagnýtri menningarmiðlun frá Há-
skóla Íslands 2015.
Hún hefur starfað sjálfstætt sem
teiknari og hönnuður í 25 ár. „Ég
vinn að fjölbreytilegum verkefnum
tengdum myndskreytingum, graf-
ískri hönnun og vefhönnun. Ég hef
hannað fjölda bóka og myndskreytt
yfir 20 barnabækur. Af þeim hafa
þrjár komið út á fleiri en einu tungu-
máli.“
Halla hefur hlotið verðlaun fyrir
störf sín, meðal annars Dimmalimm,
Íslensku myndskreytiverðlaunin,
Norrænu barnabókaverðlaunin,
Vest-Norrænu barnabókaverð-
launin, verið á alþjóðlegum heið-
urslista IBBY-samtakanna og til-
nefnd til Barnabókaverðlauna
Reykjavíkurborgar: Besta mynd-
skreytta barnabókin 2016 og síðast
2018, fyrir bókina Pétur og úlfur-
inn… en hvað varð um úlfinn? Hún
hefur verið í félagi myndskreyta á
Íslandi, Fyrirmynd, frá upphafi og
tekið þátt í samsýningum og setið í
sýningar- og dómnefndum tengdum
faginu.
Halla og eiginmaður hennar
bjuggu í Bandaríkjunum í fimm ár
þegar þau stunduðu þar nám og síð-
ar í tvö ár á Spáni. Þau reka ferða-
skrifstofu, RiverNorth.is og skipu-
leggja ferðir í stangveiði.
Systkinin Halla og Stefán eru
samrýnd og búa hlið við hlið á
Haðarstígnum í 101 Reykjavík. „Ég
er í stjórn hinna virðulegu íbúa-
samtaka Hollvinir Litla-Garðs og
nágrennis,“ segir Halla. „Þar hef ég
m.a. stuðlað að þátttöku íbúa í við-
burðum og framkvæmdum tengdum
þessum litla almenningsgarði í Þing-
holtunum auk baráttu um bætta um-
ferðarmenningu við Haðarstíg. Ég
nýt þess í botn að búa í góðu sam-
félagi í 101 Reykjavík.“
Fjölskylda
Eiginkona Stefáns er Tristan
Elizabeth Gribbin, f. 15.8. 1967,
frumkvöðull og eigandi Flow ehf.
Foreldrar hennar eru Patrick
Gribbin og Linda Woolman Perry.
Börn Stefáns og Tristan eru Tara
Halla Sólveig og Stefán Árni Þorgeirsbörn – 50 ára
Afmælisbörnin Stefán Árni, Halla Sólveig og eiginmaður Höllu, Björn Ólaf-
ur, en hann er einnig fimmtugur í dag. Þau fæddust á Landspítalanum og
hafa fylgst að frá unglingsaldri, en þau voru öll bekkjarsystkin í Fellaskóla.
Listamenn á sínu sviði
Tvíburarnir Halla og Stefán 1974.
40 ára Helga Lára
er Mosfellsbæingur
og hefur búið í
Helgafellshverfinu
frá 18 ára aldri. Hún
er grunnskólakenn-
ari að mennt og
kennir í
Varmárskóla.
Maki: Níels Einar Reynisson, f. 1980,
sérfræðingur á öryggissviði Norðuráls.
Dætur: Elísa Ósk Níelsdóttir, f. 2001,
Anna Níelsdóttir, f. 2004, og Emma
Sóley Níelsdóttir, f. 2012.
Foreldrar: Bæring Ólafsson, f. 1955,
fyrrverandi forstjóri Coca-Cola á Fil-
ippseyjum, búsettur þar, og Guðbjörg
Pétursdóttir, f. 1957, viðskiptafræð-
ingur og ráðgjafi, búsett í Mosfellsbæ.
Helga Lára
Bæringsdóttir
Til hamingju með daginn
Þorlákshöfn Aríanna Ýr Agnarsdóttir
fæddist 15. október 2019. Hún vó
3.680 g og var 51 cm löng. Foreldrar
hennar eru Sólrún Björk Eiríksdóttir
og Agnar Freyr Kristjánsson.
Nýr borgari