Morgunblaðið - 27.03.2020, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 2 7. M A R S 2 0 2 0
Stofnað 1913 74. tölublað 108. árgangur
GEFUR DRAUM-
INN EKKI UPP
Á BÁTINN
FRÁBÆR
ÚTGÁFA VÍKINGS
HEIÐARS
HVETUR FÓLK
TIL AÐ KLÆÐA
SIG UPP
MÆLT MEÐ Í SAMKOMUBANNI 29 DAGLEGT LÍF 10SVEINBJÖRN IURA 26
Ný talning Samtaka iðnaðarins
(SI) leiðir í ljós verulegan sam-
drátt í smíði íbúða. Þannig voru
42% færri íbúðir á fyrstu bygging-
arstigum á höfuðborgarsvæðinu en
í talningu samtakanna vorið 2019.
Vegna þessa hafa SI endurmetið
spá sína um fjölda fullgerðra íbúða
á höfuðborgarsvæðinu. Þau áætla
nú að um 2.100 íbúðir verði full-
gerðar í ár en það er 30% sam-
dráttur frá spánni í mars 2019.
„Afgerandi skilaboð“
„Stóru tíðindin eru verulegur
samdráttur í byggingum upp að
fokheldu, þ.e.a.s. upp að fyrstu
byggingarstigum, eða rúmlega
40%. Það eru afgerandi skilaboð
um stöðuna. Þótt sjá megi krana
víðs vegar um bæinn eru það fyrst
og fremst verkefni sem fóru af
stað fyrir löngu,“ segir Sigurður
Hannesson, framkvæmdastjóri SI.
Merki um samdrátt í byggingar-
iðnaði hafi byrjað að birtast í
fyrra. Sala á sementi og steypu-
styrktarjárni hafi m.a. dregist
saman.
Vegna þessa samdráttar muni
færri íbúðir koma á markað á
næstu árum. Fyrir vikið kunni að
skapast skortur á íbúðum eftir 3-5
ár. »11
42% færri íbúðir á
frumstigi bygginga
Flestir landsmenn eru löghlýðnir og reyna eftir besta megni
að fara eftir reglum samkomubanns heilbrigðisyfirvalda.
Vandræði sköpuðust í Spönginni í gær og þá þurftu við-
skiptavinir að fara í hraðbanka Arion banka. Röðin var
óvenju löng því fólkið gætti þess að hafa gott bil á milli. Í gær
höfðu liðlega 800 manns smitast af kórónuveirunni hér á landi
en 82 af þeim hafði batnað. Sautján sjúklingar voru á Land-
spítalanum til aðhlynningar vegna kórónusmits, þar af voru
þrír í öndunarvél á gjörgæslu. Nú eru tekin eins mörg sýni til
greiningar og þurfa þykir þar sem nóg er til af sýnatöku-
pinnum. Íslensk erfðagreining hefur í dag á ný sýnatöku til að
kanna samfélagsmit. »Kórónuveiran 2-6, 10-11, 12-14
Morgunblaðið/Ingó
Gæta þess að gott bil sé við þann næsta í biðröðinni
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Mörg fyrirtæki eru nú að huga að að-
gerðum vegna áhrifa kórónuveir-
unnar. Vinnumálastofnun hafði í gær
fengið rúmlega 11 þúsund umsóknir
vegna skerts starfshlutfalls starfs-
manna og í gær og undanfarna daga
hafa nokkur fyrirtæki sagt upp fólki.
„Við búumst við hinu versta en von-
um það besta. Ómögulegt er að segja
hversu margir telja sig geta haldið
þetta út,“ segir Ragnar Þór Ingólfs-
son, formaður VR, þegar hann er
spurður hvort hann telji von á hol-
skeflu uppsagna fyrir mánaðamót.
Bláa Lónið tilkynnti í gær um upp-
sagnir 164 starfsmanna og að 400 af
þeim 600 sem eftir eru yrði boðið að
minnka starfshlutfall samkvæmt úr-
ræðum Vinnumálastofnunar. Bláa
Lónið lokaði 23. mars vegna sam-
komubanns heilbrigðisyfirvalda og
stendur lokunin út apríl. Í bréfi til
starfsmanna sagði Grímur Sæmund-
sen, forstjóri fyrirtækisins, að að-
gerðirnar væru liður í því að vernda
þau störf sem eftir stæðu hjá félag-
inu og tryggja rekstur Bláa Lónsins
til framtíðar.
Fyrirtækin Skaginn 3x og Þorgeir
& Ellert á Akranesi sögðu upp 43
starfsmönnum í fyrradag. Vilhjálm-
ur Birgisson, formaður Verkalýðs-
félags Akraness, sagði frá þessu á
Facebook-síðu sinni.
Kanna frekari úrræði
Ragnar Þór Ingólfsson telur að
mjög mörg fyrirtæki séu í slæmri
stöðu og hafi verið að bíða eftir út-
færslu á aðgerðum ríkisins.
Segir hann að mikið álag sé á
skrifstofu VR og væntanlega einnig
annarra stéttarfélaga. Starfsfólkið
sé að svara fyrirspurnum, fræða fólk
um réttindi þess og skyldur og
möguleika á úrræðum. Fólkið standi
ýmist frammi fyrir uppsögnum eða
hafi verið boðið hlutastarfaúrræði.
Ragnar segir jafnframt að fulltrú-
ar verkalýðsfélaganna og atvinnu-
rekenda séu á stöðugum fundum
með fulltrúum stjórnvalda við að út-
færa þau úrræði sem samþykkt hafi
verið og kanna möguleika á frekari
úrræðum vegna breyttra forsendna.
„Óttumst hið versta
en vonum það besta“
Fyrirtæki segja upp starfsfólki og bjóða hlutastarfaúrræði
Morgunblaðið/Eggert
Lokað Engar tekjur koma inn hjá
Bláa Lóninu enda lokað út apríl.
MGetum ekki „gripið alla“ »2 & 12
Valgerður Á. Rúnarsdóttir, yfir-
læknir á Vogi, tilkynnti stjórn SÁÁ
í gær að hún hygðist láta af störf-
um. Ástæðan er sögð vera djúp-
stæður ágreiningur við formann
samtakanna, Arnþór Jónsson. Er
mikill kurr í stjórn samtakanna
vegna þeirrar stöðu sem upp er
komin og segja heimildarmenn
Morgunblaðsins meirihluta stjórn-
ar ósáttan við hvernig mál hafi
þróast að undanförnu. Lengi hafi
andað köldu milli formannsins og
yfirlæknisins en að átök um skipu-
lagsbreytingar sem ákveðið hafi
verið að ráðast í á stjórnarfundi á
miðvikudag hafi reynst kornið sem
fyllti mælinn. »6
Yfirlæknir á Vogi
hættir skyndilega
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SÁÁ Valgerður tók við sem forstjóri Vogs
árið 2017 en hefur starfað þar í yfir 20 ár.