Morgunblaðið - 27.03.2020, Qupperneq 2
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Café
AUSTURSTRÆTI • SKÓLAVÖRÐUSTÍG • LAUGAVEGI • AKUREYRI • VESTMANNAEYJUM
Við gætum fyllsta hreinlætis og fylgjum ráðleggingum
um sóttvarnir í öllum okkar viðskiptum.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Alls höfðu um 11.100 umsóknir
borist klukkan 16 í gærdag til
Vinnumálastofnunar vegna minnk-
aðs starfshlutfalls. Þar af voru um
sjö þúsund umsóknir frá deginum
áður. Samkvæmt upplýsingum frá
stofnuninni eru umsóknir um at-
vinnuleysisbætur þá orðnar um
16.000 í marsmánuði.
Þó að fjöldi einstaklinga hafi sótt
um bætur hefur borið á óánægju
með hlutastarfaleiðina svokölluðu
sem kynnt var sem hluti af aðgerð-
um stjórnvalda vegna kórónuveiru-
faraldursins. Námsmenn í hluta-
störfum, einkum þeir sem eru í
minna en 45% starfshlutfalli, telja
sig hlunnfarna þar eð þeir falla
ekki undir skilmála leiðarinnar. At-
vinnurekendur hafa sömuleiðis
gert athugasemdir við útfærslu
hennar. Kráareigandi sem hafði
samband við blaðið bendir til að
mynda á að sé hann með einn
starfsmann í fullu starfi falli úr-
ræðið eins og flís við rass að
rekstri hans. Sé hann hins vegar
með fjóra starfsmenn í 25% hluta-
starfi hver taki ríkið ekki neinn
þátt í launakostnaðinum. Telur
hann að um verulega vankanta á
útfærslu sé að ræða því þetta eigi
við um mörg smærri fyrirtæki í
veitingageiranum.
„Svona aðgerðir geta aldrei grip-
ið alla,“ segir Unnur Sverrisdóttir,
forstjóri Vinnumálastofnunar. Hún
segir að miðað við þann fjölda um-
sókna sem borist hafi virtist sem
þetta úrræði gagnaðist þó lang-
flestum. „Það var lagt upp með að
verja þá sem eru í fullu starfi og
svo hefur þetta hlaðið aðeins utan á
sig. En einhvers staðar verða alltaf
að vera mörk. Og þá koma upp
svona tilvik, nema þú hafir eina
greiðslu fyrir alla,“ segir hún.
Unnur kveðst hafa skilning á því
að einhverrar óánægju gæti en um
almennar reglur sé að ræða.
„Það er auðvitað verra með
þessa launþega sem eru kannski í
mörgum litlum störfum. Ég skil
það. En þá er sá kostur að geti
vinnuveitandi ekki borgað þeim
laun getur hann sagt þeim upp og
viðkomandi fær sinn uppsagnar-
frest.“
Getum ekki „gripið alla“
Margir vilja bætur vegna hlutastarfa Óánægju gætir
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Afgreiðsla Margir í veitingabransanum horfa fram á skert starfshlutfall.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Ég er mjög stoltur af niðurstöð-
unni. Hún er afgerandi og er gerð í
breiðri sátt og mér finnst það sýna
mikinn styrk,“ segir Dagur B. Egg-
ertsson borgarstjóri, sem í gær
kynnti ásamt oddvitum allra flokka
sem eiga fulltrúa í borgarstjórn að-
gerðir í efnahagsmálum vegna
kórónuveirufaraldursins. Eyþór
Laxdal Arnalds, oddviti sjálfstæðis-
manna, er einnig ánægður með
niðurstöðuna enda segir hann að til-
lögur sem borgarfulltrúar flokksins
lögðu fram fyrir tíu dögum séu að
mestu leyti inni í aðgerðapakkanum.
Litið er á aðgerðirnar sem fyrstu
aðgerðir til að bregðast við áfallinu
sem kórónuveirufaraldurinn hefur í
för með sér með áherslu á velferð
borgar, afkomu þeirra og grunn-
stoða borgarsamfélagsins sem þurfi
að standa af sér víðtækar afleiðingar
faraldursins. Aðgerðirnar voru sam-
þykktar einróma á fundi borgarráðs
í gærmorgun.
Mikið fjárhagslegt högg
Dagur segir að borgin og borgar-
búar verði fyrir miklu fjárhagslegu
höggi eins og allt samfélagið. Borgin
taki höggið á sig en veiti því ekki út í
hækkun skatta og gjaldskráa.
„Þvert á móti, við erum að veita
fyrirtækjum greiðslufresti, lækka
ákveðin gjöld og flýta lækkun á fast-
eignaskatti af atvinnuhúsnæði,“
segir Dagur þegar hann er spurður
um mikilvægustu þætti aðgerðanna.
Hann bætir því við að gripið verði
til aðgerða í markaðssetningu með
ferðaþjónustunni og fjárfesting auk-
in ofan á metfjárfestingu í ár til að
skapa viðspyrnu um leið og faraldur-
inn minnkar. „Við deilum því með
öllu samfélaginu að þeim mun styttri
tíma sem þrengingarnar vara, þeim
mun betra er það fyrir borgina og
borgarbúa.“
„Hitt stóra atriðið, sem skiptir
líka miklu máli, er að það náðist
pólitísk samstaða í borgarstjórn,
þvert á alla flokka. Borgarstjórn
tókst að hefja sig upp úr hefð-
bundnum skotgrafahernaði. Það
skiptir máli þegar undirliggjandi er
frumskylda borgarinnar að tryggja
órofna þjónustu. Það hefur alltaf
vond áhrif í óvissuástandi ef ofan á
það bætist einhvers konar óreiða í
stjórnmálunum,“ segir Dagur.
Dýrara að gera ekki neitt
„Við lögðum fram fimm tillögur
fyrir tíu dögum og þær eru að mestu
leyti inni í þessum aðgerðum,“ segir
Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti sjálf-
stæðismanna í borgarstjórn. Til-
lögur þeirra gengu út á að létta á
greiðslubyrði fyrirtækja með því að
lækka fasteignaskatt og fresta gjald-
dögum, flýta viðhaldsframkvæmd-
um og öðrum hagkvæmum fram-
kvæmdum og hefja markaðsátak til
að gera Reykjavík aftur að áfanga-
stað ferðafólks þegar faraldurinn
verður afstaðinn.
Lækkun fasteignaskatts af at-
vinnuhúsnæði kemur til fram-
kvæmda á næsta ári. Spurður hvort
nóg væri að gert í því efni segir Ey-
þór að það séu tímamót að Reykjavík
skuli lækka skatta, það hafi ekki
gerst í háa herrans tíð. „Þó að hún sé
lítil er það samt um hálfur milljarður
sem léttist af fyrirtækjunum á næsta
ári.“ Hann segir að sjóðsstreymi
fyrirtækjanna batni um þrjá millj-
arða með frestun á greiðslum skatta.
Eyþór segir áformað að vinna
næstu skref í maímánuði og þau fari
eftir því hvernig mál þróist til þess
tíma. Þá verði málin skoðuð aftur við
gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta
ár og næstu fimm ár. „Ef við sjáum
ekki fram úr ástandinu í maí þarf að
gera meira. Ég myndi vilja létta
áfram á fyrirtækjum til að halda lífi í
þeim. Án fyrirtækjanna er ekki at-
vinna og án atvinnu er ekkert útsvar.
Þótt það sé dýrt að lækka gjöldin er
enn dýrara að gera ekki neitt ef það
leiðir til þess að við töpum þús-
undum starfa, sem auðveldlega get-
ur gerst,“ segir Eyþór.
Aðgerðir borgar í breiðri sátt
Reykjavíkurborg kynnir fyrstu aðgerðir í efnahagsmálum Borgin tekur höggið á sig segir
Dagur B. Eggertsson Eyþór Arnalds segir að tillögur sjálfstæðismanna hafi náð fram að ganga
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Samstaða Dagur B. Eggertsson borgarstjóri kynnir aðgerðir borgarinnar. Að baki honum standa Dóra Björt Guð-
jónsdóttir pírati, Eyþór Arnalds og Hildur Björnsdóttir sjálfstæðismenn og Kolbrún Baldursdóttir, Flokki fólksins.
Eyþór Laxdal
Arnalds
Dagur B.
Eggertsson
Markmið aðgerðanna er að stytta
niðursveifluna, verja lífsafkomu
borgarbúa, styðja við endurreisn
atvinnulífs og skapa á ný blómlega
framtíð. Hér eru nokkur dæmi.
Gjaldfrestir
Fyrirtæki fá frest á greiðslu allt að
þriggja gjalddaga fasteignaskatta
atvinnuhúsnæðis. Þá verður skatt-
urinn lækkaður úr 1,65 í 1,60% á
næsta ári. Gjöld til leikskóla, frí-
stundar og grunnskóla verða leið-
rétt í samræmi við skerta þjónustu.
Sundkort og menningarkort verða
framlengd.
Framkvæmdum flýtt
Áformað er að flýta fjárfestingum
og auka viðhald á vegum borgar og
borgarfyrirtækja um 5 milljarða á
árinu og meira á næsta ári. Þá
verður samkeppnum um skipulag
og hönnun fjárfestingarverkefna
flýtt og gerð deiliskipulags vegna
þeirra sett í forgang.
Markaðsátak
Reykjavíkurborg
verður virkur þátt-
takandi í markaðs-
átaki stjórnvalda
til að fjölga ferða-
mönnum á ný. Þá
er ætlunin að vera
með sérstaka
markaðssetningu fyrir Reykjavík
sem áfangastað ferðafólks árin
2020 til 2021. Kostnaður er áætl-
aður að minnsta kosti 150 milljónir.
Niðursveiflan verði
stytt sem mest