Morgunblaðið - 27.03.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2020
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Fallegar vörur
fyrir heim
Stærð 232 cm | Verð 299.000 kr.
Stærð 202 cm | Verð 275.000 kr.
Stærð 172 cm | Verð 235.000 kr.
ili
Sendum
um
land allt
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ný talning Samtaka iðnaðarins (SI)
leiðir í ljós verulegan samdrátt í
smíði íbúða. Þannig voru 42% færri
íbúðir á fyrstu byggingarstigum á
höfuðborgarsvæðinu en í talningu
samtakanna vorið 2019.
Alls voru 11% færri íbúðir í smíð-
um en í fyrravor. Til samanburðar
mældist 22% aukning í talningunni í
fyrra. Þetta er mesti samdráttur frá
árunum 2011-12.
Vegna þessa hafa SI endurmetið
spá sína um fjölda
fullgerðra íbúða á
höfuðborgar-
svæðinu. Þau
áætla nú að um
2.100 íbúðir verði
fullgerðar í ár, en
það er 30% sam-
dráttur frá
spánni í mars
2019. Húsnæði
telst vera í bygg-
ingu þegar sökk-
ull hefur verið reistur.
Samdrátturinn er enn meiri utan
höfuðborgarsvæðisins. Þannig voru
nú 44% færri íbúðir komnar að fok-
heldu en í fyrra.
Samverkandi þættir
Sigurður Hannesson, fram-
kvæmdastjóri SI, segir nokkrar
ástæður fyrir samdrættinum.
Í fyrsta lagi markaðsbrest á
íbúðamarkaði. Dýrari íbúðir séu að
koma á markað en kaupendur sækist
eftir. Fyrir vikið geti verktakar setið
uppi með óseldar íbúðir. Það geti aft-
ur tafið ný verkefni. Í öðru lagi hafi
fjármálakerfið haldið að sér höndum
og gert auknar kröfur um eigið fé í
verkefnum. Í þriðja lagi hafi ákvarð-
anir sveitarfélaga mikla þýðingu.
Þau hafi enda í gegnum skipulags-
málin mikið um það að segja hvað er
byggt og hvar. Í fjórða lagi hafi
óvissan í hagkerfinu farið vaxandi
síðustu 12-18 mánuði. „Ríki, sveitar-
félög og iðnaðurinn þurfa að taka
höndum saman til að tryggja að stöð-
ug uppbygging sé til staðar á öllum
tímum. Samtök iðnaðarins hafa átt
góð samtöl við Reykjavíkurborg og
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og
er ég vongóður um að það leiði til
nýrra uppbyggingarverkefna,“ segir
Sigurður.
Við þetta bætist heimsfaraldur
kórónuveiru. Tekur Sigurður fram
að íbúðatalningin hafi verið gerð áð-
ur en faraldurinn breiddist út til
Evrópu og Íslands.
Fyrst og fremst eldri verkefni
„Stóru tíðindin eru verulegur
samdráttur í byggingum upp að fok-
heldu, þ.e.a.s. upp að fyrstu bygg-
ingarstigum, eða rúmlega 40%. Það
eru afgerandi skilaboð um stöðuna.
Þótt sjá megi krana víðs vegar um
bæinn eru það fyrst og fremst verk-
efni sem fóru af stað fyrir löngu,“
segir Sigurður.
Merki um samdrátt í byggingar-
iðnaði hafi byrjað að birtast í fyrra.
Sala á sementi og steypustyrktar-
járni hafi dregist saman, VSK-velta
sömuleiðis og launþegum fækkað.
Vegna þessa samdráttar muni
færri íbúðir koma á markað á næstu
árum. Fyrir vikið kunni að skapast
skortur á íbúðum eftir 3-5 ár.
Einhverjir munu þurfa aðstoð
Ríkisstjórnin hefur kynnt aðgerð-
ir til að aðstoða fyrirtæki sem verða
fyrir tekjufalli vegna faraldursins.
Sigurður telur aðspurður að ein-
hverjir félagsmenn SI muni þurfa á
þessari aðstoð að halda.
„Staða sumra er góð og verkefna-
staðan líka. Staða fyrirtækjanna er
þó misjöfn. Við höfum í þessu sam-
bandi mikið horft á tillögur félags-
málaráðherra um svokölluð hlut-
deildarlán,“ segir Sigurður.
Vísar hann til áforma um að ríkið
leggi fyrstu kaupendum til eigið fé
vegna kaupa á nýbyggðum íbúðum.
Rætt hefur verið um fimmtung af
kaupverði í þessu samhengi.
Telur Sigurður að lánin muni
skapa hvata fyrir verktaka til að
auka framboð á markaðnum.
Byggi hagkvæmar íbúðir
Flest byggingarefni á Íslandi eru
innflutt. Því er spurning hvaða áhrif
gengislækkunin undanfarið og
mögulega minnkandi kaupmáttur
vegna kreppunnar muni hafa á
markaðinn.
Að mati Sigurðar mun þessi þróun
leiða til þess að byggðar verði hlut-
fallslega fleiri hagkvæmar íbúðir.
Það verði enda minni eftirspurn eftir
dýrari íbúðum.
Hann rifjar upp að miklar sveiflur
hafi orðið í íslenskum byggingar-
iðnaði síðustu áratugi. Því sé viðbúið
að uppsveiflan í greininni verði meiri
en í hagkerfinu almennt, þegar hjól
efnahagslífsins fara að snúast á ný.
Alls eru tæplega 3.000 íbúðir fok-
heldar og lengra komnar og er það
fjölgun um 22% frá vortalningunni
2019. Hefur ekki verið flutt inn í um
720 þeirra íbúða en fjöldinn þykir
benda til lengri meðalsölutíma en
áður.
Mikill samdráttur í smíði íbúða
42% færri íbúðir eru á fyrstu byggingarstigum á höfuðborgarsvæðinu en í talningunni vorið 2019
Framkvæmdastjóri SI telur samdráttinn geta leitt til skorts á nýjum íbúðum eftir nokkur ár
Sigurður
Hannesson
Morgunblaðið/Eggert
Byggt á Hlíðarenda Samtök iðnaðarins hafa endurmetið spá um fjölda
nýrra íbúða á þessu ári til lækkunar. Margir þættir skýra samdráttinn.
Fjöldi íbúða í byggingu á höfuðborgarsvæðinu
Þús. íbúða í maí 2010 til mars 2020 skv. talningu Samtaka iðnaðarins
5
4
3
2
1
0
Heimild: Samtök iðnaðarins
maí mars nóv. sept. feb. sept. mars okt. mars okt. feb. feb. sept. mars sept. mars sept. mars
2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020
4.500 íbúðir eru í byggingu á höfuðborgar-svæðinu í mars 2020, sem er um
11% samdráttur frá mars 2019
Íbúðir í byggingu að fokheldu á höfuðborgarsv.
Þús. íbúða í feb. 2016 til mars 2020 skv. talningu Samtaka iðnaðarins
3,0
2,5
2,0
1,5
1,0
0,5
0
febrúar september febrúar september mars september mars september mars
2016 2017 2018 2019 2020
Heimild: Samtök iðnaðarins
42% samdráttur er í fjölda íbúða í byggingu að
fokheldu frá mars 2019 skv. talningu SI Um
1.490
íbúðir
Fyrir fimm dög-
um stofnaði Óm-
ar Bragi Stef-
ánsson, lands-
fulltrúi hjá UMFÍ,
sem býr á Sauð-
árkróki, vefinn
Skín við sólu á
Facebook. Var
þetta hugsað til
að létta Skagfirðingum lífið, búsett-
um og burtfluttum, vinum þeirra og
vandamönnum um heim allan. Í gær
höfðu um 3.600 manns skráð sig í
hópinn og urmull mynda og frá-
sagna á léttu nótunum hefur birst.
Skín við sólu laðar
til sín þúsundir
Fyrirtækið Sýni, sem býður upp á
ráðgjöf og þjónustu við matvæla-
fyrirtæki og fóðurframleiðendur,
hugar vel að flokkun lífræns úr-
gangs, sem kemur sér vel í miðjum
veirufaraldri.
Í byrjun ársins 2019 ákvað fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, Snorri
Þórisson, að kaupa grænan gám
undir lífrænan úrgang og vildi
þannig auðvelda starfsmönnum að
flokka lífrænan úrgang og um leið
að gera eitthvað gott til samfélags-
ins. Hver starfsmaður fékk tvær
fötur til umráða ásamt lífrænum
plastpokum til að hefja lífræna
flokkun. Hefur þetta framtak
heppnast mjög vel, en hjá Sýni
starfa 25 manns. Urðu starfsmenn
meðvitaðri um eigin neyslu, um leið
og samheldni þeirra jókst.
Flokkað Kátir starfsmenn Sýnis með
flokkunarföturnar á lofti.
Fengu gám undir
lífrænan úrgang
Fyrirtækið Tækninám, sem hefur
sérhæft sig í námskeiðshaldi í upp-
lýsingatækni, býður nú ókeypis
námskeið í fjarvinnu með forritinu
Microsoft Office 365. Er þetta gert
til að styðja einstaklinga og fyrir-
tæki sem vilja hagnýta sér fjar-
vinnumöguleika á tímum kórónu-
veirufaraldursins.
Námskeiðsefnið er á íslensku og
eru kennarar til staðar í gegnum
vefgátt. Ábending um þetta fram-
tak barst átakinu Stöndum saman.
Ókeypis námskeið í
fjarvinnu á Office