Morgunblaðið - 27.03.2020, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 27.03.2020, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2020 Sími 558 0000 info@matarkjallarinn.is www.matarkjallarinn.is Aðalstræti 2, 101 Reykjavík 30% AFSLÁTTUR af TAKE AWAY matseðli ef sótt eða sent heim en ferðin kostaði tæpar 750 þúsund krónur samtals fyrir þau bæði. Auk þess lögðu þau fram læknisvottorð, eins og krafist var. Töldu þau að þar sem þau hefðu keypt sérstaka forfallatryggingu hjá ferðaskrifstof- unni væru þau vel sett. Auk þess að vera með forfallatrygginguna voru þau tryggð hjá VÍS, með bestu mögulega tryggingavernd, að þeirra mati, í gegnum Platinum VISA-kort með tengingu við Ice- landair. Í tölvupóstsamskiptum sem Morgunblaðið hefur undir höndum sést hvernig fyrirtækin vísa hvort á annað þegar reynt er að fá trygg- inguna greidda. Bæði fyrirtæki segjast munu greiða það sem upp á vantar, eftir að hitt fyrirtækið hefur greitt þá hámarkstryggingafjárhæð sem því ber skylda til, samkvæmt tryggingaskilmálum. En meðan hvorugt fyrirtækið tekur af skarið og greiðir sína tryggingu út er mál- ið í hnút. Hámarksfjárhæð sem VÍS myndi borga skv. tryggingaskilmál- um er um 400 þúsund, og sam- kvæmt því ætti Úrval Útsýn að reiða fram u.þ.b. 350 þúsund, ef allt gengi upp samkvæmt þessu. „[...] þurfa farþegar að fara í tryggingafélag sitt fyrst, koma með greiðslu kvittun frá tryggingafélagi, ef tryggingafélag greiðir ekki þá þurfum við að fá staðfestingu frá tryggingafélaginu á að þau eigi ekki rétt á greiðslu bóta,“ segir orðrétt í tölvupósti frá ferðaskrifstofunni um málið. Í pósti tryggingafélagsins eru skilaboðin á svipaða lund: „[...] Við þurfum að fá staðfestingu frá ferða- skrifstofunni hvort að þau fái eitt- hvað endurgreitt eða ekki.“ Betra að vera með aðra trygg- inguna en báðar Eins og viðmælandi Morgun- blaðsins orðar það hefðu hjónin mögulega verið betur sett ef þau hefðu bara verið með aðra trygg- inguna. Víst er að fleiri gætu haft svipaða sögu að segja, ekki hvað síst nú þegar nær öllum ferðum hefur verið aflýst, eða frestað, vegna útbreiðslu kórónuveirunnar um heim allan. Tryggð en samt ekki Morgunblaðið/Eggert Ferðir Áður en faraldurinn hófst hlökkuðu margir til sólarlandaferða.  Lítt tölvufær öldruð hjón fá ekki bætta 750 þúsund króna ferð  VÍS og Úrval Útsýn í störukeppni  Eru í sjálfskipaðri sóttkví vegna undirliggjandi sjúkdóma Endurgreiðslur » Forfallatryggingar frá ferða- skrifstofum virðast ekki duga til að fá endurgreiddar ferðir sem búið er að borga. » Mögulega er betra að vera með færri tryggingar en fleiri. » Aldraðir og sjúkir í verri stöðu en aðrir. BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Öldruð hjón, sem töldu sig vera tryggð í bak og fyrir vegna pakka- ferðar sem þau þurftu að afbóka sig í, eru nú send fram og til baka á milli ferðaskrifstofunnar sem þau keyptu ferðina af, Úrvals Útsýnar, og tryggingafélagsins sem þau eru í viðskiptum við, VÍS. Báðir aðilar benda á hinn og er málið því í ein- kennilegri pattstöðu. Vill ekki hugsa hugsunina til enda Hjónin eru ekki tölvufær, og í sjálfskipaðri sóttkví vegna veikinda. Því hefur dótturdóttir þeirra séð um samskiptin við fyrirtækin. Hún segist í samtali við Morgunblaðið ekki geta hugsað þá hugsun til enda ef afi hennar og amma hefðu þurft að standa sjálf í þeim samskiptum sem hún hefur þurft að sjá um fyrir þau, og telur að þau, og margir sem lendi í svipaðri aðstöðu, myndu hreinlega gefast upp og taka tapið á sig, ef ekki væri einhver til staðar eins og hún, sem gæti liðsinnt þeim. Veiktust fyrir Covid-19 Í tilfelli hjónanna, sem eru á átt- ræðis- og níræðisaldri, veiktust þau áður en kórónuveirufaraldurinn fór af stað fyrir alvöru, og snýr afbók- unin því ekki að faraldrinum. Þau tilkynntu ferðaskrifstofunni afbókun ferðarinnar í lok febrúar, starfsmenn munu verða fyrir skerð- ingum vegna þessa. Í orðsendingu sem Grímur Sæ- mundsen, forstjóri fyrirtækisins og stærsti hluthafi, sendi starfsfólki í gær sagði hann að skammtímaáhrif heimsfaraldursins sem nú gengi yfir væru gríðarleg „en hver þau verða á framtíðarrekstur félagsins er óljóst að svo stöddu“, Sagði hann að aðgerð- irnar sem nú væri ráðist í væru til þess gerðar að vernda þau störf sem eftir stæðu hjá fyrirtækinu og jafn- framt tryggja rekstur Bláa lónsins til framtíðar. Morgunblaðið óskaði upp- lýsinga hjá Bláa lóninu um hvort stjórnendur fyrirtækisins myndu halda óskertum starfskjörum í gegn- um þessar hræringar, m.a. með vísan til þeirrar ákvörðunar stjórnar og stjórnenda Icelandair Group um að lækka laun sín um 20-30%. Sagði í svari frá Bláa lóninu að stjórnendur, sem og aðrir starfsmenn fyrirtækisins sem áfram yrðu í 100% starfshlutfalli, myndu halda „óskertum launum“. Samkvæmt ársreikningi Bláa lóns- ins fyrir árið 2018 námu laun forstjóra Bláa lónsins og fimm manna stjórnar fyrirtækisins á árinu 1,22 milljónum evra, jafnvirði ríflega 162 milljóna króna miðað við gengi krónu gagnvart evru í árslok 2018. Í fyrra greiddi Bláa lónið eigendum sínum arð sem nam um 4 milljörðum króna. ses@mbl.is Bláa lónið sagði upp 164 starfs- mönnum í gær, en starfsemi fyrir- tækisins hefur að stærstum hluta legið niðri eftir að starfsstöðvum þess var lokað síðastliðinn mánu- dag. Eftir uppsagnirnar starfa um 600 manns hjá fyrirtækinu sam- kvæmt upplýsingum frá því og mun hluti þess starfsfólks búa við skert starfshlutfall á komandi mánuðum í samræmi við úrræði stjórnvalda sem gerir fyrirtækjum kleift að færa starfshlutfall fólks niður um allt að 75% gegn hlutabótum úr at- vinnuleysistryggingasjóði. Ekki hefur komið fram hversu margir Segir upp 164 starfsmönnum  Stjórnendur Bláa lónsins og aðrir í 100% starfi halda óskertum starfskjörum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bláa lónið Vinsælasti ferðamanna- staður Íslands á síðustu árum. ● Gengi bréfa Marel hækkaði um tæp 7% í Kauphöll Íslands í gær í tæplega 525 milljóna króna viðskiptum. Bréf félagsins höfðu gefið talsvert eftir á markaði það sem af er ári, líkt og flest önnur, en eftir hækkunina í gær nemur lækkunin frá áramótum 10,26%. Bréf Origo hækkuðu um 6,5% í viðskiptum og TM hækkaði um 6,2%. Þá hækkuðu bréf Símans um 5,21% og Arion banka um 3,77%. Sjóvá hækkaði um 3,67% og Hagar um 3,55%. Bréf Sýnar hækkuðu um 3,39% og Festar um 3,07%. Aðeins fjögur félög lækkuðu í við- skiptum. Icelandair lækkaði um 0,27% eftir að hafa hækkað mikið síðustu daga. Þá lækkuðu bréf Brims um 0,53% og Icelandair Seafood Inter- national um 0,665. Mest nam lækkun Heimavalla, eða 0,68%. Marel hækkaði mest allra félaga í Kauphöll 27. mars 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 140.07 140.73 140.4 Sterlingspund 166.9 167.72 167.31 Kanadadalur 97.41 97.99 97.7 Dönsk króna 20.283 20.401 20.342 Norsk króna 12.846 12.922 12.884 Sænsk króna 13.876 13.958 13.917 Svissn. franki 142.7 143.5 143.1 Japanskt jen 1.2588 1.2662 1.2625 SDR 189.5 190.62 190.06 Evra 151.48 152.32 151.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 179.1541 Hrávöruverð Gull 1620.95 ($/únsa) Ál 1532.5 ($/tonn) LME Hráolía 27.8 ($/fatið) Brent ● Viðar Þorkels- son, forstjóri Val- itor, hefur komist að samkomulagi við stjórn félagsins um starfslok. Hann hefur gegnt starf- inu í áratug. Við starfi Viðars tekur tímabundið Herdís Fjeldsted, sem verið hefur formaður stjórnar Valitor. Við starfi hennar yfir sama tímabil tekur Þór Hauksson, varaformaður stjórnarinnar. Valitor hefur átt í talsverðum rekstrarerfiðleikum á undanförnum ár- um. Tap fyrirtækisins nam 1,9 millj- örðum króna á árinu 2018. Þá tapaði fyrirtækið 10 milljörðum króna á síð- asta ári, en fyrirtækið er í eigu Arion banka. Bankinn hefur um alllangt skeið verið með fyrirtækið í söluferli og hefur bókfært virði þess í bókum bankans lækkað gríðarlega yfir sama tímabil. Viðar lætur af störfum sem forstjóri Valitor Viðar Þorkelsson STUTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.