Morgunblaðið - 27.03.2020, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2020
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is
Gerið verðsamanburð
Full búð
af nýjum
og
fallegum
vörum
4.990 kr.
Blússa
7.990 kr.
Peysa
Hleypa útlendingum
ekki aftur í landið
Kína Læknar að störfum í Wuhan.
KÍNA
Stjórnvöld í Kína tilkynntu í gær að
þau ætluðu að loka fyrir alþjóð-
legar flugleiðir og hindra að út-
lendingar sem byggju í landinu
gætu snúið aftur þangað, jafnvel þó
að þeir hefðu gildar vegabréfsárit-
anir og dvalarleyfi. Er þessum
tímabundnu ráðstöfunum ætlað að
stemma stigu við útbreiðslu
kórónuveirunnar.
Kínverjar hafa ekki tilkynnt um
nýtt innanlandssmit af kórónuveir-
unni síðustu tvo daga en hafa hins
vegar skrásett meira en 500 tilfelli
þar sem smitaður einstaklingur
kom að utan. Langflestir þeirra
voru kínverskir ríkisborgarar.
Dómsmálaráðu-
neyti Bandaríkj-
anna kynnti í
gær ákærur á
hendur Nicolas
Maduro, forseta
Venesúela, fyrir
hryðjuverka-
starfsemi tengda
fíkniefnasmygli.
Hefur Banda-
ríkjastjórn einn-
ig heitið verðlaunum upp að 15
milljónum bandaríkjadala fyrir
hverjar þær upplýsingar sem leitt
geta til handtöku hans.
Ákærurnar ná einnig til nokk-
urra af helstu samstarfsmönnum
Maduros, þar á meðal varnarmála-
ráðherra landsins, Vladimir
Padrino Lopez.
Mike Pompeo, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í yfirlýsingu
sinni að Venesúelabúar ættu betra
skilið en ríkisstjórn sem styddi við
ólöglegt fíkniefnasmygl.
Setja 15 milljónir
Maduro til höfuðs
Nicolas
Maduro
VENESÚELA
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Tilfellum kórónuveirunnar hefur
fjölgað hratt í Bandaríkjunum, og
hafa rúmlega þúsund ný tilfelli verið
greind þar á dag undanfarna tvo
daga. Eru nú 82.404 staðfest tilfelli
samkvæmt talningu Johns Hopkins-
háskólans og eru Bandaríkin þá kom-
in fram úr Kína. Í Bandaríkjunum
hafa 1.178 látist af völdum veirunnar.
Meira en hundrað manns létust af
völdum veirunnar í New York-ríki í
gær, en alls hafa nú 385 dáið í ríkinu.
Andrew Cuomo, ríkisstjóri New
York, varaði við því í gær að allt
stefndi í að hjúkrunargeta ríkisins
myndi ekki ná að anna þeim mikla
fjölda sem þyrfti á aðstoð að halda á
næstu vikum. Einungis um 140.000
sjúkrarúm eru til staðar í New York-
borg, og reyna borgaryfirvöld nú að
auka þann fjölda með öllum ráðum.
Bill de Blasio, borgarstjóri New
York, sagði í fyrrinótt að ljósi punkt-
urinn væri sá að neyðaraðstoð frá
bæði New York-ríki og bandaríska al-
ríkinu væri loks farin að berast, en
hún samanstendur af bæði grímum
og öndunarvélum.
Metfjöldi atvinnulausra
Skaðleg áhrif faraldursins á efna-
hag Bandaríkjanna eru einnig að
koma í ljós, þrátt fyrir að neyðarpakki
stjórnvalda upp á 2.000 milljarða
bandaríkjadala hafi ýtt við mörkuð-
unum á Wall Street.
Samkvæmt atvinnumálaráðuneyti
Bandaríkjanna sóttu 3,3 milljónir
manna um atvinnuleysisbætur í síð-
ustu viku. Hefur skrásett atvinnu-
leysi í Bandaríkjunum aldrei verið
meira. Fækkaði störfum einkum í
þjónustuiðnaði og samgöngum.
Tilfellum fjölgar
hratt vestanhafs
Aldrei fleiri á
atvinnuleysisskrá í
Bandaríkjunum
AFP
New York Eyðilegt er um að litast í
New York-borg þessa dagana.
hagkerfi evrusvæðisins. Eftir alþjóð-
legu fjármálakreppuna 2008-9 var
Þýskaland leiðandi í björgunarað-
gerðum til handa evrusvæðinu. Þær
aðgerðir voru umdeildar, ekki síst
gagnvart Grikklandi, og höfðu póli-
tískar afleiðingar.
Áður en faraldurinn braust út var
þýskur iðnaður á krossgötum vegna
breytinga í bílaiðnaði. Við það bætist
pólitískur óstöðugleiki, en illa hefur
gengið að finna kanslaraefni til að
taka við af Angelu Merkel.
Þrátt fyrir magnbundna íhlutun
Evrópska seðlabankans og aðrar
örvandi aðgerðir hafa mörg hagkerfi
Evrópu verið í hægagangi. Víða er
skuldavandinn því óleystur.
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Eurostat, sem birtar voru í lok jan-
úar, var aðeins 0,1% hagvöxtur á
evrusvæðinu á fjórða ársfjórðungi
2019. Þá var um 1% hagvöxtur á
evrusvæðinu milli fjórða fjórðungs
2018 og 2019. Í nóvember, áður en
þessar tölur voru birtar, gaf fram-
kvæmdastjórn ESB út greiningu á
útgjaldaáformum evruríkjanna í ár.
Valdis Dombrovkis, sem fer með
gjaldeyrismál í framkvæmdastjórn-
inni, sagði ekki reiknað með að
Frakkar, Ítalir, Spánverjar eða
Belgar myndu ná markmiðum um
lækkun skulda á þessu ári.
Það væri áhyggjuefni enda skerti
það svigrúm ríkjanna til að bregðast
við áföllum í efnahagskerfinu.
Hagvöxturinn neikvæður
Þau tíðindi bárust síðan í vor að
hagkerfi Ítalíu og Frakklands hefðu
skroppið saman á síðasta fjórðungi í
fyrra. Hagvöxtur hefði verið nei-
kvæður.
Ítalska ríkið skuldaði um 135% af
vergri landsframleiðslu um áramót.
Hlutfallið í Frakklandi var um 100%.
Vegna kórónuveirufaraldursins
munu hagkerfi þessara tveggja ríkja
verða fyrir gífurlegu höggi á fyrri
hluta ársins hið minnsta. Því er
viðbúið að skuldastaðan versni.
Afleiðingarnar af því til lengri
tíma gætu orðið þær að ríkið hafi
minni burði til að veita þjónustu og
sífellt hærra hlutfall launa borgar-
anna fari í niðurgreiðslu ríkisskulda.
Hriktir í stoðunum
Þessi þróun gæti aftur sáð fræjum
pólitísks óstöðugleika í álfunni.
Rifjast þá upp millistríðsárin.
Á hinn bóginn gæti svo stórt sam-
eiginlegt áfall sameinað þjóðirnar.
Evrópski seðlabankinn greindi í
síðustu viku frá 750 milljarða evra
björgunaraðgerðum vegna eftir-
spurnarfalls í hagkerfunum, til við-
bótar við 120 milljarða evra pakka
fyrr í mánuðinum.
Samkvæmt úttekt viðskiptarit-
stjóra Guardian nema björgunarað-
gerðir 12 Evrópuríkja, að Bretlandi
meðtöldu, alls 1,7 billjónum evra.
Þar af er hlutur Þýskalands 550
milljarðar evra.
Peningaprentvélarnar eru því á
yfirsnúningi en óvíst um árangurinn.
Útlitið dökknar enn
frekar á evrusvæðinu
Vísitala þjónustugeirans í Þýskalandi hrynur Spáð er allt að 20% samdrætti
Vegna lítils hagvaxtar og ríkisskulda var evrusvæðið í vanda fyrir faraldurinn
Evrusvæðið – umsvif þjónustugeirans*
Breyting í % milli ársfjórðunga, 1999-2020
1,5%
1,0%
0,5%
0%
-0,5%
-1,0%
-1,5%
-2,0%
-2,5%
60
55
50
45
40
35
30
25
'99 '01 '03 '05 '07 '09 '11 '13 '15 '17 '19 '20
Þjónustugeirinn
á evrusvæðinu
Vísitala fyrir
þjónustugeirann
á evrusvæðinu**
Heimild: IHS Markit Eurozone
Services (PMI) og Eurostat.
**Byggir á könnun meðal stjórnenda
(PMI), einskonar væntingavísitala.
*Tölur Eurostat ná til verslunar en
ekki til umræddrar könnunar.
Ví
sit
ala
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Hagvísar á evrusvæðinu vitna um að
hagkerfin eru í frjálsu falli vegna
kórónuveirufaraldursins.
Greiningarfyrirtækið IHS Markit
tekur saman vísitölu um umsvif
þjónustugeirans á evrusvæðinu.
Vísitalan er endurgerð á grafinu hér
til hliðar. Eins og sjá má hefur vísi-
talan – græna línan – hrunið og er
gildið nú lægra en eftir alþjóðlegu
fjármálakreppuna 2008-9. Og áhrifin
eru nýbyrjuð að koma fram.
Vísitalan sýnir landsframleiðslu
þjónustugeirans, samkvæmt
sundurliðun á framlagi atvinnu-
greina til landsframleiðslunnar.
Á vef IHS Markit er bent á að
þjónustugreinar á borð við ferða-
þjónustu og veitingasölu hafi orðið
sérstaklega hart úti í faraldrinum.
Þarf ekki að hafa um það mörg orð.
Ferðalög eru bönnuð og óheimilt að
koma saman á veitingahúsum.
Mesta fall í þrjá áratugi
IFO-stofnunin í Þýskalandi hefur
tekið saman vísitölu um væntingar í
viðskiptalífinu frá árinu 1991, eða
hér um bil frá sameiningu Þýska-
lands. Gildið 100 miðast við stöðuna í
janúar 2005 en þátttakendur eru um
sjö þúsund. Samkvæmt síðustu mæl-
ingu í mars var gildið komið niður í
86,1 stig, sem er lægsta gildið frá júlí
2009. Það var mesta lækkun milli
mánaða frá sameiningu Þýskalands.
Haft var eftir Klaus Wohlrabe,
hagfræðingi hjá IFO-stofnuninni að
þýska hagkerfið gæti skroppið sam-
an um 5-20% í ár, allt eftir því hversu
lengi faraldurinn varir.
Algjör óvissa er um þann þátt.
Bjargvættur nú í vanda
Þýskaland er stærsta og öflugasta
Wopke Hoekstra, fjármála-
ráðherra Hollands, varaði við
freistnivanda í tilefni af hug-
myndum um björgunarpakka
vegna faraldursins.
Financial Times fjallar um
málið og segir þessi sjónarmið
hafa fallið í grýttan svörð í
Suður-Evrópu. Að sama skapi
hafi þeim ummælum Hoekstra
verið illa tekið að ESB ætti að
rannsaka hvers vegna sum ríki
séu jafn illa í stakk búin og raun
ber vitni til að mæta kreppu.
Varar við
freistnivanda
BJÖRGUNARPAKKAR