Morgunblaðið - 27.03.2020, Side 15
15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2020
Öllum þykir lýðræði
göfugt stjórnarfar.
Sennilega hefur ekkert
betra verið fundið upp.
Sumir dásama jafnvel
beint lýðræði og telja
það allra meina bót
þótt ótal dæmi sýni að
fulltrúalýðræði sé af-
farasælla. Þeir, sem
vilja nýta kosti lýðræð-
is, dansa stundum á
mörkum þess og lýð-
skrums. Það er erfitt að öðlast lýð-
hylli að verðleikum. Þess eru dæmi
að einstaklingar séu mærðir í ræðu
og riti. Oft verður mærðin slík að lof-
ið snýst í andhverfu sína og verður
að háði.
Þannig bar eitt sinn við að vel met-
ið skáld ritaði grein í Morgunblaðið
þar sem skáldið mærði forseta lýð-
veldisins og vildi leggja í samtök til
að tilnefna forsetann til friðarverð-
launa Nóbels. Sá er þetta ritar reidd-
ist mjög og taldi skáldið hið allra
versta skáld. Sá, er þetta ritar, er
þekktur af skapstillingu og las grein-
ina aftur. Þá lá í augum uppi að
skáldið var að oflofa forsetann með
háði, og skáldið varð aftur hið besta
skáld.
Lýðsleikjur
Það er tilraunarinnar virði að
reyna að skilgreina lýðsleikjur.
Sennilega er megineinkenni lýð-
sleikja það, að lýðsleikjur skilgreina
sig sem gallalausar persónur til fyrir-
myndar fyrir aðra. Þeir, sem eru lýð-
sleikjum ekki að skapi, eru hæddir og
smánaðir við hvert tækifæri, því
„þau“ eru ekki eins og
„við“.
Í góðri bók segir
„Hver sem upp hefur
sjálfan sig mun auð-
mýktur verða en sá
sem lítillækkar sjálfan
sig mun upp hafinn
verða.“ Í sömu bók
segir einnig: „Öll sín
verk gera þeir til að
sýnast fyrir mönnum,
þeir breikka minnis-
borða sína og stækka
skúfana. Ljúft er þeim
að skipa hefðarsæti í
veislum og æðsta bekk í sam-
kundum, láta heilsa sér á torgum og
kallast meistarar af mönnum.“ Hér
er fjallað um farisea í Svörtu bók-
inni.
Íslendingar í Svíþjóð
Eitt sinn var greinarhöfundur á
leið heim frá útlöndum. Eins og oft
vill verða ræður hending sessunaut
í flugi. Sessunautur minn var Svíi,
sem starfaði alla tíð hjá Sameinuðu
þjóðunum. Hann stundaði nám við
Stokkhólmsháskóla í seinni heims-
styrjöldinni. Lýsing sessunautarins
á íslenskum námsmönnum var held-
ur nöturleg. Hann sagði flesta hafa
verið mikla kommúnista en margir
þeirra hafi verið illa agaðir og
drykkfelldir. Hann mundi eitt nafn,
það var Haralz, aðeins mikill komm-
únisti en mjög agaður. Ég gat róað
sessunautinn með því að segja hon-
um að Haralz væri einn af efnahags-
sérfræðingum á hægri væng ís-
lenskra stjórnmála. Því skal haldið
til haga að í Svíþjóð voru margir Ís-
lendingar við nám í verkfræði,
læknisfræði og jarðfræði. Enginn
efast um hæfni þeirra og framlag til
eflingar lands og lýðs þegar námi
lauk og þeir hófu störf á Íslandi.
Sessunautur í flugvél
Eitt sinn sagði ég Jónasi Haralz
þessa sögu og nafngreindi sessunaut-
inn. Jónas mundi ekki eftir honum.
Jafnframt ræddi Jónas þennan hluta
ævi sinnar af yfirvegun.
Það kom mér því ekki á óvart þeg-
ar ég fann eftirfarandi um Jónas
Haralz í Þjóðviljanum 1946, en þá var
hann ungur hagfræðingur:
„Í dag mun alþýðuæska Reykja-
víkur fylkja sér um sinn frambjóð-
anda og eignast þannig djarfan, ötul-
an og glæsilegan fulltrúa í bæjar-
stjórn“.
„Jónas Haralz verður í dag gerður
að málsvara hinnar reykvísku verka-
lýðsæsku í bæjarstjórn“. Sennilega
var Jónas borgarstjóraefni.
Í ljósi sögunnar þá er hér vel
smurt lof og verður skoplegt 75 árum
síðar.
Jónas reyndi einnig fyrir sér í
landsmálum þetta ár, því hann var í
framboði fyrir Sósíalistaflokkinn í
Suður-Þingeyjarsýslu, gegn Jónasi
frá Hriflu.
Enginn, sem þekkir til, efast um
þekkingu Jónasar á hagfræði.
Þegar Jónas gerðist fráhverfur
sósíalisma og gekk til liðs við Sjálf-
stæðisflokkinn þurfti hann að þola
rætnar athugasemdir í sama blaði og
hampaði honum 1946. Jónas sóttist
ekki eftir lýðhylli en hann varð ráða-
góður embættismaður.
JónasHaralz var einlægur lýð-
ræðissinni. Þannig er aðdáun á lýð-
ræði ekki vís vegur til lýðhylli.
Annar „hagfræðingur“
frá Svíþjóð
Eitt sinn las ég í Sögu utanríkis-
þjónustunnar um álit eins Svíþjóðar-
hagfræðings, sem raunar hafði ekki
lokið prófi, frekar en Jón Sigurðsson,
frelsishetja. Þar hafði komið fram í
blaði í Moskvu, Síðdegis-Moskvu, að
prógressívir hagfræðingar, þýðing ís-
lenska sendiráðsins, teldu aðild Ís-
lands að Efnahagsbandalagi Evrópu
eða sameiginlega markaðnum, óráð.
Þar var próflausi Svíþjóðarhagfræð-
ingurinn álitsgjafi. Hann var fyrst og
síðast kommúnisti. Hvað prógressív-
ur hagfræðingur þýðir er mér óljóst
en sennilega á það að þýða „fram-
sýnn“, frekar en verið skop hjá sendi-
ráðinu.
Alvitar, rasistar
og virtir hagfræðingar
Nú um stundir vaða uppi nokkrir
alvitar eða kóvitar og hafa skyndilega
mikið vit á faraldsfræði og veirusjúk-
dómum. Alvita og kóvita varðar ekk-
ert um hvort aðrir hafi rannsakað og
komist að einhverju. Skyndiþekking
er borin fram af mikilli sannfæringu
sem sannleikur. Einn al- og kóviti
hefur orðið uppvís að ósannsögli í
störfum sínum á Alþingi til þess að
þjóna einkahagsmunum vina sinna.
Einn þekktur íslenskur rasisti
taldi að berklar væru sjúkdómur,
sem aðeins undirmálsfólk fengi.
Sjálfur dó rasistinn úr berklum en
hann fékk heiðursútför í Berlín, þar
sem kista hans var lögð á vagn og
dregin af átta svörtum hestum.
Einnig má nefna þegar þingmaður
„Vinstri grænna“ vitnaði í „hinn virta
hagfræðing“. Tilvitnunin í „hinn
virta“ var fullkomin endaleysa en féll
vel að lýðskrumi alvitra.
Lýðræði og úrræði
Alþingi er kjörið í almennum kosn-
ingum og að flestu leyti í samræmi
við frumreglur lýðræðis. Alþingi end-
urspeglar nokkurn veginn kjörfylgi
stjórnmálaflokka, enda þótt atkvæði
landsmanna vegi ekki jafnt. Lýð-
skrumarar telja það höfuðatriði að
lækka laun alþingismanna.
Lýðskrum sumra nýkrýndra
verkalýðsleiðtoga nú kemur fram
með þeim hætti að þeir virðast ætla
að hefja baráttu fyrir því að skerða
greiðslur úr lífeyrissjóðum. Hún er
undarleg tík, pólitíkin!
Gera verður þá kröfu að alþing-
ismenn gæti hófs í yfirboðum á efna-
hagslegum úrlausnum, sem ráðast
þarf í til þess að gera Ísland líf-
vænlegt meðan á faraldri stendur og
þegar „Eyjólfur“ hressist.
Stundum líður greinarhöfundi
þegar alvitar og kóvitar tala eins og
frú Árland sem sagði: „Þessi kven-
maður hefur verið hortug í svörum
altaf síðan hún kom í húsið, full af
einhvers konar norðanmennsku eins-
og hún væri yfir mér.“
Alvitalausnir koma frá þeim sem
eru „yfir“ öðrum. „Það ber nokkuð
nýrra við ef frelsi sálarinnar kemur
úr Norðurlandi:“ Að breyttu breyt-
anda, alvitar fyrir Norðurland.
Eftir Vilhjálm
Bjarnason » Sennilega er megin-
einkenni lýðsleikja
það að lýðsleikjur skil-
greina sig sem galla-
lausar persónur til fyrir-
myndar fyrir aðra.
Vilhjálmur
Bjarnason
Höfundur var alþingismaður.
Um lýðræði, lýðhylli og lýðskrum
Í skrifum mínum
undanfarin misseri
hef ég endurtekið
vakið athygli manna á
óheimilli meðferð
Hæstaréttar landsins
á ákvæði almennra
hegningarlaga um
umboðssvik. Sam-
kvæmt skýrum texta
laganna er ekki unnt
að telja sakaða menn
hafa brotið gegn
þessu ákvæði, nema sannast hafi á
þá tilgangur til að auðga sjálfa sig
eða aðra með háttsemi sinni. Svo
er að sjá að rétturinn hafi haft
einhvern sérstakan vilja til að
refsa þessum sökuðu mönnum án
þess að lagaskilyrðinu hafi verið
fullnægt og þar með valdið þeim
og ástvinum þeirra miklu böli.
Rétturinn henti því út þessu
einfalda skilyrði fyrir refsingum
og ákvað í staðinn að nægilegt
væri að sakborningur hefði með
háttsemi sinni valdið verulegri
hættu á að sá sem unnið var fyrir
(banki) yrði fyrir tjóni. Til þess
arna var engin heimild, en þeir
sem fara með vald, sem þeir þurfa
ekki að bera neina ábyrgð á, virð-
ast stundum hafa tilhneigingu til
að gera bara það sem þeim sýnist.
Reyndar var höfuðið bitið af
skömminni í mörgum þessara
mála með því að sakborningarnir
höfðu ekki valdið neinni hættu á
tjóni, því þeir voru að selja hluta-
bréf í bankanum, sem hefðu orðið
verðlaus í hruninu hvort sem
bankinn hefði átt þau áfram eða
verið búinn að selja þau.
Nú hefur komið í ljós með
óvæntum hætti hvaða áhrif þessi
undarlega dómaframkvæmd hefur
á lífið í landinu. Margir hafa
nefnilega áttað sig á að Hæsti-
réttur landsins hefur
tekið ákvörðun um að
refsa beri mönnum
fyrir auðgunarbrot ef
þeir gera sig „seka“
um að gera í við-
skiptum áhættusama
samninga. Þetta er
auðvitað galið, því
flestir viðskiptasamn-
ingar fela í sér ein-
hverja áhættu fyrir
samningsaðila og get-
ur hún stundum talist
veruleg.
Til dæmis er nú ljóst að bankar
geta ekki veitt viðskiptamönnum
sínum, sem eru í vandræðum
vegna veirufaraldursins, lána-
fyrirgreiðslu nema þeir geti sett
„klossöruggar“ tryggingar fyrir
endurgreiðslu af sinni hálfu. Gildir
þá einu þó að ríkissjóður hafi lof-
ast til að ábyrgjast bankanum
helming lánsins, sem viðskiptavin-
urinn fær.
Getur verið að dómarar við
æðsta dómstól landsins hafi ekki
meiri skilning á mannlífinu í land-
inu, að þeir telji sig geta „skapað“
svona rétt? Kannski þessi réttar-
sköpun hafi verið einnota?
Einnota
umboðssvik?
Eftir Jón Steinar
Gunnlaugsson
Jón Steinar
Gunnlaugsson
»Margir hafa nefni-
lega áttað sig á að
Hæstiréttur landsins
hefur tekið ákvörðun
um að refsa beri
mönnum fyrir auðgun-
arbrot ef þeir gera sig
„seka“ um að gera í
viðskiptum áhættu-
sama samninga.
Höfundur er lögmaður.
Á síðasta borgar-
stjórnarfundi lögðu
borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins fram
tillögu í fimm liðum til
að styðja við atvinnu-
lífið á gríðarlega erf-
iðum tímum CO-
VID-19. Hún var
atvinnumiðuð. Niður-
sveiflan er gríðardjúp
og hörð. Fyrstu tölur
um atvinnuskerðingu og uppsagnir
eru gríðarlega háar. Það er hlutverk
okkar að niðursveiflan verði sem
styst. Án fyrirtækjanna í borginni
eru ekki störf. Án atvinnu er ekki út-
svar. Aðaláherslur okkar eru að
styðja fyrirtækin með því að skattar
og gjöld lækki. Ríkið hefur lagt fram
öflugar mótvægisaðgerðir. Seðla-
bankinn aukið inngrip sín. Sveitar-
félögin mega ekki skorast undan. Á
síðasta borgarráðsfundi var sam-
þykktur aðgerðapakki sem gerir ráð
fyrir fyrstu skatta-
lækkunum borgarinnar
í langan tíma. Það eru
ákveðin tímamót. Þá
eru greiðslufrestir fast-
eignagjalda sam-
þykktir til að létta
róðurinn í gegnum nið-
ursveifluna. Viðhalds-
framkvæmdum og öðr-
um verkefnum flýtt.
Dótturfélög borgar-
innar hvött til að gera
slíkt hið sama. Þetta
eru fyrstu aðgerðir
borgarinnar og er mikilvægt að stað-
an sé endurmetin jafnt og þétt. Í maí
ættum við að sjá betur hversu djúp
niðursveiflan verður. Það er hlutverk
okkar að milda hana og stuðla að við-
spyrnu í ferðamálum þegar aðstæður
skapast á ný.
Stöndum saman um störfin
Með þessum nú samþykktu til-
lögum er verið að gefa nokkurn slaka.
Og það er líka verið að gefa von. Sam-
staða um sóttvarnir skiptir miklu
máli. Fyrir okkur öll. Samstaða um
að létta á álögum atvinnulífið skiptir
ekki síður máli. Við munum fylgja
þessu eftir með frekari tillögum sem
vonandi fá brautargengi. Þó að sumt
kosti talsverða fjármuni er enn dýr-
ara að gera ekki neitt. Borgin þarf nú
að forgangsraða upp á nýtt. Gera
verulegar breytingar á fyrirliggjandi
fjárhagsáætlun. Lægri skattar og
gjöld eru skjótasta leiðin til að létta
greiðslubyrðina og hjálpa lífvæn-
legum fyrirtækjum í gegnum brim-
skaflinn. Við fjárfestum best í fram-
tíðinni með því að treysta fyrirtækin í
borginni.
Stöndum saman
um léttari byrðar
Eftir Eyþór
Arnalds »Með þessum nú sam-
þykktu tillögum er
verið að gefa nokkurn
slaka. Og það er líka
verið að gefa von.
Eyþór Arnalds
Höfundur er oddviti sjálfstæðis-
manna í borgarstjórn.
Morgunblaðið/Hari
Forgangur „Borgin þarf að forgangsraða upp á nýtt. Gera verulegar breytingar á fyrirliggjandi fjárhagsáætlun.“