Morgunblaðið - 27.03.2020, Page 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2020
M
anstu eftir
skrímslinu undir
rúminu sem hélt
fyrir þér vöku í
æsku, hvernig þú
forðaðist að fara ein/n niður í
myrkan kjallara eins
og heitan eldinn eða
ónotatilfinningunni
sem fylgdi því að
horfa á umfjöllun
um stríð í fréttunum
og hugsa til þess að
einn daginn gæti
einhverjum ribbald-
anum dottið í hug að
ráðast á Ísland?
Þegar við fullorðn-
umst lærum við sem
betur fer að gera
greinarmun á raun-
verulegri og óraun-
verulegri ógn, lær-
um að takast á við erfiðleika og
áskoranir og lærum hvaða að-
ferðum hægt er að beita til að
hafa sem mesta stjórn á eigin lífi
og líðan. Þó er ekki
hægt að horfa
framhjá því að það
er margt sem við
stjórnum ekki í
þessari veröld. Að
til eru raunveruleg-
ar ógnir sem geta
breytt lífinu sem
við lifum í dag eða
haft neikvæð áhrif
á fólkið sem við
elskum. Ógnir sem
minna okkur á
hversu vanmáttug
við erum í raun.
Á þeim tímapunkti stöndum
við í dag, þótt Covid 19-kórónu-
veiran valdi okkur vissulega mis-
miklum kvíða, ótti okkar ólíkur
eftir aðstæðum okkar og við mis-
vel í stakk búin til að takast á
við breyttan takt hversdagsleik-
ans um stundarsakir. Þjóðarpúls
Gallups sem kynntur var í frétt-
um RÚV 20. mars sl. sýndi að
fimmtungur þjóðarinnar hefur
miklar áhyggjur af því að smit-
ast af veirunni og þriðjungur al-
mennings óttast mjög efnahags-
leg áhrif þessa ástands.
Þegar óljós hætta steðjar að
magnast upp tilfinning úrræða-
leysis, að við gætum mögulega
staðið frammi fyrir einhverju
sem við kunnum ekki að sigrast
á. Og sama hræðslan og við
fundum fyrir í æsku hvílir í
undirmeðvitundinni, blossar upp
í ýmsum birtingarmyndum án
þess að við séum endilega nokk-
uð færari en við vorum sem börn
að takast á við þessi ónot. Þess-
ar tilfinningar eru þó ekki á
nokkurn hátt barnalegar heldur
sammannlegar og fullkomlega
eðlileg viðbrögð við ógn. Þær
herja þó á okkur
með ólíkum hætti,
mörg verðum við
eirðarlaus, önnur
skapstygg og sum
sorgmædd. Orkulaus
og annars hugar.
Ekki alveg eins og
við eigum að okkur
að vera, jafnvel þótt
við komum ekki auga
á það sjálf.
Í 16. sálmi í sálma-
safni Davíðs í Gamla
testamentinu segir:
Varðveit mig, Guð,
því að hjá þér leita
ég hælis. Ég segi við Drottin:
„Þú ert Drottinn minn, ég á eng-
in gæði nema þig.“
Gæði finnst mér fallegt orð.
Gæði lífs okkar er
litadýrðin sem blasir
við okkur í hinu
hversdagslega, blæ-
brigði og skyggingar
af ýmsu tagi sem
glæða líf okkar á
fjölbreyttan hátt.
Oftar en ekki litlu
hlutirnir þegar allt
kemur til alls.
Og það er á tímum
sem þessum, þegar
margt í okkar dag-
legu rútínu stendur
okkur ekki til boða um stund-
arsakir, sem hin raunverulegu
gæði lífsins birtast okkur ljóslif-
andi. Að faðma kæran vin eða
vinkonu. Að slaka á í heitum
potti sundlauganna. Að hitta fé-
lagana í bumbubolta einu sinni í
viku eða hlæja innilega yfir
kaffibolla með vinnufélögum að
morgni dags. Félagsstarf og
saumaklúbbar. Að kyssa börn og
barnabörn góða nótt.
En gleymum ekki að lífsgæði
felast einnig í voninni. Voninni
um að ástandið sem nú ríkir sé
einungis tímabundið, að með
hækkandi sól takist okkur að
yfirvinna veiruna sem herjar á
okkur öll og getum af öryggi
snúið til baka til fyrra lífsmynst-
urs. Og jafnvel dregið einhvern
lærdóm af þessum tíma. Að það
sem áður þótti sjálfsagt sé það
ekki lengur.
Já, manneskjan er svo furðu-
leg hvað það varðar að við erum
svo gjörn á að taka gæði lífsins
sem sjálfsagðan hlut. Heilsuna
okkar, ferskt loft. Að geta
ferðast um allan heim án hindr-
ana. Að hafa greiðan aðgang að
heilbrigðisþjónustu dag og nótt.
Það er mín lífsreynsla að í því
að ganga samferða Guði í gegn-
um hæðir og lægðir þessa lífs
felist mikil gæði. Mörg kjósa að
nota önnur orð yfir þessa sam-
fylgd og einhver finna tengingu
við almættið með öðrum og
óhefðbundnum leiðum. En sama
hvernig Guð birtist okkur og
hvaða aðferðir við notum til að
tengja okkur við æðri kraft þá
getum við mörg sammælst um
að við myndum ekki vilja fara á
mis við þessi tengsl er kreppir
að og óvissa ríkir.
Þessi lífsgæði gáfu eldri kyn-
slóðir okkur í vöggugjöf þegar
þau sátu á rúmstokknum hjá
okkur í barnæsku og kenndu
okkur bænirnar. Sama fólkið og
gaf okkur Biblíuna í ferming-
argjöf þótt við hefðum kannski
fremur kosið pening. Fólk sem
hafði upplifað tímana tvenna og
vissi að trúin nærir og glæðir
vonina um betri tíð og vissi
einnig að aldrei er of seint að
rækta tengslin við almættið.
Nei, það eru ekki skrímslin
undir rúminu eða myrkrið í
kjallaranum sem veldur okkur
ónotum þessa dagana heldur ótt-
inn við hið ókunna. Ræðum upp-
hátt hvernig okkur líður og
þiggjum þann stuðning er okkur
stendur til boða. Leitum leiða til
að tengjast öðru fólki og styðj-
um hvert annað í gegnum þenn-
an tíma. Leyfum Guði að ganga
samferða okkur nú sem aðra
daga og þiggjum samfylgdina
sem okkur stendur öllum til
boða.
Guð blessi allt mannkyn nú er
það tekst saman á við sameigin-
lega ógn. Og Guð blessi þig les-
andi góður, í dag og alla daga,
styrki tengsl þín við algóðan
Guð og gefi þér nýja sýn á raun-
veruleg gæði þessa lífs.
Amen.
Kirkjan til fólksins
Ljósmynd/Jóhanna Gísladóttir
Lífsins gæði
Hugvekja
Jóhanna
Gísladóttir
Höfundur er sóknarprestur
Laugalandsprestakalls í
Eyjafjarðarsveit.
johanna.gi@kirkjan.is
Jóhanna
Gísladóttir
Þegar margt í
okkar daglegu
rútínu stendur
okkur ekki til
boða um stund-
arsakir birtast
hin raunveru-
legu gæði lífsins
okkur ljóslifandi.
Sumar Sólstafir
í Eyjafirði.
VINNINGASKRÁ
47. útdráttur 26. mars 2020
338 8895 16778 27526 36177 46253 56475 69317
393 8924 17313 27815 36535 46289 56486 69377
460 9175 17394 27949 36687 47165 56504 69718
652 9258 17535 28624 36759 47568 56519 69782
1304 9370 17554 28658 37065 48276 56750 69832
1331 9645 17964 28991 37247 48355 57413 70034
1697 9719 18297 29330 38124 48398 57429 70184
1748 9760 18648 29470 38275 48428 57919 70229
2187 9858 19093 29903 38807 48772 57958 70300
2201 10068 19206 30397 40417 48956 58560 70481
2474 10854 19238 30487 40447 49922 58758 71303
2582 10906 19562 30701 40458 50170 59072 71670
2603 11181 19638 31347 40689 50529 59204 72296
2934 11280 19812 31506 40918 51053 59556 72304
3185 11444 19999 32429 41155 51129 60020 72454
4191 11511 20449 32443 41206 51332 60482 72761
4671 11717 20864 32516 41333 51526 60988 73346
4743 12286 20911 32535 41362 51572 61044 73510
4930 12303 21122 32647 41556 51709 61221 73949
5140 12343 21544 32964 41600 51978 61895 73958
5359 12404 21837 33119 41673 52052 62481 74216
5392 12844 21985 33171 42006 52092 62634 74493
5471 12905 22097 33308 42039 52158 63223 75459
5591 13143 22146 33484 42071 52433 63740 75881
5718 13424 22626 33609 42160 52674 63808 76294
5732 13665 23767 33699 43044 52716 63935 76381
5789 14218 23871 33974 43064 53136 64276 76571
6567 14229 24364 34321 43522 53649 64290 76757
6615 14422 24566 34431 44384 53828 64858 76946
7399 14740 25212 34518 45097 54127 65175 77076
7473 14782 25360 34605 45391 54189 65485 77094
7529 15004 25942 35009 45418 54700 66075 77180
7647 15156 25984 35217 45562 54940 66145 77284
7757 15176 26054 35420 45691 54961 66191 77435
7833 15229 26113 35515 45736 55566 66620 77550
8132 15551 26313 35632 45772 55642 66750 77969
8134 15868 26424 35718 45958 55664 67157 78084
8630 15922 26463 35814 45997 56002 67711 79152
8760 16343 27247 35880 46104 56112 68291 79300
8784 16469 27348 36132 46240 56287 69228 79919
3798 12772 24224 34097 41561 51466 61905 72785
4562 15000 24528 34175 42092 52405 62474 72940
4804 15106 27342 34446 43323 52416 64790 74715
6430 15426 27361 37426 44909 55110 66234 74884
7286 15794 27567 37638 45051 55697 67833 76131
8566 16848 27699 39042 46071 55992 67853 76899
8576 18311 28148 39263 46732 56093 68345 77260
8851 19085 29505 39648 47140 57844 69127 77927
9179 20347 31058 39652 49261 58050 69368 79690
9910 21916 32078 40135 49668 59319 69406
12272 23572 32707 40485 50393 59613 69845
12492 23900 32855 41340 50398 60158 70690
12573 24017 33744 41451 50707 61126 71849
Næstu útdrættir fara fram 3., 8., 16., 24. & 30. apríl 2020
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
30008 31703 42392 69590 75994
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
5524 31817 38877 48204 54660 67671
7237 35618 39449 49536 55353 68790
19262 36973 39815 50734 56726 71823
22339 38796 39928 50776 64932 73820
Aðalv inningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
2 8 3 3 9
Allt um sjávarútveg