Morgunblaðið - 27.03.2020, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2020
✝ Þórdís Stein-unn Sveins-
dóttir fæddist í
Reykjavík 25 maí
1931. Hún lést á
heimili sínu á Sól-
vangi í Hafnarfirði
15. mars 2020.
Foreldrar henn-
ar voru Sveinn
Sigurjón Sigurðs-
son, guðfræðingur
og ritstjóri Eim-
reiðarinnar, f. 8. des. 1890, d.
26. mars 1972, og kona hans
Steinunn Arndís Jóhannsdóttir,
f. 19. ágúst 1895, d. 7. júní 1974.
Systkini Þórdísar eru: Olgeir
Jóhann, f. 29. okt. 1921, d. 21.
júlí 2002, maki Guðbjörg Jónína
Steinsdóttir, f. 30. jan. 1921, d.
19. jan. 2018; Sigurður, f. 27.
jan. 1923, d. 4. maí 2010, maki
Elín Rannveig Briem, f. 29. júlí
hjónabandi. 2) Sigurður, jarð-
og kerfisfræðingur, f. 25. jan-
úar 1963, maki Helga Arna
Guðjónsdóttir, f. 3. desember
1965. 3) Tryggvi, verkfræð-
ingur, f. 20. júní 1967, maki
Guðrún Elva Sverrisdóttir,
kennari, f. 30. nóvember 1967.
Börn þeirra eru: a) Tandri, f.
1992, b) Darri, f. 1995, og c)
Dana Sól, f. 1998. Barn Þórdís-
ar er: Bryndís Magnúsdóttir
skrifstofukona, f. 16. ágúst
1950, maki Úlfar Hinriksson,
forstjóri, f. 21. júlí 1949. Barn
Bryndísar og Úlfars er Magnús
Örn, verkfræðingur, f. 18. maí
1976, maki Sigrún Nanna Karls-
dóttir, verkfræðingur, f. 18.
september 1980. Börn þeirra
eru: Birta, f. 2010, og Bryndís,
f. 2014.
Þórdís fæddist í Reykjavík og
bjó þar til ársins 1965 er hún
flutti til Hafnarfjarðar þar sem
hún bjó til æviloka.
Útför Þórdísar verður gerð
frá Hafnarfjarðarkirkju í dag,
27. mars 2020, og hefst athöfnin
klukkan 13. Útförin mun fara
fram í kyrrþey.
1929, d. 10. júní
2008; Þórarinn, f.
20. jan. 1925, d. 22.
júní 1985, maki
Ingibjörg Árna-
dóttir, f. 10. okt.
1926, d. 15. júní
2004; Þórdís, f. 20.
jan. 1925, d. 6. júní
1928.
Þórdís giftist
Jóni Bergssyni,
verkfræðingi, f. 30.
okt. 1931, d. 25. apríl 2015, hinn
12. janúar 1957. Börn þeirra
eru: 1) Ingibjörg, félagsfræð-
ingur, f. 26. apríl 1959. Maki
Guðmundur Rúnar Árnason,
stjórnmálafræðingur, f. 1. mars
1958. Börn þeirra eru: a) Jón
Steinar, f. 1983, b) Ágústa Mit-
hila, f. 1998, c) Þórdís Timila, f.
2000. Guðmundar Rúnar á son-
inn Ólaf Kolbein frá fyrra
Elskuleg móðir mín er látin.
Mamma, þessi hlýja, góða og ein-
mitt elskulega kona, breiðir ekki
aftur faðminn til mín í lifanda lífi
heldur eru það minningarnar
sem munu faðma okkur. Við
spjölluðum mikið síðustu mánuð-
ina, nánast á hverjum degi, og þó
svo fæturnir og skammtíma-
minnið væru farin að gefa sig var
hún stálminnug allt fram til
dauðadags.
Þegar maður horfir á brúð-
kaupsmynd af mömmu og pabba,
en þau giftu sig árið 1957, fyllist
maður fyrst og fremst þakklæti.
Þakklæti fyrir það góða líf sem
þau gáfu okkur. Nú þegar maður
gerir upp lífshlaup þeirra og
horfir á gamla mynd af þeim þar
sem þau eru ung, ástfangin og
bjartsýn er ekki hægt annað en
að brosa og gleðjast, þau áttu
gott líf saman og gáfu mikið af
sér.
Mamma var mikill húmoristi.
Hún elskaði Gög og Gokke eða
Steina og Olla og gat endalaust
hlegið að þeim. Mér er minnis-
stætt þegar við vorum með bíó-
sýningar í bílskúrnum heima í
gamla daga, þá fékk mamma
einkasýningu þar sem ég renndi
sömu 8 mm spólunni af Steina og
Olla aftur og aftur í gegn. Mr.
Bean var líka í miklu uppáhaldi í
seinni tíð. Þegar hún flutti svo á
Sólvang síðastliðið haust var hún
fljót að biðja um að Mr. Bean yrði
sýndur.
Börnin mín kölluðu hana alltaf
ömmu Dísu krútt, því hún var
bara alltaf svo mikið krútt, bros-
andi og létt í skapi. Hún elskaði
að kaupa KFC, fara í bíltúra, fá
sér ís og hlusta á ABBA á meðan
við rúntuðum um bæinn. Það
voru líka alltaf ABBA-spólur í
öllum bílunum okkar hér áður
fyrr.
Þegar maður rifjar upp gamla
tíma brosir maður nánast alltaf
sem betur fer, mamma gerði lífið
svo skemmtilegt. Mamma lést 15.
mars eftir stutt veikindi. Þó svo
hún sé örugglega hvíldinni fegin
verður skrítið að geta ekki kíkt
við hjá henni til að spjalla eða
heyrt í henni í síma. Mánudaginn
9. mars hringdi hún í mig klukk-
an 5:30 um morgun, en undir það
síðasta var tímaskynið ekki upp á
sitt besta. Við áttum gott spjall
þar sem ég læddi því inn af og til
að það væri nú nótt og hún ætti
að fara að sofa. Eftir smátíma
þagnaði hún, áttaði sig allt í einu
á því að það var nótt, og sagði
svo: „Jæja, ég kveð núna.“ Það
voru orð að sönnu því þetta var
okkar síðasta spjall.
Samverustundir okkar verða
ekki fleiri í þessu lífi en dásam-
legar minningar um hlýja, elsku-
lega mömmu munu ylja mér um
hjartarætur um ókomin ár.
Ég vil nota tækifærið í lokin og
færa starfsfólkinu á Sólvangi sér-
stakar þakkir fyrir hlýhug og
góða umönnun.
Blessuð sé minning þín
mamma.
Þinn sonur,
Tryggvi.
Við lifum núna á skrýtnum
tímum.
Það sem ég á erfiðast með að
sætta mig við á þessum skrýtnu
tímum er það að elsku mamma
mín kvaddi þennan heim sunnu-
dagsmorguninn 15. mars.
Mamma mín var einstök kona
og passaði alltaf vel upp á strák-
inn sinn hann Sigga.
Ég var og er mikill veður-
fréttaaðdáandi og mamma pass-
aði vel upp á það að ég missti
ekki af veðurfréttunum í sjón-
varpinu þegar ég var krakki. Ég
var kannski úti að leika í afalóð
og þá kallaði mamma „Siggi, veð-
urfréttirnar eru að byrja.“ Ég
hætti þá strax að leika mér og
hljóp heim.
Mamma bað mig oft að fara út
í búð að kaupa kók og Conga til
að hafa með sjónvarpinu því að
hún vissi að það var mitt uppá-
hald. Hún þurfti ekki að biðja
mig tvisvar um það.
Sameiginlegt áhugamál okkar
mömmu var Eurovison. Mamma
hafði alltaf skoðun á íslenska lag-
inu og við áttum oft löng og
skemmtileg samtöl um Euro-
vision.
Elsku yndislega mamma mín
ég kveð þig núna með söknuði.
Ástarkveðjur til þín og pabba í
Sumarlandinu þar sem þið eruð
örugglega búin að faðmast.
Þinn sonur
Sigurður (Siggi).
Eftir langan æviferilsdag
eigum geymdar fagrar, ljúfar myndir.
Sem koma í hugann eins og ómþýtt
lag
og una sér við minninga lindir.
Er vinir skilja, sjaldan verður sátt
en svona er og verður lífsins glíma.
Forréttindi að fá og hafa átt
fylgd og nálægð svona langan tíma.
(Þorfinnur Jónsson)
Þórdís Steinunn Sveinsdóttir,
félagi okkar í Inner Wheel Hafn-
arfjörður, lést 15. mars síðastlið-
inn. Þórdís gekk í klúbbinn okkar
24. maí 1977. Hún var strax mjög
virk í klúbbnum og mætti alltaf
þegar hún gat og heilsa leyfði.
Þórdís var hlédræg en afskap-
lega hlý og glaðlynd og hafði
gaman af því að hitta vinkonur
sínar í klúbbnum. Einnig var hún
mjög þakklát fyrir allt smálegt
sem var gert fyrir hana, t.d. að
sækja hana á fundi og hafði
áhyggjur af því að væri verið að
eyða tíma viðkomandi mann-
eskju.
Hún fylgdist vel með öllu og
hringdi öðru hvoru til að spjalla
og eins var hún höfðingi heim að
sækja í fallegu íbúðinni sinni við
Sólvangsveginn. Elskulega Dísa
mín, það var frábært að fá að
kynnast þér og ég mun sakna fal-
lega brossins og félagsskapar
þíns.
Börnum Þórdísar og fjölskyld-
unni allri votta ég samúð og bið
Guð að blessa ykkur á erfiðum
tíma.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Fyrir hönd stjórnar Inner
Wheel Hafnarfjörður,
Gerður S.
Sigurðardóttir
Það er komið að kveðjustund.
Elsku Dísa hefur fengið hvíldina
sem hún var búin að óska sér.
Hún er nú komin í Sumarlandið
og vonandi búin að hitta Jón sinn,
hún var nokkuð viss um að það
taki eitthvað við þegar þessu
jarðlífi okkar lýkur.
Þú varst góð kona, vildir okkur
alltaf vel, fólkið þitt átti allt það
besta skilið og setningin „er ekki
allt í góðu?“ var setningin þín.
Alltaf að hugsa um hvort nokkuð
væri að, þú máttir ekki til þess
hugsa. Þú varst húmoristi, gast
hlegið aftur og aftur að sömu
bröndurunum og elskaðir Steina
og Olla og Mr. Bean. Við fórum í
leikhúsið að sjá Mamma mia –
ABBA var í uppáhaldi og ekki
leiddist þér nú heldur þegar við
fórum að sjá Ellý, þú brostir
hringinn allan tímann.
Ég á margar góðar minningar,
gleðistundirnar voru ófáar bæði
innanlands og utan. Ég er enda-
laust þakklát fyrir að þú varst hjá
okkur á aðfangadag, sast í hjóla-
stólnum í eldhúsinu mínu, fylgd-
ist grannt með því sem ég var að
gera og dásamaðir hvað við ætt-
um fallegt heimili og yndislegt líf,
þú átt sko þinn þátt í því. Takk
fyrir allt elsku Dísa mín!
Þín
Elva.
Þórdís Steinunn
Sveinsdóttir
Ástkær eiginkona mín,
GUÐRÚN H. ARNDAL
Hringbraut 2b, Hafnarfirði,
lést á líknardeild LSH miðvikudaginn
25. mars.
Útförin mun fara fram í kyrrþey vegna
aðstæðna í þjóðfélaginu.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðmundur Gunnarsson
Kær eiginmaður minn, bróðir, mágur
og frændi,
HÖRÐUR ÞÓR HJÁLMARSSON
Siglufirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands, HSN
á Siglufirði, 25. mars.
Jarðarför mun fara fram í kyrrþey en
minningarathöfn haldin síðar.
Þakka hlýju og samúð ykkar allra.
Fyrir hönd systra hans, fjölskyldu og vina,
Ásdís Eva Baldvinsdóttir
Hjartans þakkir til allra sem auðsýndu
samúð og hlýhug við andlát og útför
HRAFNHILDAR HALLDÓRSDÓTTUR
heimilisfræðikennara
sem lést 14. mars og jarðsungin var frá
Garðakirkju 24. mars.
Þökkum sérlega virðingarverða og nærfærna umönnun
starfsfólks á hjúkrunarheimilinu Sóltúni.
Hildur, Þorleikur, Halla Margrét og Ólafía Ása
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ELSA BJÖRNSDÓTTIR
hjúkrunarheimilinu Ísafold, Strikinu 3,
áður Garðatorgi 17, Garðabæ,
lést 25. mars.
Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu fer útförin fram í kyrrþey.
Sigrún J. Jóhannsdóttir Þorsteinn Þ. Gunnarsson
Hannes L. Jóhannsson Jóhanna Björgvinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
INGIGERÐUR JÓHANNSDÓTTIR
Boðaþingi 10, Kópavogi,
lést á Hrafnistu við Boðaþing 13. mars.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Björn M. Sæmundsson
Þorkell Björnsson
Sæmundur Egill Björnsson
Hanna Jóna Björnsdóttir
Helga Björnsdóttir Aðalsteinn A. Halldórsson
barnabörn og langömmubörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÁSA GUNNARSDÓTTIR
Furugerði 1, Reykjavík,
lést föstudaginn 20. mars á Landspítalanum
í Fossvogi.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Gunnar H. Egilson Dagný Helgadóttir
Helga Egilson Stefan Hansen
Nana Egilson Gunnar Kári Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæri
RÓBERT JÓN JACK
rafverktaki og byggingaverktaki,
lést á Landspítalanum 18. mars.
Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu fer útför fram
með nánustu aðstandendum.
Minningarathöfn fer fram síðar.
Sigrún Jóna Baldursdóttir
Vigdís Linda Jack Björgvin Ibsen Helgason
Baldur Þór Jack Kolbrún Lís Viðarsdóttir
Sigrún Ruth, Snæbjörn Helgi, Róbert A.,
Arnþór Bjartur, Birkir Hrafn og Bjarni Þór
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
MESSÍANA MARZELLÍUSDÓTTIR
tónlistarkennari,
Hlíf 2, Ísafirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, Ísafirði,
þriðjudaginn 24. mars.
Í ljósi aðstæðna fer útförin fram í kyrrþey.
Minningarathöfn verður auglýst síðar.
Þórlaug Þ. Ásgeirsdóttir Finnbogi Karlsson
Helga A. Ásgeirsdóttir
Sigríður G. Ásgeirsdóttir Gunnar S. Sæmundsson
Ásgeir Helgi, Andrea Messíana, Logi Leó,
Dögg Patricia og Máni Þór
Samkomubann og óvenjulegar aðstæður í þjóðfélaginu
hafa leitt til þess að útfarir eru nú með breyttu sniði.
Morgunblaðið hefur brugðist við með því að rýmka reglur
um birtingu á minningargreinum.
Minningagreinasíður blaðsins standa opnar öllum þeim
sem vilja minnast ástvina eða sýna aðstandendum samúð
og samhug.
Í ljósi aðstæðna hefur verið slakað á fyrri verklagsreglum
hvað varðar útfarir í kyrrþey. Ekkert er því til fyrirstöðu að
birta minningargreinar sama dag og útför einstaklings er
gerð hvort sem hún er háð fjöldatakmörkunum eða gerð í
kyrrþey.
Starfsfólk greinadeildar Morgunblaðsins er boðið og búið
að aðstoða þá sem hafa spurningar um ritun minningar-
greina eða hvernig skuli senda þær til blaðsins.
Ekkert gjald er tekið fyrir birtingu minningagreina.
Þær eru einnig birtar á www.mbl.is/minningar.
Birting minningagreina