Morgunblaðið - 27.03.2020, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2020
27. mars 1965
Morgunblaðið segir frá því að
Ellert B. Schram, landsliðs-
maður í knatt-
spyrnu, hafi
skyndilega og
óvænt mætt sem
markvörður KR
í handbolta og
tryggt liðinu
20:16 sigur á frá-
farandi Íslandsmeisturum
Fram með því að verja vel
hvað eftir annað og meðal
annars fjögur vítaköst. Úrslit-
in þýða að FH er Íslandsmeist-
ari, Fram í öðru sæti og KR í
þriðja sæti.
27. mars 1975
Morgunblaðið segir frá því að
Hreinn Halldórsson, Íslands-
methafi og einn
besti kúluvarp-
ari Evrópu, hafi
brugðið sér á Ís-
landsmótið í
lyftingum. Þar
hafi hann unnið
yfirburðasigur í
yfirþungavigt og stórbætt öll
þrjú Íslandsmetin í flokknum,
samtals um rúmlega 100 kíló.
27. mars 1981
Íslenska karlalandsliðið í
körfuknattleik vinnur óvænt-
an sigur á Norðurlandameist-
urum Finna, 97:95, í tvífram-
lengdum vináttulandsleik
þjóðanna í Keflavík. Jón Sig-
urðsson skorar sigurkörfuna á
síðustu sekúndunni með skoti
frá miðju. Símon Ólafsson
skorar 25 stig fyrir Ísland og
Pétur Guðmundsson 22.
27. mars 1992
Ísland tryggir sér eitt af fjór-
um efstu sætum B-heimsmeist-
arakeppninnar í handknatt-
leik karla og sæti í næstu
A-keppni með því að vinna Ísr-
ael, 20:15, í Innsbruck í
Austurríki. Sigurður Sveins-
son og Valdimar Grímsson
skora 4 mörk hvor.
27. mars 1999
Íslenska karlalandsliðið í
knattspyrnu sigrar Andorra,
2:0, á útivelli og er ósigrað í
fyrstu fjórum leikjum sínum í
undankeppni Evrópumótsins.
Eyjólfur Sverrisson og Steinar
Adolfsson skora mörkin í
seinni hálfleik og Ísland er á
hælum Úkraínu og Frakk-
lands og fyrir ofan Rússland í
riðlinum.
27. mars 2010
Ísland sigrar Serbíu 2:0 á úti-
velli í undankeppni heims-
meistaramóts kvenna í knatt-
spyrnu.
Hólmfríður
Magnúsdóttir
skorar bæði
mörkin í seinni
hálfleik en Ís-
land og Frakk-
land heyja ein-
vígi í riðlinum um að komast
beint í lokakeppni HM.
27. mars 2017
„Við vorum að vinna stórveldi
í íshokkí. Til þess að vinna
þetta lið þarf alltaf ganga upp,
og þó þeir hafi verið í vand-
ræðum í ár sést hér hvernig
þeir rísa upp jafnvel þó marg-
ir séu að verða fertugir,“ segir
Gauti Þormóðsson þjálfari
Esju við Morgunblaðið eftir að
lið hans verður Íslandsmeist-
ari karla í íshokkí í fyrsta sinn
með því að sigra Skautafélag
Akureyrar í vítabráðabana
eftir 3:3 jafntefli í fram-
lengdum leik.
Á ÞESSUM DEGI
er það bara gott fyrir mig. Það var
aðeins farið að þrengja að þegar
þeir frestuðu öllum þessum mótum,
ég átti enn þá séns en það var kom-
in pressa. Mig vantar enn töluvert
af punktum og mótunum var að
fækka.“
Var á leið til Marokkó
Sveinbjörn var staddur í Frakk-
landi í byrjun árs við strangar æf-
ingar en hann ætlaði sér að keppa á
mótum í Marokkó og Suður-
Ameríku með því markmiði að ná
nægilega góðri stöðu á heimslist-
anum en hann er sem stendur í 74.
sæti listans. Ekki liggur alveg fyrir
hversu hátt hann þarf að ná þar
sem kvóti á þjóðir og heimsálfur
spilar inn í niðurstöðuna á end-
anum. Öllum mótum var hins vegar
frestað og Sveinbjörn er nú kominn
aftur heim til Íslands.
„Ég kom til landsins fyrir rúmri
viku. Ég var staddur í Frakklandi
og deginum áður en ég átti flug út
til Marokkó fékk ég skilaboð um að
öllu var frestað. Sem betur fer átti
ég fjölskyldu þarna sem gat séð um
mig.“
„Ég var akkúrat á leiðinni út til
Marokkó og svo til Suður-Ameríku
en svo var öllu aflýst, fjórum mót-
um í röð. Það var búið að kaupa
flugmiða og bóka hótel þannig að
þetta var auðvitað þvílíkt tap. Þetta
var peningur sem ég hafði safnað í
gegnum styrktaraðila. En það eru
allir að tapa peningum núna, ég er
bara feginn að vera kominn heim í
öruggt skjól. Það er mikilvægast.
Stuttu eftir að ég yfirgaf bæinn sem
ég dvaldist í var sett á útgöngu-
bann, ég eiginlega rétt slapp heim.“
Sveinbjörn ætlar ekki að láta
deigan síga og mun á næstu vikum
og mánuðum einbeita sér að því að
halda sér í formi. Næsta keppni á
dagskrá er Evrópumótið í Prag í
Tékklandi í júní. Þar geta unnist
dýrmæt stig sem gilda til heimslist-
ans.
„Næsta mót á dagskrá er í lok
júní, sem er Evrópumótið. Það er
gríðarlega mikilvægt mót og ég
verð að koma klár til leiks ef það
verður. Við júdómenn björgum okk-
ur alltaf þótt það sé erfitt að æfa
núna. Ég reyni bara að halda mér í
gír og vera tilbúinn, ég held að það
sé þannig hjá öllum. Þetta eru að-
stæður sem enginn hefur lent í.“
Frestunin
gæti jafnvel
komið mér vel
Sveinbjörn Iura heldur baráttunni
áfram og ætlar sér á Ólympíuleikana
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fremstur Sveinbjörn Iura var kjörinn júdómaður ársins 2019.
JÚDÓ
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Sveinbjörn Jun Iura, júdókappi úr
Ármanni, hefur ekki gefið draum-
inn um að taka þátt á Ólympíu-
leikunum í Tókýó í Japan upp á bát-
inn, þó að leikunum hafi verið
frestað um eitt ár, eða til sumarsins
2021.
Morgunblaðið sló á þráðinn til
Sveinbjörns eftir að Alþjóðaólymp-
íunefndin staðfesti að leikunum
hefði verið frestað vegna kórónu-
veirunnar.
„Ég fékk bara að frétta þetta í
gær. Nú bíðum við eftir því að Al-
þjóðajúdósambandið setjist niður
og gefi út hvaða mót eru eftir, þá
getur maður farið að skipuleggja
sig. Ég er ekkert að fara bakka með
það að ég ætla á Ólympíuleikana,“
sagði Sveinbjörn ákveðinn og bætti
við að frestunin gæti jafnvel komið
honum vel.
„Ef þeir bæta við fleiri mótum þá
„Í bili verður öll vinnan unnin í
gegnum tölvur og síma. Sjúkra-
teymið okkar á að fylgjast með leik-
mönnunum eins vel og mögulegt er.
Fjórum vikum áður en liðið kemur
saman eiga þau að skila inn
skýrslum yfir allt sem leikmenn-
irnir gera,“ segir Lars Lagerbäck,
landsliðsþjálfari Noregs og fyrrum
þjálfari Íslands, um undirbúninginn
fyrir leikinn gegn Serbíu í umspili
EM. Hann átti að fara fram í gær en
verður 4. júní eins og leikur Íslands
og Rúmeníu. Vinni Noregur mætir
liðið Skotlandi eða Ísrael.
Skipuleggur sig
upp á nýtt
Morgunblaðið/Eggert
Svíinn Lars Lagerbäck landsliðs-
þjálfari Norðmanna í knattspyrnu.
Pétur Ingvarsson er hættur störf-
um sem þjálfari karlaliðs Breiða-
bliks í körfuknattleik Ekki er ljóst
hver tekur við liðinu, sem var í 3.
sæti þegar keppni var hætt vegna
veirunnar.
Í tilkynningunni er tekið skýrt
fram að stjórn deildarinnar sé
ánægð með störf Péturs en vegna
óvissunnar sem fylgi heimsfaraldr-
inum treysti stjórnin sér ekki til að
gera nýjan samning við Pétur.
Óljóst sé hvernig ganga muni að
afla tekna fyrir næsta tímabil.
kris@mbl.is
Blikar sjá á eftir
Pétri Ingvars
Morgunblaðið/Hari
Hættur Þjálfarinn reyndi, Pétur
Ingvarsson, er samningslaus.
Þetta var hins vegar umdeilt í
þjóðfélaginu. Margir voru á því að
fullfrískir karlmenn ættu ekki að
vera að spila fótbolta á meðan jafn-
aldrar þeirra berðust í skotgröfum á
meginlandi Evrópu. Keppni í ruðn-
ingi var þegar hætt og í krikket var
lið Surrey krýndur enskur meistari
þótt keppni væri ekki lokið.
„Ef fótboltamaður er heill heilsu á
hann að skunda í stríð og sinna sín-
um skyldum,“ skrifaði rithöfundur-
inn Arthur Conan Doyle sem er
þekktastur fyrir sögur sínar um
einkaspæjarann Sherlock Holmes.
Til að lægja öldurnar var stofnuð
sérstök hersveit, „Footballers’
Battalion“ en hún var skipuð at-
vinnuknattspyrnumönnum sem
vildu frekar fara í stríðið en að halda
áfram leik. Í staðinn fengu liðin í at-
vinnudeildunum tveimur að tefla
fram „gestaleikmönnum“ sem jafn-
vel gátu spilað fyrir fleiri en eitt lið.
Umrædd hersveit þótti einstak-
lega öflug og til þess var tekið
hversu góður liðsandinn var en það
var þakkað uppeldi hermannanna
sem atvinnuknattspyrnumenn.
Þetta róaði marga og hægt var að
ljúka tímabilinu tiltölulega áfalla-
laust. Everton varð meistari, fékk
einu stigi meira en Oldham og
Derby, Preston og Arsenal fluttust
upp í efstu deild, en Tottenham féll.
Sheffield United vann Chelsea 3:0 í
úrslitaleik bikarkeppninnar sem var
fluttur frá London til Manchester
vegna samgönguerfiðleika í höfuð-
borginni.
En að tímabilinu loknu var ekki
hægt annað en að aflýsa því næsta
vegna stríðsástandsins og deilda-
keppnin á Englandi hófst ekki á ný
fyrr en veturinn 1919-2020. Þá urðu
deilur um fall og færslur á milli
deilda til þess að liðum í efstu deild
var fjölgað úr 20 í 22 og Arsenal náði
að smygla sér upp í efstu deild á
kostnað Tottenham án þess að hafa
unnið sér rétt til þess. Þessi tvö fé-
lög hafa verið erkifjendur síðan en
það er önnur saga.
Umdeilt tímabil spilað til enda
England Áhorfendur flykktust á fótboltaleikina veturinn 1914-15 til að geta
gleymt um sinn hörmungum fyrri heimsstyrjaldarinnar.
Englendingar héldu áfram keppni
þótt fyrri heimsstyrjöldin væri skollin á
SAGAN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Þrátt fyrir að við séum að ganga í
gegnum „fordæmalausa“ tíma er
þetta ekki í fyrsta skipti sem deilt er
um hvort fresta eigi eða aflýsa
íþróttamótum.
Þegar fyrri heimsstyrjöldin skall á
4. ágúst árið 1914 ákvað stjórn ensku
deildakeppninnar í fótbolta að hefja
nýtt tímabil 1. september eins og
ekkert hefði í skorist. Og þrátt fyrir
ástandið á Bretlandseyjum og í heim-
inum var það spilað til enda og því
lauk í apríl 1915.
Knattspyrnusagnfræðingurinn
Richard Foster fjallar um þetta
óvenjulega tímabil í grein í The
Guardian og segir að aðalástæðan
fyrir því að fótboltinn hélt velli hafi
verið sú að hann hafi hjálpað almenn-
ingi til að dreifa huganum og geta
gleymt um stund hörmungarfréttum
sem bárust frá vígstöðvum stríðsins.