Morgunblaðið - 27.03.2020, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2020
Norska félagið Bergsøy tilkynnti á
Facebook í gær að Einar Jónsson
hefði verið ráðinn þjálfari meistara-
flokks karla í handknattleik. Þar kem-
ur jafnframt fram að Einar hafi gert
þriggja ára samning við félagið, en
Bergsøy er í C-deildinni í Noregi og
var um miðjan sinn riðil þegar keppni
var hætt á dögunum. Einar kemur frá
Færeyjum, þar sem hann lét nýlega af
störfum hjá H71 eftir að hafa stýrt
meistaraflokksliðum þess eitt tímabil.
Hann er ekki ókunnur norskum hand-
knattleik því Einar stýrði kvennaliði
Molde í C- og B-deildum 2013-2015.
Ein af goðsögnum franskrar knatt-
spyrnu er fallin frá, en franska knatt-
spyrnusambandið og samtök franskra
knattspyrnumanna skýrðu frá því í
gær að Michel Hidalgo væri allur, 87
ára að aldri. Hidalgo hafði glímt við
veikindi um árabil og lést á heimili
sínu í Marseille.
Hann varð fyrsti þjálfarinn til að færa
Frakklandi stóran titil í fótboltanum,
en Frakkar urðu Evrópumeistarar á
heimavelli undir hans stjórn árið 1984,
eftir að hafa komist nokkuð óvænt í
undanúrslit heimsmeistarakeppninnar
á Spáni tveimur árum áður. Hidalgo
lét af störfum eftir sigurinn 1984 en
hann hafði þá stýrt franska liðinu í
átta ár.
Fimleikamótinu Eurogym, sem fer
fram á tveggja ára fresti og er ætlað
að sameina ungt fimleikafólk í Evrópu,
hefur verið frestað fram á næsta sum-
ar vegna kórónuveirunnar, en þetta
kemur fram í fréttatilkynningu frá for-
ráðamönnum mótsins. Mótið átti að
fara fram á Íslandi í júlí en ákvörðunin
um að fresta mótinu var tekin af fim-
leikasambandi Evrópu og fimleika-
sambandi Íslands. Stefnt er að því að
mótið muni fara fram í Reykjavík í júlí
2021.
Alþjóðakörfuknattleikssambandið,
FIBA, tilkynnti í gær að Ástralía myndi
halda heimsmeistaramót kvenna árið
2022. Ástralar höfðu betur í baráttu
við Rússa en valið stóð á milli þessara
tveggja þjóða eftir að Kanada heltist
úr lestinni. Þetta verður í annað skipti
sem þeir halda mótið en það fór fram
í landinu árið 1994. Ástralía er meðal
fremstu þjóða heims í körfuknattleik
kvenna og varð heimsmeistari árið
2006 og lék til úrslita 2018 en tapaði
fyrir Bandaríkjunum. Mótið fer fram í
Sydney í september og október 2022.
Tólf þjóðir komast í lokakeppnina.
Heimsmeistarinn í 100 metra
hlaupi, Justin Gatlin, er brattur þótt
Ólympíuleikunum hafi verið frestað
um ár. Þegar leikarnir fara fram í Jap-
an á næsta ári verður Gatlin orðinn 39
ára gamall. Hann segist fullviss um að
hann eigi möguleika á sigri í 100
metra hlaupinu á leikunum.
„Það mun ekki skipta miklu máli hvort
ég er 38 eða 39 ára. Auk þess verður
líkaminn ekki illa farinn eftir árið 2020
eins og hann getur verið eftir hefð-
bundin keppnistímabil,“ sagði Gatlin í
samtali við TMZ Sports, en hann varð
ólympíumeistari í Aþenu árið 2004.
Eitt
ogannað
HANDBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Breiðhyltingurinn Kristinn Björg-
úlfsson fær það erfiða hlutverk að
stýra karlaliði ÍR í handknattleik á
næstu leiktíð en hann tekur við
þjálfarastarfinu af Bjarna Fritz-
syni. Kristinn hefur stýrt kvennaliði
ÍR á þessari leiktíð, ásamt því að
vera aðstoðarþjálfari karlaliðsins,
og hann veit því að hverju hann
gengur.
Kristinn er uppalinn hjá ÍR en
hann er 38 ára gamall. Félagið til-
kynnti á dögunum að það þyrfti að
draga saman seglin vegna mikilla
fjárhagsörðugleika og í vikunni var
svo tilkynnt að þrír lykilmenn liðs-
ins væru á förum til Aftureldingar í
Mosfellsbæ þegar samningar þeirra
rynnu út í sumar.
„Markmiðið hjá mér var alltaf að
taka við karlaliði ÍR einn daginn en
ég átti ekki alveg von á því að það
yrði akkúrat núna,“ sagði Kristinn
hvergi banginn í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Að undirbúa nýtt tímabil með
kvennaliði sem var lagt niður
„Ég var í raun bara byrjaður að
undirbúa nýtt tímabil með kvenna-
liðinu þegar þetta kom fyrst upp.
Aðdragandinn var mjög stuttur og
ég var boðaður á fund á sunnudag-
inn þar sem ég fékk þær fréttir að
félagið hefði ákveðið að draga sam-
an seglin. Því hefði verið tekin
ákvörðun um að senda ekki kvenna-
liðið til keppni á næstu leiktíð.
Á mánudeginum var ég svo boð-
aður á annan fund þar sem mér var
boðið að taka við karlaliðinu þannig
að hlutirnir hafa gerst ansi hratt
undanfarna daga. Ég þekki strák-
ana mjög vel og er búinn að vera
með þeim í nánast allan vetur sem
aðstoðarþjálfari. Að vera aðstoðar-
þjálfari gefur manni aukið tækifæri
til þess að fylgjast með liðinu, án
þess kannski að þurfa að bera þung-
an af öllu batteríinu, og ég veit því
að hverju ég geng með alla leik-
menn liðsins.“
Tækifæri fyrir ungu strákana
Bjarni Fritzson hefur stýrt liði
ÍR frá árinu 2014 en hann mun nú
snúa sér að yngriflokkaþjálfun hjá
félaginu. Kristinn segist hafa lært
mikið af landsliðsmanninum í vetur.
„Ég hef lært alveg heilan helling
af Bjarna og hann hefur gert frá-
bæra hluti fyrir bæði félagið og lið-
ið. Það er sorglegt að tala um það
núna en ef við hefðum unnið tvo
leiki í viðbót værum við stigi frá því
að vera á toppnum. Það er því mjög
stutt á milli í þessu og ég hef reynt
að taka allt inn sem ég gat lært af
Bjarna á hliðarlínunni. Hann verður
áfram með yngri flokkana og ég get
alltaf leitað ráða hjá honum sem er
mjög jákvætt fyrir mig.“
ÍR aldrei átt pening
Það hefur gustað mikið um félagið
undanfarna daga en á mánudaginn
síðasta sendu Breiðhyltingar frá sér
tilkynningu vegna fjárhagsstöðu fé-
lagsins. Þar var ákveðið að draga
saman allan kostnað, endur-
skipuleggja og koma jafnvægi á
rekstur deildarinnar.
„Það er alveg hægt að taka það
fram hér og nú að ÍR hefur aldrei átt
neinn pening. Þetta er hins vegar í
fyrsta skiptið sem einhver þorir að
stíga upp og segja það. Við verðum
ekki síðasta liðið til þess að segjast
vera í fjárhagsvandræðum, það er
alveg á hreinu. Það hefur verið
ákveðinn feluleikur í gangi hjá
mörgum félögum, undanfarin ár, en
núna vita allir hvar við stöndum og
það er gott að feluleiknum sé lokið.
Við þurfum að draga saman seglin
og við getum því ekki haldið úti
mönnum sem kosta mikið. Núna
þurfum við að fara aftur í grasrótina
og nota þá leikmenn sem við eigum í
yngri flokkunum. Við munum mögu-
lega þurfa sækja einhverja leikmenn
líka en við munum stíga varlega til
jarðar þegar við gerum það.“
Á að hlúa vel að stelpunum
Kristinn stýrði kvennaliði ÍR í 1.
deildinni í vetur, Grill 66-deildinni,
en meistaraflokkurinn verður lagður
niður á næstu leiktíð vegna fjár-
hagstöðunnar í Breiðholtinu.
„Vissulega var maður svekktur
þegar maður heyrði af því að það
ætti að leggja meistaraflokkinn nið-
ur en það er ekki rekstargrundvöllur
fyrir því að halda uppi meistara-
flokksliði í kvennaflokki á meðan
liðið er svona ungt. Þetta var ekki
mín ákvörðun en meirihlutinn af
þessum flottu og frambærilegu
stelpum eru enn þá í 3. flokki. Þær
eru flestar uppaldar hjá félaginu
og markmiðið núna er að ráða inn
alvöruþjálfara í 3. flokkinn og hlúa
vel að þeim. Planið er svo að
byggja þessar stelpur upp og gera
allt svo þær verði tilbúnar tíma-
bilið 2021/2022 í alvörumeistara-
flokksbolta.“
Vont að missa leikmennina
Í vikunni var einnig tilkynnt að
þeir Bergvin Þór Gíslason, Sveinn
Andri Sveinsson og Þrándur Gísla-
son Roth myndu allir ganga til liðs
við Aftureldingu í Mosfellsbæ þeg-
ar samningar þeirra í Breiðholtinu
renna út í sumar.
„Auðvitað er vont að sjá á eftir
þessum leikmönnum, það liggur al-
veg ljóst fyrir. Sveinn sem dæmi er
uppalinn í félaginu og hefur þjónað
ÍR mjög vel. Hann var að renna út
á samningi og fékk tilboð frá
Aftureldingu sem honum fannst
vera gott. Hann taldi sig þurfa að
breyta til sem er leiðinlegt fyrir
okkur en við getum lítið gert annað
en að óska honum góðs gengis og
hann er alltaf velkominn aftur í
Breiðholtið.
Beggi var líka samningslaus og
Þrándur var búinn að gefa það út
að hann ætlaði sér að enda ferilinn
í Mosfellsbæ. Þessir leikmenn
voru ekki að fara frá félaginu
vegna þess að ÍR skuldaði þeim
eitthvað, þeir voru einfaldlega
bara samningslausir og ákváðu að
breyta til og við því er lítið að
gera.“
Atvinnumaður í fjórum löndum
Kristinn hélt fyrst út í atvinnu-
mennsku árið 2005, þá 24 ára gamall.
Hann var atvinnumaður í níu ár og
lék með Runar og Oppsal í Noregi,
PAOK í Grikklandi, Hurry-Up í Hol-
landi og Rimpar í Þýskalandi. Hann
viðurkennir að hann hafi haft mis-
góða þjálfara í gegnum tíðina sem
muni vonandi hjálpa honum í þjálf-
arastarfinu á næstu leiktíð.
„Það er margt sem ég get tekið
með mér út úr atvinnumannaferl-
inum inn í þjálfarastarfið hjá ÍR. Ég
spilaði í mörgum mismunandi löndum
og upplifði marga menningarheima.
Ég tel mig vita hvað þarf til þess að
þjálfa og búa til gott lið. Auðvitað
nýtir maður sér allt það góða frá ferl-
inum og það slæma líka. Ég hef verið
með þjálfara sem eru það vitlausir að
það er erfitt að trúa því og maður
þarf að passa sig á því að falla ekki í
þá gryfju.
Í Noregi lærði ég rosalega mikið
um líkamlegt form og árangursríkan
handbolta. Ef þú stóðst þig vel í
Grikklandi þá varstu hetja og fékkst
borgað á réttum tíma. Í Þýskalandi
lærði maður mikinn aga og reglu-
verk. Þegar ég fór svo til Noregs aft-
ur var ég rekinn í fyrsta sinn á mín-
um ferli hjá Oppsal og þannig
kviknaði hugmyndin að leikmanna-
samtökum Íslands.“
Mikilvægt að læra af mistökum
„Frá Noregi fór ég svo til Hollands
og þar lærði maður að gefa meira af
sér, enda með meiri reynslu en marg-
ir aðrir í liðinu. Þar var ég með frá-
bæran þjálfara, Joop Fiege, en bróðir
hans tók við starfinu seinna meir og
hann var mjög lélegur þjálfari þannig
að maður hefur gengið í gegnum alla
flóruna. Að sama skapi lærir maður
líka mikið af þeim mistökum sem
maður gerir og ég mun pottþétt gera
mín mistök á næstu leiktíð.“
Leikmannahópurinn breytist
Kristinn ítrekar að markmiðið
númer eitt tvö og þrjú í Breiðholtinu
núna sé að halda í þá sem eru í félag-
inu og endursemja við lykilmenn.
„Það er alveg ljóst að leikmanna-
hópurinn mun breytast eitthvað við
brotthvarf þriggja lykilmanna. Við
erum með frábæran markmann á
samingi, Sigurð Ingiberg Ólafsson,
og eina bestu hægri skyttuna í deild-
inni í Hafþóri Má Vignissyni. Við er-
um með frábæran línumann í Úlfi
Gunnari Kjartanssyni og svo eigum
við fullt af ungum gaurum sem eng-
inn veit hvað heita og þeir fá tækifæri
til þess að sýna hvað þeir geta. Við
ætlum okkur að halda Björgvini
Hólmgeirssyni og Elíasi Bóassyni
en þetta eru líka strákar sem við
þurfum að semja við. Ef það geng-
ur ekki þurfum við að sækja aðra
leikmenn en markmiðið er að það
muni ekki fleiri yfirgefa Breiðholtið
að svo stöddu,“ sagði Kristinn við
Morgunblaðið.
Feluleiknum loks lokið
Kristinn Björgúlfsson tekur við karlaliði ÍR á erfiðum tímum Ætlar að halda
lykilmönnum Lærði ýmislegt af misgóðum þjálfurum í atvinnumennskunni
Ljósmynd/ÍR
Þjálfari Kristinn Björgúlfsson tekur við sem þjálfari karlaliðs ÍR.
FIFA, Alþjóðaknattspyrnusam-
bandið, skoðar nú að breyta því
hvenær félagaskipti eru leyfð,
vegna kórónuveirunnar. Félaga-
skiptaglugginn verður opnaður 10.
júní á Bretlandi en gera má ráð fyr-
ir því að enska úrvalsdeildin verði
enn í gangi á þessum tíma. Stærstu
deildir Evrópu vonast til þess að
klára sínar deildakeppnir fyrir 30.
júní en þá renna margir leikmenn
út á samningi. FIFA hefur stofnað
vinnuhóp til þess að finna hentugar
dagsetningar.
bjarnih@mbl.is
Hvenær má hafa
félagaskipti?
AFP
FIFA Gianni Infantino er forseti Al-
þjóða knattspyrnusambandsins.
Aron Pálmarsson, landsliðsmaður í
handknattleik og leikmaður Barce-
lona á Spáni, hefur þurft að taka á
sig 70% launalækkun vegna kór-
ónuveirufaraldursins sem nú herjar
á heimsbyggðina. Samkvæmt
spænskum fjölmiðlum hafa öll lið
félagsins þurft að taka á sig 70%
launalækkun en leikmenn knatt-
spyrnuliðsins voru ekki sáttir við
þessar tillögur. Forseti félagsins,
Josep Bartomeu, reynir nú að
semja við fyrirliða liðsins, þá Lionel
Messi, Sergio Busquets, Gerard
Piqué og Sergi Roberto.
Launalækkun í
Barcelona
Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsson
Launalækkun Aron og samherjar
gefa eftir laun vegna veirunnar.