Morgunblaðið - 27.03.2020, Page 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2020
Tilkynnt hefur
verið um fyrri út-
hlutanir ársins úr
Myndlistarsjóði
en 23 milljónum
króna er úthlutað
í styrki til 65
verkefna. Um-
sóknir voru hins
vegar 181.
Styrkir til sýn-
ingarverkefna
eru 43, tæplega 16 milljónir króna.
Aðrir styrkir fara til útgáfuverk-
efna, rannsókna og í undirbúning
verkefna.
Stærsta styrkinn vegna sýninga-
verkefnis, að upphæð 1,5 milljónir
kr., hlýtur Myndhöggvarafélagið í
Reykjavík fyrir Hjólið III, skúlptúr-
sýningu í almannarými. Auk þess
hlýtur Bjarki Bragason 900 þúsund
kr. styrk fyrir sýningu sína Þrjúþús-
und og níu ár: Síðasta ísöld á vegum
Listasafns ASÍ. og Head to Head,
samstarfsverkefni A-DASH í Aþenu
og Kling og Bang hlýtur einnig 900
þúsund krónur.
Sýning sem Becky Forsythe stýr-
ir, Villiblómið, hlýtur kr. 800 þús-
und; Frímann Kjerúlf er skrifaður
fyrir sýningunni Kosmos sem fær
kr. 700 þúsund; Julius er í forsvari
fyrir sýninguna Vestur í bláinn sem
fær kr. 600 þúsund; sömu upphæð
fær Kol /amp fyr-
ir Ferocious Glit-
ter II; og Verk-
smiðjan á Hjalt-
eyri fær kr. 500
þúsund fyrir sýn-
ingadaskrá sum-
arsins. Önnur
sýningaverkefni
hljóta lægri
styrki.
Stærsta styrk
til útgáfu og rannsókna hlýtur Kat-
rín Sigurðardóttir til útgáfu bókar
um eigin verk. Þrjú verkefni fá kr.
500 þúsund: Bók um 25 ára feril
Erlings T.V. Klingenberg; Hafnar-
borg fyrir „Verk Þorvaldar Þor-
steinssonar“; og Ragnhildur Stef-
ánsdóttir fyrir „Common Ground“.
Aðrir fá lægri styrki á því sviði.
Þá fá þrír hæsta styrk fyrir undir-
búning verkefna, kr. 300 þúsund
hver, Bryndís Snæbjörnsdóttir
vegna undirbúning tveggja einka-
sýninga; Ragnar Árni Ólafsson
vegna skráningar á verkum Bjargar
Þorsteinsdóttur; og Birta Guðjóns-
dóttir vegna verkefnisins „Samtíma-
myndlist-Reykjavík sótt heim“.
Hæsta styrk undir liðnum „Önnur
verkefni“ hlýtur í þessari úthlutun
Kling & Bang vegna nýrrar heima-
síðu sýningarsalarins í Marshall-
húsinu, kr. 450 þúsund.
Hjólið III fær
hæsta styrkinn
Bjarki
Bragason
Katrín
Sigurðardóttir
Saman í sóttkví nefnast nýjir
þættir sem sýndir verða á Hring-
braut og fésbókarsíðu sjónvarps-
stöðvarinnar. Verkefnið er nýtt af
nálinni og skipulagt af Ingibjörgu
Sædísi, Ingunni Láru Kristjáns-
dóttur, Ragnheiði Erlu Björns-
dóttur og Laufeyju Haraldsdóttur,
í samvinnu við Tjarnarbíó og
Hringbraut. Listafólkið sem fram
kemur eru Margrét Erla Maack
sem dansar, Villi Netó, Stefán
Ingvar, Kimi Tayler og Jono
Duffy sem verða með uppistand,
tónlistarfólkið Svavar Knútur,
Ásta, Tendra, Kóla og Vísur &
skvísur, Ævar Þór Benediktsson
rithöfundur og Þorvaldur S.
Helgason sem verður með ljóða-
lestur. Þá verður Kristrún með
jógahugleiðingar.
Ingibjörg, sem biður um að vera
titluð fullkomin meðalmanneskja,
segir að hún hafi fengið hugmynd-
ina um að gera eitthvað og upp-
haflega stóð til að hafa streymi í
beinni á netinu. Ingunn, vinkona
hennar, er blaðamaður og hóf að
hringja í hina og þessa, að sögn
Ingibjargar, og leitaði svo til
Hringbrautar og Tjarnarbíós um
samstarf.
Í hverjum þætti verður blanda
af ólíkum listgreinum og afþrey-
ingu en sá fyrsti var sýndur á
mánudaginn var og er aðgengileg-
ur á fésbókarsíðu Hringbrautar.
Þættirnir eru fjórir og verða hinir
þrír sýndir á Hringbraut kl. 20
næstu þrjú mánudagskvöld.
Áhorfendur hvattir til að
styrkja listamenn
–Nú er þetta fólk sem kemur
fram væntanlega að gefa vinnu
sína …
„Já og við erum bara fjórar sem
sáum um þetta og höfum ekki ráð
á að borga þeim og þess vegna
erum við með styrktarnúmer í
þáttunum. Þá getur fólk styrkt
listafólkið og styrkurinn rennur
beint í vasa þeirra sem koma fram
í þáttunum en ekki okkar sem
skipulögðum þá,“ svarar Ingi-
björg. Vonandi náist að greiða
listafólkinu eitthvað fyrir sína
vinnu og með þáttunum vakin
athygli á þeirri fjárhagslegu
óvissu sem listafólk í verktaka-
vinnu lendi í nú á óvissutímum
kórónuveirufaraldursins.
Ingibjörg segir að hugmyndin
hafi verið að hafa fjölbreyttan hóp
fólks úr listræna og afþreyingar-
geiranum til að skemmta lands-
mönnum heima í stofu en einnig
verður rætt við jógakennarann
Kristrúnu Hunter um kvíða og
hvernig er hægt að takast á við
hann með hugleiðslu og öndunar-
æfingum. helgisnaer@mbl.is
Margrét Erla
Maack
Ævar Þór
Benediktsson
Áhorfendur hvattir til
að styrkja listamenn
Saman í sóttkví
á mánudögum
Dans, tónlist,
upplestur og fleira
Þáttagerð Ingibjörg Sædís er ein þeirra sem standa að Saman í sóttkví.
Reykjavíkurborg hefur nú auglýst
eftir óprentuðu handriti að ljóða-
bók, frumsömdu á íslensku, til að
keppa um Bókmenntaverðlaun
Tómasar Guðmundssonar sem
verður úthlutað á seinni hluta þessa
árs. 800.000 krónur verða veittar
fyrir eitt handrit og mun þriggja
manna dómnefnd meta innsend
verk. Útgáfuréttur verðlauna-
handrits verður í höndum höfundar
eða þess forlags sem hann ákveður
að starfa með, að því er fram kem-
ur í tilkynningu en ef dómnefnd er
á einu máli um að ekkert þeirra
verka sem borist hafa fullnægi
þeim kröfum sem hún telur að gera
verði til verðlaunaverka, má fella
verðlaunin niður þetta árið.
Handritum
skal skila í þrem-
ur eintökum,
merktum dul-
nefni, en nafn og
símanúmer höf-
undar skal fylgja
með í lokuðu um-
slagi. Handrit
verða að berast í
síðasta lagi 1.
júní. Á umslag
skal skrifa Bókmenntaverðlaun
Tómasar Guðmundssonar, b.t.
Reykjavíkur bókmenntaborgar
UNESCO Ráðhúsi Reykjavíkur,
Tjarnargötu 11, 101 Reykjavík.
Edda eftir Hörpu Rún Kristjáns-
dóttur hlaut verðlaunin í fyrra.
Auglýst eftir handritum
Harpa Rún
Kristjánsdóttir
Bandaríski leik-
ritahöfundurinn
Terrence
McNally er lát-
inn, 81 árs að
aldri. Dánarmein
hans voru veik-
indi af völdum
kórónuveirunar
Covid-19.
McNally var
áratugum saman í fremstu röð
bandarískra leikskálda og hlaut
fern Tony-verðlaun fyrir verk sín.
Þau fjalla flest um líf og veruleika
samkynhneigðra og er honum eign-
að að opinbera fyrstur höfunda
þann veruleika í leikhúsum sem
almenningur sækir.
Tvenn Tony-verðlaun hreppti
McNally fyrir að gera söngleiki úr
bókum, Kiss of the Spider Woman
(1993) og Ragtime (1998), og hin
tvö fyrir leikrit, Love! Valour!
Compassion! (1995), sem fjallar um
samkynhneigða menn sem deila
orlofshúsi, og Master Class (1996)
þar sem dívan Maria Callas lítur
yfir ferilinn. Meðal annarra verka
leikskáldsins má nefna The Ritz,
The Lisbon Traviata og Lips Toget-
her, Teeth Apart.
Terrence McNally allur
Terrence McNally
Sala á klassískum bókmenntum
hefur aukist verulega á Bretlands-
eyjum síðustu daga, bæði á pappírs-
formi og rafbækur, samkvæmt um-
fjöllun í The Guardian. Er sagt
greinilegt að lesendur búist við að
hafa góðan tíma til lestrar í sóttkví
næstu vikna. Sala á bókmennta-
verkum í kiljum jókst til að mynda
um 35 prósent milli vikna.
Stærstu bókakeðju landsins,
Waterstones, var lokað vegna
veirufaraldursins en þá jókst vef-
sala fyrirtækisins um 400 prósent.
Haft er eftir starfsmönnum þar að
meðal klassískra verka sem renni
út séu Hundrað ára einsemd og
Ástin á tímum
kólerunnar eftir
García Márquez,
Ástkær eftir
Toni Morrison,
Gatsby hinn
mikli eftir F
Scott Fitz-
gerald, Saga
þernunnar eftir
Margaret
Atwood og The
Bell Jar eftir Sylviu Plath.
Af nýjum bókum er til þess tekið
að hin 900 síðna The Mirror and
the Light eftir Hilary Mantel rjúki
út.
Klassíkin rýkur út
Gabriel García
Márquez