Morgunblaðið - 04.03.2020, Qupperneq 1
HEFURMJÖGGAMANAFRÖKRÆÐUM
Berstrípaður og agnarsmár franskur rafbíll. 4
Egyptar una illa gríðarmiklum virkjana-
framkvæmdum í Eþíópíu og telja að
þær geti ógnað öryggi ríkisins. 14
VIÐSKIPTA
Framkvæmdastjóri Vínness segir að annaðhvort
höldum við okkur við núverandi fyrirkom
áfengissölu eða göngum alla leið.
NÍLERUPPSPRETTA ILLINDA
ulag
4
MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2020
Endurskoðun | Skattur | Ráðgjöf
Ernst & Young ehf. Borgartúni 30, 105 Reykjavík
ey.is
Alþjóðleg þekking - persónuleg þjónusta
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Ætla ekki að flýta vaxtaákvörðun
„„Við munum ekki flýta næsta fundi peninga-
stefnunefndar sem verður eftir rúmar tvær
vikur. Við teljum að við þurfum þann tíma til
þess að áætla áhrifin af kórónuveirunni. Við
höfum síðan töluvert svigrúm til þess að slaka
á peningastefnunni ef á þarf að halda.“
Þetta segir Ásgeir Jónsson seðlabanka-
stjóri, spurður út í viðbrögð bankans vegna
yfirvofandi höggs á hagkerfið vegna út-
breiðslu kórónuveirunnar. Ásgeir fundaði með
ráðherranefnd um fjármálastöðugleika síð-
degis í gær þar sem hann gerði nefndinni
grein fyrir þeirri vinnu sem nú á sér stað inn-
an Seðlabankans í þeirri viðleitni að bregðast
við og styðja við hagkerfið.
Í gær tilkynnti Jerome Powell, bankastjóri
bandaríska Seðlabankans, að ákveðið hefði
verið að lækka stýrivexti þar í landi um hálfa
prósentu vegna þeirrar auknu áhættu og
óvissu sem fylgdi útbreiðslu kórónuveirunnar.
Eru vextirnir nú á bilinu 1-1,25%. Næsti fund-
ur bankastjóra Seðlabanka Bandaríkjanna var
ekki fyrirhugaður fyrr en 18. mars, sama dag
og peningastefnunefndin íslenska kynnir nið-
urstöðu sína fyrir aðra vaxtaákvörðun ársins.
Sem stendur eru meginvextir Seðlabanka Ís-
lands 2,75% en þeir voru lækkaðir um 0,25
prósentur við síðustu ákvörðun nefndarinnar
5. febrúar síðastliðinn.
Ákvörðun bandaríska Seðlabankans kom í
kjölfar þess að seðlabankastjórar og fjár-
málaráðherrar þeirra ríkja sem skipa hinn
svokallaða G7-hóp sendu frá sér sameiginlega
yfirlýsingu þar sem þeir undirstrikuðu að þeir
myndu „nota öll viðeigandi tæki peningastefn-
unnar til að ná sterkum, sjálfbærum vexti og
verjast hættu á niðursveiflu,“ eins og það var
orðað.
Mark Carney, fráfarandi bankastjóri Eng-
landsbanka, sagði sömuleiðis að seðlabankar
heimsins myndu halda samtali sín í milli
áfram en að þeir myndu hver og einn taka
ákvarðanir og grípa til aðgerða á sínum for-
sendum og á þeim tíma sem þeim
þætti henta.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Seðlabankinn hyggst beita hag-
stjórnartækjum til að styðja við
hagkerfið að sögn seðlabanka-
stjóra. Hann mun þó ekki ekki flýta
fundi peningastefnunefndar til
þess að lækka vexti.
Morgunblaðið/Hari
Ásgeir Jónsson segir Seðlabankann reiðubúinn til að styðja við hagkerfið með afgerandi hætti.
6
EUR/ISK
4.9.‘19 3.3.‘20
145
140
135
130
125
139,2
142,1
Úrvalsvísitalan
2.200
2.100
2.000
1.900
1.800
1.700
1.600
4.9.‘19 3.3.‘20
2.015,85
1.941,29
„Það er eðlilegt að menn séu hikandi
við aðstæður sem þessar þegar
óvissa er um þróun efnahagsmála.
Áhrifin hjá okkur birtast í því að við
hægjum á uppbyggingu íbúðar-
húsnæðis og bíðum með ný verkefni
í atvinnuhúsnæði. Við reiknum með
og treystum að það verði líflegra yfir
opinberum framkvæmdum, eins og
hefur verið boðað um nokkurt
skeið,“ segir Þorvaldur um stöðuna.
Góður gangur sé í sölu nýrra íbúða.
Framlegðin minnkað
Hins vegar hafi framlegð af smíði
íbúða minnkað mikið að undanförnu.
Verðið sé þó nógu hátt til að skapa
hvata til að byggja.
„Framlegð í íbúðarbyggingum
hefur minnkað heilmikið. Hún er
sveiflukennd. Þegar miklar hækk-
anir verða á íbúðamarkaði eykst
framlegðin tímabundið. Hún hefur
lækkað verulega síðustu tvö árin.
Það er eðli markaðarins. Hann leitar
jafnvægis,“ segir Þorvaldur.
„Eftirspurnin er mest eftir minni
og ódýrari íbúðum. Hvatinn er mest-
ur til að byggja þær. Það fara hins
vegar ekki alltaf saman skipulags-
skilmálar og það sem menn mundu
vilja byggja til að uppfylla þarfir
markaðarins,“ segir Þorvaldur sem
vill sjá umbætur á þessu sviði.
Ásamt Hafnartorgi er ÞG verk að
leggja lokahönd á 17.600 fermetra
skrifstofuhúsnæði í Urðarhvarfi.
Orkuhúsið hefur flutt þangað og eru
fleiri fyrirtæki í heilsugeir-
anum á leið í húsið.
Hægja á uppbyggingu vegna óvissunnar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þorvaldur Gissurarson, forstjóri ÞG
verk, segir blikur vera á lofti.
Þorvaldur Gissurarson,
forstjóri ÞG verk, segir fé-
lagið bíða með ný verkefni
í atvinnuhúsnæði vegna
óvissu í efnahagslífinu.
8