Morgunblaðið - 04.03.2020, Síða 2

Morgunblaðið - 04.03.2020, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2020FRÉTTIR Mesta lækkun Mesta hækkun VIKAN Á MÖRKUÐUM AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn) KVIKA -6,10% 9,08 SKEL +0,22% 9,08 S&P 500 NASDAQ +5,11% 9.004,396 +4,36% 3.108,54 +0,05% 6.799,58 FTSE 100 NIKKEI 225 4.9.‘19 4.9.‘193.3.‘20 1.500 80 1.721,59 Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær. 53,16 -3,94% 21.082,73 60,7 40 1.900 3.3.‘20 BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu) 1.775,15 Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri segir mega gera ráð fyrir samdrætti í ferðaþjónustu vegna kórónuveirunnar. Hve mikl- um sé ómögulegt að segja til um. „Ferðamenn sem koma til Íslands koma alls staðar frá. Það er fyrst og fremst ástandið í hverju landi sem hefur áhrif á eftirspurnina. Að fólk ákveði að vera frekar heima en að ferðast. Mun þetta ganga yfir á stuttum tíma eða vara í vikur eða mánuði? Það er klárt að veiran er farin að hafa einhver áhrif. Á þessu stigi er hins vegar útilokað að magn- taka það. Aðalbókunartíminn, sér- staklega fyrir einstaklingsferðir, er á næstu vikum. Því mun ástandið í vor hafa mikið að segja um fram- haldið,“ segir Skarphéðinn. Spurður hvort ætla megi að upp- söfnuð þörf muni skapast fyrir ferðalög síðar meir segir Skarphéð- inn það ráðast af því hversu langan tíma faraldurinn varir. „Stóra spurningin er hvort menn fresta kaupum eða hætta við. Það getur enginn sagt til um það á þess- ari stundu. Ef þetta gengur yfir á nokkrum vikum er líklegt að það birtist í frestun á kaupum á ferða- lögum. Ef þetta ástand varir fram á sumar mun það auðvitað hafa tals- verð áhrif á eftirspurnina í sumar,“ segir Skarphéðinn um horfurnar. Beið eftir veikingu krónu Kristófer Oliversson, formaður Fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu (FHG), segir veikingu krónunnar góðar fréttir fyrir greinina. „Ég var að bíða eftir því að gamla góða krónan myndi gefa eftir. Hef reyndar lengi beðið þess svolítið óþolinmóður. Það munar alltaf um það. En það munar ekkert um það ef gestirnir hætta að kaupa þjón- ustuna,“ segir Kristófer. Að hans sögn hefur herbergjanýt- ingin í janúar til mars verið þokka- leg, en þó minni en í fyrra. „Verð hefur þó lækkað mikið frá því í fyrra. Það er gegnumgangandi. Verðlækk- unin er öðrum hvorum megin við 10%,“ segir Kristófer og bendir á að apríl og maí muni verða þungir í rekstrinum. Það sé því á vissan hátt lán í óláni að menn séu að kljást við veiruna þá en ekki í júlí eða ágúst. Þá að því gefnu að veiran gangi yfir á tveimur mánuðum, í samræmi við nýja greiningu landlæknis. Með hliðsjón af óvissunni kallar Kristófer eftir mótvægisaðgerðum í formi markaðsátaks. Með því megi vega upp hugsanleg neikvæð áhrif kórónuveirunnar á ferðaþjónustuna og þjóðarbúið á þessu ári. Jón Bjarki Bentsson, aðal- hagfræðingur Íslandsbanka, segir of snemmt að segja til um áhrif kórónuveirunnar á gengisþróunina. Hins vegar sé ljóst að verði umtals- verð niðursveifla í ferðaþjónustu vegna veirunnar muni það auka lík- urnar jafnt og þétt á því að krónan veikist. Ferðaþjónustan hafi verið að baki 35% útflutningstekna þjóð- arinnar í fyrra. Með hliðsjón af því að gjaldeyrisflæðið í ferðaþjónustu hafi aðra eiginleika en vöruviðskipti almennt geti áhrifin birst fyrr og á sterkari hátt. Á móti komi að neyt- endur kunni að draga úr stórum inn- kaupum vegna óvissunnar. Eins og reynslan frá því í fyrra bendi til geti það reynst drjúgt við að viðhalda hagstæðum utanríkisviðskiptum. Nettóáhrifin neikvæð Gústaf Steingrímsson, hagfræð- ingur hjá hagfræðideild Landsbank- ans, segir að ef erlendum ferða- mönnum fækki hlutfallslega jafn mikið og brottförum Íslendinga til útlanda muni nettóáhrifin á gjald- eyristekjur verða neikvæð. Ástæðan er sú að gjaldeyrisinnstreymi vegna erlendra ferðamanna er mun meira en gjaldeyrisútstreymi vegna brott- fara Íslendinga. Áhrifin á krónuna ættu því að öðru óbreyttu að vera til veikingar hennar. „Við erum orðin verulega háð ferðaþjónustunni efnahagslega. Töluverð fækkun erlendra ferða- manna hefði því veruleg áhrif á út- flutning og hagvöxt,“ segir Gústaf. Óvissa í ferðaþjónustu eykur óvissu um gengið Baldur Arnarson baldura@mbl.is Þótt of snemmt sé að segja til um áhrif kórónu- veirunnar á ferðaþjón- ustuna þykir ljóst að líkur á samdrætti hafi aukist. Morgunblaðið/Eggert Efnahagslægð gengur nú yfir landið. Kórónuveiran er meðal áhrifavalda. BJÓR Sala á Stella Artois-bjór á tilboði fer vel af stað, en eins og Morgunblaðið greindi frá um síðustu helgi býður Vínnes, umboðsaðili Stella Artois, bjórinn á tilboði í marsmánuði. Þannig endurtekur heildsalan leik- inn frá því í fyrra, þegar Coscto gerði verðboð í bjórinn, og Vínnes svaraði með því að lækka bjórinn um tæplega 40%. Lækkunin nú er ögn lægri, eða 31%. Halldór Ægir Halldórsson, vöru- merkjastjóri bjórs hjá Vínnesi, segir í samtali við ViðskiptaMoggann að þegar borin er saman salan á mánu- daginn og salan fyrsta mánudag í mars 2019, þá sé sala á 330 ml flösk- um 111% meiri en í fyrra. 10% aukn- ing varð í sölu á 660 ml flöskum og dósirnar voru á svipuðu róli og á síð- asta ári, að sögn Halldórs. „Heildar- sala í lítrum fer upp um 38,5% milli ára.“ tobj@mbl.is Stella Artois seldist í bílförmum á síðasta ári á meðan tilboð stóð yfir. Tvöföldun í sölu á Stellu KÓRÓNUVEIRAN Aðsókn að verslanamiðstöðvunum Smáralind og Kringlunni hefur ekki dregist saman, þrátt fyrir útbreiðslu kórónuveirunnar hér á landi. Tinna Jóhannsdóttir, markaðs- stjóri Smáralindar, segir í samtali við ViðskiptaMoggann að meiri aðsókn hafi t.d. verið að verslanamiðstöðinni um síðustu helgi en sömu helgi á síð- asta ári. Í báðum verslanamið- stöðvum hafa sótthreinsivarnir og að- gengi að spritti verið aukin. Mikil aukning í netverslun Í netverslunum Nettó og Heim- kaupa hefur orðið mikil aukning á stuttum tíma. Aukningin er rakin til kórónuverunnar, og þess að fólk kjósi í meira mæli að halda sig heima, frek- ar en að fara út í búð. Um 60% aukn- ing var t.d. í sölu netverslunar Nettó á milli mánaða. Talið er að netverslun geti verið hentug leið fyrir fólk í sóttkví. tobj@mbl.is Óbreytt aðsókn í versl- anamiðstöðvarnar Morgunblaðið/Eggert Það var handagangur í öskjunni hjá versluninni Heimkaupum í gær. Kleppsmýrarvegur 8 | 104 Reykjavík | 581 4000 | solarehf.is | solarehf@solarehf.is Fáðu tilboð í Ræstingar- þjónustu án allra skuldbindinga Veitingarekstur 265m2 atvinnuhúsnæði á jarðhæð Áður bílaleiga. Góður sölustaður Sími 698 4611 Atli/Atvinnuhús og santon@nýborg.is Til leigu á Skúlagötu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.