Morgunblaðið - 04.03.2020, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 04.03.2020, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2020 Veislulist sér um veitingar fyrir fermingar af öllum stærðum, hvort sem er í veislusal eða heimahús Í yfir 40 ár hefur Veislulist lagt áherslu á góða þjónustu og framúrskarand matreiðslu. FERMINGAVEIsluR Verð er fyrir 30-50 manna veislu án leigu á veislusal. Bættu við marsipan fermingartertu með 20% afsl. 3ja rétta sTEIKARhlaðborð Verð er fyrir 30-50 manna veislu án leigu á veislusal. Bættu við marsipan fermingartertu með 20% afsl. PINNAMatur Verð er fyrir 30-50 manna veislu án leigu á veislusal. Bættu við kransaköku 30 manna á kr. 16.500 kaffihlaðborð Ferming Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is SKÚTAN AF 200 MÍLUM Á MBL.IS Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær Útgerðarfélag Reykjavíkur (ÚR) til þess að greiða Glitni HoldCo, þrotabúi Glitnis banka, tæpa tvo milljarða króna vegna skuldar sem til er komin vegna afleiðusamn- inga sem voru í gildi á milli ÚR (sem þá hét Brim) og Glitnis þegar bankinn varð gjaldþrota haustið 2008. Afleiðuviðskiptin voru ekki færð yfir í Nýja-Glitni, heldur var þeim sem voru með afleiðusamninga gert að gera upp við Gamla-Glitni, sem kominn var undir stjórn skilanefndar og komst dómurinn að þeirri niðurstöðu að ÚR skyldi greiða þrotabúi Glitnis þær kröfur sem þrotabúið fór fram á að greiddar yrðu. Málið var upphaflega höfðað árið 2012, en var fellt niður árið 2016 vegna útivistar af hálfu Glitnis HoldCo, sem höfðaði þó málið aftur síðar sama ár. Morgunblaðið/Árni Sæberg ÚR hefur verið gert að greiða skuld sem varð til vegna afleiðuviðskipta. ÚR gert að greiða þrota- búi Glitnis tvo milljarða GPG Seafood á Húsavík undirritaði nýverið samning við Víkingbáta ehf. um smíði á nýjum línubáti, en GPG Seafood missti bátinn Lágey ÞH-225 þegar hann strandaði í Þistilfirði í nóvember. Áætlað er að nýr línubát- ur verði afhentur á næsta ári og mun hann verða 13,25 metrar að lengd, 5,5 metrar að breidd og vega 29,9 brúttótonn. „Við erum fyrst og fremst að líta til meiri veiðigetu og betri aflameðferðar. […] svo erum við að reka þrjár vinnslur og erum með þessu að auka hráefnisöryggi,“ segir Páll Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri GPG Seafood, spurður um nýsmíðina. Hann segir einnig hafa verið litið til þeirra breytinga sem hafa verið gerðar í krókaafla- markskerfinu, en í desember var samþykkt á Alþingi að samræma lög um áhafnir skipa og breytt stærðarmörk báta í kerfinu. Þá verður jafnframt mun betri aðbún- aður fyrir áhöfnina um borð í nýja bátnum, að sögn Páls sem segir bát- inn líklega verða gerðan út frá Raufarhöfn. Fáir róðrardagar í vetur Páll segir undanfarna mánuði hafa verið erfiða fyrir fyrirtæki sem gera út innan krókaaflamarkskerf- isins sökum veðurs. „Þetta hefur verið mjög þungt síðan hér kom vont veður í kringum 9. desember og hefur bara haldist síðan. Það hef- ur verið erfitt að veiða og meira og minna hundleiðinlegt. Þeir eru telj- andi á fingrum annarrar handar róðrardagarnir á litlum bátum síð- ustu mánuði hér fyrir norðan. Lé- legt í janúar og febrúar örlítið skárri. En þá kom loðna hérna og það stoppar línuveiðina að miklu leyti.“ Spurður hvort vonir séu bundnar við að veðurfarið fari að batna svar- ar Páll: „Við höfum verið að vona það lengi og vonum enn. […] Við horfum löngunaraugum á næstu daga. Það á að vera eitthvað skárra veður þá. Þetta er að verða versti vetur til fjölda ára.“ Hann segir hins vegar nóvember hafa verið mjög góðan mánuð. Starfsemin í gang á Bakkafirði GPG hefur undanfarin ár verið með starfsemi á þremur stöðum á landinu, en í desember bættist við nýr staður þegar fyrirtækið festi kaup á Halldóri fiskvinnslu á Bakka- firði. Það var fyrst í síðasta mánuði að vinnsla hófst þar á nýjan leik eft- ir að breytingar voru gerðar í vinnsluhúsinu. „Það hefur hefð- bundið verið þannig að engin vinnsla er í gangi í desember, janúar og hálfan febrúar. Við héldum því óbreyttu. Við byrjuðum að vinna fisk um miðjan febrúar. Við vorum með fólk í vinnu í janúar að koma inn vélum og gera bát kláran á veið- ar,“ útskýrir Páll. „Við erum byrjuð að vinna fisk á Bakkafirði. Vinnslan er lítil og við breyttum aðeins. Það var verið að fletja fisk en nú erum við að flaka fisk þarna,“ segir Páll og bætir við að markmiðið sé að samhæfa nýt- ingu starfsstöðvanna til þess að auka framleiðslugetu fyrirtækisins á öllum stöðum frá því sem verið hef- ur. Hann segir jafnframt ákveðna sérstöðu vera á Bakkafirði þar sem um er að ræða eina af stærstu strandveiðihöfnum landsins. „Þarna eru ein bestu handfæramið lands- ins.“ Keppt við ferðaþjónustu um sumarstarfsmenn Spurður hvort það stefni í vertíð- arvinnu vegna strandveiðanna segir hann svo ekki vera. „Við stoppum alltaf í allt að fimm eða sex vikur yf- ir sumartímann fyrir viðhald og vegna sumarleyfa starfsmanna. Það hefur verið heldur lítil aðsókn krakka í þessi störf,“ svarar fram- kvæmdastjórinn. Í fyrrasumar feng- ust fleiri ungmenni til starfa hjá GPG við fiskvinnslu heldur en und- anfarin ár, að sögn Páls. Þá hafi það tíðkast að ungmenni hafi frekar leit- að í sumarvinnu í ferðaþjónustunni. Hyggst auka nýtingu og afköst starfs- stöðvanna Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Það hafa verið miklir umbrotatímar hjá GPG Seafood að undanförnu og fer nýr bátur í smíði á næstunni. Auk þess hefur verið hafin vinnsla á Bakkafirði og eignaðist fyrirtækið hlut í Iceland Seafood við söluna á spænska félaginu Elba. Gunnlaugur Karl Hreinsson, eigandi GPG Seafood, undirritaði samninginn um smíði nýs báts fyrir hönd fyrirtækisins og Matthías Sveinsson, eigandi Víkingbáta, fyrir hönd síns félags. Báturinn er talinn geta tryggt betri meðferð afla. Páll Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.