Morgunblaðið - 04.03.2020, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2020
Veislulist sér um veitingar fyrir fermingar af öllum
stærðum, hvort sem er í veislusal eða heimahús
Í yfir 40 ár hefur Veislulist lagt áherslu á góða þjónustu og framúrskarand matreiðslu.
FERMINGAVEIsluR
Verð er fyrir 30-50 manna veislu án leigu á veislusal.
Bættu við marsipan fermingartertu með 20% afsl.
3ja rétta sTEIKARhlaðborð
Verð er fyrir 30-50 manna veislu án leigu á veislusal.
Bættu við marsipan fermingartertu með 20% afsl.
PINNAMatur
Verð er fyrir 30-50 manna veislu án leigu á veislusal.
Bættu við kransaköku 30 manna á kr. 16.500
kaffihlaðborð
Ferming
Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
SKÚTAN
AF 200 MÍLUM Á MBL.IS
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær Útgerðarfélag Reykjavíkur
(ÚR) til þess að greiða Glitni HoldCo, þrotabúi Glitnis banka, tæpa tvo
milljarða króna vegna skuldar sem til er komin vegna afleiðusamn-
inga sem voru í gildi á milli ÚR (sem þá hét Brim) og Glitnis þegar
bankinn varð gjaldþrota haustið 2008.
Afleiðuviðskiptin voru ekki færð yfir í Nýja-Glitni, heldur var þeim
sem voru með afleiðusamninga gert að gera upp við Gamla-Glitni,
sem kominn var undir stjórn skilanefndar og komst dómurinn að
þeirri niðurstöðu að ÚR skyldi greiða þrotabúi Glitnis þær kröfur sem
þrotabúið fór fram á að greiddar yrðu.
Málið var upphaflega höfðað árið 2012, en var fellt niður árið 2016
vegna útivistar af hálfu Glitnis HoldCo, sem höfðaði þó málið aftur
síðar sama ár.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ÚR hefur verið gert að greiða skuld sem varð til vegna afleiðuviðskipta.
ÚR gert að greiða þrota-
búi Glitnis tvo milljarða
GPG Seafood á Húsavík undirritaði
nýverið samning við Víkingbáta ehf.
um smíði á nýjum línubáti, en GPG
Seafood missti bátinn Lágey ÞH-225
þegar hann strandaði í Þistilfirði í
nóvember. Áætlað er að nýr línubát-
ur verði afhentur á næsta ári og
mun hann verða 13,25 metrar að
lengd, 5,5 metrar
að breidd og vega
29,9 brúttótonn.
„Við erum
fyrst og fremst
að líta til meiri
veiðigetu og betri
aflameðferðar.
[…] svo erum við
að reka þrjár
vinnslur og erum
með þessu að auka hráefnisöryggi,“
segir Páll Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri GPG Seafood, spurður
um nýsmíðina. Hann segir einnig
hafa verið litið til þeirra breytinga
sem hafa verið gerðar í krókaafla-
markskerfinu, en í desember var
samþykkt á Alþingi að samræma
lög um áhafnir skipa og breytt
stærðarmörk báta í kerfinu. Þá
verður jafnframt mun betri aðbún-
aður fyrir áhöfnina um borð í nýja
bátnum, að sögn Páls sem segir bát-
inn líklega verða gerðan út frá
Raufarhöfn.
Fáir róðrardagar í vetur
Páll segir undanfarna mánuði
hafa verið erfiða fyrir fyrirtæki sem
gera út innan krókaaflamarkskerf-
isins sökum veðurs. „Þetta hefur
verið mjög þungt síðan hér kom
vont veður í kringum 9. desember
og hefur bara haldist síðan. Það hef-
ur verið erfitt að veiða og meira og
minna hundleiðinlegt. Þeir eru telj-
andi á fingrum annarrar handar
róðrardagarnir á litlum bátum síð-
ustu mánuði hér fyrir norðan. Lé-
legt í janúar og febrúar örlítið
skárri. En þá kom loðna hérna og
það stoppar línuveiðina að miklu
leyti.“
Spurður hvort vonir séu bundnar
við að veðurfarið fari að batna svar-
ar Páll: „Við höfum verið að vona
það lengi og vonum enn. […] Við
horfum löngunaraugum á næstu
daga. Það á að vera eitthvað skárra
veður þá. Þetta er að verða versti
vetur til fjölda ára.“ Hann segir hins
vegar nóvember hafa verið mjög
góðan mánuð.
Starfsemin í gang á Bakkafirði
GPG hefur undanfarin ár verið
með starfsemi á þremur stöðum á
landinu, en í desember bættist við
nýr staður þegar fyrirtækið festi
kaup á Halldóri fiskvinnslu á Bakka-
firði. Það var fyrst í síðasta mánuði
að vinnsla hófst þar á nýjan leik eft-
ir að breytingar voru gerðar í
vinnsluhúsinu. „Það hefur hefð-
bundið verið þannig að engin vinnsla
er í gangi í desember, janúar og
hálfan febrúar. Við héldum því
óbreyttu. Við byrjuðum að vinna
fisk um miðjan febrúar. Við vorum
með fólk í vinnu í janúar að koma
inn vélum og gera bát kláran á veið-
ar,“ útskýrir Páll.
„Við erum byrjuð að vinna fisk á
Bakkafirði. Vinnslan er lítil og við
breyttum aðeins. Það var verið að
fletja fisk en nú erum við að flaka
fisk þarna,“ segir Páll og bætir við
að markmiðið sé að samhæfa nýt-
ingu starfsstöðvanna til þess að
auka framleiðslugetu fyrirtækisins á
öllum stöðum frá því sem verið hef-
ur.
Hann segir jafnframt ákveðna
sérstöðu vera á Bakkafirði þar sem
um er að ræða eina af stærstu
strandveiðihöfnum landsins. „Þarna
eru ein bestu handfæramið lands-
ins.“
Keppt við ferðaþjónustu
um sumarstarfsmenn
Spurður hvort það stefni í vertíð-
arvinnu vegna strandveiðanna segir
hann svo ekki vera. „Við stoppum
alltaf í allt að fimm eða sex vikur yf-
ir sumartímann fyrir viðhald og
vegna sumarleyfa starfsmanna. Það
hefur verið heldur lítil aðsókn
krakka í þessi störf,“ svarar fram-
kvæmdastjórinn. Í fyrrasumar feng-
ust fleiri ungmenni til starfa hjá
GPG við fiskvinnslu heldur en und-
anfarin ár, að sögn Páls. Þá hafi það
tíðkast að ungmenni hafi frekar leit-
að í sumarvinnu í ferðaþjónustunni.
Hyggst auka
nýtingu og
afköst starfs-
stöðvanna
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Það hafa verið miklir umbrotatímar hjá GPG Seafood að
undanförnu og fer nýr bátur í smíði á næstunni. Auk þess
hefur verið hafin vinnsla á Bakkafirði og eignaðist fyrirtækið
hlut í Iceland Seafood við söluna á spænska félaginu Elba.
Gunnlaugur Karl Hreinsson, eigandi GPG Seafood, undirritaði samninginn um smíði nýs báts fyrir hönd fyrirtækisins
og Matthías Sveinsson, eigandi Víkingbáta, fyrir hönd síns félags. Báturinn er talinn geta tryggt betri meðferð afla.
Páll
Kristjánsson