Morgunblaðið - 04.03.2020, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 04.03.2020, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2020SJÓNARHÓLL Góð þjónusta í tæpa öld 10%afslátturfyrir 67 áraog eldri Flugvallarþjónusta BSR sér um að skutla þér út á flugvöll og aftur heim þegar þú ferð til útlanda. 5-8 manneskjur 19.500 kr. 1-4 manneskjur 15.500 kr. Verð aðra leið: Það styttist í að gestirnir komi og steikin á leiðinni í ofninn. Þú manst þá allt í einu að vínflaskan stendur á borðinu og ekki komin í kæli. Hvaða ráð er til við því? Við höfum öll heyrt allskonar húsráð. Kampavínið í fryst- inn í 15 mínútur eða hvítvínið í hálf- tíma í ísskápinn. Svo má skella flösku út á svalir – en þá fer það auðvitað eftir veðri og vindum hvernig tekst til við kælinguna. Veit maður einhvern tímann hvort maður er með vínið við rétt hitastig? Fæstir geta fullyrt nokkuð um það og þá eru það yfirleitt bara þeir sem eiga rándýra vínkæla sem státa af tveimur hitastillingum eða fleirum. En við þessu vandamáli hefur Clima- diff fundið lausn. Og fyrirtækið er reyndar mjög framarlega í þeim efn- um þegar kemur að kælibúnaði. Nú er hægt að kaupa fyrir hóflegt verð kæli sem er ætlaður einni flösku og með einföldum hætti má stilla kælinn þannig að hið fullkomna hita- stig fáist á vínið, rétt í þann mund sem þess er neytt. Nefnist hann Vinecave eða vínhellirinn og mætti eins kalla flöskuhelli á hinu ástkæra og ylhýra. Slíkan lúxus má ekki van- meta enda skiptir það höfuðmáli, ekki síst þegar verið er að dreypa á vönduðum og góðum veigum, að hita- stigið sé ekki úr takti við það sem best hentar. Einhverju sinni var því haldið fram að fólk drykki hvítvínið almennt of kalt og rauðvínið of heitt. Sú fullyrð- ing á sennilega við og margir kannast við það að taka hvítvínið út úr ís- skápnum þegar það er komið niður í hinar hefðbundnu 4° sem kælirinn er stilltur á. Og rauðvínið. Hversu oft er það opnað við stofuhita, 21-23°? Hvort tveggja er í raun tilræði við gott vín og eyðileggur upplifunina af því að njóta þess við bestu mögulegu skilyrði. Reyndar er staðan með hvít- vínið skárri en það rauða. Hvítvínið jafnar sig og nær að lokum heppilegu hitastigi nær 8-10°, stofuhitinn á rauðvíninu breytist ekkert nema gripið sé til sérstakrar kælingar. Climadiff-kælirinn er búinn 30 stillingum fyrir hvítvín, rauðvín og freyðivín. Þannig má stilla hann eftir víntegund og þrúgu og þannig ná hinu fullkomna hitastigi sem hentar Flöskuhellir sem tryggir rétt hitastig HIÐ LJÚFA LÍF Stjórnandi þarf í raun aðeins að svara tveimur lykil-spurningum. Önnur þeirra snýr að stefnu og framtíð-arsýn, enda skilur skynsamleg strategía oftast á milli þeirra fyrirtækja sem vegnar vel og þeirra sem verða undir í samkeppni. Stjórnendur ríkisstofnana þurfa einnig að vega og meta hvert skuli halda. Velta fyrir sér áherslum til framtíðar út frá því hlutverki sem stofnanirnar hafa. Stjórnendur sveit- arfélaga þurfa á sama hátt að huga vel að stefnumótun; hvern- ig samfélag á að búa íbúum og atvinnulífi. Stjórnendur ráðu- neyta – ráðherrar og stjórnendur innan ráðuneytanna – eiga eðlilega að vera stefnumarkandi fyrir framtíðarþróun á því sviði samfélagsins sem þau sinna. Ef skýra framtíðarsýn vant- ar þá blasir við sú staða sem írski söngvarinn Christy Moore var í þegar hann hitti Shane MacGow- an úr Pogues. „Hvert ert þú að fara spurði ég. Ég veit það ekki, sagði Shane. Gott, sagði ég, ég er líka að fara þangað.“ Sem sagt; stefnuleysi. Og hver er þá hin meginspurningin sem stjórnandi þarf að svara? Jú, hún snýr að því hvernig eigi að haga skipu- lagi til að ná þeirri sýn sem stefnt er að. Hjá fyrirtækjum snýst þetta um að koma á skynsamlegu skipulagi/ stjórnkerfi sem virkar vel og færir fyrirtækið áfram í takti við mótaða stefnu. Hjá ríkisstofnunum er þetta nákvæmlega sama viðfangsefni þ.e. búa til skipulag þar sem gangverkið er skýrt og skynsamlegt, þannig að stofnunin nái fram því sem stefnuáherslur segja til um. Sveitarfélag þarf reglulega að skoða hvort skipulagið sé rétta verkfærið til að koma í verk því sem meirihlutinn vill sjá gerast, hvort sem það snýr að skipu- lagi byggðar eða skólamálum. Og ráðuneytin eru síðan með framtíð þjóðarinnar í fanginu og bera ábyrgð á að stefnu rík- isstjórnar sé framfylgt með skilvirku og öflugu skipulagi. Uppbygging og skipulag ráðneyta hefur þann eina tilgang að láta hluti gerast. Vera það verkfæri sem tryggir að Ísland nái og viðhaldi góðri stöðu á öllum sviðum þjólífsins; dómsmálum, félagsmálum, heilbrigðismálum, menningarmálum, mennta- málum, umhverfismálum o.s.frv. Ok hljómar ágætlega en heitir ekki pistillinn eggið eða hæn- an? Jú það er rétt og ástæðan er þessi; mig undrar oft þegar ég heyri stjórnendur tala þannig að samhengi spurninganna tveggja sé ekki skýrt. Dálítið eins og um eggið og hænuna. Í mínum huga er skýrt að skipulag kemur í kjölfar stefn- unnar. Stundum getur það raunar gerst að skipulag hafi þau áhrif að sveigt sé af leið formlegrar stefnu og þar með hefur skipulagið haft bein áhrif á stefnuna, en slíkt er undantekning. Rökrétta samhengið er að til að framfylgja stefnu og ná þeim markmiðum sem felast í sýn á framtíðina, þá þarf skipulagið að styðja við þær áherslur. Tilgangur skipulags er að hreyfa alla þætti í takti við stefnu og framtíðarsýn. Á því lengur eng- inn vafi. Undanfarnar vikur má sjá þrennt í umræðunni sem snertir þetta samhengi. Fyrsta dæmið snýr að heilbrigðiskerfinu. Sú mikla umræða sem á sér stað um fyrirkomulag heilbrigð- ismála hefur sjaldnast tengst þeirri heilbrigðisstefnu sem samþykkt var seint á síðasta ári. Sú stefna á gagngert að vera leið- arljós fyrir forgangsverkefni heil- brigðismála og útfærsla kerfisins þarf að styðja við að þeim verk- efnum sé sinnt. Vissulega ekki ein- falt mál, en stefnan þarf alltaf að vera útgangspunktur umræðunnar um kerfið. Annað dæmi er menntamálin. Slök útkoma úr Pisa-könnun og umræða um lengd náms – kerfið sjálft – hefur oftar en ekki átt sér stað án þess að vitnað hafi verið í menntastefnu Íslands eða sú sýn sem þar er að finna hafi verið not- uð sem viðmið um það sem skipulag ætti að vinna með. Menntastefnan verður vonandi notuð gagngert til að endur- skoða skipulag menntamála. Lokadæmi snýr að landbúnaðinum. Lengi hefur staðið yfir umræða um hvert væri besta kerfið til að gæta viðkvæms landbúnaðar og vinna með hagsmuni bænda, neytenda og landsins alls. Það sem hefur staðið skynsamlegri umræðu fyrir þrifum er vöntun á stefnu og framtíðarsýn fyrir landbúnaðinn. Ef ekki er ljóst hvert á að stefna, hvaða áherslum eigi að fylgja í matvælaframleiðslu sem tekur tillit til sjálfbærni, og mik- ilvægi sóttvarna fyrir landbúnaðinn, þá er erfitt að koma sé saman um það landbúnaðarkerfi sem styðja á við þá sýn. Kjarni málsins er því sá að ólíkt tilgangslausri umræðu um hvort komi á undan eggið eða hænan, þá liggur það ljóst fyrir að stefnan kemur á undan skipulaginu og í þeirri röð þarf að vinna. Eggið eða hænan STJÓRNUN Þórður Sverrisson, ráðgjafi hjá Capacent ” Í mínum huga er skýrt að skipulag kemur í kjölfar stefnunnar. Stundum getur það raunar gerst að skipu- lag hafi þau áhrif að sveigt sé af leið formlegrar stefnu og þar með hefur skipulagið haft bein áhrif á stefnuna, en slíkt er undantekning. EGGERT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.