Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2020, Blaðsíða 2
Hvernig hefurðu það á þessum síðustu og
verstu tímum?
Bara fínt, ég átti að vera að fara til Orlando í kærkom-
ið frí en fer ekki. Maður þarf bara að sætta sig við
það. Ég tek því með stóískri ró. Ferðin bíður betri
tíma.
Hvernig vildi það til að þú tókst að þér
að leikstýra Mamma Mía fyrir Leikfélag
Flensborgar?
Ég reyni að hafa sem fjölbreyttust verkefni og leik,
leikstýri og skrifa jöfnum höndum. Ég leikstýrði Sister
Act hjá Flensborg í fyrra. Ég heillaðist af bæði krökk-
unum og umhverfinu. Bæjarbíó er stórkostlegt leikhús
þannig að ég vildi endilega gera þetta aftur.
Eru einhverjir krakkar þarna sem eiga framtíð-
ina fyrir sér í leiklist?
Já, algjörlega. Það eru fáránlega margar hæfileikasprengjur
þarna! Þau geta öll farið út á þessa braut. Þau hafa sýnt mér
dugnað og metnað og ekki síst gleði. Svo eru þau eru öll frábærir
söngvarar og dansarar. Ég er alltaf í sjokki hvað þau eru góð í öllu;
dansi, söng og leik. Ég sé líka gríðarlegar framfarir. Það gefur mér
svo mikið sem leikstjóri.
Hafa krakkarnir einhvern tíma fyrir lærdóm?
Já, þau þurfa bara að skipuleggja sig vel. Þau læra líka svakalega mikið
á þessu.
Er þetta ekki mikil vinna?
Jú, mjög mikil. Það verða allir að leggjast á eitt og þau hafa sýnt og
sannað það á frumsýningunni.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
JÚLÍANA SARA GUNNARSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Hæfileika-
sprengjur!
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.3. 2020
Undanfarna daga og vikur hafa nokkrar barnafjölskyldur fráÍrak beðið milli vonar og ótta því til stendur að senda þær aft-ur til Grikklands. Þessar manneskjur hafa fengið synjun hjá
Útlendingastofnun sem kærunefnd útlendingamála hefur staðfest á
grundvelli þess að þær eru með vernd í Grikklandi. En ekkert bíður
þeirra í Grikklandi nema eymdin ein eða kannski frekar helvíti á
jörðu!
Í blaði dagsins er rætt við tvo menn undir þrítugu sem komu hingað
ásamt fjölskyldum sínum til að leita að öryggi og betra lífi handa börn-
um sínum en samtals eru börnin þrjú. Þrjár fallegar ungar stúlkur
sem eru byrjaðar að tala íslensku og geta leikið sér frjálsar úti.
Það hafa þær ekki getað í hátt
í þrjú ár. Þær hafa upplifað það
sem ekkert barn á nokkru sinni
að þurfa að upplifa. Þær hafa
setið sársvangar í fangelsi í
Tyrklandi þar sem feður þeirra
voru barðir. Þær hafa hágrátið á
litlum gúmmíbát í stórsjó og ótt-
ast að drukkna á leiðinni.
Þær hafa verið fastar í við-
bjóðslegum flóttamannabúðum í
Grikklandi sem eru ekki mönn-
um bjóðandi. Útrunninn matur
var á boðstólum, þrjú salerni
fyrir mörg þúsund manns, slags-
mál og eiturlyfjaneysla daglegt
brauð.
Er þetta staður sem þú myndir vilja senda börnin þín á?
Þó ekki væri nema í einn dag? Nei. Ekki eina einustu klukkustund!
Þarna dvöldu þessar litlu stelpur í tvö og hálft ár, án þess að fá að
ganga í skóla eða fá heilbrigðisþjónustu. Hver dagur var barátta.
Þangað vilja íslensk stjórnvöld senda þær aftur. Ég spyr bara; hvar
er mannúðin? Það verður að fara að breyta einhverjum reglum hér.
Börn á flótta verða að fá tækifæri. Það þarf ekki annað en að ímynda
sér að þetta sé þitt barn til þess að taka réttar ákvarðanir. Við getum
ekki leyft fólki að vera hér svo mánuðum skiptir, gefið því örlitla von
um að geta mögulega boðið barni sínu upp á almenn mannréttindi, til
þess eins að hrifsa þessa von af því síðar.
Það ríkir stríð og óöld víðar en á Sýrlandi.
Spurðu bara Ali Alzirkani sem missti föður sinn og bróður bara af
því að hann vann fyrir bandarískt fyrirtæki. Spurðu Ali mág hans sem
missti líka bróður sinn. Þetta fólk var allt skotið til bana. Spurðu líka
litlu níu ára Fatimu sem á vantar bæði fingur og tær. Hún var að leik
í götunni sinni heima í Bagdad og lenti í sprengjuárás. Saklaust barn.
Hvar er mannúðin?
Pistill
Ásdís
Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
’Þær hafa setið sár-svangar í fangelsi íTyrklandi þar sem feðurþeirra voru barðir. Þær
hafa hágrátið á litlum
gúmmíbát í stórsjó og ótt-
ast að drukkna á leiðinni.
Ingunn Hrund Einarsdóttir
Nei, en það kemur að því.
SPURNING
DAGSINS
Hefur kór-
ónuveiran
haft áhrif á
líf þitt?
Bjarki Tómas Leifsson
Nei, ég er ekki mikið að pæla í því.
Árný Inga Guðjónsdóttir
Já, ég þurfti að að fresta ferð
til útlanda.
Aron Þórðarson
Nei, ekki enn, en ég er þjálfari þann-
ig að það mun breytast í næstu viku.
Auk þess er ég í háskóla.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndin er frá
Unsplash
Leikfélag Flensborgarskóla sýnir um þessar mundir söngleik-
inn Mamma Mía í Bæjarbíói. Leikkonan Júlíana Sara Gunn-
arsdóttir skrifaði handritið og leikstýrði. Miðar fást á tix.is.
TÆKNI A
FYRIR H
TVINNUMANNSIN
E I
www.alver.is S: 896 4040 LauraStar á Íslandi
LauraStar
er létt og
meðfærilegt og
þú ert fljótari
að strauja en
nokkru sinni
fyrr.
Nú finnur þú
það sem þú
leitar að á
FINNA.is