Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2020, Side 4
Leiðin stytt að skjálftamiðjunni
Suður-Kórea var eitt af fyrstulöndunum til að taka á mótihinum óboðna gesti kórónu-
veirunni eftir að hún greindist fyrst
í Kína undir lok síðasta árs. Til að
byrja með breiddist hún hratt út og
á fimmtudaginn var Suður-Kórea í
fjórða sæti á listanum yfir flest
smit, með 7.979 staðfest tilfelli. At-
hygli vekur á hinn bóginn að dauðs-
föll eru aðeins 60, eða 0,7%, sem er
langt undir heimsmeðaltalinu.
AFP-fréttastofan kynnti sér mál-
ið fyrir helgina og komst meðal
annars að því að Suður-Kórea hef-
ur mætt veirunni með ólíkum hætti
en Kína. Í stað þess að velja kín-
versku leiðina og loka svæðum og
borgum þar sem smit eru útbreidd
hafa stjórnvöld lagt áherslu á miðla
upplýsingum, virkja þjóðina og
vera með víðtæka skimun fyrir
smiti.
Lögð hefur verið áhersla á að
hafa uppi á öllum sem smitaðir hafa
mögulega komist í snertingu við og
bjóða þeim að vera prófaðir. Allar
ferðir fólks sem greinist með smit
eru kortlagðar fjórtán daga aftur í
tímann og eru þær upplýsingar að-
gengilegar á opinberum vefsíðum.
Við gjörninginn notast yfirvöld
meðal annars við greiðslukorta-
færslur og efni úr öryggismynda-
vélum, auk þess sem stuðst er við
upplýsingar úr farsímum. Greinist
nýtt smit fá allir sem búa eða
starfa á viðkomandi svæði SMS-
skilaboð í símann sinn og geta því
strax gert viðeigandi ráðstafanir.
Fleiri útskrifaðir
en nýgreindir
Margt bendir til þess að þessar að-
gerðir séu að skila árangri, en á
fimmtudag losnuðu í fyrsta skipti
fleiri einstaklingar við veiruna en
greindust með hana. 177 voru út-
skrifaðir þann dag en aðeins 110
voru nýgreindir. Það eru vatnaskil í
baráttunni.
Aðgerðir yfirvalda í Suður-Kóreu
hafa að vonum vakið upp umræður
um „Stóra bróður“ og hvort lög um
persónuvernd séu ekki brotin í mél.
Fáir hafa þó gert sér mat úr þeim
pælingum enda flestir líklega sam-
mála um að lýðheilsa gangi fyrir
viðteknum hugmyndum um per-
sónuvernd á ótrúlegum tímum í
sögu mannkyns.
Þeir sem tengjast staðfestum til-
fellum þurfa ekki að greiða fyrir
prófið en aðrir þurfa að punga út
andvirði 18.000 kr. Reynist menn
smitaðir fellur gjaldið niður. Þetta
hefur hjálpað heilbrigðisyfirvöldum
að greina umfangið hratt og örugg-
lega og gera viðeigandi ráðstafanir.
Samkvæmt upplýsingum AFP
eru afköstin hvergi eins mikil og í
Suður-Kóreu, en þar um slóðir hafa
menn verið að framkvæma allt að
tíu þúsund próf á dag. Það hefur
stytt leiðina að sjálfri skjálftamiðj-
unni og gert vinnu heilbrigðisyf-
irvalda mun aðgengilegri.
Hermt er að Suður-Kórea hafi
burði til að framkvæma allt að
fimmtán þúsund próf á sólarhring,
en um 500 stöðvar koma að verk-
inu, þar á meðal á fimmta tug bíla-
stöðva, þar sem sáralitlar líkur eru
á því að sjúklingar komist í snert-
ingu við heilsugæslufólk.
Fullyrt er að Suður-Kórea hafi
lært af reynslunni í þessu sam-
bandi, en fyrir fimm árum var bún-
aður til að prófa fólk fyrir MERS-
faraldrinum af skornum skammti.
Þá var sett í gang áætlun til að búa
til kerfi sem gerði mönnum kleift
að hraða niðurstöðum við aðstæður
sem þessar.
Niðurstöður á sex tímum
Fljótlega eftir að kórónufaraldur-
inn braust út í Kína fékk nýlega
þróaður prófbúnaður vegna veir-
unnar sérstakt flýtisamþykki
stjórnvalda, en hann leiðir í ljós
niðurstöður úr skimun á aðeins sex
klukkustundum.
Upplýsingagjöf hefur verið mjög
öflug í Suður-Kóreu, en stjórnvöld
hrintu snemma af stokkunum svo-
kallaðri „fjarlægðarherferð“, þar
sem landsmenn voru hvattir til að
halda sig inni, forðast fundi og
mannamót og stilla snertingu við
annað fólk í algjört hóf. Eftir þeim
tilmælum hefur þorri landsmanna
farið, með þeim afleiðingum að
stræti og torg hafa verið svo gott
sem auð undanfarna daga og vikur,
meira að segja í hinni alla jafna líf-
legu höfuðborg Seúl.
Þá hefur lítið verið að gera í mat-
vöruverslunum og á veitingastöð-
um, fyrir utan auðvitað heimsend-
ingu, sem flestir færa sér í nyt.
Íþróttaviðburðum og tónleikum
hefur verið aflýst eða frestað og
langflestir ganga um með grímur,
að beiðni stjórnvalda.
Fyrirmynd annarra?
Aðgerðir stjórnvalda í Suður-Kóreu
þykja mun markvissari en til dæm-
is á Ítalíu, þar sem smit eru orðin
mun fleiri enda þótt veirunni hafi
skolað mun seinna á land þar. Þá
er dánartíðnin á Ítalíu mun hærri,
en yfir eitt þúsund manns eru nú
látnir í landinu.
Einhverjar þjóðir horfa nú til
Suður-Kóreu þegar þær meta
hvernig best sé að mæta veirunni,
þar á meðal Japan, en AFP hefur
eftir framámanni innan heilbrigðis-
kerfisins þar í landi að öflug skim-
un skipti sköpum eigi að ná tökum
á veirunni. „Líkanið er gott fyrir
hvaða land sem er,“ segir hann.
Starfsmaður sótt-
hreinsar stiga á
neðanjarðalestarstöð
í Seúl á föstudaginn.
AFP
Kórónuveiran stakk sér
af miklum þunga niður
í Suður-Kóreu og fljótt
urðu smitin þar flest
utan Kína. Nú hefur
Kóreumönnum á hinn
bóginn tekist að hægja
mjög á útbreiðslu veir-
unnar og dánartíðni er
langt undir meðaltalinu
á heimsvísu.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
HEIMURINN
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.3. 2020
Lág dánartíðni af völdum kór-
ónuveirunnar í Suður-Kóreu
hefur að vonum vakið mikla at-
hygli en hún er aðeins 0,7%
miðað við 3,4% á heimsvísu.
Öflug skimum spilar hér án efa
rullu en hátt hlutfall dauðsfalla
á Ítalíu má, að sögn sérfræð-
inga, að einhverju leyti skýra
með því að mun fleiri séu smit-
aðir í landinu en hafa verið
greindir. Það skekkir hlutföllin.
Aldur skiptir líka máli í þessu
sambandi, en meira en helm-
ingur smitaðra í Suður-Kóreu
er undir fertugu. Þá hafa fleiri
konur greinst en karlar, öfugt
við flest önnur lönd. Það tengja
menn ekki síst Shincheonji-
sértrúarsöfnuðinum, sem mun
vera rót allt að 60% tilfella, en
meðlimir hans eru að stórum
hluta konur á þrítugs- og fer-
tugsaldri.
Flestir sem deyja af völdum
veirunnar eru eldri karlar.
Mikið um ungt fólk
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í yfir 30 ár
gluggar, hurðir, rennihurðir,
sólskálar og svalaskjól
Viðhaldsfríir
Sólskálar
Falleg sólstofa breytir öllu
Lyngás 20 • 210 Garðabær • Sími 554 4300
Gluggar & garðhús
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Núna
er rétti
tíminn að
fá tilboð