Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2020, Side 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2020, Side 8
KÓRÓNUVEIRAN 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.3. 2020 M ánudaginn 30. desember sendi kínverski læknirinn Li Wenliang aðvörun til skólasystkina sinna úr Wuhan-háskóla. Það gerði hann með félagsmiðlinum WeChat og voru skilaboðin með fyrirsögninni „Sjö tilvik SARS á Huanan-fiskmarkaðnum“. Klukkustund síð- ar leiðrétti hann skilaboðin. Það hefði vissu- lega greinst kórónuveira, á borð við SARS, en það ætti þó eftir að greina hana. Skilaboðin bárust eins og eldur í sinu um Kína og fór það ekki fram hjá valdhöfum. Þriðja janúar var hann kallaður í yfirheyrslu á lögreglustöð og sakaður um að dreifa fölskum upplýsingum og grafa undan þjóðfélaginu. Hafði starfað á fiskmarkaðnum Fimm dögum síðar kom 82 ára gömul kona sem starfaði á fiskmarkaðnum á spítalann. Hún var hitalaus og fyrir vikið notaði Li ekki andlitsgrímu þegar hann skoðaði hana. Svo fór að konan smitaði Li og rúmum mánuði síðar var hann allur, aðeins 33 ára gamall, eins og rakið var í minningargrein Economist. Eig- inkona hans var ólétt en þau áttu barn fyrir. Til að byrja með virtust fyrstu viðbrögð kín- verskra stjórnvalda gera illt vera. Með því að afneita veirunni, í stað þess að taka í taumana, hefðu þau stuðlað að útbreiðslu hennar. Fimmtudaginn 23. janúar var fyrsta ferða- bannið sett í Hubei-héraði í Kína. Aðgerðirnar þóttu harðar en virtust skila árangri. Eins og lesa má úr grafinu hér fyrir ofan var veiran nær eingöngu bundin við Kína 11. febrúar. Voru þá 98,9% skráðra tilvika veirunnar í Kína og flest hin tilfellin í nágrannaríkjum í Asíu. Síðan byrjar veiran að breiðast um heiminn. Þriðjudaginn 3. mars voru tilfellin utan Kína orðin rúmlega 11 þúsund. Þar af voru á þriðja þúsund á Ítalíu, sem aftur birtist í smitum Ís- lendinga sem voru þar á ferðalagi. Fyrsti Ís- lendingurinn greindist með veiruna föstudag- inn 28. febrúar eftir skíðaferð til Ítalíu og í gær voru tilfellin hér á landi hátt í 130. Um hálffimmleytið síðdegis í gær voru til- fellin orðin um 137 þúsund í heiminum og voru rúmlega 56 þúsund utan Kína. Með því hefur hlutfall smita í Kína af heildarfjölda smita fall- ið úr 98,9% 11. febrúar í um 59%. Var fyrst bundin við Kína Tölfræðin er sótt á vef Johns Hopkins-háskóla, eins virtasta háskóla Bandaríkjanna. Skólinn hefur fræga læknadeild og hafa margir ís- lenskir læknar sótt menntun sína þangað. Grafið hér fyrir ofan segir mikla sögu. Út- breiðslan hófst í Kína en veiran barst síðan til Írans, Evrópu og víðar. Mætti álykta að ferða- bannið í Kína hefði komið of seint. Á nýjustu myndinni á grafinu hér má sjá hvernig veiran er orðin útbreidd í Bandaríkj- unum, ekki síst á austurströndinni, og skýrir það ferðabann Donalds Trumps forseta. Blett- urinn yfir Íslandi hefur stækkað. Neyðarstig almannavarna tók gildi á Íslandi föstudaginn 6. mars, en þá greindist fyrsta smit kórónuveirunnar innanlands, og viku síð- ar, um hádegisbil í gær, var samkomuhald og skólastarf á Íslandi takmarkað á næstunni. Ítarlega er fjallað um þá ákvörðun í laugar- dagsblaði Morgunblaðsins og á mbl.is. Staðan hefur breyst dag frá degi síðustu sólarhringa. Tími harkalegra aðgerða rennur upp Vikan sem leið var vika róttækra aðgerða víða um heim en eins og svo oft var það Trump sem stal senunni með níu mínútna ræðu um ferða- bann til Evrópu. Þykir nú ljóst að veiran muni hafa slík efnahagsleg áhrif að lengi verði til jafnað. Hún mun þó að líkindum ekki jafnast á við alþjóðlegu fjármálakreppuna 2008 enda fylgdi henni skuldakreppa. Þó gætu veikari efnahagskerfi evrusvæðisins, á borð við Ítalíu, staðið frammi fyrir miklum vanda. Mannslífin eru þó auðvitað í fyrirrúmi. Nú hafa rúmlega fimm þúsund manns látið lífið af völdum veirunnar síðan hún byrjaði að breið- ast út í Kína í lok desember. Um 70 þúsund hafa náð bata en um 63 þúsund eru veikir. Ber að hafa í huga að þessar tölur hljóta eðli málsins samkvæmt að vera áætlun. Hröð útbreiðsla í Evrópu Þegar útbreiðsla veirunnar í mars er skoðuð, út frá grafinu hér fyrir ofan, kemur meðal ann- ars í ljós að fjöldi tilvika á Ítalíu hefur rúmlega sjöfaldast milli 3. og 13. mars; farið úr tvö þús- und í rúmlega 15 þúsund. Sömu sögu má segja af Íran, auk þess sem smitum í Suður-Kóreu hefur fjölgað um 54%. Hjá Frökkum, Þjóð- verjum, Spánverjum og Bandaríkjamönnum hefur smitum líka fjölgað hratt. Þá eru Norðurlöndin nú ofarlega á listanum. Veiran er því komin til margra helstu við- skiptalanda Íslands. Með því aukast líkurnar á alvarlegu áfalli í íslenskri ferðaþjónustu. Má í þessu efni rifja upp að eldgosið í Eyja- fjallajökli hafði í för með sér mikla röskun á flugumferð í Evrópu 15. til 20. apríl 2010. Nú er rætt um miklu langvinnari röskun á flugi. En hver verða áhrifin? Þegar útbreiðsla veirunnar var fyrst og fremst bundin við Kína heyrðist það sjónarmið að far- aldurinn vitnaði um hversu brothættar fram- leiðslukeðjur heimsins væru orðnar. Röskun í kínverskum verksmiðjum hefði sett alls kyns framleiðslu í uppnám. Þessi veikleiki í heims- hagkerfinu hlyti af að leiða til endurmats. Nú eiga flest ríki heims fullt í fangi með að hefta útbreiðsluna og hefur það eðlilega breytt grundvelli umræðunnar. Ef illa fer gæti um- ræðan næstu vikur farið að snúast um harka- leg áhrif veirunnar þar sem varnir eru veikar. Mörg ríki hafa veikburða heilbrigðiskerfi. Svo eru það pólitísku áhrifin. Þessi atburður er af slíkri stærðargráðu að leiðtogar verða dæmdir út frá viðbrögðum við veirunni. Trump forseti veit að dýrkeypt gæti reynst að missa stjórn á atburðarásinni í aðdraganda forsetakosninga. Sunnudaginn 29. febrúar flutti hann ræðu í Suður-Karólínu og gagn- rýndi við það tilefni fjölmiðla fyrir „hysteríu“ vegna veirunnar. Skaut á „falsfrétta“-miðla. Veiran væri ekki að breiðast hratt út í Bandaríkjunum vegna réttra viðbragða. Miðvikudaginn 11. mars greindi hann frá ferðabanninu. Staðan væri án fordæma. Útbreiðsla kórónuveirunnar frá 11. febrúar – samkvæmt gagnagrunni Johns Hopkins-háskóla Heildarfjöldi smita 91.320 Hafa náð bata 48.166 Fjöldi látinna 3.118 Hlutfall látinna af smituðum 3,4% FJÖLDI SMITA Kína 80.151 Önnur lönd 11.169 Hlutfall smita í Kína 88% 11. febrúar 2020 3. mars 2020 13. mars 2020 Suður-Kórea 5.186 Ítalía 2.036 Íran 1.501 Japan 274 Frakkland 191 Þýskaland 165 Spánn 120 Singapúr 108 Bandaríkin 105 Hong Kong 100 Heildarfjöldi smita 137.385 Hafa náð bata 69.779 Fjöldi látinna 5.088 Hlutfall látinna af smituðum 3,7% FJÖLDI SMITA Kína 80.945 Önnur lönd 56.440 Hlutfall smita í Kína 59% Ítalía 15.113 Íran 11.364 Suður-Kórea 7.979 Spánn 4.334 Þýskaland 3.156 Frakkland 2.882 Bandaríkin 1.268 Sviss 1125 Svíþjóð 809 Holland 804 Danmörk 788 Noregur 750 Japan 639 Belgía 556 Austurríki 302 Katar 262 Barein 189 Singapúr 187 Ísrael 157 Finnland 155 Brasilía 151 Malasía 149 Grikkland 133 Ísland 128 Tékkland 117 Portúgal 112 Heildarfjöldi smita 43.141 Hafa náð bata 4.340 Fjöldi látinna 1.018 Hlutfall látinna af smituðum 2,4% FJÖLDI SMITA Kína 42.670 Önnur lönd 471 Hlutfall smita í Kína 99% Hong Kong 49 Singapúr 45 Taíland 32 Suður-Kórea 28 Japan 26 Malasía 18 Taívan 18 Veiran tekur völdin Síðustu daga ársins 2019 sá kínverskur læknir í Wuhan merki um nýja veiru. Til að byrja með virtist ætla að takast að takmarka útbreiðsluna við Kína og nágrannaríki. Sú von gufaði síðan upp. Veiran breiðist nú út heimsálfanna á milli. Baldur Arnarson baldura@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.