Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2020, Síða 11

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2020, Síða 11
Við höfum það bara býsna gott hérna íPeking, þakka þér fyrir. Kórónuveiraner að verða gengin yfir og lífið að kom- ast í eðlilegt horf á ný,“ segir Snorri Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjá Arla Foods í Kína. Hann segir hættuna að mestu liðna hjá en á miðvikudaginn, daginn áður en samtalið fór fram, greindust aðeins fimmtán ný smit í öllu landinu. Það er sáralítið hjá þjóð sem telur 1,4 milljarða manna. Flest ný smit virðast vera rakin til ferðafólks eða Kínverja sem hafa verið að koma heim frá útlöndum. „Stjórnvöld hér taka mjög fast á því og allir sem koma frá útlöndum fara í heima- sóttkví í fjórtán daga. Punktur, basta,“ segir Snorri og bætir við að heimasóttkví í Kína sé mun strangari en á Íslandi. Fólk megi ekki und- ir neinum kringumstæðum yfirgefa heimili sín og þurfi t.d. að panta öll matvæli og aðrar nauð- synjavörur. „Ég þekki fólk í þessari stöðu og mjög hart er á þessu tekið.“ Þess má geta að mat- vöruverslunum var aldrei lokað og enginn þurfti að líða skort, jafnvel þótt marg- ir kæmust ekki frá heimilum sínum vikum saman. Aldrei varð vöruskortur þegar um- fang smitsins var sem mest. Skólar eru ekki enn farnir að starfa með hefðbundnum hætti í Peking og mörg smærri fyrirtæki eru ennþá lokuð. Flest stærri fyrirtæki, ekki síst framleiðslufyrirtæki, hafa þó hafið starfsemi á ný, sérstaklega þau sem geta sýnt fram á að starfsfólk hafi ekki verið á ferð á helstu smithættusvæðum. Um eitt hundrað manns starfa hjá Arla foods og segir Snorri um helminginn snúinn aftur til vinnu frá og með þessari viku; fleiri bætast svo í hópinn í þeirri næstu. „Andrúmsloftið í borginni er allt annað en það var fyrir nokkrum vikum og almennt gott hljóð í fólki sem maður hittir. Það veit að það versta er yfirstaðið. Hér er því full- komin ró,“ segir Snorri. Ýtrustu varúðar er enn gætt. Skrifstofu- húsnæðið hjá Snorra er sótthreinsað þrisvar á dag og öll handföng og aðrir fletir sem fólk snertir reglulega sex til sjö sinnum. Eftirlit er mjög stíft og Snorri er hitamældur í hvert sinn sem hann fer úr húsi; bæði þegar hann yfirgefur heimili sitt á morgnana og eins þegar hann fer heim úr vinnunni. „Það er búið að hitamæla mig þrisvar í dag. „Skilaboðin eru skýr: Við tökum á þessu máli af fullri alvöru!“ Enginn fer á svig við reglur Snorri segir fólki vissulega hafa brugðið þegar veiran lét fyrst á sér kræla en það sé lán í óláni að hún stakk sér fyrst niður í Kína. „Kínverjar þekkja ekkert annað en að fara eftir fyrirmælum; hér fer ekki nokkur maður á svig við reglur. Það kemur sér vel við aðstæður sem þessar. Allir eru mjög með- vitaðir um hvað þarf að gera til að forðast smit og ég hef ekki fundið fyrir hræðslu eða óöryggi enda þótt fólk sé auðvitað á varðbergi.“ Skrifstofan hjá Arla Foods var lokuð í meira en fjörutíu daga og á meðan þurfti Snorri að vera heima. „Alvöru aðgerðir hófust upp úr 20. janúar og eftir þessa fjörutíu daga telja menn sig vera komna fyrir vind. Eins og þið hafið ef- laust heyrt í fréttum heima þá var víða komið upp bráðabirgðahúsnæði til að taka á móti veik- um og smituðum, þar sem ekki var nægilegt pláss á sjúkrahúsum, en búið er að loka því öllu núna. Auðvitað er ennþá fólk á spítala en þeir anna því öllu núna og ástandið er undir öruggri stjórn.“ Arla Foods er sölufyrirtæki sem flytur inn mjólkurafurðir frá Evrópu og margir starfs- menn gátu unnið að heiman frá sér meðan á sóttkvínni stóð. Fundir fóru svo bara fram á netinu. Eigi að síður horfir fyrirtækið upp á fjárhagslegt tjón enda hafa margir matsölu- staðir verið lokaðir undanfarnar vikur og Kín- verjar borða mjög mikið úti, enda er það ódýrt og einfalt. „Það er kona um þrítugt að vinna hjá mér og hún þurfti að læra að elda frá grunni í sóttkvínni. Hafði aldrei gert það áður,“ segir Snorri. „Það hefur orðið mikil breyting á neysluvenj- um fólks að undanförnu og mörg fyrirtæki orðið fyrir höggi. Ekki bara við. Það horfir til betri vegar núna og vonandi kemst allt í eðlilegt horf sem fyrst. Ætli við sjáum raunveruleg áhrif af þessu ástandi fyrr en í sumar en nú er ekki um annað að ræða en að bretta upp ermar og halda áfram. Menn eru þegar farnir að spá því að mik- ið verði að gera þegar allt kemst í samt lag aftur enda verði þörfin fyrir að fara út að borða upp- söfnuð. Ég finn það bara á sjálfum mér; mig er farið að dauðlanga í almennilegan kínverskan mat.“ Snorri býr ásamt eiginkonu sinni í Peking en hún er að vísu heima á Íslandi þessa dagana. Börn þeirra búa á Íslandi og í Danmörku. „Kon- an mín ætlaði að koma aftur hingað eftir um tvær vikur en mögulega seinkar hún því. Ekki nóg með að hún þyrfti að fara í heimasóttkví í fjórtán daga, nema að reglunum verði breytt í millitíðinni, heldur þyrfti ég að gera það líka. Eftir að hafa verið heima í meira en fjörutíu daga er svo sem lítið mál að bæta fjórtán við.“ Fumlaus vinnubrögð Hann segir Kínverja fylgjast vel með þróun mála í Evrópu og víðar og þegar fyrsta smitið greindist á Íslandi fékk hann strax skilaboð frá vinum sínum í Peking. Snorra þykir Kínverjum hafa tekist vel að eiga við kórónuveiruna. „Nú er ég auðvitað eng- inn sérfræðingur en sem leikmaður sé ég ekki annað en að þetta hafi gengið mjög vel. Það er stórmál að loka skólum, stofnunum og fyrir- tækjum vikum saman og þá ríður á að vinnu- brögðin séu fumlaus. Það hafa þau verið. Ég vona innilega að aðrar þjóðir læri af þessu. Bera þarf virðingu fyrir þessari veiru til að ná tökum á henni.“ Snorri Sigurðsson segir vinnubrögð Kínverja hafa verið fumlaus. SNORRI SIGURÐSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI Í PEKING Lán í óláni að farald- urinn byrjaði í Kína ’Andrúmsloftið í borg-inni er allt annað enþað var fyrir nokkrumvikum og almennt gott hljóð í fólki sem maður hittir. Það veit að það versta er yfirstaðið. 15.3. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11 Hildur Ásgeirsdóttir listakona, sem bú-sett er í borginni Cleveland í Ohio íBandaríkjunum, segir kórónuveiruna enn sem komið er hafa haft takmörkuð áhrif á daglegt líf borgarbúa en ákvörðun Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um ferðabann til Bandaríkjanna frá Evrópu hafi þó þegar snert hana og fjölskyldu hennar með beinum hætti. „Dóttir mín, sem verður sextán ára í næstu viku, átti að fara í skólaferðalag til Japans en því var aflýst vegna veirunnar. Í staðinn ákváðum við að heimsækja aðra dóttur mína, sem er við nám í Berlín, og kíkja aðeins heim til Íslands. Nú er sú ferð líka fyrir bí. Það eru mikil von- brigði fyrir dóttur mína enda var hún búin að hlakka mikið til beggja þessara ferðalaga,“ seg- ir Hildur. Búið er að loka skóla dóttur hennar í Cleve- land vegna veirunnar og verður lokað í þrjár vikur. Hópleikfiminni hætt í bili Hildur stundar hópleikfimi fimm sinnum í viku en frá og með síðasta miðvikudegi er búið að fella þá tíma niður um óákveðinn tíma af ótta við smithættu. Líkamsræktarstöðin er þó áfram opin fyrir þá sem æfa einir og sér. Hún segir um fátt annað rætt vestra en kór- ónuveiruna enda hafi margir verið búnir að gera ferðaplön. „Maður fer ekki neitt á næstunni; nema þá helst í bíltúr. Annars finn ég ekki fyrir mikilli hræðslu hérna, alla vega ekki ennþá enda eru smitin í borginni enn sem komið er mjög fá. Fólk tekur þessu með jafnaðargeði en er samt vart um sig og er til dæmis alveg hætt að faðmast og kyssast. Þannig að maður sér ekki annað en að farið sé eftir helstu tilmælum heilbrigðisyfirvalda.“ Hildur tekur þó fram að ef til vill sé hennar sjónarhorn ekki það besta en hún vinnur að list sinni heima. „Þeir sem eru á fjölmennum vinnu- stöðum sjá þetta ef til vill í öðru ljósi.“ Ringulreið í Berlín Eldri dóttir Hildar er í bandarískum háskóla í Berlín og verður í fjarnámi út önnina. Hildur segir mikla ringulreið og jafnvel hræðslu hafa gripið um sig þegar Trump tilkynnti ákvörðun sína um ferðabann frá Evrópu og foreldrar skólafélaga dóttur hennar hafi margir hverjir rokið upp til handa og fóta til að kaupa flugfar heim fyrir börnin sín meðan það var ennþá hægt. „Ég held að 60-70% nemenda séu á leið heim og dóttir mín hefur ekki haft undan að hjálpa vinum sín- um að pakka. Sjálf vill hún vera um kyrrt og hún ræður því. Það fer ágætlega um hana í Berlín. Krakkarnir sem fóru heim til Bandaríkj- anna koma til með að stunda fjarnámið héðan.“ Spurð hvað henni finnist um lokun landsins svarar Hildur: „Auðvitað þarf að gera eitthvað til að hægja á útbreiðslu veirunnar, um það get- um við öll verið sammála. Ég held þó að þessi lokun sé heldur mikið af því góða. Þegar Trump varð forseti var hann fljótur að leggja niður all- ar nefndir sem höfðu það hlutverk að bregðast við ástandi af þessu tagi í sparnaðarskyni og ég held að það sé að koma niður á honum núna. Úr því hann er að þessu, hefði hann ekki átt að gera það fyrr? Er þetta ekki of seint í rassinn gripið? Trump er ekki hátt skrifaður, hvorki hjá mér né fólkinu í kringum mig, og áhyggjuefni að hafa slíkt ólíkindatól á forsetastóli þegar þjóðin þarf á styrkri og öruggri leiðsögn að halda á erfiðum tímum,“ segir Hildur og bætir við að fjöl- miðlar vestra séu mjög á móti ákvörðuninni um ferðabannið frá Evrópu. „Ég hef sjaldan séð jafn harða gagnrýni á Trump og þá er nú mikið sagt.“ Hildur á ekki von á því að þurfa að fara í sóttkví í bráð. „Á móti kemur að maður sá ekki ástandið á Ítalíu fyrir. Veiran virðist vera bráð- smitandi og staðan er fljót að breytast. Það er engin leið að spá fyrir um framtíðina. Það er al- veg ljóst að margir til viðbótar eiga eftir að smitast af veirunni. Hér í Bandaríkjunum er ekki búið að prófa marga og manni skilst að búnaður til þess sé af skornum skammti. Að mínu viti er ekki um annað að ræða en að fylgj- ast vel með, vera skynsamur og halda áfram að lifa sínu lífi.“ Hildur hefur búið í Bandaríkjunum í 36 ár en er í góðu sambandi við vini og ættingja hér heima. Hún fylgist að vonum með þróun mála hér heima og vonast til að komast í heimsókn til Íslands í sumar, líkt og hún hafði ráðgert. Áhyggjur af foreldrunum „Það er óþægilegt að fylgjast með fréttum að heiman; smitum fjölgar dag frá degi og eru nú komin yfir eitt hundrað. Auðvitað hefur maður áhyggjur af foreldrum sínum og öðru eldra fólki sem má síst við því að fá veiruna. Samt hefur maður trú á því að hægt verði að halda þessu í skefjum; Ísland er lítið land og mjög auðvelt að koma skilaboðum til fólks. Þetta eru undarlegir tímar, ekki er hægt að segja annað, en öll von- um við það besta og það er mikilvægt að fara ekki á taugum.“ Hildur Ásgeirsdóttir hefur búið í Banda- ríkjunum í 36 ár. Morgunblaðið/Ásdís HILDUR ÁSGEIRSDÓTTIR, LISTAKONA Í BANDARÍKJUNUM Mikilvægt að fara ekki á taugum ’Fólk tekur þessumeð jafnaðargeði ener samt vart um sig oger til dæmis alveg hætt að faðmast og kyssast.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.