Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2020, Blaðsíða 18
Matthildur er nýflutt aftur til Íslands eftir aðhafa búið í Borås í Svíþjóð í átta ár. Hún ergift Inga Hrafni Guðmundssyni og eiga þau tvo drengi en fjölskyldan bjó í Svíþjóð á meðan heim- ilisfaðirinn var í sérnámi. „Ég var nýútskrifuð úr hagfræði frá Háskóla Íslands þegar við fluttum út en þar nýtti ég tímann og settist aft- ur á skólabekk og náði mér í meistaragráðu í textíl- stjórnun. Ég fékk fjölda spennandi tækifæra, svo sem að starfa hjá Didriksons, sem margir á Íslandi þekkja vel, og svo bauðst mér að gerast lærlingur (e.intern) hjá Gina Tricot – sem var algjörlega frábær upplifun enda búin að vera aðdáandi þess tískufyrirtækis frá því ég var ung- lingur. Í framhaldinu komst svo ekkert annað að en að reyna að koma þessu merki til Íslands og í fyrra stofnaði ég með vini mínum netverslunina noomi.is þar sem við seljum fatnað frá þessum sænska tískurisa,“ segir Matt- hildur. Hvernig myndir þú lýsa þínum stíl? „Það sem kannski hefur mest áhrif á mitt val mitt á fötum eru þægindin en svo er þetta háð skapi hverju sinni og tilefni auðvitað. Ég get kannski sagt að minn stíll sé afslappaður, stílhreinn og á sama tíma kvenlegur. Mér finnst svo líka gaman að blanda eldri flíkum með nýjum.“ Fyrir hverju fellur þú oftast? „Ég elska að kaupa yfirhafnir og á oftast auðvelt með að kaupa jakka, kápur og skó.“ Uppáhaldslitir? „Ætli svartur, hvítur og blár séu ekki litirnir sem ég klæðist oftast. Mér finnst reyndar mjög gaman að klæð- ast eftir árstíðum – eins og á haustin þá eru jarðarlitir mikið í uppháhaldi og á sumrin er ég hrifnari af meiri litadýrð.“ Hvernig föt finnst þér klæða þig best? „Föt sem mér líður vel í, það skilar sér alltaf í góðri út- komu. Svo reyni ég að velja föt sem mér finnst henta mínu vaxtarlagi.“ Hvernig klæðir þú þig dagsdaglega? „Það er mjög ein- falt. Ég elska flott- ar gallabuxur og stuttermabol eða peysu. Nokkuð viss um að langstærsti hlut- inn af gallabuxunum mín- um er frá Gina Tricot, enda eru það langbestu gallabux- urnar að mínu mati. Hvort sem ég vel jakka og strigaskó við eða fínni blaser og stígvél þá er það alltaf skothelt.“ En þegar eitthvað mikið stendur til? „Það er misjafnt, veltur al- gjörlega á stað og stund. En ég er þá oftast í klassísku og ein- földu eða algjörlega á hinum endanum, þá í litum og leyfi mér meiri glamúr.“ Hvað myndir þú taka með þér á eyðieyju? „Sólarvörn, bát og símann minn.“ Hvað myndir þú áætla að þú eyddir miklum peningum í föt á mánuði? „Ótrúlega erfitt að segja, en síðustu ár hefur eyðslan minnk- að umtalsvert þar sem ég er meðvit- Matthildur segir að kaupahegðun sín hafi breyst með árunum. Matthildi dreymir um vel skipulagðan fataskáp. Myndi aldrei fara í smekkbuxur og magabol Matthildur myndi ekki láta sjá sig í smekk- buxum eða magabol. Matthildur Ívarsdóttir, eigandi noomi.is, segir að kauphegðun hennar hafi breyst mikið. Þegar hún var unglingur átti hún það til að kaupa flík- ur sem aldrei voru notaðar en nú er það ekki þannig. Fatastíllinn hennar er frísklegur og heillandi. Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.3. 2020 LÍFSSTÍLL Heyrðu umskiptin Fáðu heyrnartæki til reynslu ReSound LiNX Quattro eru framúrskarandi heyrnartæki Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Fagleg þjónusta hjá löggiltum heyrnarfræðingi Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna. Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru sérlega sparneytin. Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum. Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.