Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2020, Qupperneq 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2020, Qupperneq 19
Hvað gerir þú við föt sem þú ert hætt að nota? „Mér finnst skipta miklu máli að nýta sem mest og henda sem minnst. Ég er dugleg við að gefa frá mér það sem ég nýti ekki sjálf og finnst fullkomið fyrirkomulag ef einhver annar getur nýtt. Ég er líka hrifin af lausnum eins og Extraloppunni og Trendporti. Mér finnst al- gjörlega frábært að sjá hversu margir eru nýta sér svo- leiðis í staðinn fyrir að kaupa allt nýtt.“ Verðurðu mikið leið á fötunum þínum eða áttu sömu fötin ár eftir ár? „Neyslumynstrið mitt hefur breyst mikið undanfarin ár og ég reyni að kaupa frekar fatnað sem ég veit að ég get notað meira. Ég reyni líka að haga kaupunum þannig að ég velji föt sem ólíklegt er að ég fái leið á, þ.e. meira af klassískum fötum og kannski þá minna í tískustraumum líðandi stundar. Mér finnst samt alveg gaman að hrista aðeins upp í skápnum með því að grípa það sem er í tísku við og við og mixa þá saman við eldri flíkur.“ Matthildur Ívarsdóttir er með frísklegan og heillandi fatastíl. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon aðari um í hvað ég er að eyða. Þegar ég var yngri eyddi ég oft peningum í föt sem svo voru bara aldrei notuð. Núna er ég mun meðvitaðri neytandi og hef fyrir reglu að spyrja mig hvort ég muni raunverulega nota flíkina og það hefur virkað vel fyrir mig. En ef ég verð að skjóta á eitthvað væri það kannski í kringum 20.000 krónur á mánuði, án þess að vera alveg sannfærð um sannleiksgildið.“ Hver er dýrasta flíkin í fataskápnum? „Ég er ekki mikið fyrir að kaupa dýrar flíkur, er meira í að velja mér flíkur sem ég finn að eru úr góðum efnum og endast vel. Þær eru ekki endilega alltaf dýrastar. Ég er búin að búa erlendis síðustu árin og verðið er aðeins öðruvísi þar en hérna heima svo ég get ekki dregið fram neina sjokkerandi verðmiða hérna. En ætli Filippa K ull- arkápan mín sé ekki bara dýrasta flíkin i skápnum sem stendur.“ Hvað dreymir þig um að eignast? „Mig dreymir einna helst um almennilegan og vel skipulagðan fataskáp, þá væri ég vel sett.“ Í hvað myndir þú aldrei fara? „Smekkbuxur og magabol.“ Hver er best klædda kona veraldar að þínu mati? „Ég er ekki með einhverja eina sem ég get sagt að mér finnist best klædd. Sjálf sæki ég mér innblástur í svo ólíkar konur. Þetta geta verið konur sem ég þekki eða jafnvel bara bláókunnugar konur úti á götu.“ Matthildur sækir sér inn- blástur til ólíkra kvenna. Matthildur vil nýta sem mest og henda sem minnstu þegar kemur að fatnaði. 15.3. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 ICQC 2020-2022 • Þreyta og þróttleysi geta verið merki um að mikið álag sé á lifrinni. • Lifrin er allt í senn; vinnslustöð, geymsla og dreifingarmiðstöð því allt sem við látum í okkur eða á, fer í vinnsluferli í lifrinni. • Lifrin sinner yfir 100 mismunandi störfum í líkamanum og tengist hún beint eða óbeint allri líkamsstarfseminni. • Active Liver inniheldur kólín sem stuðlar að viðhaldi eðlilegrar starfsemi lifrar og eðlilegum efnaskiptum. Auk þess inniheldur það ekstrakt frá mjólkurþistil, túrmerik, þistilhjörtum og svörtum pipar. Fæst í apótekum, heilsubúðum og stórmörkuðum. Léttu lifrinni lífið

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.