Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2020, Síða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2020, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.3. 2020 LÍFSSTÍLL www.flugger.is Mött Gæðamálning í öllum litum Auðvelt að þrífa Í bókinni Kurteisi eftir Rann-veigu Schmidt, sem kom út fyr-ir tæplega áttatíu árum, segir að kurteisi eigi að byrja heima. Hún segir grundvöllinn að kurteisi vera óeigingirni og á þar við tillitssemi. Þeir sem hafi vanist á að sýna sínum nánustu kurteisi, segir hún, eiga auðvelt með að umgangast hvern sem er, hvar í heiminum sem er. Það getur verið hvimleitt að heyra þegar fólk dregur matinn af gafflinum með því að draga hann úr munninum eftir framtönnunum. Það sem við köllum í daglegu tali að bíta í gaffalinn. Hljóðið sem mynd- ast við þetta fer í fínustu taugar margra og angrar aðra. Hafa ber í huga að það gæti verið að þeir sem bíta í gaffalinn hafi ekki hugmynd um það. Það er ekki gott að ræða bit í gaffla eða annað sem betur má fara meðan á veislu stendur eða á öðrum mannamótum. Slíkar ábendingar við okkar nánustu fara fram í ein- rúmi, þegar vel stendur á. Auk þess að nefna að bíta ekki í gaffalinn þarf að tala um andremmu, svita- lykt, sötur, smjatt og ropa í ein- rúmi. Vinur er sá er til vamms segir. Bitið í gaffalinn Hvað skal gera? Albert Eiríksson albert.eiriksson@gmail.com Unsplash Öll viljum við börnum okkar það besta.Hvítvoðungar fæðast inn í þennanheim og eiga allt undir að við sem for- eldrar og forráðamenn hlúum vel að þeim. Okk- ar er ábyrgðin á að vel takist til, þó geta aðrir eins og ömmur og afar auðveldlega verið í lyk- ilhlutverki til aðstoðar og leiðsagnar. Tengslamyndun milli barns og foreldra er gíf- urlega mikilvæg fyrstu mánuðina í lífi barns. Tengslamyndunin sem þróast áfram, byggist m.a. á þremur þáttum. Sá mikilvægasti er talin snerting við barnið, að látið sé vel að því t.d. við mjólkurgjafir og umönnun. Að þörfum barnsins sé svarað og barnið læri að treysta foreldrum. Þá þannig að það finni sig öruggt í umhverfinu. Síðan að notuð sé röddin, að talað sé blíðlega til barnsins og að barninu sé svarað þegar það gef- ur frá sér óánægjuhljóð eða önnur. Að endingu að unnið sé með augnsamband milli barns og foreldra, nota bros og hlátur og barnið læri að skynja andlitsviðbrögð foreldra og rödd. Ef illa tekst til við myndun geðtengsla í frumbernsku eru líkur á að börnin sitji eftir hvað varðar sjálfs- mynd og félagslega færni síðar á lífsleiðinni. Að sögn fræðimannanna Esther Thelen og Karen Adolph gerist ekkert af sjálfu sér í þróun og þroska barns og líklega eru tvö fyrstu árin mikilvægustu ár barnsins. Virkni foreldra verð- ur að vera til staðar þar sem börn eru háð því umhverfi sem þau fæðast eða lenda í. Tölum mikið við börnin okkar og við megum ekki gleyma strákunum, rannsóknir benda til þess að við tölum meira við stúlkur frá fæðingu. Já- kvætt, örvandi og ögrandi umhverfi gæti verið forsenda þess að börn fái góðan stökkpall út í líf- ið, sem sagt að góður grunnur sé lagður. Svefn- inn og hvíldin eru barninu ekki síður nauðsynleg og rólegt umhverfi og nærgætni í samskiptum þarf ekki síður að vera til staðar. Þó má spyrja sig hvort aukin örvun og vinna með ungbörnum (0-2 ára) hafi enn jákvæðari áhrif á þroska barns? „Snemmtæk íhlutun í þroska.“ Þar væri hægt að vinna markvisst með örvun skynfæra eins og jafnvægis, vinna með eftirtekt og athygli, samhæfingu augna og handa, vinna með styrk, nota heyrnina, hljóðfall, söng og tjáningu og að skemmta sér. Slíka þjálfun mætti framkvæma á hinum ýmsu stöðum m.a. heima og í skipulögðu starfi í sal eða t.d. „ungbarnasundi“ í sundlaug. Colwyn Trevarthen, prófessor í barnasálfræði við Há- skólann í Edinborg, segir að börn hafi frum- kvæði af samskiptum og þegar ung börn eru að hjala eða „babbla“ þá eiga foreldrar og forráða- menn að svara þeim. Hann segir einnig að þegar unnið er með börnum þá eigi börnum að finnast gaman. Þótt ungbörn leiki sér ekki saman þá líki þeim vel að vera í hópi með jafnöldrum. Þessi vitneskja krefur foreldra um að vera virk í um- hverfi barnsins, jafnvel þannig að börn hitti önn- ur börn og hópa. Það er áhugavert að sjá hvað þeim finnst gam- an að vera í umhverfi með öðrum ungbörnum, það er ljóst að þau eru að upplifa og læra hvert af öðru. Er íslenskt umhverfi barnvæmt sam- félag? Núverandi breytingar á fæðingarorlofi á Íslandi eru þróun í rétta átt. Frá því að vera 9 mánuðir 2019 upp í að verða 12 mánuðir 2022. Nú er vitað að ef vel gengur hjá barni og ný- orðnu foreldrunum við umönnun barnsins þá fylgir það barninu áfram inn í framtíðina. Við verðum að hlúa að fjölskyldunni, setja velferð barnsins í forgang en ekki eingöngu kröfur vinnumarkaðarins. Eitt af forgangsmálum sam- félagsins ætti að vera stytting vinnuvikunar í 37/ 37,5 tíma á viku eins og á hinum löndunum á Norðurlöndunum. Verið hjartanlega velkomin á hádegisfyrir- lestur, „Vara fyrstu árin að eilífu?“, í Háskól- anum í Reykjavík 20. mars kl. 12.05-13.00 í stofu M104 um þessi mikilvægu málefni. Hlúum að börnum okkar. Hlúum að börnunum okkar! Vísindi og samfélag Hermundur Sigmundsson hermundurs@ru.is Snorri Magnússon Snorri Magnússon hefur um árabil unnið með börnum og foreldrum í ungbarnasundi. Morgunblaðið/Þorkell ’ Við verðum að hlúa að fjöl-skyldunni, setja velferðbarnsins í forgang en ekki ein-göngu kröfur vinnumarkaðarins. Hermundur Sigmundsson er prófessor við Norska tækni – og vísindaháskólann og Háskólann í Reykjavík. Snorri Magnússon er þroskaþjálfi og íþróttakennari.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.