Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2020, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.3. 2020
LESBÓK
GEÐSJÚKDÓMAR Bandaríska leikkonan Alison Brie
segir að nýjasta kvikmynd hennar, Horse Girl, hafi í
senn opnað fyrir umræður um geðsjúkdóma út á við og
inn á við, en þar leikur hún konu sem glímir við andleg
veikindi. Í samtali við breska blaðið The Guardian upp-
lýsir Brie að viðbrögð móður hennar hafi verið einlæg-
ust en amma Brie þjáðist af geðklofa og bjó um tíma á
götunni. „Ég hugsa stundum með mér, hún gekk gegn-
um ótrúlegustu hluti en varð eigi að síður frábær móðir
sjálf,“ segir Brie um móður sína, en Horse Girl byggir
lauslega á reynslu ömmu hennar. Frásögnin hverfist þó
öðru fremur um spurningu sem brunnið hefur á Brie:
Hvað ef ég fer að hegða mér undarlega og myndi ég átta
mig á því hvort geðklofi væri að ná tökum á mér?
Amma bjó á götunni
Alison Brie
leikur í
Horse Girl.
AFP
MINNI Bruce Dickinson, söngvari Iron Mai-
den, er enn á þeysireið með spjallsýningu
sína um heiminn, en hann áði sem kunnugt er
í Hörpu fyrir rúmu ári. Í Hamborg á dög-
unum var hann spurður hvort hann notaðist
einhvern tíma við textavél á sviði. Okkar
maður hélt nú ekki og skaut um leið á Rob
aldavin sinn Halford úr Judas Priest. „Hvers
vegna þurfa menn textavél?“ spurði Dickin-
son og þóttist syngja eftir skjá: „Breaking the
law, breaking the law, breaking the law,
breaking the law, breaking the law, breaking
the law, breaking the law. Breaking the
what? Breaking the law. Breaking the law.“
„Fyrirgefðu, lagsi, breaking the what?“
Dickinson uppskar mikinn hlátur í Hamborg.
AFP
Ronnie James Dio féll frá árið 2010.
Líf eftir dauðann
LÍF Gamla málmbrýnið Ronnie
James Dio heldur áfram að túra
eins og enginn sé morgundagurinn,
út koma plötur með honum, Dio-
bolir og aðrir minjagripir seljast
eins og heitar lummur og langþráð
ævisaga hans eftir málmvísinda-
manninn Mick Wall er væntanleg á
næsta ári. Þetta væri svo sem ekki í
frásögur færandi nema fyrir þær
sakir að Dio lést fyrir tíu árum. Það
er ekkja hans, Wendy Dio, sem hef-
ur haldið merki bónda síns á lofti
með þessum tilþrifum; ekki síst
gegnum heilmyndatónleika sem þó
hafa verið umdeildir. Þar syngur
Dio við undirleik sprelllifandi hljóð-
færaleikara. „Það er hlutverk mitt í
lífinu að halda arfleifð hans á lofti,“
sagði Wendy við Subculture En-
tertainment í Ástralíu.
Sephy og Callum eru ung ogástfangin í Lundúnum sam-tímans. Synd væri þó að segja
að framtíðin blasti við þeim enda lít-
ur samfélagið sem þau búa í sam-
band þeirra hornauga fyrir þær sak-
ir að Sephy tilheyrir hinni ráðandi
svörtu stétt, „crosses“, en Callum er
fábrotinn „nought“, það er hvítur
undirmálsmaður, en móðir hans
dregur fram lífið sem húshjálp á
heimili Sephy.
Fjölskylda Sephy berst á en faðir
hennar er mikilsmetinn og valda-
mikill stjórnmálamaður með rætur í
Afríku (heitir raunar Apríka í þátt-
unum) sem drottnað hefur yfir Evr-
ópu í sjö aldir eftir að hafa nýlendu-
vætt álfuna. Honum er að vonum
lítið um það gefið að dóttir hans sé
að viðra sig upp við blásnauðan og
duglausan kotbóndason sem til-
heyrir örugglega einhverju ofbeldis-
hneigðu hvítu gengi sem þráir ekk-
ert heitar en að ganga mill bols og
höfuðs á svörtu yfirstéttinni.
Þrátt fyrir að hafa tóma hunda á
hendi er Callum staðráðinn í að láta
Fólki á að líða
illa meðan
það horfir
Kynþáttafordómar eru viðfangsefnið í nýjum
þáttum, Noughts + Crosses, sem breska ríkissjón-
varpið, BBC, frumsýndi á dögunum. Þar er þó
öllu snúið á hvolf, svartir drottna yfir hvítum.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Malorie Blackman, höfundur bókaflokksins Noughts + Crosses.
AFP
Jack Rowan er 23 ára gamall
Breti sem hingað til hefur ver-
ið þekktastur fyrir leik sinn í
hinum vinsælu sjónvarpsþátt-
um Peaky Blinders, þar sem
hann fer með hlutverk Bonnie
Gold. Þá var hann í smáserí-
unni Born to Kill árið 2017.
Rowan var áhugahnefaleikari
áður en hann sneri sér að leiklistinni; vann 18 bardaga af 27.
Masali Baduza er einnig ung að árum. Hún er frá Suður-Afríku og
nam leiklist en hefur mest leikið á sviði til þessa. Segja má að
Noughts + Crosses sé hennar fyrsta stóra tækifæri í sjónvarpi. Á
síðasta ári var Baduza á lista Royal Television Society yfir rísandi
stjörnur og fólk var hvatt til að fylgjast grannt með henni í ár.
Af öðrum leikendum í þáttunum má nefna Paterson Joseph og
Bonnie Mbuli, sem leika foreldra Sephy, og Helen Baxendale og Ian
Hart, sem leika foreldra Callums. Josh Dylan og Kiké Brimah koma
einnig fram í Noughts + Crosses.
Nýstirni í sjónvarpi
Kynningar-
plaggat
þáttanna.
á heimasíðu Hreyfils:
hreyfill.is
eða í App Store
og Google Play
SÆKTU APPIÐ
Sæktu appið frítt á AppStore
eða Google Play
Hreyfils appið
Pantaðu leigubíl á einfaldan
og þægilegan hátt
Þú pantar bíl1
3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn.
2 fylgist með bílnum í appinu