Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2020, Page 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2020, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.3. 2020 08.00 Strumparnir 08.20 Dóra og vinir 08.45 Stóri og Litli 08.55 Mæja býfluga 09.05 Zigby 09.20 Blíða og Blær 09.40 Mia og ég 10.05 Lína langsokkur 10.30 Lukku láki 10.55 Það er leikur að elda 11.10 Ævintýri Tinna 11.35 Friends 12.00 Nágrannar 12.20 Nágrannar 12.40 Nágrannar 13.05 Nágrannar 13.25 Nágrannar 13.50 American Woman 14.10 Jamie & Jimmy’s Food Fight Club 15.00 The Great British Bake Off 16.00 Steinda Con: Heimsins furðulegustu hátíðir 16.25 Heimsókn 16.55 60 Minutes 17.40 Víglínan 18.25 Veður 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.50 Sportpakkinn 19.05 Nostalgía 19.25 McMillions 20.20 Deadwater Fell 21.10 The Sinner 22.00 Homeland 22.45 Manifest 23.30 The Outsider ÚTVARP OG SJÓNVARP Sjónvarp Símans RÚV Rás 1 92,4  93,5 Omega N4 Stöð 2 Hringbraut 20.00 Mirgorod – Í leit að vatnssopa 21.00 Eitt og annað frá Seyð- isfirði 21.30 Tónlistaratriði úr Föstu- dagsþættinum Endurt. allan sólarhr. 17.00 Times Square Church 18.00 Tónlist 18.30 Ísrael í dag 19.30 Jesús Kristur er svarið 20.00 Omega 21.00 Tónlist 20.00 Mannamál (e) 20.30 Suðurnesja-magasín Víkurfrétta (e) 21.00 Söfnin á Íslandi (e) 21.30 Eldhugar: Sería 3 (e) Endurt. allan sólarhr. 11.30 Dr. Phil 12.15 The Late Late Show with James Corden 13.00 Everybody Loves Ray- mond 13.25 The King of Queens 13.45 How I Met Your Mother 14.10 The Bachelor 15.35 The Bachelor 17.00 The King of Queens 17.20 How I Met Your Mother 17.45 The Kids Are Alright 18.10 Með Loga 19.05 Pabbi skoðar heiminn 19.40 This Is Us 20.30 Venjulegt fólk 21.05 Law and Order: Special Victims Unit 21.55 Wisting 22.40 Ray Donovan 23.35 The Walking Dead 00.30 The Handmaid’s Tale 06.55 Bæn og orð dagsins. 07.00 Fréttir. 07.03 Tríó. 08.00 Morgunfréttir. 08.05 Á tónsviðinu. 09.00 Fréttir. 09.03 Samtal. 10.00 Fréttir. 10.05 Veðurfregnir. 10.15 Bók vikunnar. 11.00 Guðsþjónusta í Reyni- vallakirkju. 12.00 Hádegisútvarp. 12.20 Hádegisfréttir. 12.40 Veðurfregnir. 13.00 Sögur af landi. 14.00 Víðsjá. 15.00 Glans. 16.00 Síðdegisfréttir. 16.05 Úr tónlistarlífinu: Strok- kvartettinn Siggi. 17.25 Orð af orði. 18.00 Kvöldfréttir. 18.10 Minningargreinar. 18.50 Veðurfregnir. 18.53 Dánarfregnir. 19.00 Óskastundin. 19.40 Orð um bækur. 20.35 Gestaboð. 21.30 Fólk og fræði. 22.00 Fréttir. 22.05 Veðurfregnir. 22.10 Á reki með KK. 23.10 Frjálsar hendur. 24.00 Fréttir. 00.05 Næturútvarp Rásar 1. 07.15 KrakkaRÚV 07.16 Begga og Fress 07.29 Lalli 07.36 Tulipop 07.40 Molang 07.43 Klingjur 07.54 Minnsti maður í heimi 07.55 Hæ Sámur 08.02 Hrúturinn Hreinn 08.09 Bréfabær 08.20 Letibjörn og læmingj- arnir 08.27 Stuðboltarnir 08.38 Konráð og Baldur 08.49 Nellý og Nóra 08.56 Húrra fyrir Kela 09.19 Ronja ræningjadóttir 09.45 Krakkafréttir vikunnar 10.05 Lestarklefinn 11.00 Silfrið 12.10 Menningin – samatekt 12.50 Bikarkeppnin í blaki 15.05 Bikarkeppnin í blaki 17.30 Íþróttaafrek 17.40 Íþróttaafrek 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 KrakkaRÚV 18.01 Stundin okkar 18.25 Lífsins lystisemdir 19.00 Fréttir 19.30 Veður 19.40 Íþróttir á sunnudegi 20.00 Landinn 20.30 Hljómskálinn 21.05 Ísalög 21.50 Pólskir dagar – Þrír litir: Blár 23.30 Poirot 13 til 16 Pétur Guðjóns Góð tónlist og létt spjall á sunnudegi. 16 til 18 Tónlistinn Topp40 með DJ Dóru Júlíu Einn vinsælasti plötusnúður landsins kynnir vinsæl- ustu lög landsins á K100. Tónlistinn er eini opinberi vinsældalisti landsins, unninn upp úr gögnum frá Fé- lagi hljómplötuframleiðanda. 18 til 00 K100 tónlist Besta blandan af tónlist á K100 í allt kvöld. Mark Wahlberg er númer eitt á listanum í leikaravali til að skella sér í hlutverk Duke í G.I. Joe, með hlut- verkið fór Channing Tatum í fyrri myndinni. G.I. Joe hefur verið gerð tvisvar sinnum áður. Mark Wahlberg sem Duke í G.I. Joe New York. AFP. | Áratugum saman var Harvey Weinstein ósnertan- legur, ofurframleiðandi sem drottn- aði yfir Hollywood og leikkonan Me- ryl Streep kallaði „Guð“ svo frægt varð. Á miðvikudag var hann dæmd- ur í 23 ára fangelsi og blasti við hon- um að hann myndi verja því sem eft- ir er ævi sinnar í fangelsi. Weinstein var dæmdur fyrir dóm- stóli í New York fyrir nauðgun og kynferðislegt ofbeldi. Dómurinn féll næstum þremur árum eftir að ásak- anir á hendur honum komu fram og urðu kveikjan að #églíka-hreyfing- unni, sem varð til þess að hann var útskúfaður og batt enda á feril hans. Ásakanir hátt í 90 kvenna Hátt í 90 konur hafa komið fram og sakað Weinstein um kynferðislegt áreiti og ofbeldi á 40 ára tímabili, þeirra á meðal Angelina Jolie og Salma Hayek. Ásakanirnar komu fyrst fram í The New York Times og New Yorker í október 2017. Í kjölfarið komu þúsundir kvenna fram, greindu frá reynslu sinni undir myllumerkinu #metoo og veltu fjölda valdamikilla manna úr sessi. Weinstein var eitt sinn áberandi á kvikmyndahátíðum, allt frá Cannes til Sundance. Hann lét fé af hendi rakna til Demókrataflokksins og var í félagsskap við Hillary Clinton. Nú var hann rekinn úr kvikmyndaaka- demíunni sem veitir Óskarsverð- launin og hvarf af sjónarsviðinu, fyr- ir utan fréttir af meðferð hans vegna kynlífsfíknar, nafn hans baneitrað og orðsporið í tætlum. 25. maí 2018 var hann ákærður fyrir nauðgun og kynferðisbrot. Myndum af honum í járnum var varpað um allan heim. Weinstein hélt því fram að ávallt hefði verið um að ræða kynlíf með samþykki, en dómstóllinn tók það ekki til greina. Hann var dæmdur fyrir að hafa þvingað Mimi Haleyi, fyrrverandi aðstoðarmann við kvik- myndaframleiðslu 2006, til munn- maka og nauðgað Jessicu Mann, fyrrverandi leikkonu, árið 2013. Hann var fundinn sekur fyrir nauðgun og kynferðisbrot 24. febr- úar, en sýknaður af alvarlegasta kæruliðnum, kynferðisárás. Weinstein er nú í hjólastól eftir hjartaaðgerð og hefur lagt verulega af frá sínum mektardögum. „Ég er fullkomlega ráðvilltur,“ sagði hann þegar dómurinn féll og gaf til kynna að hann væri fórn- arlambið í málinu. „Ég var fyrsta dæmið og nú sitja þúsundir manna undir ásökunum. Ég hef áhyggjur af þessu landi.“ Hann sagði einnig við dómarann að kannski fengi hann aldrei að sjá börnin sín aftur. 81 Óskarsverðlaun Weinstein fæddist í Queens í New York 19. mars árið 1952. Faðir hans var demantaskeri. Weinstein gekk í háskólann í Buffalo í New York-ríki. Í upphafi sá hann um að setja á svið rokktónleika og fór svo í kvikmynda- bransann ásamt bróður sínum, Bob. Saman stofnuðu þeir árið 1979 Mira- max Films, lítið dreifingarfyrirtæki, sem kennt var við foreldra þeirra, Miriam og Max. Meðal mynda á þeirra vegum sem slógu í gegn var Shakespeare ást- fanginn, sem hlaut Óskarsverðlaun sem besta myndin árið 1998. Disney keypti fyrirtækið árið 1993 og 2005 héldu bræðurnir sína leið og stofn- uðu fyrirtæki undir eigin nafni, Weinstein Company. Í áranna rás hafa myndir undir merkjum þeirra verið tilnefndar til 300 Óskarsverðlauna og hreppt 81 styttu. Meðal þeirra má nefna Lista- manninn, Ræðu konungs og Járn- frúna. Fyrir hana fékk Streep Óskar fyrir bestan leik í aðalhlutverki fyrir túlkun sína á Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bret- lands. Eignir Weinsteins voru metnar á 150 milljónir dollara á sínum tíma, en hratt hefur gengið á auðinn. Skæðadrífa lögsókna vegna kynferð- isbrota varð til þess að fyrirtækið Weinstein var lýst gjaldþrota í mars 2018. Í desember í fyrra gerði Wein- stein samkomulag við rúmlega 30 leikkonur og fyrrverandi starfs- menn, sem fóru í mál, upp á greiðslu 25 milljóna dollara. Að sögn saksóknara hefur Wein- stein selt fimm eignir samanlagt að andvirði 60 milljóna dollara til að greiða lögfræðingum og til fram- færslu tveggja fyrrverandi eigin- kvenna sinna. Hann mun sennilega sitja í fang- elsi í New York-ríki, en bandarískir dómstólar hafa ekki sagt sitt síðasta. Í Los Angeles bíður annað mál á hendur honum meðferðar. Harvey Weinstein kemur til réttarins í New York í febrúar. AFP HÁTT FALL HARVEYS WEINSTEINS Dæmdur í 23 ára fangelsi Á VAKTINNI Í SUMAR? LEITUM AÐ TOPPFÓLKI Í SUMARSTÖRF Sæktu um á www.securitas.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.