Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2020, Side 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2020, Side 32
SUNNUDAGUR 15. MARS 2020 york ligne classico magnifique FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 SERTA ER OPINBER SAMSTARFSAÐILI HILTON WORLDWIDE HÓTELKEÐJUNNAR Nótt fyrir tvo á Hilton Reykjavik Nordica, ásamt morgunverði og aðgangi að Hilton Reykjavik Spa, fylgir kaupum á Serta fimm stjörnu hótelrúmi. Verðmæti: 36.000 kr. Kynningarverð: 296.650 kr Verð frá: Classico 160 x 200 cm (botn, fætur, dýna, yfirdýna og gafl) Fullt verð: 349.000 kr. (með Hilton Reykjavik Nordica kaupauka 385.000 kr.) 5STJÖRNUHÓTELRÚMIN frá Serta eru framleidd til að fullnægja ýtrustu kröfum. Fjaðrandi botn gefur 5 svæða heilsudýnunni óviðjafnanlega fjöðrun og stuðning, lúxus yfirdýnan lagast að þér og þér líður eins og þú svífir. Velkomin í þitt 5 stjörnu heilsurúm, heima hjá þér – allar nætur – alltaf. CLASSICO, YORK OG LIGNE eru með Serta Splendid Royal heilsudýnu frá Serta. Hún er fimm svæðaskipt pokagormadýna með góðum stuðningi við bak en mýkra gormakerfi á axla- og mjaðmasvæði. Hægt er að velja um tvo stífleika á dýnunni eftir því hvað hentar hverjum og einum. Yfirdýnan er millistíf, úr kaldpressuðum svampi og vinnur vel á móti fjöðruninni í botni og dýnu. MAGNIFIQUE rúmið er með Serta Royalty Superior heilsudýnu sem sker sig frá Splendid Royal m.a. með því að vera með tvískiptu gormakerfi og aukinni kantstyrkingu. Áklæðið á rúmunum er slitsterkt bómullaráklæði, ofnæmisfrítt og andar einstaklega vel. Það er fáanlegt í nokkrum litum sem eru mismunandi eftir rúmgerðum. Hægt er að velja mismunandi fætur og einnig eru fáanleg náttborð í stíl. FIMM STJÖRNU LÚXUS HÓTELRÚM – HEIM TIL ÞÍN – Fimm stjörnu Hótel -rúmalínan frá Serta er nú á kynningarverði í Betra Baki auk þess að nótt á Reykjavik Nordica ásamt morgunverði fyrir tvo og aðgangi að Hilton Reykjavik Spa fylgir kaupum á Serta fimm stjörnu hótelrúmi. TIL BO ÐI NU LÝ KU R LA UG AR DA GI NN 14. MA RS Verkið Örlagaþræðir er samrunaverk þar sem söngur og dans renna saman í túlkun á ljóðum Mariu Stuart og Mathilde Wes- endonck. Robert Schumann samdi tónlistina við ljóð Mariu en Richard Wagner við ljóð Mathilde. Ljóðin verða túlkuð af Auði Gunnarsdóttur sópransöngkonu og Láru Stefánsdóttur dansara í Kaldalóni á þriðjudag. Á flygilinn leikur Snorri Sigfús Birg- isson og um leikmynd og búninga sér Ásta Guðmundsdóttir. „Umfjöllunarefni kvennanna eru ólík og lifðu þær á ólíkum tímum en þó er eitthvað sem þær eiga sameiginlegt,“ segir í kynningu. „Báðar voru þær fullar af ástríðu og þrótti en örlaga- nornirnar spunnu þeim ólík örlög. Hvorug náði að lifa í frelsi, báðar voru leiksoppar örlaganna. Maria var tekin af lífi eftir valdatafl og pólitískar tilfæringar og Mathilde varð að beygja sig undir væntingar samfélagsins og neita sér um eldheita ást Wagners.“ Lára Stefánsdóttir, dans- ari og danshöfundur. Morgunblaðið/Golli Örlagaþráður spunninn Auður Gunnarsdóttir sópransöngkona. Morgunblaðið/Kristinn Verkið Örlagaþræðir verður flutt í Kalda- lóni í Hörpu á þriðjudagskvöldið kl. 20. Um miðjan mars 1940 gerði Morgunblaðið í ítarlegu máli grein fyrir breytingum á reglum um knattspyrnumót. „Skifting í sveitir (Meistarafl. 1. fl. o.s.frv.) fer þannig fram. Kepni aldursflokksins hefst með leikjum milli sterkustu sveita fje- laganna og þegar þær hafa leikið 2 leiki, getur hafist kepni hjá næststerkustu sveitum þessa sama aldursfl. Hafi maður leikið með sterkustu sveit fleiri en 1 leik í sama móti (tvöföld umferð reiknast hjer sem 2 mót), má hann ekki leika með veikari sveit það mót. Leikmaður er ekki talinn hafa „leikið leik“, í þessu sambandi, þó hann komi inn í seinni hálf- leik. Ath. Hjer er einnig athug- andi hvort rjett er að miða „úti- lokunina“ við mót, heldur e.t.v. alt sumarið, og þá gefa und- antekningar frá aðalreglunni, eftir nánari kringumstæðum. Taka t. d. tillit til leikafjölda sveitanna yfir allt sumarið. Leyfa t.d. manni, sem ekki hefir tekið þátt í 3 leikjum sterkari sveitar í röð (vegna vangetu hans sjálfs t.d.) að leika með veikari sveit. Ósanngjarnt væri að útiloka mann alt sumarið frá kepni, vegna þess, að hann reynist ekki nógu góður, þegar til kemur, í sterkustu sveit, en hefir þó t.d. leikið þar 2 leiki.“ GAMLA FRÉTTIN Vangeta útiloki ekki Frá kappleik tveggja sveita á gamla góða Melavellinum um miðja síðustu öld. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon ÞRÍFARAR VIKUNNAR Silja Dögg Gunnarsdóttir alþingismaður Tina Fey leikkona María Skúladóttir verkefnastjóri hjá Deloitte

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.