Morgunblaðið - 07.04.2020, Side 4

Morgunblaðið - 07.04.2020, Side 4
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Þ egar blaðamaður nær tali af Andreu Elínu Atladóttur, fjármálastjóra Vinnslu- stöðvarinnar, er mannlífið í Vestmannaeyjum hér um bil lagst í nokkurs konar vetrardvala enda tæplega 600 af 4.000 íbúum bæjar- félagsins í sóttkví. „Fyrirtækið hef- ur sloppið furðuvel, miðað við þessar tölur, og af 300 starfsmönnum eru aðeins sjö í sóttkví og tveir sem hafa greinst með kórónuveirusmit. Við höfum því ekki átt í miklum vanda með að halda rekstrinum gangandi, þótt starfsemin gangi hægar fyrir sig en venjulega,“ segir Andrea en snemma var gripið til nauðsynlegra ráðstafana hjá fyrirtækinu, í sam- ráði við sóttvarnalækni Suðurlands, og vinnunni núna hagað með þeim hætti að smithættu er haldið í lág- marki. Fram undan eru krefjandi tímar fyrir íslenskan sjávarútveg enda markaðir í uppnámi og flutningar sömuleiðis. Vonandi hjálpar það Vinnslustöðinni við þessar aðstæður að rekstur félagsins er mjög fjöl- breyttur og viðskiptavinirnir dreifð- ir um allan heim. „Við erum í öllu nema rækju, með vinnslu í Portúgal og söluskrifstofur í fimm löndum,“ útskýrir Andrea en reksturinn skiptist nokkurn veginn jafnt á milli uppsjávartegunda og bolfiskteg- unda. Hefur Vinnslustöðin haft sterka stöðu í Evrópu, sótt í auknum mæli inn á Asíu og helst að Norður- Ameríkumarkaði hafi verið tak- markað sinnt. Segir Andrea að um leið og mikillar óvissu tók að gæta og kaupendur byrjuðu að halda að sér höndum hafi Vinnslustöðin lagt meiri áherslu á söltun. „Við búum að góðum viðskiptasamböndum í Portúgal og hefur ekki dregið úr eftirspurn eftir saltfiski þar, enn sem komið er. Söltunin veitir okkur líka ákveðið svigrúm enda hefur saltfiskur langt geymsluþol.“ Flutningaleiðum haldið opnum Segir Andrea það ljós í myrkrinu að þó svo að þjóðir um allan heim hafi þurft að grípa til róttækra smit- varnaaðgerða og t.d. lokað á far- þegaflug að mestu eða öllu leyti hafi þess verið gætt að raska flutningi matvæla eins lítið og kostur er. „Það var á tímabili óvissa um sendingu sem var á leið frá okkur með gáma- skipi til Kína, en þegar á hólminn var komið gekk afgreiðsla vand- ræðalaust fyrir sig, og leggja ríkis- stjórnir um allan heim áherslu á að matvæli haldi áfram að berast.“ Andrea er bæði bjartsýn og já- kvæð og reynir að koma auga á tækifærin í stöðunni. Hana grunar að það muni t.d. skapa íslenskum sjávarútvegi ný tækifæri ef veirufar- aldurinn verður til þess að neyt- endur munu eftirleiðis gera enn rík- ari kröfur um heilnæmi og öryggi þeirrar fæðu sem þeir kaupa. Á móti gæti það verið töluverð áskorun ef skammvinn eða löng efnahagslægð á öllum helstu mörkuðum verður til þess að heimilin þurfa að halda fast um pyngjuna. „Íslenskur fiskur er jú hágæðavara og á að vera verðlagður sem slíkur í samanburði við stað- kvæmdarvörur.“ Njóta ekki enn góðs af lækkuðu olíuverði Fleira spilar inn í þegar horfur næstu mánaða eru metnar. Þannig hafa sumir sérfræðingar bent á að Aukin áhersla á söltun eins og stendur Snemma var gripið til ráðstafana til að lág- marka hættuna á smiti milli starfsmanna Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Óvissa einkennir alla helstu markaði en reynt er að halda flutnings- leiðum matvæla opnum. Ljósmyndir/Óskar Pétur Friðriksson „Fyrsta breytingin sem við urðum vör við, strax í byrjun árs, var að gámaflutningar til Asíu urðu dýrari,“ segir Andrea. Snemma var gripið til aðgerða til að lágmarka smitáhættu innan fyrirtækisins en raska framleiðslu sem minnst. Neytendur um allan heim þurfa jú að fá fiskinn sinn og faraldurinn má ekki stöðva allt. Frá athafnasvæði Vinnslustöðvarinnar. Þar er oft handagangur í öskjunni, háir staflar af kerjum og gámar sem þarf að fylla. mikil lækkun olíuverðs kunni að breyta þeim forsendum sem hingað til hafa mótað útflutning á fiski, fyrir utan að það kemur sér vel fyrir út- gerðirnar að eldsneytiskostnaður skipanna lækki. Hafa markaðs- greinendur jafnvel spáð því að olíu- fatið kunni að fara undir 10 dali en lægra olíuverð ætti að fjæra fjarlæg- ustu markaði nær íslenskum selj- endum. „Fyrsta breytingin sem við urðum vör við, strax í byrjun árs, var að gámaflutningar til Asíu urðu dýrari og kann að hafa stafað af ein- hvers konar áhættuálagi vegna óvissu um ástandið við komuna á áfangastað. Höfum við ekki enn orð- ið þess vör að lægra olíuverð sé að skila sér beint í budduna okkar,“ segir Andrea. 4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 2020 Það gefur tilefni til bjartsýni að Íslenskur sjávarútvegur er alls ekki ókunnugur sveiflum og sviptivindum, og að því leyti ætti greinin að geta aðlagast nokkuð hratt og vel breyttum aðstæðum vegna kórónuveiru- faraldursins. Bendir Andrea á að sjávar- útvegsfyrirtæki glími við óvissu af ýmsum toga, og alltaf betra ef hægt er að forðast heima- gerð vandamál sem auka enn frekar á óvissustigið og flækja spár og ákvarðanatöku. Hún nefnir sem dæmi þjóðfélags- umræðuna sem oft vill hverfast um sjávarútveginn og þá um- gjörð sem er utan um starfsemi greinarinnar. Segir hún margt undarlegt við umræðuna og greinin búi við allt of mikla pólitíska óvissu af þeim sökum. „Það mætti heyrast oftar að fiskurinn veiðir sig ekki sjálfur, heldur þarf einhver að harka við veiðar, og vinnslu; fjárfesta í skipakosti, búnaði og mark- aðsstarfi. Fiskurinn sem slíkur, syndandi í sjónum, er einskis virði, og er það allt hitt sem skapar verðmætin.“ Andrea minnir með þessu á að árangur best reknu sjávar- útvegsfyrirtækja landsins hefur aldrei verið sjálfgefinn, og þykir henni leiðinlegt að sjá þegar velgengnin er töluð niður. „Við sem störfum í sjávarútvegi er- um vakin og sofin í því að reka félögin vel, öllu samfélaginu til heilla. Ef farið er að hug- myndum sumra stjórnmála- manna um kollvörpun kerfisins og skattlagningu þá verður eng- inn Íslendingur betur settur af því.“ Árangurinn er ekki sjálfgefinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.