Morgunblaðið - 07.04.2020, Blaðsíða 4
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Þ
egar blaðamaður nær tali af
Andreu Elínu Atladóttur,
fjármálastjóra Vinnslu-
stöðvarinnar, er mannlífið í
Vestmannaeyjum hér um bil lagst í
nokkurs konar vetrardvala enda
tæplega 600 af 4.000 íbúum bæjar-
félagsins í sóttkví. „Fyrirtækið hef-
ur sloppið furðuvel, miðað við þessar
tölur, og af 300 starfsmönnum eru
aðeins sjö í sóttkví og tveir sem hafa
greinst með kórónuveirusmit. Við
höfum því ekki átt í miklum vanda
með að halda rekstrinum gangandi,
þótt starfsemin gangi hægar fyrir
sig en venjulega,“ segir Andrea en
snemma var gripið til nauðsynlegra
ráðstafana hjá fyrirtækinu, í sam-
ráði við sóttvarnalækni Suðurlands,
og vinnunni núna hagað með þeim
hætti að smithættu er haldið í lág-
marki.
Fram undan eru krefjandi tímar
fyrir íslenskan sjávarútveg enda
markaðir í uppnámi og flutningar
sömuleiðis. Vonandi hjálpar það
Vinnslustöðinni við þessar aðstæður
að rekstur félagsins er mjög fjöl-
breyttur og viðskiptavinirnir dreifð-
ir um allan heim. „Við erum í öllu
nema rækju, með vinnslu í Portúgal
og söluskrifstofur í fimm löndum,“
útskýrir Andrea en reksturinn
skiptist nokkurn veginn jafnt á milli
uppsjávartegunda og bolfiskteg-
unda. Hefur Vinnslustöðin haft
sterka stöðu í Evrópu, sótt í auknum
mæli inn á Asíu og helst að Norður-
Ameríkumarkaði hafi verið tak-
markað sinnt. Segir Andrea að um
leið og mikillar óvissu tók að gæta og
kaupendur byrjuðu að halda að sér
höndum hafi Vinnslustöðin lagt
meiri áherslu á söltun. „Við búum að
góðum viðskiptasamböndum í
Portúgal og hefur ekki dregið úr
eftirspurn eftir saltfiski þar, enn
sem komið er. Söltunin veitir okkur
líka ákveðið svigrúm enda hefur
saltfiskur langt geymsluþol.“
Flutningaleiðum haldið opnum
Segir Andrea það ljós í myrkrinu að
þó svo að þjóðir um allan heim hafi
þurft að grípa til róttækra smit-
varnaaðgerða og t.d. lokað á far-
þegaflug að mestu eða öllu leyti hafi
þess verið gætt að raska flutningi
matvæla eins lítið og kostur er. „Það
var á tímabili óvissa um sendingu
sem var á leið frá okkur með gáma-
skipi til Kína, en þegar á hólminn
var komið gekk afgreiðsla vand-
ræðalaust fyrir sig, og leggja ríkis-
stjórnir um allan heim áherslu á að
matvæli haldi áfram að berast.“
Andrea er bæði bjartsýn og já-
kvæð og reynir að koma auga á
tækifærin í stöðunni. Hana grunar
að það muni t.d. skapa íslenskum
sjávarútvegi ný tækifæri ef veirufar-
aldurinn verður til þess að neyt-
endur munu eftirleiðis gera enn rík-
ari kröfur um heilnæmi og öryggi
þeirrar fæðu sem þeir kaupa. Á móti
gæti það verið töluverð áskorun ef
skammvinn eða löng efnahagslægð á
öllum helstu mörkuðum verður til
þess að heimilin þurfa að halda fast
um pyngjuna. „Íslenskur fiskur er jú
hágæðavara og á að vera verðlagður
sem slíkur í samanburði við stað-
kvæmdarvörur.“
Njóta ekki enn góðs af
lækkuðu olíuverði
Fleira spilar inn í þegar horfur
næstu mánaða eru metnar. Þannig
hafa sumir sérfræðingar bent á að
Aukin áhersla á söltun eins og stendur
Snemma var gripið til
ráðstafana til að lág-
marka hættuna á smiti
milli starfsmanna
Vinnslustöðvarinnar í
Vestmannaeyjum.
Óvissa einkennir alla
helstu markaði en reynt
er að halda flutnings-
leiðum matvæla opnum.
Ljósmyndir/Óskar Pétur Friðriksson
„Fyrsta breytingin sem við urðum vör við, strax í byrjun árs, var að gámaflutningar til Asíu urðu dýrari,“ segir Andrea.
Snemma var gripið til aðgerða til að lágmarka smitáhættu innan fyrirtækisins en raska framleiðslu sem minnst. Neytendur um allan heim þurfa jú að fá fiskinn sinn og faraldurinn má ekki stöðva allt.
Frá athafnasvæði Vinnslustöðvarinnar. Þar er oft handagangur í öskjunni, háir staflar af kerjum og gámar sem þarf að fylla.
mikil lækkun olíuverðs kunni að
breyta þeim forsendum sem hingað
til hafa mótað útflutning á fiski, fyrir
utan að það kemur sér vel fyrir út-
gerðirnar að eldsneytiskostnaður
skipanna lækki. Hafa markaðs-
greinendur jafnvel spáð því að olíu-
fatið kunni að fara undir 10 dali en
lægra olíuverð ætti að fjæra fjarlæg-
ustu markaði nær íslenskum selj-
endum. „Fyrsta breytingin sem við
urðum vör við, strax í byrjun árs,
var að gámaflutningar til Asíu urðu
dýrari og kann að hafa stafað af ein-
hvers konar áhættuálagi vegna
óvissu um ástandið við komuna á
áfangastað. Höfum við ekki enn orð-
ið þess vör að lægra olíuverð sé að
skila sér beint í budduna okkar,“
segir Andrea.
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 2020
Það gefur tilefni til bjartsýni að
Íslenskur sjávarútvegur er alls
ekki ókunnugur sveiflum og
sviptivindum, og að því leyti
ætti greinin að geta aðlagast
nokkuð hratt og vel breyttum
aðstæðum vegna kórónuveiru-
faraldursins.
Bendir Andrea á að sjávar-
útvegsfyrirtæki glími við óvissu
af ýmsum toga, og alltaf betra
ef hægt er að forðast heima-
gerð vandamál sem auka enn
frekar á óvissustigið og flækja
spár og ákvarðanatöku. Hún
nefnir sem dæmi þjóðfélags-
umræðuna sem oft vill hverfast
um sjávarútveginn og þá um-
gjörð sem er utan um starfsemi
greinarinnar. Segir hún margt
undarlegt við umræðuna og
greinin búi við allt of mikla
pólitíska óvissu af þeim sökum.
„Það mætti heyrast oftar að
fiskurinn veiðir sig ekki sjálfur,
heldur þarf einhver að harka
við veiðar, og vinnslu; fjárfesta
í skipakosti, búnaði og mark-
aðsstarfi. Fiskurinn sem slíkur,
syndandi í sjónum, er einskis
virði, og er það allt hitt sem
skapar verðmætin.“
Andrea minnir með þessu á
að árangur best reknu sjávar-
útvegsfyrirtækja landsins hefur
aldrei verið sjálfgefinn, og þykir
henni leiðinlegt að sjá þegar
velgengnin er töluð niður. „Við
sem störfum í sjávarútvegi er-
um vakin og sofin í því að reka
félögin vel, öllu samfélaginu til
heilla. Ef farið er að hug-
myndum sumra stjórnmála-
manna um kollvörpun kerfisins
og skattlagningu þá verður eng-
inn Íslendingur betur settur af
því.“
Árangurinn
er ekki
sjálfgefinn