Morgunblaðið - 07.04.2020, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 2020
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
V
ið höfum séð það í rann-
sóknarleiðangrum, sem við
höfum farið í júlí á hverju
ári síðan 2010, að minna
hefur gegnið af makríl vestur í ís-
lenska og grænslenska lögsögu.
Fyrir tímabilið 2010-2019 þá mæld-
ist hlutfallslega mest af makríl í ís-
lenskri landhelgi árin 2015-2017 en
minnkað svo snögglega um u.þ.b.
helming 2018 og var svipað 2019.
Minnkað magn makríls var sér-
staklega fyrir vestan land og í
grænlenskri lögsögi, það var mjög
lítið af fisk þar 2019. En ef við tök-
um meðfram suðurströndinni og á
landgrunnsbrúninni fyrir sunnan
land þá var svipað magn þar 2019
og hefur verið árin á undan. Þetta
svæði er það svæði þar sem makríll-
inn gekk in fyrst þegar hann hóf
göngu inn í lögsöguna upp úr 2007.
Þetta er búið að vera aðalsvæðið,
með mesta þéttleikan af makríl öll
þessi ár og það hélst,“ segir Anna
Heiða Ólafsdóttir, fiskifræðingur á
uppsjávarsviði hjá Hafrann-
sóknastofnun.
Kom á óvart
Hún segir í raun ekkert liggja fyrir
sem skýrir hvers vegna breyting-
arnar eru að eiga sér stað. „Við vit-
um það ekki. Það kom okkur vís-
indamönnunum sem vinnum í þessu
á óvart, við bjuggumst ekki við
þessu. Og það er ekkert nýtt í um-
hverfinu eins og lækkandi hitastig
sjávar sem útskýrir þetta. Sam-
kvæmt núverandi stofnmati hefur
stofninn aðeins verið að minnka
undanfarin ár, en það hefur ekki
verið umfangsmikil minnkun, 9%
minnkun frá 2017 til 2018 en síðan
6% aukning frá 2017 til 2019.
En vegna þess að þetta kom
svona mikið á óvart þá er verið að
hefja umfangsmikið fjölþjóðarann-
sóknaverkefni sem snýr aðallega að
því að skilja breytingar á sumar-
útbreiðslu makríls undanfarinn ára-
tug.
Hvers vegna gengur umtals-
verður hluti stofnsins sum ár í
vesturátt meðfram suðurströnd Ís-
lands og upp að austurstönd Græn-
lands og en önnur ár mjög lítill
hluti? Norðmenn eru búnir að setja
talsverða fjármuni í þetta verkefni
og bjóða þjóðunum í kring að taka
þátt í þessu með sér. Við (Hafrann-
sóknastofnun) verðum þar meðal
annars og hefst þetta verkefni í
september 2020.“
Í þessu verkefni stefna vísinda-
menn að því að sannreyna ýmsar
tilgátur um sumarútbreiðslu, um
hvaða þættir hafa áhrif á sumar-
útbreiðslu makríls, hvort farhegðun
makrílsins sé lærð, eins og í tilfelli
síldarinnar þar sem árgangar ganga
endurtekið á svipað sumarfæðu-
svæði, eða hvort þetta sé eitthvað
tengt því hvar og hvenær hann
hrygnir,“ útskýrir Anna.
Erfitt að fullyrða um ofveiði
„Þetta verður mjög spennandi.
Þetta er ekki bara hitastigið á
fæðusvæði heldur er þetta eitthvað
flóknara. Við skiljum ekki hvernig
hann bregst við umhverfinu og
hvernig hann tekur ákvarðanir um
farleiðir eftir að hrygningu líkur á
landgrunnsbrúninni fyrir vestan Ír-
land og stundum sunnar.“
Spurð hvort það sé hætta á því að
stofninn sé ofveiddur sökum þess að
veitt magn strandríkjanna er um-
fram ráðgjöf, svarar hún að tals-
verð vandamál hafa tengst stofn-
matinu undanfarin ár sem valda
óstöðugleika í stofnmatinu. Ástæð-
an fyrir óstöðugu stofnmati er sú að
það séu fimm gagnaraðir sem fara
inn í stofnmatslíkanið og þær eru
allar stuttar og segja mismumandi
hluti um þróun stofnsins.
„Sumar gagnaraðir segja að hann
sé að minnka, aðrar að hann sé að
stækka og sumar sem segja að
hann sé alltaf jafn. Ef maður tekur
stuttar gagnaraðir sem gefa mis-
munandi vísbendingar og setur það
inn í eitt líkan, í hvert skipti sem
það bætist við eitt ár í gagnaröðina
getur vægi gagnanna breyst og þá
getur útkoma líkansins breyst
mikið. Þess vegna geta niðurstöður
stofnmats sveiflast mikið á milli ára.
Það er mikill óstöðugleiki í stofn-
matinu.“
Bendir hún á sem dæmi að fyrst
stofnmatið fyrir 2019 mælti með
318 þúsund tonn aflamarki , en með
lítilli breytingu á því hvernig gögnin
eru notuð í líkaninu varð niður-
staðan að aflamark 2019 hækkaði í
770 þúsund tonn. Aflamarkið fyrir
2020 er 922 þúsund tonn. „Það er
óhætt að segja að þetta að þetta er
óstöðugt stofnmat.“
„Þegar stofnmatið er svona
óstöðugt ættum við að fara varlega
í allri umræðu um ofveiði en á sama
tíma verðum við að muna það að
sjálfbært nýting auðlinda hafsins er
skylda okkar gagnvart komandi
kynslóðum og mikilvægast markmið
okkar vinnu,“ segir Anna.
Unnið að umbótum
„Vegna þessa stofnmatsvanda kall-
aði ICES (Alþjóða hafrannsókna-
ráðið) saman vísindamenn, fulltrúa
sjávarútvegsins og yfirvalda frá
öllum Evrópuríkjum sem taka þátt
í makrílveiðum vorið 2019. Það var
stofnaður vinnuhópur sem ICES
sér um og við höfum hist til þess
að ræða óstöðugleika stofnmatsins,
og hvað allir aðila geti gert til að
laga stofnmatið.
Þetta er mjög góð þróun, því
þetta er vandamál sem hvorki ein
rannsóknastofnun né ein þjóð leys-
ir þar sem útbeiðslusvæði makríls
og fjöldi landa sem tekur þátt í
makríllveiðum krefst þátttöku fjöl-
breytts alþjóðlegs hópar. Hóp-
urinn hefur sett fram ýmsar hug-
myndir um aukna gagnasöfnun og
gagnúrvinnslu þar sem fiskiskip
leika stór hlutverk eins í auknum
rannsóknum bæði með sýnasöfnum
og með rannsóknaleiðangri hönn-
uðum fyrir fiskiskip. Einnig er
verið að ræða möguleika á að
stækka rannsóknasvæði núverandi
makrílleiðangurs í suðarátt og að
þróa rannsóknaleiðangur þar sem
bergmálstækni er notuð til að
mæla magn makríls að vetrarlagi.“
Anna segir unnið að því að gera
umbætur í þeim tilgangi að auka
áreiðanleika stofnmatsins. „Hvert
einasta ár sem bætist við gagna-
raðirnar gera þær lengir og þá
verður líkanið stöðugra. Tíminn
vinnur með okkur. Við þurfum að
rýna betur í sumar gögnaseríur
sem við höfum. Svo eru það nýir
leiðangrar, hvort það hjálpi að fara
í bergmálsleiðangra yfir veturna
þegar makríllinn er í vetrardvala
og hvort það gefi árleiðanleg mæl-
ingu af stærð stofnsins. Það þarf
að skoða margt.“
Of lítið vitað um göngur makrílsins
Anna Heiða Ólafsdóttir segir mikinn óstöðugleika í stofnmati makríls en að unnið sé að úrbótum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Makrílnum var tekið fagnandi þegar hann kom óvænt í lögsögu Íslendinga skömmu eftir bankahrunið. Hefur hann orðið mikilvægur þáttur í útflutningi landsins, en hann gæti ákveðið að láta sig hverfa.
Aðeins 51% af þeim
makríl sem veiddur var í
síðustu vertíð var úr ís-
lenskri lögsögu og nam
heildaraflinn um 128
þúsund tonnum. Það að
minni makríll hafi veiðst
í lögsögunni hefur vakið
spurningar um það
hvort fiskurinn sem
skyndilega kom í miklu
magni í íslenska lögsögu
sé nú að fara úr henni.