Morgunblaðið - 07.04.2020, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 07.04.2020, Qupperneq 14
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is G aman hefur verið að fylgjast með velgengni Völku, og sjá fyrirtækið komast hratt og vel í hóp þeirra allrabestu á sviði fiskvinnslutækni. Fyrirtækið var stofnað árið 2003 af Helga Hjálmars- syni og framleiðir í dag fjölbreyttan búnað fyrir fiskvinnslur en tækni Völku tekur við fiskinum eftir hausun, flökun og roðflettingu. Fyrsta skrefið í Völku-búnaðinum er forsnyrting en síðan fer fiskurinn í vatnsskurðarvél sem greinir fiskinn og sker eftir kúnstarinnar reglum og flokkar fyrir pökkun. Þekktasta vara Völku er ein- mitt vatnsskurðarvélin sem fyrir- tækið setti fyrst á markað fyrir átta árum og þykir hafa markað tímamót í bættri hráefnisnýtingu og aukinni verðmætasköpun í greininni. Auður Ýr Sveinsdóttir er aðstoð- arframkvæmdastjóri Völku og segir hún að árangurinn megi ekki síst þakka góðu samstarfi við viðskipta- vinina. Eru ekki nema átta ár síðan fyrsta vatnsskurðarvél Völku var tek- in í notkun, í fiskvinnslu HB Granda, og segir Auður að slík verkefni bygg- ist á gagnkvæmu trausti og miklum metnaði viðskiptavinarins á sviði tæknilegrar framþróunar í fisk- vinnslu. Eins og lesendur vita er krafta- verki líkast hvað vinnslubúnaður fyrirtækja eins og Völku ræður við og þannig notar vatnsskurðarvélin rönt- gentækni til að greina hvar bein- garðurinn liggur í hverju flaki, sam- spil röntgen, leysigeisla og mynda- vélatækni reiknar svo út af nákvæmni lögun og þyngd hvers flaks sem fer í gegnum vélina. Skurðartækið sjálft beinir hárfínni og öflugri vatnsbun- unni á alla mögulega vegu og bæði sker í burtu beingarðinn og annað sem röntgenmyndavélin kann að hafa komið auga á. Álgrím reikna svo út heppilegastu skiptingu í bita byggt á því skurðamynstri sem vinnslustjór- inn hefur valið og þannig er verðmæti hvers flaks hámarkað. Bitunum sem koma úr vélinni má dreifa á ólíka staði innan fiskvinnslunnar, og þannig gætu t.d. hnakkastykkin farið rakleið- is í pökkun og þaðan beint út á flug- völl og áleiðis til kaupenda í öðrum löndum, á meðan aðrir bitar fara í frysti eða þá leið sem tryggir hæst af- urðaverð. Risaverkefni að ljúka Þegar litið er yfir sviðið blasir við að vöxtur Völku er rétt að byrja. Fyrir- tækið er um þessar mundir að styrkja stöðu sína á Íslandi og í Noregi og hafa vélar fyrirtæksins sannað gildi sitt í fiskvinnslum bolfiskútgerða sem og í sláturhúsum fyrir laxfiska. Þá er Valka um þessar mundir að legga lokahönd á stóra fiskvinnslu í Múr- mansk og óhætt að reikna með fleiri verkenfum í Rússlandi í takt við öra tæknivæðingu sjávarútvegsfyrir- tækja þar í landi. Auður minnir á að tæknivæðing rússnesks sjávarútvegs kemur m.a. til af því að ríkisstjórn Pútíns ákvað að umbuna þeim útgerðum með auknum kvóta sem fjárfesta í nýjum og betri fiskvinnslum og skipum. Valka sér um uppsetningu fiskvinnslunnar, sem er í eigu útgerðarinnar Murman, og er heildarhönnun verksmiðjunnar í höndum Völku þó að fleiri tækjafram- leiðendur komi að verkefninu. Koma um 80% tækjabúnaðarins frá íslensk- um fyrirtækjum eins og Skaganum 3X, Kappi og Slippinum á Akureyri. Um u.þ.b. 1,3 milljarða króna fram- kvæmd er að ræða og verður fisk- vinnsla Murman líklega tæknivædd- asta bolfiskvinnslan í Rússlandi. Að sögn Auðar hefur verkefnið gengið mjög vel og ánægjulegt að starfa með Rússunum. „Starfsfólk okkar í Noregi hefur borið hitann og þungann af bæði sölu verkefnisins og utanumhaldi, en einnig hefur fjöldi fólks á Íslandi unnið að verkefninu í Múrmansk í skemmri eða lengri tíma. Góð liðsheild er innan fyrirtækisins, allir vinna samhentir að einu marki, og hefur hópurinn verið samstilltur í að takast á við allar þær áskoranir sem hafa komið upp á framkvæmda- tímanum.“ Lífið getur verið erfitt í rúss- neskum borgum, og á það t.d. við um Múrmansk að þar getur orðið skelfing kalt á veturna, ekta rússneskur blær er á mannlífinu og ekki endilega mikið um að vera fyrir aðkomufólk. Spurð hvort dvölin í Múrmansk hafi reynt á starfsfólkið af þessum sökum segir Auður að sérfræðingar Völku kalli ekki allt ömmu sína og séu því alvanir að þurfa að dvelja fjarri heimahögum vegna uppsetningar vinnslutækja. „Við gættum þess að reyna að hafa hverja vinnuferð að hámarki 2-3 vikur að lengd svo fólk dvelji ekki of lengi fjarri ástvinum sínum en að auki réð- um við sérstaklega til okkar rúss- neskumælandi starfsfólk. Vissulega voru vinnudagarnir langir og krefj- andi en það fór ágætlega um okkar fólk og heimamenn gestristnir.“ Verðum áfram í fremstu röð En hvað þýðir það fyrir íslenskan sjávarútveg ef Rússland og aðrir keppinautar tæknivæðast? Markaðs- greinendur hafa bent á að það tækni- forskot sem íslenskur sjávarútvegur hefur notið um allangt skeið vari ekki endilega að eilífu enda sjá aðrar þjóðir líka hag sinn í að tæknivæða veiðar og vinnslu, og þar með auka afköst og skilvirkni samhliða því að stórauka gæði vörunnar. Er þessi þróun óhjá- kvæmileg, hvort sem tæknin sem not- uð er í sjávarútvegsfyrirtækjum ann- arra þjóða kemur frá Íslandi eða annars staðar að. Auður bendir á að íslensk útgerðar- fyrirtæki þurfi ekki að óttast harðn- andi samkeppni, en greinin megi vita- skuld ekki sofna á verðinum heldur þurfi að halda áfram að vinna að ný- sköpun og tækniþróun. „Við getum viðhaldið forskotinu enda búum við að mikilli þekkingu og byggjum árang- urinn á nánu og góðu samstarfi fyrir- tækjanna og fræðasamfélagsins. Það er þar sem forskotið liggur í reynd, og ef nýsköpun er sinnt sem skyldi munu íslensk sjávarútvegsfyrirtæki alltaf njóta góðs af því að hafa nýjustu og bestu tækni sem fáanleg er,“ útskýrir hún og bætir við að tæki eins og þau sem verið er að setja upp í Múrmansk hafi sinn endingartíma og muni úreld- ast einn góðan veðurdag. „Markaður- inn er í stöðugri þróun og neytendur að kalla eftir nýjum vörum, sem þýðir að þróa þarf tækni sem mætir þessum kröfum enn betur.“ Sést þetta forskot kannski hvað best á nýrri fiskvinnslu Samherja sem rís núna á Dalvík. Segir Auður að fisk- vinnslan á Dalvík verði risastór með fjórar skurðarlínur sem vinna saman til að hámarka verðmæti hvers flaks og um leið skapa mikinn hraða og sveigjanleika í starfseminni. Þar verð- ur hægt að verka mikið magn afla á skömmum tíma og ganga enn lengra í að tryggja sem besta meðferð hráefn- isins frá veiðum og þar til fiskurinn er kominn í hillur verslana. „Verður fisk- vinnslan sú tæknivæddasta í heimi, með margfalda afkastagetu á hvern starfsmann borið saman við það sem tíðkast víðast hvar erlendis.“ Forskotið byggist á nánu og góðu samstarfi Aðrar fiskveiðiþjóðir munu freista þess að saxa á tækniforskot Íslands en ef rétt er staðið að nýsköpun og tækniþróun má viðhalda forskotinu og tryggja að íslensk sjávarútvegsfyrirtæki njóti góðs af nýjustu og bestu tækni sem fáanleg er. „Markaðurinn er í stöðugri þróun og neytendur að kalla eftir nýjum vörum, sem þýðir að þróa þarf tækni sem mætir þessum kröfum enn betur,“ segir Auður Ýr. Ljósmynd/Valka/Hörður Sveinsson Fólk að störfum við snyrtilínu frá Völku. Tækniframfarir undanfarinna ára stórauka afköst hvers starfsmanns. Ljósmynd/Valka/Kristján Maack Vandlega vatnsskorið flak.Vatnsskurðarvél Völku markaði tímamót í meðferð og nýtingu fiskflaka. 14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 2020

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.