Morgunblaðið - 07.04.2020, Side 18

Morgunblaðið - 07.04.2020, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 2020 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is S tefnt er að því að fyrirtækið komi með nýjan vettling á markað í haust, en varan átti að rata á markað í sumar en vegna útbreiðslu kór- ónuveirunnar hafa orðið nokkrar tafir á verkefninu, að sögn Jó- hönnu Rósu, framkvæmdastjóra Strongwear. En það er ekki bara kórónu- veiran sem truflar. Í fyrra brann húsnæði dreifingaraðilans og hafa systkinin ekki mætt þeirri áskorun með hangandi hendi og hafa feng- ið annan aðila til þess að dreifa vörum fyrirtækisins auk þess sem þau sinna því verki sjálf að hluta. „Þetta er greinilega markaður sem er síbreytilegur,“ segir Jóhanna Rósa og hlær. Hún bætir við að hún hafi ekki búist við því að það gætu orðið stór áföll og vísar til kórónuveirunnar 2020, brunans 2019 og sjómannaverkfallsins 2017. „Það er alltaf eitthvað óvænt sem kemur upp.“ Áskoranir víða Hins vegar getur orðið lán í óláni og hefur eftirspurn eftir einnota hönskum aukist mikið á undan- förnum dögum og vikum sem styrkt hefur söluna og er lagerinn orðinn tómur. „Eftirspurnin er mikil,“ segir Jóhanna Rósa, en fyrirtækið fær gríðarlegan fjölda fyrirspurna vegna einnota hanska og sem betur fer sé sending á leið- inni. Þegar litið er fram á við blasir önnur áskorun við og það er aukin eftirspurn eftir einnota hönskum á heimsvísu, sérstaklega í Evrópu og Bandaríkjunum. Þessi aukning veldur því að erfitt getur verið að stækka pantanir þar sem fram- leiðslan sé í hámarki alls staðar, auk þess sem tafir á afhendingu hafa orðið vegna áhrifa veirunnar í þeim löndum sem framleiðsla fer fram í. Jafnframt því að eftirspurn bætir við að fyrirtækið þeirra, Strongwear, leggi mikið upp úr að bjóða hágæða vöru á sanngjörnu verði. Vakandi fyrir tækifærum Þá er ekki síður mikilvægt að vera með sveigjanlegan kúnnahóp og þótt sjávarútvegurinn sé undir- staðan sé einnig að finna við- skiptavini Strongwear innan land- búnar, byggingar- og lyfjaiðnaðar og bifvélaverkstæða, svo fátt sé nefnt. Mikil tæknivæðing hefur átt sér stað innan sjávarútvegs á undan- förnum árum sem hefur meðal annars falið í sér fækkun starfa. „Það er ekki endilega góð þróun fyrir okkur, en maður verður að líta á allt sem tækifæri og vera vakandi fyrir breytingum á mark- aði,“ segir Jóhanna Rósa sem bæt- ir við að auknar kröfur um gæði í sjávarútvegi skapi grundvöll fyrir auknar kröfur til þess búnaðar sem nýttur er í þeim störfum sem eru í greininni, þar á meðal vett- linga og annars hlífðarbúnaðar. „Við höfum valið að bjóða fyrst og fremst upp á framúrskarandi gæði í samvinnu við sterka framleið- endur. Það eru forréttindi að vera í eig- in atvinnurekstri en því fylgir líka ábyrgð og í því samhengi höfum við verið að kanna hvað við í Strongwear getum lagt af mörkum varðandi sjálfbæra þróun. Það sem liggur beinast við er að byrja á því að skoða kolefnissporið, hvaðan er- um við að kaupa vöruna og hvar getum við gert betur í því sem við erum að gera. Þótt við séum lítil getur maður alltaf sagt að það sem við þó gerum telur,“ útskýrir hún. Spurð um framtíðina svarar Jó- hanna Rósa skýrt að markmiðið sé að styrkja Strongwear-vörumerk- ið, auka markaðshlutdeildina og vöruframboðið. „Eitt sem er á döf- inni er nýir vettlingar sem við telj- um að muni hjálpa okkur í því enda eru þeir léttari og liprari en þeir sem eru nú þegar á mark- aðnum, enda skipta þægindi miklu máli og þá sérstaklega fyrir sjó- menn sem oft á tíðum vinna lang- ar vaktir við erfiðar aðstæður. Þá verði gæði og þægindi að spila saman til að tryggja öryggi þeirra.“ Gaman að vera í framlínunni Hvað varðar að starfa með bróður sínum segir Jóhanna Rósa sam- starfið hafa gengið mjög vel. „Við erum náin og köstum hugmyndum mikið á milli okkar enda erum við með Strongwear í sífelldri endur- skoðun um hvað megi betur fara. Við skiptum á milli okkar verkum en getum þó gengið í öll verk, sem gerir daginn fjölbreyttan, lifandi og skemmtilegan. Það er gaman og gefandi að geta verið líka í framlínunni og fundið hvað það er sem viðskiptavinurinn leitar eftir enda erum við hér til að þjónusta viðskiptavini Strongwear og leggj- um við mikið upp úr að veita þeim okkar allra bestu þjónustu.“ Rekstur á síbreytilegum markaði Það verður ekki hjá því komist að í krefjandi að- stæðum þurfa starfs- menn að vera vel búnir og þegar grein verður jafn fyrirferðarmikil í hagkerfinu og sjávar- útvegsfyrirtæki skapist grundvöllur fyrir tengd- an rekstur. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ekki duga vettlingatökin er oft sagt, en það er einmitt þá sem réttir vinnuhanskar skipta máli. „Það er gaman og gefandi að geta verið líka í framlínunni og fundið hvað það er sem viðskiptavinur- inn leitar eftir.“ Eftirspurn eftir einnota hönskum hefur aukist mikið að undanförnu. eftir hráefninu hefur aukist, hefur hráefniskostnaður hækkað og gengi krónunnar fallið. Jóhanna Rósa segir mikilvægt í þessum kringumstæðum að vera með stóra viðskiptavini sem standa við bakið á fyrirtækinu. Það er ákveðin samfélagsleg ábyrgð fólgin í því að stærri fyrir- tæki haldi áfram að vera í við- skiptum við smærri fyrirtæki þannig að samkeppni sé haldið við og smærri fyrirtæki lifi af. Hún Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Þ að er nákvæmlega ekki neitt að gera í grásleppunni því það er alltaf kolvitlaust veður. Það er búið að vera alveg hreint hræðilegt. Þeir sem eru búnir að leggja reyna að skjót- ast í þetta í smá tíma rétt á meðan snýst úr suðvestanátt í norðvestan- átt. Það gengur ekkert vel. Við er- um ekki búin að leggja netin,“ segir Anna Þorbjörg Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Æðar ehf., sem gerir út línu- og grásleppubátinn Hilmi ST-001 frá Hólmavík. Hún segir miklar vonir bundnar við að það að fari að lægja. „Þetta er nú eiginlega að verða komið gott. Fjórir mánuðir í svona fjand- ans ótíð er dálítið mikið.“ Spurð hvort hún muni eftir svona langvar- andi erfiðleikum vegna veðurs svarar hún: „Ég man ekki eftir því eftir að við fórum í smábátaútgerð, en ég man eftir því að 1968 komust rækjubátarnir ekkert út fyrir hafís. En það var öðruvísi, þá var hafís yfir öllu. Nú er það ekki.“ Vænn þorskur Í vetur hefur verið farið á línuveið- ar þegar veður hefur leyft, að sögn Önnu Þorbjargar. „En það hefur ekki gefið alltof mikið. Svo þegar kemur fram í mars þá er yfirleitt þorskurinn kominn í loðnuna og þá vill hann ekki línu, loðnan er miklu betri á bragðið en frystur makríll,“ segir hún. Hins vegar hafi veiðar gengið vel þá daga sem veitt hefur verið og hefur þorskurinn verið mjög stór. „Síðasta ár var nokkuð gott. Grásleppan mjög góð og línan líka,“ bætir Anna Þorbjörg við sem hefur komið að útgerð í um 15 ár. „Það er ekkert allt dans á rósum, það er alltaf eitthvert mótlæti líka. Það helsta sem bátar í krókaafla- markskerfinu glíma við fyrir utan veðurfarið er skortur á ýsukvóta eftir að hann var skertur um 25%, enda er ýsa óhjákvæmilegur fylgi- fiskur þorskveiða. „Það hefur þurft að reyna að forðast ýsuna og það getur verið erfitt. […] Það er nóg af ýsu það má bara ekki veiða hana.“ Spurð hvort þurfi sérstakan áhuga til að leggja í smábátaútgerð svarar Anna Þorbjörg: „Það þarf eitthvað. Vitleysu, heimsku eða bæði.“ Í ljósi ofangreindra vanda- mála og bölvaðrar ótíðar kemst blaðamaður ekki hjá því að þurfa að spyrja hvort henni finnist skemmtilegt að stunda þennan rekstur. „Ég væri löngu hætt þessu annars.“ Krefst vitleysu, heimsku eða hvors tveggja Veðrið hefur valdið tölu- verðum truflunum fyrir útgerðir á Ströndum í vetur og muna fáir eftir annarri eins ótíð. Ljósmynd/Sverrir Guðmundsson Hilmir er gerður út frá Hólmavík og hefur verið talsvert við bryggju í vetur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.