Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.04.2020, Síða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.04.2020, Síða 2
Þú gjörþekkir verkið auðvitað en hvernig gekk að laga það að sjónvarpi? „Það var út af fyrir sig ekki svo flókið, nema þegar kom að því að skera sviðs- verkið, sem er tveir tímar, niður í einn tíma í sjónvarpinu. Þegar það er gert getur verið snúið að halda öllu til haga. Sjálfur hef ég ekki séð lokaútgáfuna en vona að þetta hafi gengið upp.“ Það er konan þín, Þórhildur Þorleifsdóttir, sem leikstýrir þér að þessu sinni. „Já, við höldum þessu innan fjölskyldunnar. Þorleifur sonur okkar leikstýrði í upphafi, árið 2003, en hann er upptekinn núna þannig að móðir hans var feng- in í verkið að þessu sinni. Það er ekki í kot vísað.“ Og verkið stendur fyrir sínu? „Já, þetta er dásamlegt verk að öllu leyti og kannski með því allra besta sem Þorvaldur skrifaði.“ Þorvaldar er sárt saknað. „Já, hann fór alltof snemma frá okkur en skildi sem betur fer marga fallega hluti eftir sig.“ Hvor ykkar hafði frumkvæði að verkinu? „Hvorugur. Það var Þorleifur sonur minn sem hringdi í Þorvald, meðan ég brá mér á salernið, en honum fannst ófært að ekki yrði samið handa mér verk sextugum. Skömmu síðar hringdi Þorvaldur til baka og ætlaði að segja sig frá verkefninu; hann ylli því ekki. Þorleifur svaraði því þá til að þetta ætti bara að vera lítið fallegt verk handa mér – og þá laumaði Sveinn Kristinsson sér inn í tölvuna hjá Þorvaldi.“ Hvernig hefurðu það annars á þessum undarlegu tímum? „Ég hef það alveg frábært, þakka þér fyrir. Ég var að koma neðan úr Þjóðleik- húsi. Til stendur að láta mig ljúga einhverju að ykkur og streyma því um páskana.“ Þú ert ekkert að hætta að leika? „Nei, fjarri því. Leiklistin var mér hjartans mál og það hefur ekkert breyst. Meðan fólk hefur vit á því að nota mig þá stendur ekki á mér.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.4. 2020 TÆKNI A FYRIR H TVINNUMANNSIN E I www.alver.is S: 896 4040 LauraStar á Íslandi LauraStar er létt og meðfærilegt og þú ert fljótari að strauja en nokkru sinni fyrr. Ten Points Lara 23.990 kr. Garðatorg 6 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is ERUM FLUTT Í STÆRRA RÝMI Á GARÐATORGI 6 Ég vissi það svo sem fyrir, þannig lagað. Það hafði bara enginn sagtþetta upphátt við mig fyrr en Jón Már Ásbjörnsson, söngvari hinsframsækna málmbands Une Misère, gerði það í viðtali sem birtist hér í blaðinu sem þú ert með í höndunum: „Þungarokkarinn sem stereótýpa er dauður!“ Og áfram heldur Jón Már: „Síðhærðir menn og menn með sítt og mikið skegg eru alveg velkomnir ennþá. Senan hendir þeim ekkert öfugum út. Innra útlitið er [hins vegar] komið meira inn í spilið, ef þú skilur hvað ég er að fara? Ég meina, það sem þú hefur að segja skiptir meira máli en í hvernig bol þú ert. Mín kynslóð hef- ur engan áhuga á því hvernig þú lít- ur út, bara hvaða manneskju þú hef- ur að geyma.“ Þetta eru auðvitað frábær tíðindi sem við öll hljótum að fagna. Alda- mótakynslóðin er loksins búin að gera það sem við, sem tilheyrum X- kynslóðinni, ætluðum að gera; skola stereótýpunni burt með baðvatninu. Þegar ég var yngri var ég svo barna- legur að álykta að á mínu æviskeiði myndi það hætta að skipta máli hvort við værum karl eða kona, svört eða hvít, síðhærð eða krúnurökuð eða í Armani-jakkafötum eða Black Sabbath-bol. Það hefur ekki gerst. Sumir losna aldrei úr bolnum. Gott dæmi um það er frétt, sem birtist eigi alls fyrir löngu, undir fyrir- sögninni: „Söngvari Saktmóðigs gerir fjárhagsáætlun.“ Fyrir þá sem ekki vita er Saktmóðigur pönkhljómsveit og þótti augljóslega tíðindum sæta að söngvari í slíku bandi væri að gera fjárhagsáætlun. Og það ekki bara fyrir heimilið, heldur heilt sveitarfélag, Fjarðabyggð, þar sem hann er bæjar- stjóri. Í fréttinni þótti minna máli skipta að maðurinn er einnig hæstaréttar- lögmaður og fyrrverandi forstöðumaður lögfræðisviðs Arion banka. Auðvitað er þetta ekki illa meint en lýsir forneskjulegu viðhorfi okkar sem komin erum á miðjan aldur. Góðu tíðindin eru aftur á móti þau að frá bæjardyrum Jóns Más og aldamótakynslóðarinnar er þetta ekki frétt. Það er alltaf gaman að leiða saman fólk af ólíku tagi og þess vegna er ástæða til að gleðjast yfir því að Jón Már er á fyrsta farrými hérna í blaðinu í dag ásamt Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands. Einhvern tíma hefði líklega ekki þótt við hæfi að tefla fram ungum þungarokkara og fyrrverandi forseta lýðveldisins hlið við hlið en mögulega er það til marks um það að Sunnudagsblað Morgunblaðsins heyrir til aldamótakynslóðinni. „Þungarokkarinn“ er dauður! Pistill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’ Aldamótakynslóðiner loksins búin aðgera það sem við, sem til-heyrum X-kynslóðinni, ætluðum að gera; skola stereótýpunni burt með baðvatninu. Börkur Gunnarsson Rigga upp 22 manna fótbolta þar sem verður tuddast og andað framan í alla, svo verður „high five“ eftir hvert mark og faðmlög að leik loknum. SPURNING DAGSINS Hvað er það fyrsta sem þú ætl- ar að gera þegar búið verður af aflétta öll- um höml- um? Jón Þorvaldsson Ég ætla að njóta hinnar tæru lífs- gleði sem felst í því að losna úr höft- um enda hlýtur krísan að breyta gildismati mínu. Magnús Ingi Magnússon Ég myndi fara að mæta aftur í Hug- arafl og skella mér í bíó. Heiðdís Björk Magnúsdóttir Fara í Smáralindina og sjá fullt af fólki út um allt, skoða í búðir og fá mér eitthvað gott að borða. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson Sjónvarpsuppfærsla á einleiknum Sveinsstykki eftir Þorvald Þorsteinsson verður frumsýnd á RÚV á annan í páskum. Eins og í sviðsuppfærslunni fer Arnar Jónsson með hlutverkið, nú í leikstjórn Þórhildar Þorleifsdóttur. Meðan fólk hefur vit á því … ARNAR JÓNSSON SITUR FYRIR SVÖRUM

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.