Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.04.2020, Qupperneq 4
HEIMURINN
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.4. 2020
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • tonastodin.is
Trommur
Fyrir byrjen
dur og leng
ra komna
meiriháttar
úrval
Washington. AFP. | Mitt í látlausu
streymi frétta af kórónuveirunni
hefur samkynhneigður dýragarðs-
haldari með sítt að aftan sem nú sit-
ur í fangelsi fyrir tilraun til leigu-
morðs gagntekið Bandaríkjamenn,
sem sitja fastir heima í sófum sínum.
Í þáttaröðinni „Tiger King: Mur-
der, Mayhem and Madness“ koma
fyrir kettir af ýmsum toga, furðu-
legir starfsmenn og ósamrýndir
elskendur. Um er að ræða blöndu af
„Animal Planet“ og „Breaking Bad“.
Og allt heila klabbið er sannleik-
anum samkvæmt.
Þættirnir eru sýndir á Netflix og
hafa notið góðs af því að flestum
Bandaríkjamönnum hefur verið fyr-
irskipað að halda sig heima til að
stöðva útbreiðslu vírussins. Þeir eru
í sjö hlutum, voru frumsýndir 20.
mars og eru í efsta sæti lista stöðv-
arinnar yfir þætti á uppleið. Í þeim
er fjallað um glundroðakennt líf Jo-
sephs Maldonado-Passage, sem kall-
ar sig Joe Exotic. Hann er mikill
unnandi kattardýra og stofnaði sinn
eigin dýragarð. Í upphafi þénaði
hann vel, en tapaði öllu. Í þáttunum
koma fyrir deilur og afbrýðisemi,
dularfullir eldsvoðar, misheppnaðar
tilraunir til að komast til pólitískra
metorða og langsótt áform um morð.
Tígriskóngurinn hefst og endar í
fangelsi í sveitum Oklahoma þar
sem Joe Exotic afplánaði 22 ára
fangelsisdóm þar til hann var færður
í annað fangelsi í Texas í byrjun
mánaðar.
Andhetja?
Sagan um það hvernig hann endaði í
fangelsi hefur breytt honum í nokk-
urs konar andhetju bandarísku þjóð-
arinnar. Upphaflega stóð til að rann-
saka hvort dýrin sættu illri meðferð,
en aðstandendur þáttanna náðu á
filmu ráðabruggi þar sem hver
furðuvendingin rak aðra.
Aðdáendur þáttana klæðast bún-
ingum með tígris- og pardusmynstr-
um, klippa hár sitt eins og Joe
Exotic og birta af sé myndir með
gæludýrum sínum, jafnt raunveru-
legum sem tilbúnum, á félagsmiðl-
um.
Rappstjarnan Cardi B kvaðst vilja
safna peningum svo hægt yrði að
taka mál hans upp að nýju og bjarga
honum úr fangelsi. Hún sagði síðar
að færslan hefði verið í gríni, en
bætti við: „Ég elska hann, samt.“
Ýmsir leikarar hafa kroppað sig
inn á myndir af Joe Exotic, en leik-
stjórar „Tiger King“ segja að sjálfur
vildi hann helst að Brad Pitt eða
David Spade heiðruðu sig með þeim
hætti.
Þættirnir hafa komið körfubolta-
stjörnunni fyrrverandi Shaquille
O’Neal í bobba. O’Neal bregður fyrir
í myndinni, en hann segist aðeins
hafa verið gestkomandi í dýragarð-
inum.
„Ég meiði ekki tígrisdýr,“ sagði
hann í hlaðvarpinu sínu. „Ég elska
tígrisdýr. … Ég var bara gestur.“
Tígriskóngurinn á frægð sína að
hluta kórónuveirunni að þakka og er
nú í einangrun hennar vegna í sér-
stöku fangelsi vegna þess að hann
gæti hafa verið útsettur fyrir veir-
unni, að sögn eiginmanns hans.
„Hún fóðraði tígrisdýrin
á honum“
Í dýragarði Joe Exotic er krökkt af
tígrisdýrum, ljónum, hlébörðum,
pardusdýrum og blönduðum kött-
um. Ferðamenn fá að klappa ung-
unum og fylgjast með litskrúðugum
dýragarðshaldaranum leika sér við
þá með skammbyssu á mjöðminni.
Hann syngur líka.
Allt í kringum hann eru litríkar
persónur, þar á meðal eiginmaður
hans, sem er næstum tannlaus af
misnotkun metamfetamíns, fótalaus
starfsmaður dýragarðsins og aðstoð-
armaður, sem missti handlegg þegar
tígrisdýr réðist á hann.
Einnig kemur fram fyrrverandi
stjórnandi hjá verslunarkeðjunni
Walmart sem er svo úti að aka að
hann tekur að sér í fullri alvöru að
stýra kosningabaráttu Joe Exotic til
forseta Bandaríkjanna og ríkisstjóra
í Oklahoma. Já, til að komast í Hvíta
húsið.
Andstæðingur hans er Carole
Baskin, aðgerðarsinni og eigandi
björgunarmiðstöðvarinnar Big Cat
Rescue, sem er staðráðin í að loka
dýragarðinum hans og heldur fram að
bak við tjöldin sé hann með ólöglega
ljóna- og tígrisrækt og selji dýrin.
Joe Exotic heldur fram að Baskin
sé engu betri en hann. Hún þéni
peninga á að sýna ferðamönnum
kattardýr, sem muni enda lokuð í
búrum, gegn gjaldi. Átök þeirra fara
fram á netinu og fyrir dómstólum.
Bæði eru þau klædd í föt með tígris-
og hlébarðamynstri.
Joe Exotic heldur meira að segja
fram að Baskin beri ábyrgð á hvarfi
eiginmanns síns fyrir tveimur ára-
tugum. Hann var milljónamæringur
og fannst aldrei.
„Hún fóðraði tígrisdýrin á honum,
held ég,“ segir Joe Exotic.
Á einum stað í þáttunum er henni
sagt að einn af starfsmönnum hans
gæti hafa reynt að drepa hann með
því að úða ilmvanti á skóna hans áður
enn hann fór inn í tígrisbúr og hún
svarar um hæl að það hefði verið
vænlegra til árangurs að nota sard-
ínuolíu.
„Hann er mjög spenntur“
Löngun hans til að knésetja – og í
lokin tilraun til að myrða – Baskin
verður honum að falli. Hann var
dæmdur fyrir að greiða ónefndum
einstaklingi 3.000 dollara (tæpa
hálfa milljón króna) fyrir að myrða
Baskin og í janúar var hann úr-
skurðaður í rúmlega tveggja ára-
tuga fangelsi. Joe Exotic hefur nú
höfðað mál og heldur fram að hann
hafi verið dæmdur á forsendum logins
framburðar. Í mars bað hann Donald
Trump Bandaríkjaforseta um náðun.
Þótt hann sé ekki með sjónvarp í
fangelsinu veit hann af frægð sinni
vegna þáttanna. „Joe hefur alltaf
langað til að vera stjarna og hann er
mjög spenntur fyrir vikið, að þetta
hefur vakið svona mikla athygli
fólks,“ sagði Rebecca Chailkin, að-
stoðarleikstjóri „Tiger King“ við fjöl-
miðilinn The Hollywood Reporter.
Joseph Maldonado-Passage, betur þekktur sem Exotic Joe, með einu af tígrisdýrunum sínum. Þættirnir Tígriskóngurinn
eða Tiger King hafa slegið í gegn, enda gengur þar á ýmsu. Exotic Joe situr nú í fangelsi og hefur farið fram á náðun.
AFP
Því er haldið fram í þáttaröðinni um Tígriskónginn að fleiri tígrisdýr séu í búr-
um í Bandaríkjunum, en lifi frjáls úti í villtri náttúrunni.
Tígriskóngur-
inn dregur
að í sóttkví og
samkomubanni
Tígriskóngurinn nefnast þættir á streymisveit-
unni Netflix sem hafa slegið í gegn í Banda-
ríkjunum og hafa gefið fólki í einangrun,
sóttkví og samkomubanni eitthvað annað að
tala um en kórónuveiruna.