Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.04.2020, Side 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.04.2020, Side 15
Leikhússtjórinn Vigdís sést hér við fyrstu skóflustunguna að Borgarleikhúsinu árið 1976 ásamt Steindóri Hjörleifssyni og fleirum. Þrettán ár liðu áður en húsið var formlega opnað. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon ar. Og maður skilur alveg að innstu hjartarót- um hvernig fólkinu líður. Þeir sem þurfa hugg- un skynja samkenndina.“ Fundu sig á Bessastöðum Hlutverk forsetans sem andi og sál þjóð- arinnar gat birst í mörgum mismunandi mynd- um. „Ég safnaði ljóðum í skápinn hans Gríms Thomsen,“ segir Vigdís, en í stofu Gríms á Bessastöðum er stór skápur, sem Vigdís kall- aði ljóðaskápinn. „Og einn daginn komu tveir piltar eða ungir menn sem sögðu mér að þeir væru skáld og spurðu hvort það væri rétt að ég safnaði ljóð- um. „Jú, lengi gert það.“ „Heldurðu að þú eigir eitthvað eftir okkur?“ spurðu þeir, en ég keypti þá allar ljóðabækur sem gefnar voru út á Íslandi. Ég sagði þeim að fara og gá, og þeir röltu inn í Grímsstofu. Svo þegar þeir komu aftur, sá ég þá í dyrunum að stóra salnum og spurði hvernig leitin hefði gengið, hvort þeir hefðu fundið eitthvað,“ segir Vigdís. „Og þá var eins og hefði verið kveikt á kerti yfir höfð- inu á þeim, „Já, við erum þarna,“ sögðu þeir og geisluðu af ánægju.“ „Það eru svona minningar sem ég geymi alla daga, þeir voru svo glaðir að hafa fundið sig á Bessastöðum!“ segir Vigdís. Blaðamaður veltir fyrir sér hvar annars staðar í víðri veröld gætu tveir ungir menn fengið að skoða sig um bústað þjóðhöfðingjans í svipuðum erindagjörðum. „Upplifun mín var alltaf sú að þjóðin væri vinur minn. Auðvitað var ég gagnrýnd stöku sinnum í pólitískum málum, eins og EES-málinu, en ég skynjaði aldrei annað en að þjóðin væri vinur minn.“ „Að sjálfsögðu gat ég farið í taugarnar á ein- hverjum, maður getur aldrei verið eins og allir óska og mér dettur ekki í hug að ég hafi verið það. Og kannski voru einhverjir fúlir yfir að ég skyldi hafa verið svona lengi þarna, því menn vilja alltaf breytingar, eitthvað nýtt.“ – En hvað varð þá til að þú lést gott heita? „Hamingjan góða, sextán ár eru langur tími!“ segir Vigdís, og bætir við að frá upphafi hafi hún alltaf verið hvött til að láta slag standa þegar kom að ákvörðunum sem skiptu máli. Rétt er að geta þess að embættistími Vigdís- ar var jafnlangur tíma Ásgeirs Ásgeirssonar sem einnig gegndi embættinu í fjögur kjör- tímabil. „Þetta var langur tími og ég er þakk- lát fyrir að hann skyldi vera farsæll.“ Embættið mótað af hefðum Spurð um áhrif fyrirrennara síns á embættið segir Vigdís að Kristján Eldjárn hafi verið sér mikil fyrirmynd. „Ég breytti engu frá því sem Kristján gerði, nema ég breytti því að segja „við Íslendingar“ en ekki „vér“. Einhverjum þótti það afleit breyting, en tungumálið hafði einfaldlega gengið til móts við nútíðina. En ég hugsaði mjög oft til þess þegar eitthvað kom upp á, hvað hefði nú Kristján gert, hvernig hefði hann hugsað þetta? Ég hafði hann alltaf sem fyrirmynd í huganum því hann var farsæll forseti og mikill öndvegismaður og þau bæði, hann og Halldóra kona hans.“ Talið berst að eðli forsetaembættisins, en það virðist oft draga dám af þeim sem situr á Bessastöðum hverju sinni, á sama tíma og ýmsar hefðir og venjur gilda um embættið. „Ég hef alltaf borið mikla virðingu fyrir hefð- um og hélt mjög fast í þær og geri enn. En ég áttaði mig snemma á því að hver verður að móta embættið eftir sinni persónu og áhuga- málum.“ Segja má að áhugi Vigdísar á tungumálum, og þá sér í lagi móðurmálinu, hafi mótað for- setatíð hennar en þegar í fyrstu innsetning- arræðu sinni vék hún sérstaklega að íslenskri tungu: „Tungan geymir sjóð minninganna, hún ljær okkur orðin um vonir okkar og drauma. Hún er hið raunverulega sameiningartákn okkar og sameiningarafl.“ Vigdís segir að sér hafi ávallt verið mjög annt um íslenska tungu og þyki mikilvægt að farið sé vel með hana. Það gildir enda enn það sem Vigdís sagði þá að orðin eru kastalar okk- ar Íslendinga. „Það skiptir mig miklu máli að farið sé vel með íslenska tungu. Hún er unaðs- lega falleg, þegar vel er með hana farið.“ Vigdís segist einnig hafa dálæti á íslenskri ljóðagerð, nánast frá Agli Skallagrímssyni og fram til vorra daga. „Íslensk tunga er eins og hún sé sköpuð fyrir ljóðagerð, hún hefur kom- ist af í gegnum alla tískustrauma áranna og finnur sér nýjan farveg til ljóðagerðar og gefur henni endalaust endurnýjaðan kraft.“ Ekki setið auðum höndum Í ár eru liðin fjörutíu ár frá því að Vigdís náði kjöri, og 24 frá því að hún lét af embætti. En því fer fjarri að hún hafi sest í helgan stein þó að aðrir tækju upp búskap á Bessastöðum. „Ég hef verið og er enn mjög heppin að hafa heilsu til þess að sinna vinnu minni, en það hef- ur margt drifið á daga mína síðan.“ Vigdís segir að sér hafi þótt sérstaklega vænt um það þegar UNESCO, mennta-, vís- inda- og menningarstofnun Sameinuðu þjóð- anna, gerði hana að velgjörðarsendiherra fyrir öll tungumál heimsins árið 1998. „Ég hafði oft hitt forstjóra UNESCO, Federico Mayor, á menningarsamkomum og ég spurði hann hvers vegna ég hefði verið valin til að gegna þessu starfi. Þá sagði hann að hann hefði svo oft heyrt mig tengja saman tungumál og þjóð- ararf. Þá hef ég eflaust verið að notfæra mér Snorra-Eddu,“ segir Vigdís með glettni í rödd- inni og bætir við því heilræði, að þurfi menn að flytja ræður á erlendri grund sé ágætt að sækja sér efni í Edduna. „Menn eru oft að sofna ofan í súpuna í opinberum kvöldverðum, en allir fara að hlusta ef sögð er góð saga, og sögurnar hans Snorra eru kjörnar fyrir slík ræðuhöld.“ Árið 2001 var svo Stofnun Vigdísar Finn- bogadóttur í erlendum tungumálum stofnsett við Háskóla Íslands. „Páll Skúlason rektor hringdi í mig um aldamótin og spurði hvort ég myndi fallast á að stofnun erlendra tungumála við Háskóla Íslands yrði sett á fót og nefnd eft- ir mér. Ég sagði auðvitað já takk og síðan þá blómstraði stofnunin undir stjórn Auðar Hauksdóttur, og gerir raunar enn. Þar kom svo að okkur tókst að byggja þetta hús yfir stofnunina, sem heitir því lýsandi nafni Ver- öld.“ Vigdís bætir við að sér þyki staðsetning hússins á Suðurgötu mjög viðeigandi þar sem Veröld er við hlið loftskeytastöðvarinnar gömlu sem byggð var til að tryggja samband við útlönd. „Og það er nú ekki hægt að hafa mikið samband við útlönd nema kunna eitt- hvað fyrir sér í erlendum tungumálum, en þar norður af kemur Hús íslenskra fræða, síðan Landsbókasafnið og Þjóðminjasafnið handan götunnar. Það má kalla þessa veglegu bygg- ingaröð við Suðurgötuna verndarvegg Há- skóla Íslands.“ Aðspurð segir Vigdís tungumálakennslu skipta miklu máli en þróunin hér hafi orðið sú að enskan sé ráðandi sem sé skiljanlegt. Enskukunnátta ein og sér geti hins vegar ekki komið í stað þess að læra önnur tungumál. „Fortíð og sál þjóða birtist í bókmenntum þeirra og við verðum að tileinka okkur tungu- mál og hvernig þjóðin hugsar á því máli ef við viljum kynnast þeim. Maður nær best til ein- staklinga með því að læra eitthvað í tungu þeirra,“ segir Vigdís og bætir við að hún beri þess vegna mikla virðingu fyrir þeim sem flytj- ist hingað til lands til að búa hér og leggi það á sig að læra íslensku til að aðlagast samfélag- inu. Tökum því sem að höndum ber Núverandi ástand hefur vart látið neitt manns- barn ósnortið. Áhrifa þess hefur meðal annars gætt á þetta viðtal, sem að öllu jöfnu hefði ver- ið tekið upp augliti til auglitis. Það hefur farið fram yfir síma og nýjar ljósmyndir af viðtals- efninu eru ekki í boði því ekki þykir áhættan þess virði á tímum heimsfaraldurs. „Þessi ógn sem að okkur steðjar snertir all- ar þjóðir, kórónuveiran er orðin að heimsfar- aldri. Getum við vænst þess að okkur verði hlíft? Ef okkur verður ekki hlíft verðum við að takast á við þetta heimsmein af æðruleysi og virðingu fyrir samborgurum okkar,“ segir Vig- dís um ástandið. „Við erum einnig farin að átta okkur á að af- leiðingarnar geti orðið langvinnar og þá einnig á efnahaginn. Við eigum enn engin ráð önnur en að taka því sem höndum ber, eins og reynd- ar Íslendingar hafa gert um aldir.“ Vigdís er sannfærð um að þjóðin muni leysa þennan vanda. „Öll él birtir upp um síðir.“ Vigdís Finnbogadóttir, fjórði forseti lýðveldisins ásamt þeim sjötta, Guðna Th. Jóhannessyni, núver- andi forseta, við opnun sýningar um fullveldi Íslands á hundrað ára afmæli þess árið 2018. Morgunblaðið/Árni Sæberg Vigdís studdi vel við skógrækt á Íslandi. Hér gróðursetur hún þrjú tré í Barmahlíð með aðstoð tveggja drengja. Eitt tréð var fyrir drengi, eitt fyrir stúlkur og hið þriðja fyrir komandi kynslóðir. Vigdís tók á móti mörgum tignum gestum á forsetatíð sinni. Hér er hún ásamt Elísabetu II. Breta- drottningu á Fríkirkjuvegi árið 1990 og heilsuðu þeim sem komu til þess að sjá drottninguna. Morgunblaðið/RAX 12.4. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.