Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.04.2020, Page 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.04.2020, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.4. 2020 LÍFSSTÍLL á heimasíðu Hreyfils: hreyfill.is eða í App Store og Google Play SÆKTU APPIÐ Sæktu appið frítt á AppStore eða Google Play Hreyfils appið Pantaðu leigubíl á einfaldan og þægilegan hátt Þú pantar bíl1 3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn. 2 fylgist með bílnum í appinu Í okkar kenningu frá 2004 erfjallað um almenna þætti, semráða því hvernig færni og þekking lærist. Um er að ræða nokkra grunnþætti í öllu námi, sem snýst um efla færni og auka þekk- ingu. Fjórir mikilvægir þættir eru: 1. Markviss þjálfun: Það er gíf- urlega mikilvægt að þjálfuninni fylgi viss ákefð og hún sé markviss. Það er að segja að það sé skýrt hvaða þema/færni/svið viljum við bæta. Þjálfunin þarf líka að hafa eftirfylgni sem snýst um að fylgj- ast með hvernig gengur hjá þeim einstaklingum sem eru með í þjálf- uninni. Síðan er lykilspurning hversu marga tíma þjálfunin hefur varað. Magnús Carlsen, heimsmeistari í skák, hafði þjálfað sig í 6.000 tíma þegar hann var 13 ára og talið er að Wolfgang Amadeus Mozart hafi hlotið mörg þúsund tíma þjálfun á sviði tónlistar 6 ára gamall. Eins og flestir vita spilaði Mozart bæði pí- anó og fiðlu 4 ára gamall og það kom ekki að sjálfu sér. 2. Áskoranir miðað við færni: Sálfræðingurinn Mihaly Csiks- zentmihalyi benti árið 1975 á mik- ilvægi þess að gefa réttar áskoranir miðað við færni (e. action capacity). Þá kemst einstaklingurinn í flæði sem er mjög jákvætt fyrir nám. Svíinn Ericsson hefur með áratuga rannsóknum sýnt fram á mikilvægi áskorana fyrir nám. Þess vegna er fræðileg kunnátta kennarans/ þjálfarans/mentorsins í því sem er verið að þjálfa algjört lykilatriði eigi hann að geta fundið út hvaða áskoranir hver einstaklingur þarf. Það að láta álag miða við færni þarf líka að stjórna hvernig við vinnum með grunnfærni í lyk- ilgreinum á borð við læsi, stærð- fræði og náttúrufræði. Getur verið að það skorti á fræðilega kunnáttu í kennslufræði þessara mikilvægu faga sem eru mæld í PISA? Getur líka verið að markmiðin séu óljós, þjálfunin ekki næg og vöntun á eftirfylgni bæði í skólanum og heima? 3. Jákvæð við- brögð: Að gefa já- kvæð viðbrögð er mikilvægt fyrir nám. Það stuðlar bæði að því að styrkja net af taugafrumum sem eru notuð (dóp- amín styrkir samband milli tauga- frumna) og er hluti af eftirfylgni sem er mikilvægt. Hvar stendur einstaklingurinn í því sem mark- miðið er að bæta sig í. Maður getur munað allt sitt líf jákvæða styrk- ingu sem vissir kennarar, þjálfarar eða aðrir gáfu manni. Það á þátt í að styrkja bæði sjálfsmynd og hug- arfar grósku. 4. Sjálfseftirlit (e. self-monitor- ing): Að einstaklingurinn upplifi að hann geti ákveðna hluti. Þetta passar við kenningu Edelmans um styrkingu taugafrumuhópa með notkun. Ef til dæmis einstaklingur fær verkefni í stærðfræði sem hann leysir á það þátt í að í að styrkja innri áhugahvöt – ég gat þetta. Sama á við um einstakling sem hef- ur markvisst unnið með að bæta púttið í golfinu með mörgum end- urtekningum. Þegar hann sér að þjálfunin hefur virkað gefur það já- kvæða styrkingu. Það sem er mikilvægt er að reyna að leggja upp námið á þann hátt að þessir grunnþættir séu í hávegum hafðir. Í þessu samhengi vil ég nefna að við fengum vegleg- an styrk frá Norska tækni- og vís- indaháskólanum í Þrándheimi til að vinna að framúrskarandi kennslu innan háskólans. Þar vinnum við með hóp nemenda (150-200 stúd- enta) sem tekur eðlisfræði kúrs. Markmiðið er að vinna að því að gera kennsluna sem besta. Í því sambandi eru aðalmarkmið nám- skeiðsins sett upp sem nokkur þemu. Hvert þema hefur síðan ákveðið innihald sem getur verið lesið námsefni, hópverkefni, mynd- skeið og spurningar í ólíku formi. Mjög mikilvægt er að markmiðið sé klárt. Annað dæmi sem við erum að vinna með kemur úr tónlist- arnámi. Þar erum við að vinna að námskeiði fyrir nemendur í tónlist- arháskóla í Svíþjóð. Hvernig á námið að vera til að sem bestur ár- angur náist. Hvaða grunnþætti get- um við tekið með okkur úr tauga- vísindum inn í námssálarfræðina og kennslu/þjálfun sem tengist tónlist. Þar koma atriði eins og mikilvægi endurtekninga, formleiki og sér- hæfing sterkt inn. Eitt dæmi í viðbót er kennsla innflytjenda í Ósló í sambandi við lestrarfærni. Hvernig á að leggja upp kennsluna og námið þannig að sem bestur árangur náist. Í því samhengi var gífurlega mikilvægt að innflytjendur myndu læra norsku, þegar þeir stunduðu nám í norskum skólum. Rannsóknir hafa einnig sýnt mikilvægi norskukun- náttu innflytjenda í sambandi við að komast upp í framhaldsskóla og út í atvinnulífið. Notum þessa grunnþætti og efl- um nám. ’Maður geturmunað allt sitt lífjákvæða styrkingusem vissir kennarar, þjálfarar eða aðrir gáfu manni. Vísindi og samfélga Hermundur Sigmundsson hermundurs@ru.is Nám – markviss þjálfun, réttar áskoranir og eftirfylgni AFP Árangur krefst þrotlausrar æfingar. Magnus Carl- sen, heimsmeistari í skák, hafði setið sex þúsund tíma við skákborðið þegar hann var 13 ára og tal- ið er að Mozart hafi verið búinn að æfa sig í þús- undir klukkustunda þegar hann var sex ára. Hild- ur Guðnadóttir hefur náð stórkostlegum árangri og hefur ugglaust setið við í ófáar klukkustundir.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.