Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.04.2020, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.04.2020, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.4. 2020 hafðu það notalegt handklæðaofnum Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177 Eigum úrval af 08.00 Strumparnir 08.20 Blíða og Blær 08.45 Dóra og vinir 09.05 Mæja býfluga 09.20 Zigby 09.30 Mia og ég 09.55 Abby Hatcher 10.20 Ævintýri Tinna 10.40 Rabbit School 12.00 Nágrannar 12.20 Nágrannar 12.40 Nágrannar 13.05 American Woman 13.25 Borgarstjórinn 13.55 Jamie & Jimmy’s Food Fight Club 14.45 The Great British Bake Off 15.40 Friends 16.10 War on Plastic with Hugh and A 17.10 Friends 17.40 60 Minutes 18.26 Veður 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.40 Að temja drekann sinn 3 20.25 Dark Phoenix 22.20 Braveheart 01.15 Manifest ÚTVARP OG SJÓNVARP Sjónvarp Símans RÚV Rás 1 92,4  93,5 Omega N4 Stöð 2 Hringbraut 20.00 Búðin – Heimildamynd um Bjarna Har 20.30 Ystafell – Skipulag í óreiðunni 20.30 Búðin – Heimildamynd um Bjarna Har 21.00 Tónleikar á Græna Hattinum 22.00 Tónlistaratriði úr Föstu- dagsþættinum Endurt. allan sólarhr. 16.00 Trúarlíf 17.00 Times Square Church 18.00 Tónlist 18.30 Ísrael í dag 19.30 Jesús Kristur er svarið 20.00 Omega 21.00 Tónlist 22.30 Gegnumbrot 23.30 Tónlist 20.00 Mannamál 20.30 Fyrirmyndir 21.00 21 - Úrval 21.30 Kátt er á Kili Endurt. allan sólarhr. 08.00 Shrek Forever After – ísl. tal 09.45 Barnyard – ísl. tal 13.09 How to Train Your Dragon – ísl. tal 14.44 Megamind – ísl. tal 16.19 Wallace and Gromit: The Curse of the Were- Rabbit – ísl. tal 17.44 Teddi týndi landkönn- uðurinn 2 – ísl. tal 18.30 Mannlíf 19.09 Love Island 20.00 Jarðarförin mín 20.35 Tveir mánar 21.35 Venjulegt fólk 06.55 Bæn og orð dagsins. 07.00 Fréttir. 07.03 Í vængjuðu myrkri: William Heinesen. 08.00 Morgunfréttir. 08.05 Kristur er upprisinn. 09.00 Fréttir. 09.03 Samtal. 10.00 Fréttir. 10.13 Bók vikunnar. 11.00 Guðsþjónusta í Dómkirkj- unni. 12.00 Hádegisútvarp. 12.20 Hádegisfréttir. 12.40 Veðurfregnir. 13.00 Víkingur Heiðar býður heim. 14.30 Faðir og sonur: Smásaga. 15.00 Útvarpsleikhúsið: Ferðalög. 15.30 Neðanmáls. 16.00 Síðdegisfréttir. 16.05 Diddú. 17.25 Orð af orði. 18.00 Kvöldfréttir. 18.10 Borgarmyndir. 18.50 Veðurfregnir. 18.53 Dánarfregnir. 19.00 Kvöldstund með Mozart. 19.40 Ávarp Forseta Íslands. 19.55 Hátíðarhljómar. 21.07 Í húsi skáldsins. 22.00 Fréttir. 22.05 Veðurfregnir. 22.10 Í víngarðinum. 23.10 Frjálsar hendur. 24.00 Fréttir. 00.05 Næturútvarp Rásar 1. 07.15 KrakkaRÚV 07.16 Begga og Fress 07.29 Lalli 07.36 Tulipop 07.40 Molang 07.43 Klingjur 07.54 Minnsti maður í heimi 07.55 Hæ Sámur – 43. þáttur 08.02 Hrúturinn Hreinn 08.09 Bréfabær 08.20 Letibjörn og læmingj- arnir 08.27 Stuðboltarnir 08.38 Konráð og Baldur 08.50 Nellý og Nóra 09.00 Múmínálfarnir 09.23 Ronja ræningjadóttir 09.45 Krakkafréttir vikunnar 10.00 Pöndukrútt 10.45 Landakort 11.00 Hátíðarguðþjónusta í Dómkirkjunni 12.00 Hopp 13.30 Árný og Daði í Kambó- díu 14.00 Blaðamannafundur vegna COVID-19 14.40 Herra Bean 14.55 Heimsending frá Sinfón- íuhljómsveit Íslands 16.45 Hinn Íslenzki Þursaflokk- ur 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 KrakkaRÚV 18.01 Söguspilið 18.25 Lífsins lystisemdir 19.00 Fréttir 19.25 Íþróttir 19.30 Veður 19.40 Ávarp forseta Íslands 19.55 Goðheimar 21.40 Háski – fjöllin rumska 22.25 Héraðið 23.55 The Post 13 til 16 Pétur Guðjóns Góð tónlist og létt spjall á sunnudegi. 16 til 18 Tónlistinn Topp40 með DJ Dóru Júlíu Einn vinsælasti plötusnúður landsins kynnir vinsæl- ustu lög landsins á K100. Tónlistinn er eini opinberi vinsældalisti landsins, unninn upp úr gögnum frá Fé- lagi hljómplötuframleiðanda. 18 til 00 K100 tónlist Besta blandan af tónlist á K100 í allt kvöld. Ný rannsókn hefur leitt í ljós hvað máttur tónlistar er mik- ill. BAST hefur undanfarin ár rannsakað jákvæð áhrif þess að hlusta á tónlist. Í nýjustu rannsókn BAST kom í ljós að 9 mínútur af tónlist geti gert mann glaðan og að 13 mín- útur geti losað um sorg og erfiðar tilfinningar. Dóra Júlía mælir með því að setja saman lagalista með lögum sem láta okkur líða vel og lætur því fylgja með nokkur lög sem virka vel fyrir hana. Dans gleðinnar – Vilhjálmur Vilhjálmsson Vikivaki – Helgi Björnsson Here comes the sun – The Beatles I Feel Love – Donna Summer Sunny – Boney M. Unwritten – Natasha Bedingfield I Want To Break Free – Queen Ljósi punkturinn með Dóru Júlíu: Máttur tónlistar Á níunda áratugi síðustu aldarvar hægt að hringja í Vel-vakanda í Morgunblaðinu og koma á framfæri skilaboðum til handa þjóðinni. Ekki var óalgengt að menn gerðu þetta úr nafnnúm- erum sínum (muniði eftir þeim?) eins og sá sem sló á þráðinn og fékk símtalið birt 21. maí 1983 undir fyr- irsögninni „Popp og rokk og djass hæfa ekki í morgunútvarpi“. Þar stóð: „0333-2306 hringdi og hafði eftirfarandi að segja: – Mig langar til að beina þeim tilmælum til stjórnenda útvarpsþáttarins Gull í mund að minnka fyrir alla muni allt þetta popp og rokk og djass. Þessar tegundir tónlistar finnst mér ekki eiga við í morgunútvarpi, enda áreiðanlega ekki svo mikið af ung- lingum, sem hlustar á þessum tíma. Yfirleitt er allt of mikið af músík í þessum þætti. Það er eins og stjórn- endurnir hafi ekki nógu mikið af töðluðu orði til að fara með. Á föstu- dögum er t.d. heilum hálftíma varið til að kynna dagskrárliðinn „Tíu á toppnum“. Hvað á þetta nú að þýða? Þeir sem vilja hlusta á þennan þátt, geta bara hlustað, þegar hann er á dagskrá. Það er alveg óþarfi að spila helminginn af lögunum fyrirfram. Svo mættu dömurnar sem kynna tala svolítið hægar. Það er eins og lífið liggi við að koma næstu hávaða- plötu á fóninn. Það var drengur að spyrjast fyrir um það einn morguninn, hvort ekki væri hægt að hafa barnasöguna fyrr á morgnana. Ég vil benda á að vel væri hægt að hafa hana með í þess- um þætti.“ Kirkjunnar menn voru at- kvæðamiklir á vettvangi Velvakanda þennan sama dag. Þannig vildi Bernharður Guðmundsson, frétta- fulltrúi þjóðkirkjunnar, koma eft- irfarandi skýringu á framfæri vegna athugasemdar í dálkum dagblaðsins um titil dr. Sigurbjörns Einarssonar biskups: „Vígður prestur er áfram prestur þótt hann sé ekki lengur sóknarprestur. Læknir er læknir, þótt hann gegni ekki lengur embætti héraðslæknis. Sá sem hefur verið vígður biskup, heldur áfram að vera biskup, þótt hann gegni ekki lengur embætti biskups Íslands sem er embættisheiti biskups í starfi. Það er því enginn fyrrverandi biskup, hinsvegar er Sigurbjörn biskup fyrrverandi biskup Íslands. Eðlileg notkun titla er þess vegna, er rætt er um núverandi og fyrrver- andi biskup Íslands. Herra Pétur Sigurgeirsson biskup Íslands. Dr. Sigurbjörn Einarsson biskup.“ Það er full ástæða til að skerpa á þessu í dag, árið 2020. Biskup er og verður biskup enda verður það víst enginn óbarinn. Niður með vopnin Séra Árelíus Níelsson skrifaði líka í blaðið: „Ég skora á alla, en ekki síst presta og stjórnmálagarpa, að lesa grein hins unga guðfræðings, Péturs Þorsteinssonar, í Morgunblaðinu 18. maí sl., bls. 34. Þar er mál dagsins í mínum huga: „Niður með vopnin“, rætt af frábærri snilld hins víðsýna friðarboða, um það „að hatur breyt- ist í ást, myrkur í ljós, öfund í ánægju, óheilindi í heilindi“. Stöndum því öll sem eitt gegn hernaðarkapphlaupi austurs og vesturs. Það boðar ekkert annað en eiturmorð allrar heimsbyggðar, með brjálaða menn í broddi fylkingar. Stöndum saman um brauð handa hungruðum heimi til lífs og starfs í stað vopna handa vesælum stjórn- málabrjálæðingum til að eyða og myrða. Heill þessum unga guðfræð- ingi. Hann er hafinn yfir alla fjötra kennisetninga og bókstafstrúar.“ 0333-2306 hefur örugglega ekki hlustað mikið á Purrk Pillnikk. Morgunblaðið/Einar Falur TÍMARNIR BREYTAST OG MENNIRNIR MEÐ Ekkert popp og rokk á morgnana Dr. Sigurbjörn Einars- son biskup var aldrei fyrrverandi biskup. Morgunblaðið/RAX

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.