Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.04.2020, Blaðsíða 2
Hver ert þú?
Ég heiti Carlotta og er frá Jamaíka og flutti til London rúmlega
tvítug. Síðar flutti ég til Íslands en ég á íslenskan mann, son og
dóttur. Ég er heilsusálfræðingur og ráðgjafi og flakka mikið á
milli Íslands og London og var byrjuð í doktorsnámi í heilsusál-
fræði en hef ekki klárað því ég fór að vinna í Afríku.
Hvers vegna fórstu af stað með veftímarit um
fólk af erlendu bergi brotið?
Ég sá hversu mikill fjölbreytileiki er á Íslandi núna. Hér eru
svo margir útlendingar sem hafa svo mikið til málanna að leggja
en hafa ekki fengið tækifæri. Mig langaði að sýna þetta fólk í
réttu ljósi og ákvað að stofna tímaritið Erlendur. Fullt af erlendu
fólki hér býr yfir mikilli þekkingu eða hæfileikum og ég vildi að Ís-
lendingar fengju að kynnast því. Í tímaritinu verða viðtöl við fólk frá
mismunandi löndum með alls konar bakgrunn og frá ólíkri menningu.
Mig langaði að sýna að við gætum öll búið saman í sátt og öll lagt eitt-
hvað til samfélagsins. Tímaritið er til að fræða fólk og sýna þann menn-
ingarlega fjölbreytileika sem hér þrífst. Allt þetta fólk hefur sögu að
segja.
Hvaða efni er í fyrsta tölublaði?
Við erum með viðtal við konu að nafni Patience sem rekur afríska verslun á
Íslandi. Einnig er stutt viðtal við dóttur mína Biöncu, en hún lýsir því hvernig
er að vera unglingur af blönduðum kynþætti á Íslandi.
Ertu með fleiri hugmyndir fyrir næstu tölublöð?
Já, mig langar að ná til erlends fólks úti á landi. Svo langar mig að hafa fleiri
karlmenn í því tölublaði. Þess má geta að ég mun fá Íslendinga til að skrifa í
tímaritið líka. Hugmyndin er að fá fólk til að segja frá því hvernig það tekst á við
þær breytingar sem fylgja því að setjast að í nýju landi. Mig langar að sýna Ís-
lendingum jákvæðar hliðar á innflytjendum, en tímaritið er ætlað bæði Íslend-
ingum og erlendum borgurum.
CARLOTTA TATE-OLASON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Erlendur á
netinu
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.4. 2020
Þú veist að það er kóróna í gangi!“ sagði stúlkan sem varð á vegi mínumá heilsubótargöngunni í vikunni, varla meira en sex ára. Já, ég kann-aðist við það. „Þess vegna verða að vera tveir metrar á milli okkar,“
hélt hún áfram af röggsemi. Já, ég kannaðist einnig við það. „Það á líka við
um hundinn!“ Hundurinn skildi það, alltént að hún væri að tala um sig. Starði
fyrst rannsakandi á stúlkuna, síðan á mig. En hreyfði engum andmælum.
Það er gaman að því hvað þessi þjóð, sem er óþekkt og húsbóndaóhollusta í
blóð borin, er orðin gegnin og lætur vel að stjórn. Annað gott dæmi er stút-
ungskall sem allt í einu hljóðaði upp
yfir sig í kælinum í kjörbúðinni:
„Elskan mín, við þurfum að drífa
okkur héðan út! Það eru miklu fleiri
en tuttugu hérna inni.“ Á því augna-
bliki hefur honum ugglaust liðið eins
og Jóni Þór pírata í þingsal í vikunni.
Alþingi okkar alltaf til fyrirmyndar.
Því getum við treyst. Og hvaða
ósvífni að klína þessu á forseta? Eins
og hann ráði einhverju.
Annars mæli ég ekki með því að
menn hósti mikið í kjörbúðum þessa
dagana. Varð vitni að slíku atviki í
vikunni og enda þótt aumingja
maðurinn fylgdi ýtrustu leiðbein-
ingum og hóstaði samviskusamlega í
eigin handarkrika uppskar hann
sama skerandi augnaráð og United-maður í Liverpool-partíi.
Auðvitað reyna samkomubann og stíf ein- og innivera á. Þannig galaði
ókunnug kona af svölum þegar ég var að koma út úr verslun á dögunum: „Ég
ætla að drepa þig!“ Eitt augnablik hélt ég að hún væri að tala við mig en orð-
ið sem fylgdi á eftir – og alls ekki er hægt að hafa eftir á síðum þessa blaðs –
benti afdráttarlaust til þess að hún væri að tala við konu en ekki karl. Að því
sögðu hvarf konan af svölunum en svalirnar á íbúðinni fyrir ofan fylltust í
staðinn af furðu lostnu fólki. „Hvað? Hvar? Hver?“
Þrátt fyrir allt virðist ganga bærilega hér um slóðir að sigla milli skers og
báru í þessum skæða heimsfaraldri – 7-9-13 – og stuðningur við þríeykið
góða er almennur í landinu. Að vísu finnst mér þetta orð „þríeykið“ allt of
máttlaust og óspennandi fyrir þennan skelegga hóp. Hvers vegna í ósköp-
unum brenndum við af í því dauðafæri að kalla þau „Þrjú á palli“? Ég meina,
þau byrjuðu tvö-fundina á pallborði áður en þau færðu sig yfir á púlt. Svo
tóku þau auðvitað lagið með miklum bravör ásamt landsliði músíkanta. Það
hefði átt að duga til að geirnegla þetta.
Þú veist að það
er kóróna í gangi!
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’ Enda þótt aumingjamaðurinn fylgdi ýtr-ustu leiðbeiningum oghóstaði samviskusamlega
í eigin handarkrika upp-
skar hann sama skerandi
augnaráð og United-
maður í Liverpool-partíi.
Unnur Eir Björnsdóttir
Nei, ekki lengur. Það var á dagskrá
og við áttum að vera farin.
Förum á næsta ári í fyrsta lagi.
SPURNING
DAGSINS
Eru ein-
hver áform
um utan-
landsferðir
á næst-
unni?
Örn Bergmann
Já, átti að fara til Danmerkur 1. maí
en fresta því til sumars eða hausts.
Dagný Ólafsdóttir
Nei, það var plan að fara til Ítalíu í
júlí. Ég held það verði ekki.
Sigurður Örn Pétursson
Já, reyndar. Ég ætla í brúðkaup til
Svíþjóðar í júlí ef það gengur upp.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri og
umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Eggert Jóhannesson
Veftímaritið Erlendur er nú komið í loftið á vefslóðinni erlendurmagazine.com og einnig
má finna það á Facebook undir erlendurmagazine. Í Erlendi má finna fjölbreytilegt efni um
innflytjendur á Íslandi og líf þeirra. Carlotta Tate-Olason er stofnandi og ritstjóri tímaritsins.
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
Nú finnur þú
það sem þú
leitar að á
FINNA.is