Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.04.2020, Síða 4
HEIMURINN
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.4. 2020
Sölustaðir: Flest apótek, heilsuhús og heilsuhillur stórmarkaða Nánar á artasan.is
Aldrei haft jafn þykkt hár
„Eftir að hafa misst allt hár í krabbameinsmeðferð byrjaði ég að taka Hair Volume
frá New Nordic. Eftir 4-6 vikur fór hárið að vaxa aftur og ég hef aldrei haft jafnt löng
augnhár, þykkar augabrúnir og þykkt hár eins og núna og það hvarflar ekki að mér að
hætta að taka þetta bætiefni inn.“
Edda Dungal
Hair Volume inniheldur
jurtir og bætiefni sem sem
eru mikilvæg fyrir hárið og
getur gert það líflegra
og fallegra.
Er hárlos eða þunnt hár að plaga þig?
Þegar Leo George Blair leitdagsins ljós í fyrsta sinn á fal-legum vordegi, 20. maí 2000,
varð hann fyrsta barnið, alltént skil-
getna barnið, sem sitjandi forsætis-
ráðherra Breta hafði eignast í meira
en eina og hálfa öld en faðir hans er
Tony Blair, sem var forsætisráð-
herra Bretlands frá 1997 til 2007.
Næstur á undan Leo var Francis
Russell, sonur Johns Russells lá-
varðs, en hann fæddist 11. júlí 1849.
Sem hefur ugglaust verið fallegur
dagur líka. Russell lávarður gegndi
embætti forsætisráðherra í tvígang,
fyrst frá 1846 til 1852 og aftur frá
1865 til 1866. Í seinni lotunni hafði
hann að vísu verið umaðlaður og
gekk undir nafninu John Russell,
fyrsti jarl af Russell. Þeir kunna
þetta, Bretarnir.
Þetta langa hlé sætir í sjálfu sér
ekki svo miklum tíðindum, af tvenn-
um ástæðum. Annars vegar er það
erilsamt starf að vera forsætisráð-
herra í Bretlandi og menn hafa fyrir
vikið alla jafna ekki mikinn tíma til
að standa í barneignum. Hins vegar
eru menn oftar en ekki komnir á
miðjan aldur þegar þeir setjast í
þann ágæta stól og fyrir vikið búnir
að sinna sínum barneignum áður.
Standi hugur þeirra yfir höfuð til
þess.
Einmitt þess vegna er merkilegt
að Leo Blair er alls ekki seinasta
barnið til að fæðast húsráðendum í
Downingstræti 10. Florence Rose
Endellion Cameron fæddist 24.
ágúst 2010, rúmum þremur mán-
uðum eftir að faðir hennar, David
Cameron, tók við embætti forsætis-
ráðherra. Stúlkunni lá svolítið á í
heiminn en hún fæddist þremur vik-
um fyrir tímann. Cameron-hjónin
voru þá í sumarleyfi og er þriðja eig-
innafn dótturinnar, Endellion, eftir
þorpi í Cornwall, þar sem þau voru
stödd þegar sú stutta knúði dyra.
Florence Rose Endellion er fjórða
og yngsta barn Cameron-hjónanna
en David var að verða 44 ára þegar
hún fæddist. Eiginkona hans, Sam-
antha Gwendoline, var 39 ára. Þau
misstu elsta son sinn, Ivan, árið
2009, aðeins sex ára gamlan en hann
glímdi alla ævi við erfið veikindi.
Blair-hjónin voru aðeins eldri þeg-
ar Leo slóst í hópinn; Tony 47 ára og
Cherie að verða 46 ára. Leo er
yngstur fjögurra barna þeirra.
Faðir 56 ára
Það er þó enginn aldur til að eignast
barn en núverandi forsætisráðherra,
Alexander Boris de Pfeffel Johnson,
verður nálægt 56 ára afmæli sínu
þegar fyrsta barn hans og nýbak-
aðrar unnustu hans, Carrie Sym-
onds, kemur í heiminn snemmsum-
ars. Johnson á afmæli 19. júní.
Symonds er heldur yngri, 32 ára síð-
an í mars. Þetta verður hennar
fyrsta barn en Johnson á fjögur
börn frá hjónabandi sínu með lög-
manninum Marinu Wheeler og eitt
með listráðgjafandum Helen Mac-
Intyre. Sem frægt er þá er Symonds
fyrsti makinn til að búa í Downing-
stræti 10 án þess að hnappheldan
hafi verið lögð á hann.
Sem frægt var áttu Tony og Cher-
ie Blair ekkert endilega von á Leo
litla og voru fyrir vikið eilítið rjóð í
vöngum þegar þau gerðu fjölmiðlum
grein fyrir þunguninni. Patrick
Wintour, blaðamaður The Guardian,
rifjaði nýlega upp að þegar hann sat
á skrifstofu forsætisráðherrans dag-
inn eftir hafi val þess síðarnefnda á
getnaðarvörnum borið á góma.
„Þetta er örugglega í fyrsta og
síðasta skipti sem mál af þessu tagi
hefur komið upp í viðtali við sitjandi
forsætisráðherra. En svíki minnið
mig ekki þá hafði ritstjóri minn á
þessum tíma nákvæmlega engan
áhuga á borgarstjórakosningunum í
Lundúnum árið 2000, sem voru til-
efni viðtalsins, heldur aðeins hvernig
Blair, sem hafði setið í þrjú ár í emb-
ætti og átti undir högg að sækja
vegna ástandsins á Norður-Írlandi,
hafði alveg óvart orðið faðir í fjórða
sinn og hvað það myndi þýða fyrir
embættisferil hans.“
Leo Blair bjó í Downingstræti 10
fyrstu sjö ár ævinnar enda þótt sí-
vaxandi hluti þjóðarinnar sækti það
stíft að hann flytti út, einkum allra
seinustu árin, þegar vinsældir föður
hans fóru hratt dvínandi.
Ekki fer mörgum sögum af lífi
piltsins síðan en þó er staðfest að
hann gekk í Verkamannaflokkinn
árið 2016 og faðir hans hefur látið
hafa eftir sér að Leo sé glögglæs á
stjórnmál. Hvort hann eigi eftir að
flytja aftur inn á bernskuheimili sitt
er of snemmt að segja til um.
Storkafár í
Downingstræti
Barnið sem Boris Johnson og Carrie Symonds eiga
von á í sumar verður þriðja barnið sem hús-
bændur í Downingstræti eignast frá aldamótum.
Næsta barn þar á undan fæddist árið 1849.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Leo Blair (fyrir miðju) kveður Downingstræti 10 árið 2007 ásamt foreldrum sínum, Tony og Cherie, og systkinum, Eu-
an, Kathryn og Nicholas. Hann bjó þar fyrstu sjö ár ævi sinnar en fæðing Leos sætti miklum tíðindum vorið 2000.
AFP
Florence Cameron var ekki alveg eins upplitsdjörf þegar hún kvaddi æsku-
heimilið 2016, ásamt foreldrum sínum og systkinunum Nancy og Arthur.
AFP
Mörg börn hafa hlaupið um
ganga Downingstrætis 10 gegn-
um tíðina enda þótt aðeins Leo
Blair og Florence Cameron hafi
búið þar frá fæðingu og senn
barnið sem Carrie Symonds
ber undir belti.
Gordon Brown, forsætisráð-
herra 2007 til 2010, var þar
með tvo kornunga syni þeirra
Sarah Macaulay. Sá yngri var
ekki orðinn eins árs þegar hann
flutti inn.
Theresa May, forveri Borisar
Johnsons í starfi, var á hinn bóg-
inn barnlaus.
Hermt er að Harold
Macmillan, sem var
forsætisráðherra
Breta frá 1957 og
1963, hafi haft yndi af
því að halda barnapartí
á staðnum til að lyfta
andrúmsloftinu,
einkum um
helgar. Þrjú
af fjórum
börnum
hans voru
þó komin
yfir tví-
tugt þegar faðir þeirra tók við
embætti.
Öðrum fannst betra að hafa
skörp skil milli heimilis og skrif-
stofu. Þannig kom Mary, eigin-
kona Harolds Wilsons, sem var
forsætisráðherra í tvígang, fyrst
frá 1964 til 1970 og aftur frá
1974 til 1976, sér upp bjöllu á
efri hæðinni, þar sem hjónin
bjuggu ásamt tveimur sonum
sínum, til að fyrirbyggja að
opinberir starfsmenn ónáðuðu
hana. Utan fjölskyldumeðlima
komust engir þar í gegn nema
hundurinn og kötturinn. Og
var að vonum sláttur á
þeim félögum.
Norma, eiginkona
Johns Majors, gekk enn
lengra en hún bjó um
tíma annars staðar en í
Downingstræti
ásamt börn-
um þeirra
tveimur
meðan hann
var í emb-
ætti frá
1990 til
1997.
LÍF OG FJÖR Í BÚSTAÐNUM GEGNUM ÁRIN
Blessað barnalán
Gordon
Brown