Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.04.2020, Page 8
KÓRÓNUVEIRAN
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.4. 2020
Ég var að vinna sem leið-sögumaður hjá The LavaTunnel en ég er menntaður
ferðamálafræðingur,“ segir hin 26
ára Sóley Rut Sigurðardóttir.
„Þetta var fyrsta vinnan sem ég
fékk eftir útskrift en ég byrjaði í
fyrra. Ég fer með ferðamenn inn í
Raufarhólshelli í Þrengslunum,“ seg-
ir Sóley.
„Það hefur verið rosalega mikið að
gera og alveg til síðasta dags. Rauf-
arhólshellir er 1,4 kílómetrar að
lengd; fjórði stærsti hellir Íslands og
bjóðum við upp á ýmsar tegundir
ferða,“ segir hún.
„Mér finnst æðislegt að vinna við
þetta enda mikil útivistarmann-
eskja.“
Hellinum lokað
Sóley segir að í upphafi þegar kór-
ónuveiran hafi farið að láta á sér
kræla hafi þau hert allar reglur um
hreinlæti.
„Við vorum alltaf að þrífa og
spritta alla hjálma eftir hverja notk-
un. Það var mikið að gera alveg þar
til farið var að loka landamærum alls
staðar. Samt voru einhverjir ferða-
menn að koma. En svo 17. mars var
okkur tilkynnt að við þyrftum að fara
niður í 25% vinnu eða segja upp,“
segir Sóley sem valdi að halda áfram.
„Ég vil vera með vinnu þegar þetta
er allt búið. Ég er í 25% vinnu en er
samt ekkert að vinna því það er ekk-
ert að gera. Það var tekin ákvörðun
um að loka þann 24. mars,“ segir
hún.
„Ég var áður með yfirvinnutekjur
og á hærri taxta fyrir helgarvinnu.
Ég er því að missa mjög miklar
tekjur þrátt fyrir að ríkið komi til
móts við þessi 25%,“ segir hún.
Farið að leiðast
Hvað hefurðu fyrir stafni?
„Ég reyni alltaf að finna eitthvað
og fer daglega út að hreyfa mig. Ég
er að æfa náttúruhlaup þrisvar í viku.
Svo æfi ég hér heima,“ segir Sóley
sem býr í stúdíóíbúð á Seltjarnarnesi
ásamt kærasta sínum.
„Ég byrjaði loksins að hlusta á
podköst og svo er ég að þrífa og end-
urraða öllu hér endalaust.“
Er þér farið að leiðast?
„Já, mér er farið að leiðast.“
Hefurðu einhverja hugmynd um
hvenær þú ferð aftur að vinna?
„Ég hef enga hugmynd. Ég er í al-
gerri óvissu. Ég er glaðlynd að eðl-
isfari en þetta er búið að taka meira á
en ég hélt,“ segir hún.
„Síðasta sem við heyrðum var að
það yrði ekki opnað í bráð. Kannski
vilja Íslendingar koma og sjá hellinn
og njóta þess sem landið hefur upp á
að bjóða,“ segir hún.
„Ég er að vonast til að fá að vinna
eitthvað í sumar,“ segir Sóley og seg-
ist hafa íhugað að fara í mastersnám í
haust ef enga vinnu er að fá.
LEIÐSÖGUMAÐUR HJÁ THE LAVA TUNNEL
„Ég er í algerri
óvissu“
Sóley Rut Sigurðardóttir saknar vinn-
unnar sinnar í Raufarhólshelli.
Morgunblaðið/Ásdís
Ég hef verið flugfreyja í tutt-ugu og tvö ár. Ég elskastarfið mitt og fyrirtækið
sem ég vinn hjá,“ segir Lára Gyða
Bergsdóttir, flugliði hjá Icelandair.
Hún er nú í 25% vinnu og fram-
tíðin er óljós.
Áhyggjur af fyrirtækinu
„Laun okkar skerðast umtalsvert
og ekki sér fyrir endann á því. Ég
fer ekki í næsta flug fyrr en í maí,
og jafnvel ekki fyrr en í júní en við
fáum nú vinnuplan með styttri fyr-
irvara en áður,“ segir Lára Gyða.
„Ég hef ég svakalegar áhyggjur
af fyrirtækinu okkar. Við höfum áð-
ur komist í gegnum mikla erfiðleika
í gegnum tíðina; árásina á Tvíbur-
aturnana 2001, efnahagshrunið
2008, gosið í Eyjafjallajökli 2010 og
óviðráðanleg veður svo eitthvað sé
nefnt. Við sem teymi höfum ávallt
unnið okkur út úr þeim erfiðleikum
sem að hafa steðjað; við erum ein-
stakur hópur og vinnum hjá frá-
bæru fyrirtæki og ætlum okkur að
komast út úr þessu,“ segi hún.
„Ég vona að við getum staðið af
okkur þennan storm. Ég veit auð-
vitað ekki hvað gerist þegar við för-
um að fljúga aftur. Hversu mörgum
þarf að segja upp? Það er alveg
viðbúið að fleirum verði sagt upp
en nú þegar hafa um það bil 200
manns misst vinnuna. Allir flugliðar
eru inni, eins og er, í 25% starfi.“
Þetta er mitt lífsstarf
Hvernig sérðu fyrir þér sumarið og
haustið?
„Ég stefni að því að eiga gott
sumar með mínum nánustu, geta
eytt meiri tíma með mömmu minni.
Geta sinnt mínu nærumhverfi af ást
og alúð.“
Nú er lítið útlit fyrir mikið flug
fram á haust og þá lítið um vinnu.
Hvernig leggst það í þig?
„Ég hef alltaf nóg að gera og
finn mér alltaf eitthvað. Ég vinn við
að vera að koma eða fara þannig að
það er jákvætt að ég geti verið
meira heima og farið að sofa á rétt-
mér af því að ég er óforbetranleg
Pollýanna. Það er til einskis að
vera með endalausar áhyggjur fyr-
irfram heldur betra að takast á við
hlutina þegar að þeim kemur,“ seg-
ir hún.
„Ég hef alveg hugsað þá hugsun
að mér yrði mögulega sagt upp en
ég ætla ekki að hafa áhyggjur af
því núna. Ég vona svo heitt og inni-
lega að það gerist ekki. Þetta er
mitt lífsstarf.“
Samvera með börnunum
Lára Gyða segist búa sig undir að
draga saman seglin á næstu mán-
uðum þar sem innkoman verður
minni, en hún er einstæð móðir og
því eina fyrirvinnan.
„Fyrst og fremst ætla ég að vera
róleg og njóta þess góða sem kem-
ur út úr þessu erfiða ástandi. Núna
er hér rútína og samvera með
börnunum sem er lúxus sem oft
hefur verið erfitt að halda í. Ég
ætla að nýta mér það núna. Svo er
ég nýflutt í nýtt hús og fæ þá allan
tímann í heiminum til að koma mér
vel fyrir. Svo tek ég stöðuna þegar
þar að kemur,“ segir Lára Gyða og
brosir.
„Við verðum að vona það besta
og trúa því að við getum staðið
þetta veður af okkur saman.“
um tíma og vaknað á réttum tíma.
Þannig að persónulega hef ég það
mjög fínt. Ég horfi á björtu hlið-
arnar. Það er stundum hlegið að
FLUGLIÐI HJÁ ICELANDAIR
„Óforbetranleg
Pollýanna“
Lára Gyða Bergsdóttir hefur unnið sem flugliði í 22 ár og segist elska starf sitt.
Morgunblaðið/Ásdís
AFP
„Á hverju eigum
við þá að lifa?“
Fjölmargar stéttir hafa orðið illa úti vegna kórónuveirunnar og eru þús-
undir manna nú atvinnulausar eða í 25% vinnu. Talið er að atvinnuleysi
gæti náð sögulegu hámarki á næstunni og allt að sautján prósent lands-
manna gætu orðið án vinnu. Ferðaþjónustan, flugbransinn, veitinga- og
skemmtanabransinn hafa orðið harðast úti. Morgunblaðið náði tali af
fimm einstaklingum sem horfa fram á breytta tíma.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is