Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.04.2020, Qupperneq 19
virkilega áhuga á og löngun til,“ segir Saga en
hún segir kerti hafa alltaf átt sérstakan sess á
hennar heimili. „Ég hef alltaf verið sjúk í kerti
og þegar við förum til útlanda fylgja alltaf nokk-
ur gæða ilmkerti með heim. Þau eru bæði fal-
legt skraut og fylla heimilið af góðum ilmi.“
Kertin frá ILM eru handgerð ilmkerti úr 100
prósent sojavaxi og leggja þau Saga og Hlynur
upp úr umhverfisvænni framleiðslu. „Við til
dæmis bjóðum upp á þann möguleika að við-
skiptavinir geti skilað notuðu ILM kertaglasi og
fengið áfyllingu af sínum uppáhaldsilmi.“
Auk góðs ilms er list áberandi á heimili þeirra
Sögu og Hlyns. „Ég elska falleg málverk og
styttur, það gerir svo mikið fyrir heimilið,“ segir
Saga og tekur fram að syttur sem hún á eftir
Sólveigu Hólm séu í uppáhaldi.
Hún á sér ekki uppáhaldshúsgagn né verslun.
Við höfum búið hér í rúmlega tvö ár. Viðféllum fyrir staðsetningunni og viðsáum mikla möguleika á að gera íbúðina
eins og við vildum hafa hana,“ segir Saga. Eld-
húsið og borðstofa renna saman í eitt og segir
Saga þann hluta íbúðarinnar vera í uppáhaldi
hjá sér en fjölskyldan er dugleg að elda saman
og borða góðan mat. Hún leggur mikið upp úr
því að láta sér líða vel á heimilinu. „Ég tel að það
skipti öllu máli miðað við þann tíma sem maður
eyðir á heimilinu.“
Saga starfar sem verkefnastjóri hjá Háskól-
anum á Reykjavík auk þess að vera eigandi
ILM. Áður en hóf störf hjá HR var hún í meist-
aranámi í markaðsfræði við skólann en hún seg-
ir hugmyndina að ILM hafa kviknað í náminu.
„Í náminu var mikil hvatning til þess að hugsa
út fyrir boxið og gera eitthvað sem maður hefur
„Ég kaupi bara það sem mér finnst fallegt og er
það ekki í neinni einni búð eða frá ákveðnum
hönnuði,“ segir Saga sem sækir innblástur bæði
á Pinterest og Instagram og segist elska að
skoða fallegar myndir af mismunandi heimilum.
Saga brennur fyrir það sem hún gerir og seg-
ir að fleiri vörulínur séu væntanlegar frá ILM.
Hún játar að vinnan við að setja á laggirnar ilm-
vörufyrirtæki sé flókin á köflum en með þol-
inmæði og ástríðu að vopni er ekkert of erfitt.
„Ef þú ert með ástríðu fyrir því sem þú ert að
gera þá verða flóknir hlutir skemmtilegir. Með
ILM þá tók framleiðsluferlið um þrjú ár. Mikil
vinna var lögð í það að fullkomna blönduna og
framleiðsluna áður en kertin yrðu sett í sölu.
Við leitumst eftir því að kertin brenni full-
komlega niður, sóti ekki, brenni jafnt og þétt og
gefi mildan ilm.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Saga Ýr Kjartansdóttir hefur
ástríðu fyrir heimili sínu.
„Ég kaupi bara það sem
mér finnst fallegt“
Saga Ýr Kjartansdóttir býr í fallegri 110 fermetra íbúð í Úlfarsárdal í Reykjavík ásamt
kærasta sínum, Hlyni Þór Árnasyni, og dóttur þeirra Leu. Saga hefur alltaf haft áhuga á
fallegri hönnun og hlutum sem fegra heimilið. Hennar eigin vörur setja meðal annars svip
á heimilið en þau Saga og Hlynur framleiða ilmkerti undir vörumerkinu ILM.
Guðrún Selma Sigurjónsdóttir gudrunselma@mbl.is
Saga hefur lengi verið sjúk í kerti og hannar nú
sín eigin ilmkerti undir nafninu ILM. Blómapott-
urinn er úr H&M Home.
19.4. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
VIVANT SPLENDID ROYAL STILLANLEGT RÚM FRÁ SERTA MEÐ HÖFUÐGAFLI
STILLANLEGT RÚMMEÐ ÞRÁÐLAUSRI FJARSTÝRINGU SEM KEMUR ÞÉR Í ÞÁ STÖÐU SEM ÞÉR HENTAR.
Splendid Royal heilsudýnan frá Serta er fimm svæða skipt pokagorma dýna þar sem
hreyfingar þínar trufla ekki rekkjunaut þinn. Góður stuðningur er við bakið en mýkra
gormakerfi er við axlir og mjaðmasvæðið. Þannig liggur þú alltaf með beina hryggsúlu
og nærð hámarks hvíld. Hægt er að sérsníða rúmið að þínum þörfum, velja um 3
mismunandi stífleika sem og fjórar mismunandi topp dýnur. Áklæðið utan um dýnuna
er mjúkt og slitsterkt bómullaráklæði, ofnæmisfrítt og andar vel.
Dýnan í rúminu er heil en efsta lag hennar fer í tvennt þegar rúmið er stillt upp, því
þarftu aldrei að hafa áhyggjur af því að bil komi á milli dýnanna.
Tilboð 374.925 kr.
Vivant Spledid Royal stillanlegt með gafli,
2x80x200 cm. Fullt verð: 499.900 Aukahlutir á mynd
eru náttborð.
STILLANLEGU
HEILSURÚMIN FRÁ C&J:
· Inndraganlegur botn
· Lyftigeta yfir 2 x 450 kg per botn
· Mótor þarfnast ekki viðhalds
· Tvíhert stálgrind undir botni
· Tveir nuddmótorar með tímarofa
· Þráðlaus fjarstýring með klukku,
vekjara og vasaljósi
· LED lýsing undir rúmi
· Hliðar og endastopparar svo
dýnur færist ekki í sundur