Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.04.2020, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.4. 2020
LÍFSSTÍLL
AKRÝLSTEINN
•Viðhaldsfrítt efni með mikla endingu
og endalausa möguleika í hönnun
•Sérsmíðum eftir máli
•Margir litir í boði
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.
Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
Ég er í sjálfskipaðri einan-grun og hef verið frá 12.mars. Ég hef ekkert farið
út úr húsi núna í rúmar fimm vik-
ur, nema út á svalir. Ég er með
undirliggjandi kvilla og orðin það
roskin að ég er í áhættuhópi. En
það sem gerði útslagið var að ég
sá myndir af gjörgæsludeildum á
Ítalíu og ég hugsaði með mér að
ef ástandið yrði svipað hér á landi
vildi ég ekki vera manneskjan sem
lenti á gjörgæslu og hefði ekki
þurft að vera þar. Ég vildi ekki
hafa það á samviskunni að taka
pláss frá öðrum. Ég er í aðstöðu
til þess að hlífa sjálfri mér og
heilbrigðiskerfinu,“ segir Nanna,
sem finnst einveran ágæt.
„Mér líður ágætlega einni en
það eina sem er erfitt er að fá
ekki að sjá barnabörnin. Eitt
barnabarnanna varð eins árs í vik-
unni en hin tvö eru fullorðin. Ég
tala við þennan litla í myndsímtali
næstum því á hverjum degi.“
Síðasta eggið búið
Nanna hefur nóg að gera, en hún
er ritstjóri hjá Forlaginu. Hún á
því auðvelt með að stunda vinnu
sína innan veggja heimilisins.
„Ég fæ valin verkefni sem ég
get sinnt hér heima. Mér leiðist
aldrei að vera svona ein, enda er
ég mikill einfari og fer til að
mynda oft ein í ferðalög. Ég sakna
ekki félagsskapar en ég heyri al-
veg í fólki og var í saumaklúbbi á
netinu um daginn. En ég hef ekki
hitt nokkurn einasta mann.“
Nanna notar tímann vel og eld-
ar ofan í sig hollan og góðan mat,
en hún tók þá ákvörðun þegar
tveir dagar voru liðnir af einangr-
uninni að láta hvorki kaupa fyrir
sig né senda sér heim mat.
„Ef ég hefði ákveðið þetta fyrir
fram hefði ég keypt aðeins meira
af ýmsu, en ég er alltaf mjög vel
birg af mat. Ég vildi sjá hvað ég
gæti haldið það lengi út að lifa af
því sem ég á í geymslum mínum.“
Hvernig hefur þetta gengið?
„Mjög vel. Ég á ótrúlegustu
hluti og hef fundið ýmislegt sem
ég var búin að gleyma að ég ætti.
Mér finnst þetta mjög spennandi
af því að margt kláraðist fljótt,
eins og ferska grænmetið, mjólk
og smjör. Ég á reyndar eftir eina
matskeið af smjöri sem ég er að
nota mjög sparlega,“ segir Nanna
og hlær.
„Síðasta eggið kláraðist um
helgina. En þá finnur maður eitt-
hvað í staðinn.“
Er með gott
hugmyndaflug
Nanna segir neyðina kenna naktri
konu að spinna og hefur hún þró-
að ýmsar nýjar uppskriftir í ein-
angruninni.
„Ég var að
gera hafrakúlur
um daginn með
döðlum og höfr-
um en átti ekki
smjör. Ég notaði
í staðinn niður-
soðnar baunir
sem ég maukaði.
Það virkaði alveg
ágætlega,“ segir
Nanna og bætir
við að sumt hafi
klárast fljótt en öðru eigi hún nóg
af enn.
„Ég átti dálítið af frosnu græn-
meti og niðursuðuvörum. Ég átti
líka smá af ostum eins og halloumi
og gráðost og brauðið baka ég
sjálf. Ég á alltaf nóg af geri og
hveiti.“
Nanna segir alla réttina sem
hún hafi eldað úr skápunum hafa
verið góða.
„Ég byrjaði svo að skrifa upp
uppskriftirnar og ekki endilega
með það í huga að aðrir myndu
nota þær heldur var þetta bara
dagbókin mín. Það er auðvitað svo
misjafnt hvað fólk á í skápunum
sínum en kannski fær það ein-
hverjar hugmyndir frá mér,“ segir
Nanna.
„Svo bý ég til álegg á brauð,
eins og túnfisksalat eða hummus.
Ég er með gott hugmyndaflug og
ég á tvö þúsund matreiðslubækur
þannig að mig vantar ekki heim-
ildir,“ segir Nanna og hlær.
Ekki eytt einni krónu
Hvað ætlarðu að halda þessu
áfram lengi?
„Ég reikna með að vera í ein-
angrun til 4. maí en er ekki viss
um hvort ég haldi þessu áfram í
þrjár vikur í viðbót; að kaupa ekk-
ert inn. Ég sagði í upphafi að ég
myndi endast jafnlengi og ég ætti
kaffi. Svo var það alveg að klárast
í gær eða fyrra-
dag og þá fann ég
kaffipakka í fryst-
inum. Þannig að
ég er góð í viku,
tíu daga í viðbót.“
Nanna segir til-
valið að nota
þessa skrítnu
tíma til að vinna
á mat sem til er í
skápum.
„Maður á ýmis-
legt sem er um að gera að nota og
svo er gott að nýta alla afganga
líka. Það er fínt gegn matarsóun.
Svo er þetta sparnaður; ég hef
ekki eytt einni krónu í mat í fimm
vikur,“ segir Nanna, sem veit ná-
kvæmlega hvað hún hyggst kaupa
þegar „matarkaupsbanninu“ lýkur.
„Það fyrsta sem ég ætla að
kaupa er nýr fiskur. Ég borða
yfirleitt mikið af fiski og kaupi
hann alltaf nýjan,“ segir Nanna að
lokum, en þess má geta að hægt
er að fylgjast með Nönnu í
einangruninni á nannarogn-
valdar.com.
Morgunblaðið/Kristinn
Matardagbók úr einangrun
Nanna Rögnvaldardóttir notar
tímann í einangrun til að finna upp
nýjar uppskriftir úr þeim hráefnum
sem til eru í skápunum.
Nanna Rögnvaldar-
dóttir hefur verið í
einangrun í rúmar
fimm vikur. Hún ákvað
fljótlega að kaupa
ekkert inn heldur nýta
það sem til væri í
skápunum.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
’ Ef ég hefði ákveðiðþetta fyrir framhefði ég keypt aðeinsmeira af ýmsu, en ég er
alltaf mjög vel birg af
mat. Ég vildi sjá hvað
ég gæti haldið það lengi
út að lifa af því sem ég
á í geymslum mínum.