Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.04.2020, Side 23
Ég á sjaldan fisk í frysti
svo að það hefur lítið
verið um hann í einangr-
uninni. Hins vegar á ég
þar yfirleitt rækjur og
hörpuskel og þar var líka
að finna frosnar grænar
baunir. Ég átti ekki beik-
on en það var til guan-
ciale, þurrverkuð grísa-
kinn frá Tariello í
Þykkvabænum, og hún
kom í staðinn.
200-250 g hörpuskel
125 g frosnar grænar
baunir
salt og pipar
1⁄3 sítróna
1 msk. ólífuolía
60 g guanciale (eða
beikon), skorið í teninga
¼ laukur, saxaður
olía eða smjör
1-2 radísur
Látið hörpuskelina þiðna
í sigti og þerrið hana svo
vel með eldhúspappír.
Setjið baunirnar í pott
með saltvatni og sjóðið
þær í 4 mínútur. Takið
svolítið af soði frá en
hellið svo baununum í
sigti. Takið 2-3 mat-
skeiðar af baunum frá en
setjið hitt í hakkara eða
matvinnsluvél ásamt sí-
trónusafa, pipar, salti, 2
msk. af baunasoði og 1
msk. af ólífuolíu (eða
smjöri ef það er til).
Maukið vel, þynnið með
baunasoði ef þarf,
smakkið og bragðbætið
eftir þörfum.
Hitið pönnu, setjið gu-
anciale-teningana á hana
og steikið í fáeinar mín-
útur, þar til fitan er byrj-
uð að bráðna. Setjið
laukinn á pönnuna, steik-
ið í 4-5 mínútur í viðbót
við meðalhita og hrærið
oft á meðan. Takið þetta
svo af pönnunni með ga-
taspaða, hækkið hitann,
bætið við svolítilli olíu
(og/eða smjöri), kryddið
hörpuskelina með pipar
og salti, setjið hana á vel
heita pönnuna og steikið
í svona 3 mínútur; hrær-
ið oft í á meðan.
Hellið baunamaukinu
á disk, dreifið hörpuskel-
fiskinum yfir, stráið gu-
anciale og lauk þar ofan
á og dreifið að lokum
fráteknu baununum og
örþunnt skornum sneið-
um radísusneiðum þar
yfir.
Hörpuskel á
grænbaunamauki
19.4. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
Töfrar eldamennskunnar
byrja með Eirvík
Eldhúsið er ekki bara
herbergi, heldur upplifun
Við hjá Eirvík trúum því að eldhúsið sé hjarta heimilisins.
Innanhússarkítektar og sérfræðingar í heimilistækjum
keppast við að hanna hágæða eldhús sem standast
tímans tönn, með virkni, gæði og sveigjanleika að
leiðarljósi. Eldhúsið er fjárfesting til framtíðar
– tryggðu þér raunveruleg gæði á hagstæðu verði.
Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is.
Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15