Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.04.2020, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.4. 2020
LÍFSSTÍLL
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Ég átti hálfa sæta kartöflu og fros-
in granateplafræ og afgang af
frosnum edamamebaunum í
poka, og úr þessu varð ágætis
veganréttur. Skammturinn dugar
vel fyrir tvo.
200 g sæt kartafla, flysjuð og skorin í
litla teninga
4 msk. ólífuolía
salt
80 g venjulegt kínóa
80 g rautt kínóa (eða meira
venjulegt)
1 tsk. grænmetiskraftur
100 g edamamebaunir
50 g granateplafræ, frosin eða úr
fersku granatepli
mínútur. Setjið edamame-
baunirnar út í þegar 3 mínútur
eru eftir. Hellið þessu svo í sigti og
hvolfið í skál. Setjið granat-
eplafræin (taktu 1-2 msk frá) og
rauðlaukinn út í. Hellið sæt-
kartöfluteningunum yfir þegar
þeir eru tilbúnir, ásamt olíunni úr
forminu, og blandið vel.
Hristið salatsósu úr 3 msk af
ólífuolíu í viðbót, sítrónusafa, bal-
samediki, salti og grófmöluðum
pipar, hellið yfir og blandið. Stráið
að síðustu fráteknu granat-
eplafræjunum yfir og bætið við
timjani ef það er til í eldhúsglugg-
anum.
¼ rauðlaukur, saxaður smátt
safi úr ½ sítrónu
1 msk. balsamedik
nýmalaður pipar
Setjið sætkartöfluteningana í lítið
form með 1 matskeið af ólífuolíu
og dálitlu salti og bakið í svona 25
mínútur við 200 °C, eða þar til
teningarnir eru meyrir og aðeins
farnir að taka lit.
Setjið á meðan allt kínóað í fín-
riðið sigti og látið buna á það kalt
vatn úr krananum í 1-2 mínútur.
Setjið það svo í pott með um hálf-
um lítra af vatni og 1 tsk. af græn-
metiskrafti og sjóðið í um í 15
Kínóasalat með sætum kartöflum
Hér sótti ég hráefni í kornmetis-
skúffuna og baunadósaskúffuna og
kláraði svo smávegis afganga sem
enn voru til í ísskápnum. Og úr
þessu varð bara hinn besti matur
og alveg hreint afskaplega einfald-
ur. Ég nota töluvert perlubyggið
frá Móður Jörð í Vallanesi, finnst
það bæði bragðbetra en venjulegt
bygg og svo er það miklum mun
fljótsoðnara. Ég sýð það yfirleitt í
hrísgrjónapottinum mínum.
100 ml perlubygg
½ dós kjúklingabaunir
lítil lófafylli af pekanhnetum
nokkrar döðlur, steinhreinsaðar
ananas, fetaostur eða annað sem
kann að vera til
3 msk. ólífuolía
safi úr ½ sítrónu
pipar og salt
Sjóðið perlubyggið þar til það er
meyrt (ætti að taka um 15 mín-
útur). Hellið því í skál, hrærið í því
og látið það kólna ögn. Hellið leg-
inum af kjúklingabaununum og
setjið þær út í ásamt grófmuldum
pekanhnetum og blandið saman.
Skerið döðlurnar í bita. Þetta er
út af fyrir sig nóg en hér tíndi ég
saman eitt og annað sem var al-
veg að klárast og kannski komið á
síðasta snúning eins og enda af
ananasávexti, síðasta smábitann
af fetaosti og þrjú eða fjögur basil-
blöð sem voru eftir. Skerið þetta
niður eða myljið og blandið sam-
an við. (Ef fetaostinum er sleppt
er þetta vegan.)
Hristið saman í glasi ólífuolíu,
sítrónusafa, nýmalaðan svartan
pipar og salt, hellið þessu yfir og
blandið vel saman.
Bygg- og baunasalat með
döðlum og hnetum
Ég fann í búrskápnum nokkrar dós-
ir af eðalsardínum. Ég notaði þær í
eins konar pasta puttanesca, en
þar eiga að vera ansjósur, sem gefa
allt annað bragð. En þetta var
ágætt líka.
75-100 g linguini eða spaghetti
salt
2 hvítlauksgeirar
1 msk. ólífuolía
smáklípa af chiliflögum
½ dós kirsuberjatómatar
1 dós sardínur í tómatsósu
10 svartar ólífur, steinlausar
2 tsk. kapers
örlítið timjan eða steinselja
Sjóðið pastað í saltvatni. Saxið
hvítlaukinn smátt, hitið ólífuolíuna
á pönnu og látið hann krauma í 1-2
mínútur, ásamt chiliflögum.
Setjið svo tómatana á pönnuna
(það má líka nota saxaða tómata)
og síðan allt innihaldið úr sardínu-
dósinni, hrærið í og kremjið sard-
ínurnar og tómatana svolítið í
sundur. Látið þetta malla í örfáar
mínútur við vægan hita.
Skerið ólífurnar í bita og hrærið
þeim saman við ásamt kapers. Tak-
ið svolítið af pastasoði og hrærið
saman við sósuna til að þynna hana
og látið malla í 2-3 mínútur. Bland-
ið pastanu vel saman við sósuna.
Stráið síðustu svolitlu söxuðu timj-
ani, eða steinselju.
Linguini með sardínum