Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.04.2020, Page 29
ár, nánast upp á dag, sem ég hefði
aldrei trúað í upphafi þessarar veg-
ferðar. En ég er gríðarlega ánægð-
ur með útkomuna og held að ég geti
sagt að margt þarna eigi eftir að
vekja athygli.“
Farið inn á nýjar brautir
– Hvernig þá?
„Vegna þess að farið er með við-
mælendunum inn á nýjar brautir.
Ég á það til að liggja yfir hlutunum
og vinna mikla heimavinnu. Það
skilar sér í þessum þáttum. Ég kafa
djúpt. Þegar ég er að vinna að verk-
efnum kemst ekkert annað að; það
er bæði minn helsti kostur og galli.
Ég geri mér grein fyrir því.“
Hann nefnir viðmælandann í
fyrsta þættinum sem dæmi, knatt-
spyrnuþjálfarann Elísabetu Gunn-
arsdóttur sem flutti til Svíþjóðar
eftir stormasaman feril hér heima
og er nú að hefja sitt 13. tímabil hjá
Kristianstad í Svíþjóð. „Það eitt og
sér er einstakt afrek. Það eru bara
Sir Alex Ferguson og örfáir aðrir
sem hafa enst svo lengi hjá sama
liðinu. Elísabet hefur gengið gegn-
um margt og opnar sig um ýmislegt
í þættinum sem á eftir að sæta tíð-
indum.“
Ólympíufarinn og Akurnesing-
urinn Ingi Þór Jónsson verður við-
mælandi Gunnlaugs í þættinum í
næstu viku en hann „fór inn í skáp-
inn sem íþróttamaður þegar hann
kom út úr honum í einkalífinu,“ eins
og Gunnlaugur orðar það. „Mjög
áhugaverð saga sem aldrei hefur
heyrst opinberlega og vil ég biðja
fólk að hafa vasaklútana klára.“
Stelpurnar í Evrópumeistaraliði
Gerplu frá 2010 verða í þriðja þætt-
inum og lýsa mögnuðum samstarfs-
anda sem skilaði þeim ítrekað á pall
en kostaði líka vináttu og fórnir.
Sveitastrákurinn Tryggvi Snær
Hlinason, sem vissi ekki hvað körfu-
bolti var fyrir nokkrum árum en er
nú atvinnumaður í greininni, verður
í fjórða þættinum. „Fjörutíu mán-
uðum eftir að hann mætti á sína
fyrstu körfuboltaæfingu var hann
genginn í raðir Spánarmeistara Val-
encia. Maður heyrir ekki svona sög-
ur.“
Í lokaþættinum verður Guð-
mundur Þ. Guðmundsson hand-
boltaþjálfari í öndvegi en hann setti
sér háleit markmið strax í bernsku
og sér þau nú eitt af öðru rætast.
„Við förum meðal annars yfir það
að Guðmundur var kallaður til sem
fimmta val þegar enginn vildi taka
við landsliðinu snemma árs 2008.
Hann vann þá hjá Kaupþingi og var
hættur að þjálfa en kom inn með
nýja nálgun sem skilaði silfri á Ól-
ympíuleikunum aðeins nokkrum
mánuðum síðar.“
Lagði mikið undir
Gunnlaugur segir upplifunina af
gerð þáttanna gríðarlega góða. „Ég
er búinn að vera með fjölmiðlablæti
síðan ég var unglingur og stefndi
alltaf að því að vinna við þá. Það tók
tíma en ég er mjög þakklátur fyrir
mín tækifæri.“
Þess má geta að hann hætti störf-
um sem þjálfari karlaliðs Þróttar í
knattspyrnu í fyrra til að sinna gerð
þáttanna af fullum þunga. „Ég fann
að þetta tvennt fór ekki saman.
Þannig að ég lagði mikið undir og
bíð spenntur eftir viðtökum.“
Svo skemmtilega vill til að aðrir
þættir sem Gunnlaugur gerði,
Poppkorn – sagan á bak við mynd-
bandið, eru einmitt í sýningu á
RÚV á föstudagskvöldum um þess-
ar mundir. „Það var sumarvinnan
mín í fyrra að gera þessa átta
stuttu þætti sem var mjög skemmti-
legt.“
Gunnlaugur starfar nú sem
íþróttastjóri Gróttu á Seltjarn-
arnesi. Ný verkefni fyrir sjónvarp
eru ekki á teikniborðinu en hann
útilokar ekkert í framtíðinni. „Ég
hef ástríðu fyrir fjölmiðlum og gæti
vel hugsað mér að vinna meira við
sjónvarp eða aðra miðla. Það yrði
þá væntanlega eitthvað heim-
ildatengt. Einhver saga. Við sjáum
hvað setur.“
Gunnlaugur Jónsson ásamt
körfuboltamanninum stæði-
lega, Tryggva Snæ Hlinasyni.
19.4. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
á heimasíðu Hreyfils:
hreyfill.is
eða í App Store
og Google Play
SÆKTU APPIÐ
Sæktu appið frítt á AppStore
eða Google Play
Hreyfils appið
Pantaðu leigubíl á einfaldan
og þægilegan hátt
Þú pantar bíl1
3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn.
2 fylgist með bílnum í appinu
VON Gamli Journey-smellurinn
Don’t Stop Believin’ er orðinn að
baráttusöng í glímunni við kórónu-
veiruna á tveimur spítölum í
Bandaríkjunum, Henry Ford-
spítalanum í Detroit og New York-
Presbyterian-spítalanum í Queens.
„Lagið er tákn um von og minnir
sjúklinga á að gefast aldrei upp,
auk þess að hvetja örþreytta en
baráttuglaða starfsmenn spítalans
til dáða,“ segir Veronica Hall, for-
stjóri Henry Ford-spítalans, við
blaðið The Detroit News.
Missið ekki trúna!
Steve Perry syngur lagið vinsæla.
AFP
BÓKSALA 8.-14. APRÍL
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Í vondum félagsskap Viveca Sten
2 Þess vegna sofum við Matthew Walker
3 Tengdadóttirin Guðrún frá Lundi
4 Á fjarlægri strönd Jenny Colgan
5 Marsfjólurnar Philip Kerr
6 Dimmuborgir Óttar Norðfjörð
7 Þögla stúlkan Hjort & Rosenfeldt
8 Eftir endalokin Clare Mackintosh
9 Múmínsnáðinn og vorundrið Tove Jansson
10 Grikkur Domenico Starnone
1 Kokkáll Dóri DNA
2 Hið heilaga orð Sigríður Hagalín Björnsdóttir
3 Korngult hár grá augu Sjón
4 Tregasteinn Arnaldur Indriðason
5 Hvítidauði Ragnar Jónasson
6 Innflytjandinn Ólafur Jóhann Ólafsson
7 Kópavogskrónika Kamilla Einarsdóttir
8 Ína Skúli Thoroddsen
9 Aðferðir til að lifa af Guðrún Eva Mínervudóttir
10 Við erum ekki morðingjar Dagur Hjartarson
Allar bækur
Skáldverk og hljóðbækur
Mér hefur alltaf þótt bækur
heillandi fyrirbæri enda ólst ég
upp við mikinn bókalestur og er
ég foreldrum mínum afskaplega
þakklát fyrir það. Á tímabili kaus
ég þó frekar að láta lesa bækurnar
fyrir mig því mér fannst ég lesa
hægt, var fljót að
missa athygli og gef-
ast upp. Svo rann
upp sá tími að það
hefði þótt skrýtið ef
pabbi væri enn að
lesa fyrir mig svo ég
varð að taka málin í
mínar hendur. Í
seinni tíð hef ég kunnað betur að
meta lesturinn því með honum
opnast nýr heimur.
Ég heillast oft af hugmyndinni
um ákveðnar bækur svo ég get
ekki setið á mér og
byrja strax að lesa
þær, jafnvel þó ég
hafi tvær aðrar í tak-
inu. Þetta verður oft
til þess að bækurnar
hrúgast upp á nátt-
borðinu og sumar
enda þar í ansi lang-
an tíma. Mér finnst þó gott að
blanda saman lestri fagurbók-
mennta, glæpasagna og fræði-
bóka.
Bækur sem fjalla um raunir Ís-
lendinga hér á árum áður höfða
sterkt til mín, sérstaklega þar sem
sterkar kvenpersónur koma við
sögu. Þar ber helst að nefna Karit-
as án titils eftir Kristínu Marju
Baldursdóttur og Náðarstund eft-
ir Hannah Kent. Þessa dagana er
ég svo að lesa Híbýli vindanna eftir
Böðvar Guðmundsson.
Sú bók sem hefur veitt mér
hvað mestan innblástur er Creati-
vity, inc. eftir Ed Catmull, stofn-
anda Pixar Animation Studios.
Bróðir minn mælti með þeirri bók
og sjálf get ég mælt með henni
fyrir alla en þar fer Catmull í gegn-
um allt ferlið og
uppljóstrar leynd-
armálunum á bak
við árangur Pixar.
Margir virkilega
góðir punktar
varðandi stjórnun,
mistök, sköp-
unarferli og sam-
skipti svo eitthvað
sé nefnt.
Síðasta bók sem
ég las var Kennarinn
sem hvarf eftir
Bergrúnu Írisi sem
ég las fyrir nokkra
nemendur mína.
Við gátum varla lagt hana frá okk-
ur. Ég var sérstaklega ánægð með
hvernig Bergrúnu tekst að útrýma
ákveðnum staðalímyndum á mjög
snyrtilegan hátt.
Sumarið er tími bókalesturs og
er ég strax farin að
sjá það í hillingum.
Það er fátt betra en
að sitja í sólinni
með góða bók. Sú
bók sem stóð upp
úr síðasta sumar
var Call me by your
name eftir André
Aciman og hlakka ég til að sjá
hvaða bækur rata í hendurnar á
mér þetta sumar.
MÁLFRÍÐUR BJARNADÓTTIR ER AÐ LESA
Heillast oft af hugmynd-
inni um ákveðnar bækur
Málfríður
Bjarnadóttir
er kennari í
Helgafells-
skóla.