Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.04.2020, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 19. APRÍL 2020
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
DUCA model 2959
L 215 cm Áklæði ct. 83 Verð 395.000,-
L 215 cm Leður ct. 25 Verð 585.000,-
ESTRO model 3042
L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 269.000,-
L 198 cm Leður ct. 15 Verð 385.000,-
GOLF model 2945
L 216 cm Leður ct. 10 Verð 379.000,-
L 176 cm Leður ct. 10 Verð 339.000,-
KIPLING model 3088
L 214 cm Áklæði ct. 70 Verð 345.000,-
L 180cm Áklæði ct. 70 Verð 325.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
JEREMY model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 495.000,-
L 202 cm Leður ct. 30 Verð 669.000,-
Tónlistarmenn láta ekki sitt eftir liggja á tímum kórónu-
veirufaraldursins. Þannig efndi Tony Iommi, gítarleikari
málmbandsins Black Sabbath, á dögunum til uppboðs á
munum úr safni sínu og safnaði um þremur og hálfri
milljón króna sem renna óskiptar til heilbrigðis-
þjónustunnar í Bretlandi sem stendur nú í ströngu. Með-
al þess sem seldist á uppboðinu var einn af gíturum
Iommis, sem þekktur er sem upphafsmaður málmriffs-
ins, en hann er sérhannaður fyrir örvhenta. Iommi mun
hafa fengið hugmyndina að uppboðinu meðan hann tók
til heima hjá sér í sjálfskipaðri sóttkví.
Vefsíða Breska ríkissjónvarpsins, BBC, hefur eftir
Iommi að þetta séu erfiðir tímar en heilbrigðisþjónustan
hafi staðið sig frábærlega vel í glímunni við veiruna.
Hlaut gítarleikarinn að vonum kærar þakkir fyrir fram-
lag sitt. Iommi er orðinn 72 ára og hefur sjálfur ekki far-
ið varhluta af veikindum, en hann hefur glímt við
krabbamein hin síðari misseri.
Gítarleikarinn
gamalreyndi
Tony Iommi.
AFP
Safnaði fé handa sjúkum
Tony Iommi, gítarleikari málmbandsins goðsagnakennda Black Sabbath,
safnaði peningum til styrktar heilbrigðisþjónustunni í Bretlandi.
„Tveir íslenskir piltar, báðir
fimmtán ára, hafa orðið landi
sínu til sóma í útlöndum,“ stóð í
Morgunblaðinu 19. apríl 1950.
„Annar þeirra, Friðrik Ólafs-
son, varð fjórði í röðinni á ung-
linga skákmótinu í Birmingham,
sem lauk síðastliðinn laugardag.
Þar var aldurstakmark kepp-
enda 20 ár. Hinn, Pjetur Krist-
jánsson, varð annar maður í 100
metra sundi, frjálsri aðferð, er
hann síðastliðinn sunnudag tók
þátt í norrænu unglingasund-
móti í Kaupmannahöfn. Þar var
aldurstakmarkið 18 ár. Þeir
Pjetur og Friðrik koma heim-
leiðis með Gullfaxa í kvöld, en
hvorugur hafði áður farið út fyr-
ir landsteinana. Er því ekki of-
sagt, að fyrsta för þeirra hafi
orðið happadrjúg.“
„Hann var um níu ára að aldri,
þegar hann byrjaði að tefla, og
það var faðir hans, sem kenndi
honum mannganginn,“ sagði
um Friðrik, sem var á tólfta ári
„þegar hann fór að segja föður
sínum til syndanna yfir skák-
borðinu og taka þátt í keppn-
um“. Um Pjetur sagði: „Hann
byrjaði fljótt að synda, en tók í
fyrra þátt í fyrstu keppni sinni.
Þá keppti hann með Ármanni.
Síðan hefur hann stórlega bætt
sundtíma sinn í hverri keppni.“
GAMLA FRÉTTIN
Landi sínu
til sóma
Friðrik Ólafsson stórmeistari í skák ásamt Bent Larsen árið 1956.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Frú Shauna
kennari í Bandaríkjunum
Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra
Kristín Þóra Haraldsdóttir
leikkona